Morgunblaðið - 21.06.1988, Qupperneq 1
88 SIÐUR B
138. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
GonaTves^*
/vXvXvXv'.’X'XvXvív1vXv,.'Xv!vX,X'XvT,.\^»ja^.,'S*>64
-í>DOMtNfKANSKA f-W
1ÝDVELDID
Atiantshaí
(STÆKKAO
SVÆOI
Port-aut
Prince i
Kyrrahaf
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims:
Stórveldin stefni að
frekari afvopnun
Toronto, Reuter. JL
Toronto, Reuter.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja
heims fögnuðu í gær bættum sam-
skiptum Vesturlandabúa og Sovét-
manna og hvöttu stjórnvöld í Was-
hington og Moskvu til þess að
stefna að verulegri fækkun lang-
drægra kjarnorkueldflauga.
„Síðan við komum saman til fund-
ar síðast hefur Bandaríkjamönnum
og Sovétmönnum miðað mjög vel
áfram í samningaviðræðum um
fækkun kjarnorkuvopna og það er í
fullu samræmi við öryggishagsmuni
okkar allra," segir í yfírlýsingu leið-
toganna sem birt var á öðrum degi
fundarins.
Joe Clark, utanríkisráðherra
Kanada, las yfirlýsinguna og fór lof-
samlegum orðum um samning stór-
veldanna um meðal- og skammdræg-
ar kjamorkueldflaugar og hvatti þau
til þess að fækka langdrægum kjarn-
orkueldflaugum. „Við væntum nú
þess að langdrægum kjamorkueld-
flaugum verði fækkað verulega. Við
óskum Reagan forseta og Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtoga til ham-
ingju með þann árangur sem þegar
hefur náðst í þeim efnum."
í yfirlýsingunni er brottflutningi
sovéskra hermanna frá Afganistan
einnig fagnað og þess er krafist að
allar sovéskar hersveitir hverfi á
brott þaðan. Ennfremur eru hryðju-
verk fordæmd, þar á meðal gíslatök-
ur, og hvatt er til þess að komið
verði á aukinni samvinnu í barátt-
unni gegn eiturlyfjasmygli.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 32.
Grænfriðungar hlekkjuðu sig við
gámana um sjöleytið í gærmorg-
un að finnskum tíma. Á efri borð-
anum er þess krafist að hvalveið-
um verði hætt, en á þeim neðri
segir: „íslendingar drápu þessa
hvali.“ Á innfelldu myndinni má
sjá hlekki eins mótmælendanna.
Valdarán á Haiti:
Manigat flýr til Dóm-
iníska lýðveldisins
Pnrt.aii.Prmnn Rnnfnr
Port-au-Prince, Reuter.
ÆÐSTI yfirmaður Haítí-hers,
Henri Namphy, tók völdin á Haítí
snemma i gær eftir uppreisn gegn
Leslie Manigat, forseta landsins.
Manigat fór með flugvél til Dóm-
iníska lýðveldisins og neitaði að
tjá sig um valdaránið.
Namphy tilkynntj í útvarpsávarpi
í gær að herinn hefði tekið völdin í
sínar hendur og hann væri nú for-
seti landsins. Hann sagði að hernum
hefði borið skylda til að taka völdin
og hann sakaði Manigat um að hafa
brotið stjómarskrá landsins og
hneigst til einræðis.
Götur höfuðborgarinnar voru lok-
aðar, komið var á útgöngubanni og
flugsamgöngur lögðust niður í gær.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að friðsamlegt
væri á götum Port-au-Prince og svo
virtist sem herinn hefði náð borginni
algerlega á sitt vald.
Manigat gisti á hóteli í Santo
Domingo í gær og við komuna þang-
að forðaðist hann fréttamenn. Fregn-
ir herma að Manigat hafi særst í
bardögum í forsetahöllinni.
0 100
KM
Atlan tsha f
Gonáva-
Karíbahaf
KRGN / Morgunblaðið / AM
Grænfriðungar í Helsinki mótmæla hvalveiðum íslendinga:
Meðferð hvalkjöts-
farmsins ákveðin í dag
Hclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
HÓPUR meðlima Greenpeace-
samtakanna réðist í gær inn á
hafnarsvæði í Helsinki, höfuðborg
Finnlands, og hlekkjaði sig við
átta íslenska kæligáma á hafnar-
bakkanum. Grænfriðungarnir,
sem eru frá níu löndum, vildu með
þessu vekja athygli finnskra yfir-
valda á að gámamir geyma hátt
í 200 tonn af íslensku hvalkjöti á
leið til Japans. Samkvæmt finnsk-
um lögum er bannað að flytja inn
Fjöldaganga í Lettlandi:
Báru spjöld þar sem
krafist var sjálfstæðis
Mdskvu, Reuter.
ÞÁTTT AKENDUR í fjöldagöngu,
sem efnt var til í minningu fómar-
lamba ofsókna Stalins í Lettlandi
og fór fram í Riga í síðustu viku,
báru spjöld þar sem sjálfstæðis
Lettlands var krafist, að sögn
dagblaðs í Lettlandi.
