Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
Einstæðar mæður
í hljómplötuverslanir
á fimmtudag
SIEK 1ENS
LM i --%= = = = \
VHS myndbandstæki FM 560 Lárétt stjórnborð, HQ- tækni, 14 daga upptöku- minni f. 4 þætti, 32 stöðva minni, sjálfvirkur stöðva- leitari, hraðupptaka, myndleit í báðar áttir á níföldum hraða, endur- tekning myndskeiðs, þráðlausfjarstýring, raka- vörn ásamt öðru. | Verð 31.900.- Sjónvarpsmyndavél FA108 Myndavél og sýningarvél í einu tæki, fyrirferðarlítil og aðeins 1,27 kg. 8 mm myndband, CCD-mynd- skynjari, sexföld súmlinsa, sjálfvirk skerpustilling, mesti lokarahraði 1/1500 sek. (gottf. íþróttaupptök- ur) o. m. fl. Verð 82.990.-
SMFTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300
NÚFÆRÐU.
105g MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
* miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.
Þessi... þessi sýning!
Ásta Arnardóttir í hlutverki sínu.
Leiklist
Hávar Sigurjónsson
Leiksmiðjan ísland frumsýnir:
Þessi...þessi maður
Staður: Skemma Vélsmiðjunnar
Héðins við Vesturgötu
Leikstjóri: Kári Halldór
Hugmynd og texti: Kári Halldór
og Steingrímur Másson
Búningar: Hópurinn
Leiksmiðjan Island er hópur
8 ungmenna sem lagt hefur
stund á leiklist í vetur á eigin
vegum og fyrir eigin reikning.
Hópurinn réð til sín kennara á
sl. hausti, kennara i leiklist,
raddþjálfun, og söng svo eitt-
hvað sé nefnt og hefur síðan
sinnt þessu áhugamáli sínu af
elju í vetur. Eins og gengur í
leiklist oft á tíðum mun hug-
mynd að sýningu fyrir almenn-
ing hafa kviknað; Kári Halldór
var ráðinn sem leikstjóri og
undir stjórn hans mun þessi sýn-
ing sem nefnist Þessi...þessi
maður, hafa fæðst, vaxið og
dafnað.
Leiksmiðjan ísland á hrós skiiið
fyrir að hafa starfað í vetur. því
fylgja engin skilyrði heldur er ein-
faldlega hróssins vert að hafa
nægilegan áhuga á einhveiju til
þess að hrinda því í framkvæmd
og sinna því af kostgæfni frá upp-
hafi. Leiksmiðjan ísland er auðvit-
að hópur áhugafólks en það skyldi
ekki lesast í neikvæðri merkingu;
hópurinn skilur sig einnig frá okk-
ar hefðbundnu áhugaleikfélögnm
fyrir margt, t.d. það að félagarnir
eru fáir, allir á svipuðu aldurs-
skeiði og hópurinn hefur ekki þá
yfirbyggingu sem hefðbundið
áhugaleikfélag hefur. Allt þetta
skiptir litlu máli, því sýning hóps-
ins Þessi... þessi maður er nægi-
leg staðfesting þess að hópurinn
er frábrugðinn hefðbundnu áhuga-
leikfélagi.
Að sögn er þessi sýning afrakst-
ur spunaæfinga - reynt hefur verið
að virkja ímyndunarafl þátttak-
enda og leita í eigin huga eftir
efni; með því móti mætti gera ráð
fyrir að hópnum tækist að bera
fram eitthvað sem ungu fólki er
hugstætt í dag. Þessu unga fólki
á.m.k. Efnið er reyndar hvorki
nýstárlegt í sjálfu sér né framúr-
stefnulegt, samband manneskj-
unnar við aðra, stöðug leit að ein-
hvers konar félagsskap, einsemdin,
maðurinn og jörðin hans í sam-
hengi við alheiminn og þannig
mætti líklega áfram telja. Sýningin
Þessi... þessi maður stingur upp
á þessum hugmyndum og vekur
reyndar máls á ýmsu fleiru, það
hvarflaði að mér að í heild sinni
væri sýningin ekki ósvipuð hugs-
anaferli manns sjálfs í góðu tómi;
hugsun kviknar, fær örlítið rými
til skoðunar þar til hún víkur fyrir
þeirri næstu. Þetta er að minnsta
kosti ein leið til að lýsa því sýning-
arformi sem Leiksmiðjan Island
bauð uppá í skemmu Vélsmiðjunn-
ar Héðins á sunnudagskvöld.
