Morgunblaðið - 09.06.1988, Side 67
ssei iMín. .e auoAdUTMMn .aiGAvia/uoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
dd
67
KULUVARP
Pétur
varpaði
yfir20
metra
Kúlan flaug
20,03 metra á
vormóti HSK
Pétur Guðmundsson, kúluvarp-
ari úr HSK, varpaði 20,03
metra á Vormóti HSK sem fram
fór á Selfossi í gærkvöidi. Þar með
náði hann Ólympíulagmarkinu, sem
er 20,00 metrar. Pétur verður að
varpa aftur yfir 20 metra til að
öðlast þátttökurétt á Ólympíuleik-
unum í Seoul.
Kasstsería Péturs í gær var eins
og hér segin 18,25, 19,37, 19,32,
19,62, 20,03 og_ 19,53 metra.
Pétur er þriðji íslendingnrinn sem
nær að varpa kúlunni yfir 20 metra..
Áður hafa þeir Hreinn Halldórsson
og Óskar Jakobsson náð þeim ár-
angri.
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD (SL-DEILDIN)
Morgunblaðiö/Júlíus Sigurjónsson
Quómundur Stelnsson gerir hér mark Pram gegn ÍBK. Guðmundur er markahæstur í deildinni með fímm mörk.
Framarar máttu sætta
sig við jaf ntefli í Keflavík
FRAMARAR máttu sœtta sig
við jafntefli gegn ÍBK í Keflavík
í gærkvöldi og töpuðu þar með
sínum fyrstu stigum í mótinu.
Bæði liðin léku fast og hvergi
var gefið eftir. Liðin skoruðu
sitt hvort markið ífyrri hálfleik,
Framarar urðu fyrri til að skora,
en Keflvíkingum sem léku sinn
besta leik í sumar náðu að
jafna metin skömmu síðar.
Keflvíkingar, sem höfðu tapað
tveim leikjum í röð, fóru geyst
af stað og áttu Framarar í vök að
veijast fyrstu mínútumar. En síðan
fóru Framarar að
koma meira inn í
leikinn og þeir náðu
forystunni með
óvæntu marki Guð-
Bjöm
Blöndal
skrifar
frá Keftavik
m
Sigurður Björgvinsson, Einar
Ásbjöm Ölafsson, Jóhann
Magnússon ÍBK. Viðar Þor-
kelsson, Guðmundur Steins-
son, Ormarr Örlygsson og Pét-
ur Amþórsson Fram.
Ikvöld
KR og KA leika f 1. deild íslands-
mótsins í knattspymu á KR-velli f
kvöld.
tA og Valur leika f 1. deild kvenna
á Skipaskaga.
f 2. deild karla verða heil umferð. Á
Selfossi leika heimamenn við Pylki,
ÍR og Vlðir leika á Laugardalsvelli,
UBK og KS í Kópavogi, Tindastóll
og Þróttur á Sauðárkróki og FH og
ÍBV á Kaplakrikavelli.
í A-riðli 3. deildar ieika Grótta og
Leiknir á Gróttuvelli, UMFN og
' Grindavík í Njarðvík, Reynir og ÍK
f Sandgerði og Afturelding og
Vfkveiji á Tungubakka. f B-riðli leika
Reynir og Huginn á Árskógsstrand-
arvelli og Sindri og Þróttur N. •
AUir leikimir heflast kl. 20.00.
Ooff
öldungamót á vegum LEK verður
haldið f dag á Hvaleyrarvelli f Hafn-
arfirði. LeUcnar verða 18 holur með
og án forgjafar. Rétt tU þátttöku
hafa aUir karla 55 ára og eldri og
konur 50 ára og eldri. Ræst verður
út frá kl. 16.00-18.00.
mundar Steinssonar sem var réttur
maður á réttum stað eftir fyrirgjöf.
Lítil hætta virtist yfirvofandi þegar
boltinn var gefinn fyrir mark IBK,
en vömin sofnaði andartak á verðin-
um og það nýtti Guðmundur sér
vel og potaði boltanum yfír marklín-
una.
Markið kom eins og köld vatnsgusa
framan í Keflvíkinga og stuðnings-
menn þeirra, en þeir fengu ástæðu
til að fagna 9 mínútum síðar þegar
Grétar Einarsson fyrrverandi Víðis-
maður skoraði fallegt mark af um
30 metra færi. Upphafsmaðurinn
að markinu var Einar Ásbjöm Ól-
afsson, hann átti fallega sendingu
út til hægri á Grétar sem spymti
viðstöðulaust í fjærhomið alveg út
við stöng og þrátt fyrir góða til-
burði tókst Birki Kristinssyni mark-
verði Fram ekki að veija.
