Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
31
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Séra Heimir Steinsson og’ Atli
Dam í Þingvallakirkju.
boð til heiðurs Vigdísi Finn-
bogadóttur, forseta Islands, að
Hótel Holti.
Atli Dam sagði í viðtali við
Morgunblaðið að sér hafi fund-
ist heimsóknin mjög ánæguleg
og honum alls staðar fundist
hann vera velkominn. Sérstak-
lega var hann þakklátur Vigdísi
forseta sem hann sagði að hefði
gert mikið fyrir sig í þvi að
sýna sér landið.
Atli sagði að heimsóknin hlyti
að efla vináttu þjóðanna og
samvinnu, meðal annars á sviði
fiskveiða. „Heimsóknin hefur
undirstrikað að ísland og Fær-
eyjar eru bræðraþjóðir," sagði
Atli.
Að lokum bað Atli Dam fyrir
hlýjar kveðjum til íslensku þjóð-
arinnar fyrir frábærar móttökur
þá daga sem hann hefur dvalið
hér.
Heimsóknin eflir
vináttu þjóðanna
- sagðiAtli
Dam lögmaður
Færeyja
OPINBERRI heimsókn
færeysku lögmannshjón-
anna Atla og Sólváar Dam
lauk formlega í gær, en þau
hafa dvalið hér á landi í
boði forseta Islands síðan á
miðvikudag.
Á sunnudagsmorgun fóru
Atli og Sólvá Dam, ásamt
Vigdísi Finnbogadóttur forseta
íslands og fylgdarliði til Þing-
valla. Við Almannagjá tóku for-
sætisráðherrahjónin Þorsteinn
Pálsson og Ingibjörg Rafnar á
móti gestunum, ásamt séra
Heimi Steinssyni þjóðgarðs-
verði. Heimir sýndi gestunum
staðinn og benti á helstu kenni-
leiti. Vegna slæms veðurs var
hætt við að ganga niður Al-
mannagjá eins og áætlað hafði
verið, en í þess stað farið í kirkj-
Færeysku lögmannshjónin Atli
og Sólvá Dam, Vigdís Finn-
bogadóttir forseti Islands og
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra hlýða á frásögn Heimis
Steinssonar i Þingvallakirkju.
una á Þingvöllum. Þar fræddi
Heimir gestina um sögu staðar-
ins og greindi frá þingháttum
til forna. Að því loknu bauð
forsætisráðherra til hádegis-
verðar til heiðurs lögmanns-
hjónunum á Hótel Valhöll, áður
en snúið var aftur í bæinn.
Um eftirmiðdaginn tóku lög-
mannshjónin á móti Færeying-
um sem búsettir eru hér á landi
í Átthagasal Hótels Sögu. Að
kvöldi sunnudags héldu svo
Atli og Sólvá Dam kvöldverðar-
ÞAÐ ERU GÆÐIN
SEM SKIPTA MÁLI!
tegund: GENUA 3+2+1
...fyrir þá sem vilja gæði.
REYKJAVlK
Það er...
virðulegt,
klassískt,
þægilegt,
hlýlegt
og það sem
mestu skiptir,
það er leður.