Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 2
'
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
Sykurmolarnir á
bandarískum lista
Hljómplata Sykurmolanna,
Life’s too Good, sem kom út í
Bandaríkjunum fyrir
skemmstu, fór inn á svokallaðan
Billboard-lista yfir söluhæstu
hljómplötur í Bandaríkjunum í
fyrstu viku, en Billboard-listinn
þykir áreiðanlegasti sölulisti
sem gefinn er út þar í landi.
Platan fór í 187. sæti og þykir
það mjög góður árangur hljóm-
sveitar, sem er að senda frá sér
sína fyrstu hljómplötu.
Þrír meðlimir Sykurmolanna,
Einar Örn Benediktsson, Björk
Guðmundsdóttir og Þór Eldon,
komu frá Bandaríkjunum um helg-
ina, en þangað fóru þau í viðtöl
varðandi hljómsveitina og hljóm-
plötuna. Slíkur var áhuginn á við-
tölum að þegar mest var voru við-
tölin 60 yfír daginn, sem þau
skiptu með sér og voru það því
20 viðtöl á mann, en þau voru í
viðtölum frá 9 um morguninn til
19.
Hljómsveitin fer til tónleika-
halds í Bandaríkjunum í næsta
mánuði og heldur fyrstu tónleik-
ana í Washington 27. júlí, en alls
verða tónleikamir yfir tuttugu í
helstu borgum landsins.
Lögreglumaður sleg-
inn aftan á hnakkann
RÁÐIST var að lögreglumanni
i Hafnarfirði aðfaranótt laugar-
dagsins og hann sleginn aftan
á hnakkann. Maðurinn var
ásamt félögum sínum að hand-
taka mann í Garðabæ.
Lögreglan var kvödd að húsi í
Garðabæ, þar sem tilkynnt var að
Jóhann í
neðsta sæti
JÓHANN Hjartarson tapaði í
gær skák sinni við sovéska stór-
meistarann Ehlvest í heimsbikar-
keppninni í skák í Belfort í
Frakklandi. Jóhann er nú í
neðsta sæti á mótinu með 1 ‘A
vinning eftir 6 umferðir, en
Ehlvest er efstur ásamt heims-
meistaranum Garrí Kasparov
með 4 V2 vinning.
Jóhann vann sænska stórmeist-
arann Ulf Andersson með svörtu á
laugardag, en á sunnudag tapaði
hann gegn Beljavskíj frá Sovétríkj-
unum.
ráðist hefði verið á stúlku og hún
slegin. Þegar lögreglan kom á
staðinn var þar fyrir maður, sem
var sakaður um verknaðinn. Lög-
reglan ætlaði að taka hann í vörslu
sína, en hann streittist á móti og
kom þungu höggi á hnakka lög-
reglumanns, sem sneri í hann baki.
Sá ‘ meiddist töluvert, þarf að
ganga með stuðningskraga og er
óvinnufær sem stendur. Maðurinn
var færður í fangageymslur og
mál hans er nú til rannsóknar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Atli Dam varð
veðurtepptur
ATLI Dam lögmaður Færeyinga
varð i gær veðurtepptur á Is-
landi ásamt fylgdarliði sínu.
Vegna þoku í Færeyjum var ekki
flugfært þangað.
Atli Dam og Sólvá kona hans
hafa verið í fimm daga heimsókn í
boði forseta íslands og lauk form-
legri heimsókn hans í gær. Reynt
verður að fljúga til Færeyja í dag.
Sjá frétt bls. 31.
» Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Daihatsu-bifreiðin er mjög mikið skemmd eftir áreksturinn á
Nýbýlavegi.
Ölvaður ók á tvo bíla
HARÐUR árekstur varð í
Kópavogi á þjóðhátíðardaginn
og er talið að hann megi rekja
til ölvunaraksturs. Einn mað-
ur var fluttur nokkuð slasaður
á slysadeild. Tvær bifreiðar
eru mikið skemmdar eftir, en
sú þriðja minna.
Areksturinn varð um kl. 19.20
og með þeim hætti að Daihatsu-
bifreið var ekið vestur Nýbýla-
veg. Henni var ekið framan á
aðra bifreið og við áreksturinn
kastaðist Daihatsu-bifreiðin inn
í heimreið við hús númer 70 við
götuna, þar sem hún skall á
þriðju bifreiðinni. Tvær fyrr-
nefndu bifreiðamar skemmdust
nokkuð mikið, en sú þriðja lítið
sem ekkert. Ökumaður Dai-
hatsu-bifreiðarinnar, sem er
grunaður um ölvun, slasaðist
nokkuð og er meðal annars
meiddur á fótum.
Ashkenazí vel fagnað
Vladímír Ashkenazí var vel fagnað af tónleikagestum í Háskólabíói á laugardag, þar sem hann
spilaði verk eftir Beethoven og Schumann. Tónleikarnir voru liður í Listahátíð í Reykjavík en lista-
hátíðinni lauk um helgina.
Ríkismat sjávarafurða;
Mikil verðmæti tapast
yfir sumarmánuðina
Stjórnun veiða og vinnslu í molum
RÚM 40% af þorskafla skuttog-
aranna berast að landi yfir sum-
armánuðina, júní, júlí og ágúst.