Fleiri urðu mörkin ekki, Framarar
skoruðu tvívegis á fyrstu mínútun-
um í síðari hálfleik en bæði mörkin
vom dæmd af. í síðari hálfleik fór
leikurinn að mestu fram á miðjunni
og lítið um góð færi. Ragnar Mar-
geirsson komst þó einu sinni í gegn
en skoti hans var bjargað í hom
og nokkrum mínútum síðar var
Pétur Ormslev í góðu færi við mark
ÍBK, en Þorsteinn Bjamason náði
að verja.
Frank Upton þjálfari ÍBK gerði
nokkrar breytingar á liði sínu frá
síðast heimaleik. Nú lék Sigurður
Björgvinsson sem aftasti maður í
v.öm og Einar Ásbjöm Ólafsson tók
við stöðu Sigurðar á miðjunni. Þessi
breyting gafst vel gegn Fram, vöm
ÍBK var nú allt önnur og betri en
í síðustu leikjum og á miðjunni var
Einar Ásbjöm eljusamur og
sívinnandi. Jóhann Magnússon
gætti Péturs Ormslev einstaklega
vel og Gestur Gylfason er leikmaður
sem vex með hveijum leik.
Framarar em með gott lið, á því
er enginn vafí og eftir atvikum
geta Keflvíkingar verið ánægðir
með jafnteflið. Besti maður Fram
að þessu sinni var Viðar Þorkels-
son, geysilega sterkur vamarmaður
sem ekki hikar við að taka þátt í
sóknarleiknum. Guðmundur Steins-
son sýndi oft hversu hættulegur
hann getur verið og náði stundum
að leika vamarmenn ÍBK grátt.
„Ég er hundsvekktur að ná ekki
nema einu stigi, annað markið sem
dæmt var af okkur var hrein fjar-
stæða," sagði Ásgeir Elíasson þjálf-
ari Fram.
IBK-Fram
1 : 1
Keflavíkurvöllur, íslandsmótið 1. deild,
miðvikudaginn 8. júní 1988.
Mark ÍBK: Grétar Einarsson (32.
mín.).
Mark Fram: Guðmundur Steinsson
(23. mín.).
Giilt spjald: Ingvar Guðmundsson ÍBK
(86. mín.).
Áhorfendur: 1050.
Dómari: Friójón Eðvarðsson 6.
Línuverðir: Olafur Lárusson og Gunn-
ar Jóhannsson.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason, Jóhann
Magnússon, Daníel Einarsson, Sigurð-
ur Bjöigvinsson, Grétar Einarsson,
Peter Farrell, Ingvar Guðmundsson,
Ragnar Margeirsson, Óli Þór Magnús-
son, Gestur Gylfason og Einar Ásbjöm
Ólafsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
8teinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson,
Viðar Þorkelsson, Ormar Örlygsson,
Pétur Amþóreson, Pétur Ormslev,
Steinn Guðjónsson, Kristinn R. Jóns-
son, Amljótur Davíðsson, og Guðmund-
ur Steinsson.
„Strákamir léku vel og ég er án-
ægður með úrslitin, þeir sýndu að
Framliðið með alla sína landsliðs-
menn er ekki ósigrandi og það er
mergur málsins," sagði Frank Up-
ton þjálfari ÍBK.
HANDKNATTLEIKUR
Tres de Mayo vill
fá Júlíus Jónasson
SPÁNSKA félagið Tres de
Mayo hefur mikinn áhuga á að
fá Júlíus Jónasson til liðs við
sig. Júlíus lék með íslands-
meisturum Vals í vetur, en þrjú
spænsk félög hafa lýst yfir
áhuga á að fá hann i sínar raðir.
Eins og Morgunblaðið hefur áður
sagt frá hafa tvö önnur lið sýnt
Júlíusi áhuga, Valencia og Gran-
holes. Tres de Mayo er hinsvegar
eina liðið sem hefur sett sig í sam-
band við Júlíus, en honum hefur
ekki verið boðinn formlegur samn-
ingur.
Tres de Mayo hefur góða reynslu
af íslendingum því þar vom áður
þeir Sigurður Gunnarsson og Einar
Þorvarðarson. Granholes er eitt
sterkasta félag Spánar og hefur
m.a. sigrað í Evrópukeppninni. Va-
lencia gekk hinsvegar illa síðasta
vetur, en nú ætla forráðamenn liðs-
ins að reyna að byggja upp sterkt
lið.
