Morgunblaðið - 09.06.1988, Side 30

Morgunblaðið - 09.06.1988, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988 FORSETAKOSNINGAR í B AND ARÍK JUNUM Undirbúningur fyrir flokksþingin að hefjast - Dukakis öruggur með útnefningu Washington, frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. LÍTIL spenna rikti i forkosningum demókrata í Kalifomíu á þriðjudag- inn þar sem fullvist var talið að Michael Dukakis myndi tryggja sér útnefningu flokks síns, með því að vinna nógu marga fulltrúa á flokks- þingið i júii. Sú varð líka raunin. Áður var talið að niðurstaðan í Kali- fomiu gœti ráðið úrslitum um hver yrði frambjóðandi flokksins i for- setakosningunum i nóvember. Kalifomía er fjðlmennasta ríki Banda- ríkjanna og geta þvi atkvæði þaðan riðið baggamuninn verði kosning- arnar i haust mjög jafnar. Kalifomía hefur verið talin höf- uðvígi repúblikana og enginn demó- krataframbjóðandi hefur náð meiri- hluta atkvæða þar siðan 1962. Líklegt er því að báðir forsetafram- bjóðendur leggi mikið upp úr því að ná vinsældum í Kalifomíu. Jesse Jackson lagði mikið fé í kosningabaráttu sfna i Kalifomíu, eða þrisvar sinnum meira en Dukak- is gerði. Árangurinn varð þó ekki eftir þvi. Hann telur sig þó koma sterklega til greina sem varaforseta- efhi Dukakis á grundvelli þeirra at- kvæða sem hann færir flokknum. Nokkrir sérfræðingar telja að Jack- son geti orðið dragbítur á fylgi flokksins verði hann varaforsetaefni. Viðburðarík flokksþing Flokksþing demókrata verður i borginni Atlanta 18. - 21. júlí. Full- trúar á þinginu verða 4161. Öllu færri fulltrúar, eða 2271 sækja flokksþing repúblikana sem haldið verður í New Orleans dagana 15. - 18. ágúst. Skipulag bandarískra stjómmála- flokka er ólíkt því sem tíðkast í öðr- um lýðræðisríkjum. Umrædd flokks- þing em þau einu sem haldin eru. Þeirra hlutverk er að velja forseta- frambjóðanda og varaforsetaefni auk þess sem þau þurfa að samþykkja stefnuskrá flokksins en hana mun forsetaframbjóðandinn hafa að Ieið- arljósi. Lítill munur er á flokkunum tveimur og minni en sjá má á ýmsum einstaklingum sem þó telja sig til sama flokks. Sem dæmi má nefna að Reagan Bandaríkjaforseti taldi sig lengi til demókrataflokksins. Ekkert tiltökumál þykir heldur að skipta um flokk. Forsetaframbjóðendumir deila nú um hvor þeirra sé meiri íhalds- maður. Dukakis nýtur þess að Jack- son var mun fijálslyndari í skoðunum en hann en Bush ætlar sér að sýna fram á að Dukakis sé alls ekki eins íhaldsamur og hann þykist vera, heldur mjög öjálslyndur. En þótt svona lítill stefnumunur sé á flokkun- um þá er baráttan þeirra á milli hörð og mikill viðbúnaður í kring um flokksþingin. Fánalitir Banda- ríkjanna, rautt, blátt og hvítt, skreyta samkundumar og hvor flokkur um sig hefur sitt tákn. Demó- kratamir hafa asna og repúblikanar fíl. Dagskrá þinganna Á fyrsta degi koma þingfulltrúar saman í einum sal og fylkja sér und- ir merki síns ríkis. Margir klæðast fánalitunum. Áhorfendur sitja á sér- stökum pöllum og sjónvarpsstöðv- amar hafa mikinri viðbúnað. Þá stígur ræðumaður í pontu en hans hlutverk er að hvelja flokksmenn til dáða og fordæma athafnir andstöðu- flokksins. Áhersla er lögð á að efla samheldni og baráttuhug flokks- manna fram að kosningum. Kjörbréfanefnd tekur til starfa á öðrum degi þingsins. Hún gengur úr skugga um að fulltrúar séu rétt kjömir og sker úr öllum deilumálum. Oft hafa orðið harðar deilur um hvemig atkvæði ríkja hafa fallið. Þegar Igorbréfanefnd hefur lokið störfum snúa þingfulltrúar sér að því að