Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
Toronto-f undurinn:
Vaxtamál og verðbólga:
Ekki mun verða
gripið til gagn-
kvæmra þvingana
- segirfjár-
málaráðherra
Bandaríkjanna
Toronto, Reuter.
Fjármálaráðherrar iðnríkj-
anna á Toronto-fundinum
óttast ekki að verðbólga
muni aukast þótt enn sé
nauðsynlegt að fylgjast
vandlega með þróun hennar.
Þetta kom fram í máli James
Bakers, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, í sjónvarps-
viðtali í gær.
„Þott menn sætti sig vel við
ástandið þá held ég að sjálfsá-
nægja sé ekki ríkjandi," sagði
Baker. „Það er ástæða til
ánægju en það merkir ekki að
engu verði komið í verk. Öll ríkin
tóku sameiginlega á eftir verð-
bréfahrunið (í október) til að
samræma aðgerðir sínar, efna-
hagur heimsins er að jafna sig
og sótt er fram á ný.“
Baker sagði ríkin sammála
um að fylgjast með þróun verð-
bólgunnar en ekki væri talin
hætta á skyndilegri óðaverð-
bólgu. Hann hrósaði seðlabönk-
um ríkjanna fyrir aðgerðir
þeirra til að stuðla að hagvexti
án þess að láta undan verð-
bólguófreskjunni.
Baker var spurður hvort
Bandaríkjastjórn mundi þvinga
Vestur-Þjóðveija til að gefa
efnahagslífi landsins lausari
tauma og auka innanlands-
neyslu. Hann sagði að til slíks
myndi ekki koma frekar en
þvingana af hálfu Vestur-Þjóð-
veija gagnvart Bandaríkja-
mönnum til að fá þá til að lækka
Ú’árlagahalla Bandaríkjanna.
Um alþjóðleg vaxtamál sagði
ráðherrann að þróun þeirra
Reagan ekki talinn munu halda tillögum sín-
um um afnám niðurgreiðslna fast fram
Toronto, Reuter.
EKKI er talið sennilegt að tillög-
ur Reagans Bandaríkjaforseta,
um að afnema alla styrki og
niðurgreiðslur í landbúnaði fyr-
ir árið 2000, muni fá góðan
hljómgrunn á leiðtogafundinum
i Kanada. Ágreiningur er um
málið einkum milli Bandaríkja-
manna og Kanadamanna annars
vegar og Evrópubandalagsins
hins vegar. Bandalagið viður-
kennir að niðurgreiðslur séu
skattgreiðendum þung byrði og
valdi offramleiðslu sem dengt
sé á alþjóðlega markaði og
skerði þannig samkeppnisað-
stöðu bænda f fátækum löndum
þriðja heimsins. Á hinn bóginn
segja fulltrúar bandalagsins að
tillögur Reagans séu óraunsæj-
ar. ,
Frakkinn Jacques Delors, sem
er forseti framkvæmdanefndar
Evrópubandalagsins, hefur sagt
að yrðu styrkir og niðurgreiðslur
afnumin mundi það verða til þess
að sveitahéruð bandalagsins, þar
sem 11 milljónir bænda búa,
tæmdust af ungu fólki og yrðu
eins konar vemdarsvæði gamals
fólks, hliðstæð svæðum indíána í
Bandaríkjunum.
Mögulegt er talið að í Toronto
verðisamþykkt skilmálalaus yfir-
lýsing þess efnis að kynntur verði
grundvöllur að viðræðum um land-
búnaðarstyrkina á ráðherrafundi
sem halda á í Montreal í Kanada
í desember til að kanna stöðuna í
Gatt-viðræðunum um alþjó’ðavið-
skipti og tollamál.
Niðurgreiðslum og styrkjum til
landbúnaðar var komið á í mörgum
Evrópulöndum eftir heimsstyijöld-
ina síðari. í Japan er landbúnaður
mikið styrktur og Bandaríkjamenn
hafa svarað fyrir sig með álíka
aðgerðum. Willy de Clercq, ut-
anríkisráðherra Evrópubandalags-
ins, gagnrýndi á sunudag Banda-
ríkjamenn og sagði áform þeirra
um aukna kornframleiðslu ekki
verða til að leysa offramleiðslu-
vandann.
