Morgunblaðið - 21.06.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 21.06.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 „Góð ríkisstjórn með frá- bæran fjármálaráðherra?“ eftir Gísla Helgason Eins og kunnugt er, hefur nú- verandi ríkisstjóm Islands með fjármálaráðherrann í fararbroddi beitt sér fyrir einföldun skattalaga og lagfæringu tollalaga. Þetta hef- ur haft í för með sér margvíslegt hagræði, en fyrir suma hópa þessa lands hefur þetta komið sér væg- ast sagt mjög illa. Á ég þar við fatlað fólk, en sum hjálpartæki til þessa hóps eru ekki lengur undan- þegin tollum og öðrum aðflutnings- gjöldum. Söluskattur er undan- tekningarlaust lagður á öll hjálpar- tæki fatlaðra. Reyndar hefur það víst verið svo að fjármálaráðherra hefur verið heimilt að gera undanþágu frá aðflutningsgjöldum og söluskatti af hjálpartækjum, en nú bregður svo við að Jón Baldvin Hannibals- son, boðberi jafnaðar og bræðra- lags, hefur látið fella þau ákvæði úr gildi. Þetta hefur komið sér hörmulega illa fyrir nokkurn hóp manna sem reynir að bjarga sér með aðstoð hjálpartækja. Fyrir nokkru skrifaði Sjónstöð íslands fjármálaráðuneytinu bréf og fór þess á leit að öll gjöld og þar á meðal söluskattur yrðu felld niður af hálpartækjum til blindra og sjónskertra. Svarið frá ráðu- neytinu var neikvætt, því að heim- ild er ekki lengur í lögum um sölu- skatt fyrir slíkri undanþágu. Það er m.a. hlutverk þeirra sem við Sjónstöð íslands vinna að hjálpa sjónskertum til meiri sjálfs- bjargar og þjálfa þá í athöfnum hins daglega lífs. Sjónstöðin útveg- ar, ásamt Blindrafélaginu, sjón- skertu fólki þau hjálpartæki sem völ er á. Sum þeirra greiðir Trygg- ingastofnun ríkisins. Fólk sem er í námi eða launuðu starfi fær nær öll hjálpartæki greidd, t.d. lessjón- varpstæki sem stækka venjulegt bókarletur heilmikið, en í sumum tilvikum fá einnig aðrir samskonar tæki greidd, komi ekkert annað sjónhjálpartæki til greina. Margt fullorðið fólk, sem hefur misst mikla sjón, veigrar sér við að sækja um slík tæki vegna þess að þau eru mörg hver fokdýr. Mig langar að taka dæmi um einn gamlan mann, sem hefur misst mikið af sinni sjón en getur lesið í gegnum slíkt lessjónvarp. Hann ákvað að eignast tækið upp á eigin spýtur. Ákvæði þau sem fjármálaráðherra lét nema úr gildi verða til þess að lestæki þessa manns hækkar úr rúmum hundrað og þijátíu þúsundum upp í tæp tvö hundruð þúsund. Undirritaður, sem er mjög sjón- skertur, hefur í mörg ár notað sérstaka blindraleturstölvu sem dótturfyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjunum (þá undir stjórn Guðjóns B. Olafssonar) gaf Blindrafélaginu á sínum tíma. Þessi tölva gerir mér kleift að rita á blindraletur og skila því í formi venjulegs leturs. Nú er þetta tæki orðið gamalt og úr sér gengið og margt annað betra komið í stað- inn. Því sótti Sjónstöð íslands fyr- SIEMENS VS 9112 Öflug ryksuga • Stillanlegur sogkraftur fró 250 W upp í1100 W. • Fjórfjöld síun. • Fylgihlutir geymdir í vél. •. Sjálfinndregin snúra og hleðsluskynjari. Gömlu góöu SIEMENS gæöin! SMÍTH& NORLAND Nóatúni 4 - Simi 28300 T-Jöföar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! TryggÖu sparifé þínu örugga ávöxtun núna! 30. júnl lýkur sölu spariskírteina ríkissjóös með 8,5% raunvöxtum til tveggja ára Nú eru síðustu forvöð að ávaxta sparifé þitt með spariskírteinum ríkissjóðs, sem bera 8,5% raunvexti til tveggja ára (gjalddagi 1. febrúar 1990). Sölu á þeim lýkur.nú um mánaðamótin. Sala á spariskírteinum með 8,5% raun- vöxtum til þriggja ára og spariskírtein- um með 7,2% raunvöxtum til allt að 10 ára heldur áfram. Spariskírteini ríkissjóðs eru að fullu verðtryggð og með þeim getur þú ávaxtað sparifé þitt á háum vöxtum á öruggan og einfaldan hátt. Nú hcafa forvextir á ríkisvíxlum hækkað í 32,5% sem jafngildir 40,3% eftirá greiddum vöxtum midaÖ við 90 daga lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að ávaxta skammtímafjármuni. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi l.fl.D 2 ár 8,5% l.feb ’90 l.fl.D 3 ár 8,5% l.feb ’91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb ’94-’98 Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla- banka íslands og hjá löggiltum verð- bréfasölum, sem m.a. eru viðskipta- bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar, svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síðan send í ábyrgðar- pósti. Spariskírteini ríkissjóðs eru verðtryggð og bera auk þess háa vexti RIKISSJOÐUR ÍSIANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.