„Ég fór á fund með forráðamönnum
Tres de Mayo og við ræddum mál-
in, en ég hef ekkert ákveðið og
reyndar ekki fengið formlegt til-
boð,“ sagði Júlíus f samtali við
Morgunblaðið í gær. „Ég hef heyrt
• af hinum liðunum og veit að þau
hafa spurst fyrir um mig, en þau
hafa ekki haft samband við mig.
Ég veit hvemig landið liggur og
lýst vel á liðið. Það er mikill áhugi
hjá Mayo, en það er allt opið ennþá
og ég ákveð mig ekki strax, sagði
Julíus Jonasson."
SigmundurÓ.
Steinarsson
tók saman
Í20 ár
Guðmundur Steinsson skor-
aði sitt fímmta mark með
Fram í fjórum leikjum - f
Keflavík f gærkvöldi. Enginn
leikmaður hefur
byijað eins vel
og Guðmundur í
20 ár, eða síðan
Kári Arnason
skoraði sex mörk fyrir ÍBA í
Qórum fyrstu leikjum liðsins í
deildinni, 1968.
Þórólfur Beck hefur byijað best
ailra leikmanna. Hann skoraði
fimm mörk fyrir KR í fyrsta
leik vesturbæjarliðsins, 6-3,
gegn ÍBA 1961, en þá skoraði
Þórólfur sjö mörk í fyrstu Qórum
leikjum KR.
Þess má geta að Pétur Péturs-
son og Guðmundur Torfason
skoruðu aðeins tvö mörk fyrir
ÍA og Fram - í fyrstu fjórum
leikjum liðanna 1978 (Pétur) og
1986 (Guðmundur), þegar þeir
settu markametin - 19 mörk.
Guðmundur, sem á eftir að ieika
fjórtán leiki með Fram, á því
góða möuguleika á að slá
markametið.
■ Birkir Krist insson, mark-
vörður Fram, náði að halda
markinu hreinu í 399 mín. sam-
fellt í 1. deild. Grétar Einarsson
skoraði hjá Birki í gærkvöldi,
sem hafði ekki þurft að ná í
knöttinn f netið hjá sér síðan í
sautjándu umferð 1. deildar
1987, er Hlíðar Sæmundsson
setti mark hjá Birki, sem lék þá
í marki Skagamanna.
■ FRAMARAR hafa aðeins
einu sinni náð að vinna sigur í
Keflavík í ellefu ár. Það var í
fyrra, er þeir unnu, 2:0. Sjö sinn-
um hefur orðið jafíitefli hjá ÍBK
og Fram í Keflavík á þessum
árum.
■ SIGURJÓN Kristjánsson
var fyrsti Valsmaðurinn til að
skora mark í 448 mín. í 1. deild,
þegar hann skoraði á Húsavík.
Það var einmitt hann sem skor-
að mark Valsmanna fyrir 448
mín. - gegn KR í sautjándu
umferð 1987.
■ TRYGGVI Gunnarason,
sem skoraði tvö fyrstu mörk sín
fyrir Val f 1. deild, hefur alltaf
verið f sigurliði þegar hann skor-
ar mörk í deildinni. Hann skor-
aði fjögur mörk fyrir KA f fyrra
- í 1:0 sigri geg Vfði, 2:1 gegn
FH, 1:0 gegn Fram og 3:1 gegn
Völsungi.
■ VALSMENN unnu sinn
fyrsta leik gegn Völsungi.
fyrra lauk báðum leikjum Vals
og Völsungs með jaftitefli, 0:0.
■ KRISTJÁN Olgeirsson,
varð þriðji leikmaðurinn í 1.
deild til að fá að sjá rauða spjaid-
ið í deildinni í ár. Daníel Einars-
son og Pétur Pétursson höfðu
áður fengið að sjá rauða spjald-
ið. Allir þessir leikmenn fengu
einnig að sjá rauða spjaldið
fyrra.
É LÁRl
:US Guðmundsson
skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Víking í sjö ár. Hann skoraði
sfðast fyrir Víking gegn KR
1981, en þá var hann marka-
kóngur 1. deildar- með 12 mörk.
■ STEINAR Ingimundar-
son varð bæði fyrstur til að
skora mark fyrir Leiftur á
heima- og útivelli í 1. deild.