semja stefnuskrá flokksins. Vinna við hana hefur þó í raun hafíst nokkr- um mánuðum fyrir þingið. Átök eru oft um ákveðin mál og orðalag stefnuskrárinnar. Samþykki meiri- hluta þingfulltrúa þarf til að stefnu- skráin öðlist gildi. Forsetaframbjóðandinn er ekki valinn fyrr en á þriðja degi þingsins. Hann verður að njóta stuðnings meirihluta þingfulltrúa. Við kjör hans DEMÓKRATAR REPÚBLIKANAR / /Duk- (akis ÉjH jjlgk Sm ha ^ÓháðiT/ — Aörir Frambjófiandi Fulltrúar Dukakis 2.139 Jackson 1.065 Gore 304 ÉlöHitl 142 Aörir 7 óháöir 351 Til útnefningar þarf: 2.081 Þegar eru kjðrnir: 4.009 Eftir á aö kjósa: 152 Demókratareigaeftiraövelja149 landsf undarf ulitrúa f þeim prófkjör- um og f lokksþingum, sem eftir eru. Landsfundur demókrata verfiur haldinn dagana 18.-21. júll I Atlanta I Georglu. er viðhaft nafnakall. Flutt er lofræða um forsetaffambjóðandann án þess að nafn hans sé nefnt fyrr en í lok hennar. Þegar það er gert bijótast út mikil fagnaðarlæti sem þó era fyrst og fremst sviðsett vegna sjón- varpsmyndavélanna en milljónir manna fylgjast með útnefningunni í sjónvarpi. Þegar látunum linnir greiðir hvert ríki fyrir sig atkvæði. Atkvæði þess geta fallið öll á einn frambjóðanda en þeim má líka skipta á milli þeirra. Það er svo ekki fyrr en endanlega er ljóst hver hlaut meirihluta atkvæða að forsetafram- bjóðandi flokksins stígur fram í sviðsljósið. Á síðasta degi þingsins er varafor- Frambjóöandi Fulltrúar Bush 1.717 Roborlson 47 Aðrir 36 Óháöir 249 Til útnefningar þarf: 1.139 Þegar eru kjörnir: 2.049 Éftir á a6 kjósa: 228 Repúblikanareigaeftiraóvelja222 landsf undarfulltrúa f þeim prófkjör- um og flokksþingum, sem eftireru. Landsfundur repúblikana verfiur haldinn 15.-18. ágúsl I New Orleans I Louislana. MorgunblaCsö / AM setaefnið valið. Vanda þarf val hans þar sem hann gegnir mikilsverðu hlutverki í kosningabaráttunni. Hann sameinar kjósendur frá öllum fylkj- um og ber smyrsl á þau sár sem mynduðust í forkosningunum. Vara- forseti gæti þurft að taka við emb- ætti forseta, eins og Lyndon Johnson og Gerald Ford gerðu á sínum tíma. Val hans er í raun í höndum forseta- frambjóðandans og kjör hans á flokksþinginu er því eingöngu forms- atriði. Flokksþingunum lýkur með ræðu forsetaframbjóðanda og þeir sem biðu lægri hlut stiga fram og votta með því frambjóðandanum hollustu sína. Forseti E1 Salvador liggur fyrir dauðanum: Allt verður gert til að viðhalda lýðræði - segir Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta Washington, Reuter. MARLIN Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði í gær að Bandaríkjastjórn hygðist gera allt sem hún gæti til að viðhalda stöðugleika og lýðræði í E1 Salvador eftir að læknar höfðu komist að þeirri niður- stöðu að forseti landsins, Jose Napoleon Duarte, ætti skammt eftir ólifað vegna krabbameins. Benjamin Interiano, einkalækn- ir Duartes, sagði að skurðlæknar hefðu numið brott krabbameins- æxli úr maga forsetans í gær en ógerlegt væri að ná æxli úr lifr- inni. „Æxlið í liffinni heldur áfram að vaxa og það verður hans bana- mein,“ sagði læknirinn. „Það er erfítt að spá, en að mínu áliti lifír hann ekki lengur en nokkra mán- uði.