Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 27

Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 27
Stykkishólmur: Byggingar- vörumark- aður opnar Stykkishólmi. EINS og áður hefur verið sagt frá lokaði Kaupfélag Hvamms- fjarðar byggingavöruverslun þeirri sem það rak eftir að Kaupfélag Stykkishólms hætti rekstri hér í Stykkishólmi. En þegar kaupfélaginu var lokað tók Kf. Hvammsfjarðar að sér eftirstöðvarnar og rak þetta sem útibú frá Búðardal. Aðal- versluninni var svo lokað um sl. áramót en byggingavöru- versluninni nú 1. júní. Nú hefir það gerst síðan að Skipavík hf. hefir fest kaup á þeim byggingavörulager sem eftir var þegar lokað var. Verslunin opnuð á nýjan leik 10. júní undir nafni Skipavíkur og kom þá Skipavík einnig með þann lager sem fyrirtækið hafði í sínum húsum og var þessu slegið saman. Fyrsti viðskiptavinurinn var auðvitað sjálfur bæjarstjórinn okk- ar, Sturla Böðvarsson, og bar fréttaritara um það leyti að og tók nokkrar myndir af athöfninni, m.a. af bæjarstjóranum og Ólafi Kristjánssyni, forstjóra Skipavíkur h.f. Það voru þegar komnir nokkrir viðskiptavinir að gera kaup og flein komu til viðbótar. Ólafur sagði fréttaritara svo frá: Þegar ljóst var að bygginga- vöruverslun kaupfélagins yrði lok- að skapaðist það ástand sem óvið- unandi var og sérstaklega þegar sumar er og allir að gera við og lagfæra. Var því auðsætt að eitt- hvað varð að gera og því var þetta ráðið. Hvað um áframhaldið verður er ekki vitað í dag, en verslunin verður fyrst um sinn í sínum gömlu húsakynnum og með líku sniði og áður en það gefst tími til athugun- ar því samið hefir verið um tíma til stefnu. Við vonum það besta og eins að þessi þjónusta eigi rétt á sér og þá er vel farið. - Árni ] f Hróöleikur og L skemmtun yrirháa semlága! MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 ÞliSUNDIR ISLEN1.IN iA SEM VALIÐ HAFA MAZDA 323 HUOTA AÐ HAFA RETT FYRIR SER!! MAZDA 323 hefur jafnan verið ímynd hins fullkomna fjölskyldubíls því hann býður upp á fullkomnun þeirra þátta, sem skipta mestu máli í slíkum bíl. Hann er fallegur, lipur í akstri, aflmikill, sparneytinn og óvenju rúmgóður. 1988 árgerðin af þessum geysivinsæla bíl er með ýmsum útlitsbreytingum, fjölmörgum tæknileg- um nýjungum og nýrri luxusinnréttingu. MAZDA 323 fæst í yfir 20 gerðum: 3, 4, 5 dyra eða Station. Einn þeirra hentar þér örugglega! MAZDA 323 kostar nú frá aðeins kr.449.000 (gengisskr. 04.03.88) BILABORG HF. FOSSHÁLSI 1. S. 68 12 99. Hannfœrað halda herberginu lengur - Jd, hann er í Arnarflugsklúbbnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.