Þarna hefur hópurinn komið sér
upp aðstöðu til sýningar og hefur
á skemmtilegan hátt fellt sýning-
una að húsnæðinu og öfugt.
Kári Halldór leikstýrir
Þessi...þessi maður og ferst hon-
um það að flestu leyti vel úr hendi.
Heildaryfirbragð sýningarinnar er
sterkt og skilur eftir sig ákveðna
tilfinningu að henni lokinni; sýn-
ingin nær manni á sitt vald og
nokkra stund þarf til að átta sig
að henni lokinni. Það er hagkvæm
og falleg lausn að notast við lif-
andi Ijós eingöngu, það á ekki svo
lítinn þátt í yfirbragði sýningarinn-
ar; vatn, eldur og viður eru sjáan-
legir þættir sýningarumhverfis(-
auk steinsteypu að sjálfsögðu) og
vekja upp spurningar sem hver
áhorfandi getur svarað fyrir sig.
Kári Halldór hefði hins vegar að
ósekju mátt hnitmiða sýninguna
betur og ekkert myndi það gera
til að stytta hana um svo sem eins
og ríflega fjórðung a.m.k. Lengd
sýningarinnar teygir hana á sam-
skeytunum til hins ítrasta og und-
irstrikar lauslegt samhengið, svo
á köflum hvarflar að manni sam-
hengisleysi. Hugmyndin með
framklappið í lokin er snjöll og
skemmtilega útfærð.
Leikendurnir átta eru þunga-
miðja sýningarinnar. Eggert Ket-
ilsson leikur einhvers konar húsr-
áðanda þessa staðar sem hefur á
sér táknrænt yfirbragð í samhengi
verksins. Eggert er nægilega dul-
arfullur til að ljá verkinu þann
dulúðga tón sem yfir því er. Hinir
leikendurnir sjö eru aðkomufólk;
skýrt afmarkaðar persónur, full-
orðin ekkja, yfirstéttarkonan,
guðsmanneskjan, bisnissnáunginn,
utangarðsmanneskjan og fl. Þetta
býður heim hugmynd um útfærslu
á þemanu Hótel Jörð; skiptir
kannski ekki öllu máli. Framvinda
verksins beinist síðan að samskipt-
um þessa fólks á þessum dulúðga
stað; sumt af því er skemmtilegt,
sumt af því er forvitnilegt, sumt
er háfleygt og sumu hefði mátt
sleppa. Langar þagnir og rölt um
svæðið dreifa heldur athygli áhorf-
enda en að þetta undirstriki and-
rúmsloftið. Textinn er knappur í
samsetningu og víða hnyttinn, en
heldur finnst mér þreytandi að
skera svona bæði framan og aftan
af setningunum; þetta heitir
kannski að skilja hismið frá kjarn-
anum í textaskrifum en hljómar
frekar óeðlilega. Ásta Arnardóttir
kom Konu með blóm vel til skila;
þessi persóna varð lifandi og fortíð
hennar ljós fyrir manni. Á hinn
bóginn voru karlpersónurnar óljós-
ari þrátt fyrir frísklegan flutning
þeirra þremenninganna Óttars
Rúnars Svavarssonar, Steingríms
Mássonar og Þóris Bergssonar.
Þarna vantaði einhvern bakgrunn,
einhveijar upplýsingar svo hægt
væri að staðsetja þessa kalla í tíma
og rúmi. Björg Vihjálmsdóttir sem
Kona í Pels var kröftug í þessu
hlutverki og hin eina sem lék á
strengi kynferðisins - kom því til
skila að hún væri kvenkyns. Dóra
Geirharðsdóttir og Steinunn
Knútsdóttir glíma við sama vanda
og piltarnir, persónur þeirra eru
daufar af hendi höfunda (hópsins
sjálfs og leikstjóra).
Sýningin þessi...þessi maður
er sannarlega athyglisvert fram-
tak. Þarna er boðið upp á forvitni-
legan valkost í leiklistarframboði
höfuðborgarinnar. Þetta er sýning
sem hvetur til umhugsunar um þá
endalausu möguleika sem leiklist
býður uppá. Takmörkin liggja við
endimörk ímyndunarafls þátttak-
enda. Það eru einu landamærin í
leikhúsinu.
H0RGARD
<
o
FLUGUVESTI
\ I t’fr
: 1 ''
Fást í nœstu sportvöruverslun.