“ Eftir að Duarte var kjörinn for- seti árið 1984 hefur ríkt nokkur stöðugleiki í E1 Salvador en harka hefur færst í stríðið gegn vinstri- sinnuðum skæruliðum og fylgi hægrisinnaðra öfgamanna hefur aukist svo mikið að líkur eru á að þeir beri sigur úr býtum í næstu forsetakosningum. Marlin Fitz- water, talsmaður Bandaríkjafor- seta, sagði að Bandaríkjastjóm myndi reyna sitt besta til að for- setaskipti gengju vel fyrir sig. Ástralía: Bam kafnaði er móðirin sofnaði við brjóstagjöf Adelaide, Ástraliu. Reuter. TVEGGJA daga gamalt barn dó_á spítala í bænum Adelaide I Ástralíu eftir að hafa orðið undir móður sinni, sem sofn- aði, meðan hún var að gefa barninu bijóst, að því er fram kom i úrskurði dánardóm- stjóra á þriðjudag. Dánardómstjórinn, Les Gor- don, sagði, að móðirin hefði ver- ið á sterkri lyfjagjöf, sem olli því, að hún var í hálfgerðu móki. „Hún gerði sér enga grein fyrir, hvað gerðist," sagði hann. Bamið var fært móðurinni, þar sem hún lá í ríimi sínu, eftir miðnætti 9. október í haust og fannst kafnað 90 mínútum síðar. Gordon gagmýndi spítalann fyr- ir, að ekki skyldi betur fylgst með öryggi móður og bams. Hann útilokaði ekki að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti heim- sækti Duarte þótt hann segði að slíkt hefði ekki verið ákveðið. Reuter Kínverskir lögreglumenn gengu fylktu liði um Tiananmen-torg í hjarta Peking-borgar og röðuðu sér umhverfis torgið til að koma i veg fyrir mótmæli sem námsmenn höfðu fyrirhugað. Kína: Hundruð lögreglumanna hindra mótmæli námsmanna Peking, Hong Kong, Reuter. HUNDRUÐ lögreglumanna lokuðu Tiananmen-torgi í Peking í gær til að koma í veg fyrir að námsmenn gætu hópast saman til að krefjast lýðræðis og málfrelsis. Ferðamenn sögðu í gær að kinver- skir lögreglumenn hefðu beitt táragasi til að bæla niður mótmæli nokkurra tibetskra munka í höfuðborg Tíbets, Lhasa, fyrr í þessum mánuði. Námsmenn við Peking-háskóla höfðu fyrrirhugað að efna til óleyfí- legrar kröfugöngu að Tiananmen- torgi í miðbæ Peking. Lögreglu- menn stilltu sér hins vegar upp umhverfís torgið þannig að enginn komst inn á það. Fáni kínverska kommúnistaflokksins blakti yfír mannlausu torginu, þar sem yfír- leitt má sjá þúsundir Kínvetja á gangi á daginn. Tugum lögreglubíla var lagt í grenndinni og lögreglumenn fylgd- ust með gangandi vegfarendum í nágrenninu. Um tuttugu náms- menn settust þögulir niður á gang- stétt nálægt torginu meðan aðrir söfnuðust í hópa og ræddu stefnu kínversku stjómarinnar. Lögreglu- menn komu til þeirra og dreifðu þeini, og haft er eftir Vestur- landabúa að lögreglan hafí numið einn námsmannanna á brott. „Viðbúnaður lögreglunnar var of mikill fyrir okkur," sagði einn námsmannanna. „Við höfum ekk- ert málfrelsi. Kommúnistaflokkur- inn stjómar öllum blöðunum," sagði annar námsmaður við um tuttugu vegfarendur, sem kinkuðu kolli til samþykkis. Námsmennimir sögðu að þeir hefðu stutt umbætumar sem Deng Xiaoping hóf árið 1978, en þær miðuðu að því að gera pólitíska umræðu opnari og innleiða vest- rænar aðferðir til að blása nýju lífí í efnahag Kínveija. Margir náms- mannanna hafa hins vegar orðið fyrir vonbrigðum, telja að breyt- ingamar gangi of hægt og að of mikil spilling sé meðal mennta- manna. Vestrænir ferðamenn sem voru í höfuðborg Tíbets, Lhasa, sögðu í gær að hundruð manna hefðu safnast saman við Barkhor-torgið í Lhasa 1. júní þegar sjö eða átta tíbetskir munkar hefðu efnt til mótmæla þar. Munkamar hefðu hrópað á tíbetsku: „Tíbet fyrir Tíbeta" og „Við viljum trúfrelsi og halda okkar menningu." „Öryggis- sveitir komu til að handtaka munk- ana og beittu táragasi," sagði ann- ar ferðamaðurinn. „Fólkið sem safnast hafði saman þama fór að taka upp gijót og var til alls iíklegt. Lögreglunni tókst þó að nema munkana á brott áður en til frek- ari átaka kom,“ sagði hann meðal annars.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.