Á sama tíma er fiskvinnslan síst
undir það búin að taka á móti
aflanum, sem þá er viðkvæmari
en á öðrum árstímum og þolir
illa geymslu. Af þessum sökum
hafa mikil verðmæti tapast, þeg-
ar reynt hefur verið að bjarga
aflanum með því að vinna hann
í ódýrar og fljótunnar afurðir.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýútkomnu Fréttabréfi Ríkis-
mats sjávarafurða.
í fréttabréfinu segir, að á sama
tíma og skuttogaramir skila mest-
um þorskafla á land fari þeir starfs-
menn fiskvinnslunnar í sumarfrí,
sem mesta reynslu og þjálfun hafa
að baki. Til afleysinga er oftast
óvant fólk. Þess vegna verði stjóm-
un vinnslustöðvanna erfið. Það eyk-
ur enn á vandann, að á þessum
árstíma er fiskurinn viðkvæmastur
og þolir ekki bið í vinnslunni.
Hertar aðgerðir f lugmanna Flugleiða:
Leiguvélar fengnar
til áætlunarflugs
Flugleiðir tóku í gær flugvélar
á leigu til þess að geta sinnt áætl-
unarflugi innanlands. Þar á meðal
voru Boeing 737 þota og Twin
Otter vél frá Arnarflugi. Astæðan
var hertar aðgerðir flugmanna í
kjölfar samþykkta bæjarstjórna
Isafjarðar og Akureyrar þess efn-
is að athuga skuli hvort svipta
beri Flugleiðir einkaleyfi á áætl-
unarflugi til þessara staða vegna
þeirra tafa sem hafa orðið af
völdum flugmanna.
„Það að Flugleiðir hafa sínar
skyldur við viðskiptavini er orsök
þess að þeir eru látnir ganga fyrir,
það er allt gert til þess,“ sagði Bogi
Ágústsson blaðafulltrúi Flugleiða í
gær. Amarflugsþotan flaug fyrir
Flugleiðir til Akureyrar í gærkvöldi.
Alls voru það 6 - 7 ferðir, miðað við
Fokker vélar Flugleiða, sem leiguvél-
ar önnuðu í gær. Þar sem þær vélar
eru minni en Fokker vélamar, þurftu
þær að fara nokkru fleiri ferðir. Að
sögn Boga Ágústssonar gekk mjög
illa að fínna áhafnir á vélar félagsins
í gær og varð því að grípa til þessa
ráðs.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gripu flugmenn til hertra
aðgerða vegna fyrmefndra sam-
þykkta bæjarstjómanna og fóru eftir
ströngustu skilgreiningum kjara-
samninga, sem þýðir að þeir hliðruðu
hvergi til frá áður útgefnum vinnuá-
ætlunum. Aðgerðir þeirra komu í veg
fyrir að hægt væri að fljúga á nokkra
staði í gær.
Samgönguráðherra sagði ekkert
óumbreytanlegt er hann var inntur
álits á einkaleyfíssviptingu. Um orð
ráðherra sagðist Bogi ekkert vilja
segja. Vildi ráðherra koma skilaboð-
um til Flugleiða, æskti félagið þess
að fá þau beint en ekki með milli-
göngu fjölmiðla.
PILTURINN, sem stakk 17 ára
Keflvíking í bakið á útiskemmtun
í miðbæ Keflavíkur aðfaranótt
18. júní, var á sunnudag úrskurð-
aður í vörslu barnaverndar-
nefndar þar til hann verður 16
ára. Jafnframt var piltinum, sem
verður 16 ára í næstu viku, gert
að gangast undir geðrannsókn.
Hann hefur áður komið við sögu
lögreglunnar.
Félagar árásarmannsins voru
ekki alls kostar ánægðir með fram-
ferði vinar síns og hugðust veita
Þá segir í fréttabréfínu, að fisk-
vinnslan þurfi aldrei fremur á vel
þjálfuðum og hæfum stjórnendum
að halda, en yfir sumarmánuðina.
Vandinn er, að þá fara reyndustu
verkstjórnendurnir yfirleitt í frí.
„Þetta sýnir að víða er pottur brot-
inn varðandi stjómun í sjávarútveg-
inum,“ segir orðrétt og því er hafn-
að að þarna sé um óviðráðanlegt
náttúmlögmál að ræða, heldur þurfi
einungis að bregðast við aðstæðum
og stjórna í samræmi við þær.
Greininni lýkur svo: „Þetta . . . leið-
ir til alvarlegra vandamála varðandi
gæðin og stundum til ófara sem
kalla má gæðaslys. Spurningin er
ekki hvort, heldur hversu stór
gæðaslysin verða nú í sumar.
Stjórnendur veiða og vinnslu bera
þar mikla ábyrgð."
honum ærlega ráðningu. Fór einn
þeirra í því skyni inn í lögreglustöð-
ina í Keflavík aðfaranótt sunnu-
dagsins, þar sem árásarmaðurinn
var í haldi, en var gripinn áður en
hann kom áformum sínum í fram-
kvæmd.
Pilturinn, sem fyrir árásinni varð,
fékk hnífinn í annað lungað og féll
það saman. Var hann í lífshættu
um tíma og var fluttur í gjörgæslu-
deild Borgarspítalans. Hann er nú
á batavegi.
- BB
Hnífsstunga í Keflavík:
Pilturinn í vörslu
bamaverndamefndar
Keflavík.