I nýjasta tölublaði dagblaðsins
Sovetskaja Molodyozh, sem gefið
er út af ungliðahreyfingu í Lett-
landi, segir að á kröfuspjöldum sem
fólk bar við minningarathöfnina
hafi staðið „Frelsið Lettland", „Við
krefjumst sjálfstæðis Lettlands" og
„KGB hefur komið í stað SS-sveita
nasista". „Slíkar kröfur hefðu ekki
sést við fjöldasamkomur fyrir
tveimur árum og ef þær hefðu sést
hefði ekki verið greint frá því í
dagblöðum," segir í grein blaðsins.
„Stefna Míkhaíls Gorbatsjovs hefur
gert það að verkum að fólk þorir
að bera fram slikar kröfur," full-
yrðir greinarhöfundur í Sovetskaja
Molodyozh.
Þátttakendur í flöldagöngunni
lögðu blómsveig á minnismerki um
þá 30.000 Letta sem fluttir voru
nauðugir til Síbiríu á árunum 1941
og 1949 fyrir tilstilli Stalíns. Leyfi
fyrir fjöldagöngu til að minnast
hörmunganna var í fyrsta sinn
auðfengið. Hingað til hefur ekki
fengist leyfi til að halda slíkar sam-
komur sem þá hafa verið haldnar
í óþökk yfirvalda.
Morgunblaðsins og Reuter.
hvalafurðir, og krefjast grænfrið-
ungar þess að farmurinn verði
gerður upptækur. Skiptar skoðan-
ir eru þó um það hvort ólöglegt
sé að geyma kjötið í Finnlandi
meðan það bíður flutnings á
áfangastað.
Þetta er í fyrsta skipti sem græn-
friðungar láta til skarar skríða í Finn-
landi, enda voru finnsk yfirvöld mjög
hikandi í afstöðu sinni til aðgerða
þeirra. Nokkrir lögregluþjónar og
eftirlitsmenn hafnaryfirvalda voru
viðstaddir til þess að greiða fyrir
umferð á hafnarbakkanum en af-
staða þeirra til grænfriðunganna var
afar vinsamleg. Hafnaryfirvöld sögð-
ust myndu tryggja það að gámamir
yrðu kyrrir á hafnarsvæðinu, hvort
sem menn væri hlekkjaðir við þá eða
ekki.
Finnsk yfírvöld eru ekki sammála
um það hvernig fara skuli með mál-
ið. Samkvæmt tollalögum er bannað
að flytja vörur um Finnland til ann-
arra landa ef um er að ræða vam-
ing, sem Finnar banna innflutning
á. Hægt er að veita undanþágu frá
þessu, en enginn hefur sótt um slíkt
í þessu tilviki svo vitað sé. Land-
búnaðarráðuneytið, sem veitir inn-
flutningsleyfi fyrir matvæli, hefur
gefíð í skyn að ekki eigi að leyfa
flutning á kjötinu austur um Finn-
land. Pertti Salolainen, utanríkis-
verslunarráðherra, er þeirrar skoð-
unar að farmurinn sé ólöglegur varn-
ingur í Finnlandi og að tollurinn
eigi að stöðva flutningana. Hann vill
hins vegar ekki gefa neinar skipanir
þar að lútandi, þar sem tollurinn
heyrir ekki undir hans valdsvið.
Hvalir eru taldir heyra undir nátt-
úruvemdaryfírvöld og þess vegna
verður endanleg afstaða tekin í um-
hverfismálaráðuneytinu sem virðist
vera eina ráðuneytið sem efast um
möguleika Finna til þess að stöðva
flutningana. Umhverfismálaráðu-
neytið mun fjalla um málið í dag,
þriðjudag.
Yfirmaður finnsku tollstjómarinn-
ar, Lauri Ervola, sagði að ekki væri
ólöglegt að flytja kjötið í gegn um
Finnland. „Að flytja það inn í landið
er ólöglegt, en að flytja það annað
með viðkomu hér brýtur ekki í bága
við lög.“
Gámamir voru fluttir til Finnlands
með Dettifossi í lok síðustu viku.
Ætlunin var að skipa þeim um borð
í jámbrautarlest í Helsinki, sem fara
mun um Sovétríkin til Japans. Finnsk
stéttarsambönd hafa lýst því yfír að
meðlimir þeirra muni ekki taka þátt
í fermingu gámanna, þar sem um
ólöglegan varning sé að ræða. Ef
stéttarsamböndin skipta ekki um
skoðun virðist ekki vera um aðra
kosti að ræða en að flytja gámana
til baka til Islands eða eyðileggja
birgðirnar. Grænfriðungar vilja
koma í veg fyrir að kjötið verði flutt
til íslands, en Matti Wuori, lögfræð-
ingur þeirra í Finnlandi, segir að
fínnsk lög séu nokkuð óskýr hvað
þetta varðar.