Styrkir til landbúnaðar í 24
helstu iðnríkjum heims eru taldir
nema samanlagt um 200 milljörð-
um Bandaríkjadala (nær 9000
milljörðum ísl. kr.) á ári samkvæmt
upplýsingum Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar, OECD. Stofn-
unin áætlar að u.þ.b. 75% af tekj-
um japanskra bænda séu beinir
og óbeinir styrkir, enn fremur nær
50% af tekjum evrópskra bænda
og 35% af tekjum bandarískra
bænda. Evrópubandalagið heldur
því fram að ekki hafi enn náðst
samkomulag um nothæfa aðferð
til að mæla heildarupphæð styrkja
til bænda.
í skýrslu, sem gerð var af ástr-
alskri stofnun til rannsókna á al-
þjóðafjármálum segir að yrðu
styrkir til landbúnaðar lagðir af á
tíu árum, eins og Reagan hefur
lagt til, myndu tekjur ríkja í þriðja
heiminum aukast um 26 milljarða
Bandaríkjadala á ári. Ríkin fengju
hærra verð fyrir afurðir sínar á
alþjóðamarkaði og jafnframt gætu
ríkisstjórnir þeirra ekki haldið
áfram að fæða íbúa milljónaborg-
anna með niðurgreiddu komi;
bændur fengju því meira í sinn
hlut. í ríkari þjóðfélögum kæmust
neytendur og skattgreiðendur bet-
ur af en ella.
í mörgum auðugum ríkjum þ.
á. m. Vestur-Þýskalandi og
Frakklandi, eru smábændur sterk-
ur þrýstihópur og hefur því lítið
orðið úr aðgerðum til að hamla
gegn styrkjum og niðurgreiðslum
í landbúnaði ásamt óhjákvæmilegri
afleiðingu slíkra ráðstafana sem
er offramleiðsla afurðanna.
Landbúnaðarstyrkirnir:
Leiðtogarnir hliðra sér
við erfiðum ákvörðunum
hefði verið jákvæð síðan 1985.
Meiri samráð væm nú milli
ríkjanna um vaxtaákvarðanir en
áður. Ein af ástæðum hrunsins
í október síðastliðnum var deila
milli Vestur-Þjóðveija og
Bandaríkjamanna út af vaxta-
hækkun í Vestur-Þýskalandi.
Óttuðust íjármálamenn þá að
glundroði væri í uppsiglingu í
alþjóðavaxtamálum en þær
hrakspár hafa ekki ræst.
Reuter
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims taka sér sæti við fundarborðið i Toronto á sunnudag. Efst
fyrir miðju sést Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og síðan, réttsælis, Ronald Reag-
an, Bandaríkjaforseti, Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, Francois Mitterrand, forseti
Frakklands, Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, Ciriaco DeMita, forsætisráðherra Ítalíu,
Jacques Delors, forseti framkvæmdanefndar Evrópubandalagsins, og loks Noboru Takeshita, forsæt-
isráðherra Japans.
Reuter
Hindra að Marcos komist inn í landið
Á flugvellinum í Laoag á Filippseyjum hefur verið komið fyrir
sand- og malarhrúgum til að koma í veg fyrir að litlar flugvél-
ar geti lent á vellinum. Er þetta gert til að fyrirbyggja að Ferd-
inand Marcos, fyrrverandi forseti, komi inn í landið i óþökk
yfirvalda til að vera við útför móður sinnar, sem lést fyrir
nokkrum vikum. Fyrrum heimili Marcosar-fjölskyldunnar hefur
verið opnað almenningi sem getur skoðað heimilið og vottað
hinni látnu ættmóður virðingu sína. Lik hennar stendur uppi í
viðhafnarstofu heimilisins.
Ukraína:
Líkvökunni lyktaði
með hörmungnm
Moskvu. Reuter.
LÍKVAKA í þorpi nokkru í Úkr-
aínu endaði með þeim ósköpum,
að átta manns létust og 80 Iiggja
illa haldnir á sjúkrahúsi. Skýrði
Tass-fréttastofan sovéska frá
þessu í gær.
Sagan hófst með því, að skóla-
stjórinn í þorpinu Zabólótje,
skammt frá pólsku landamærunum,
og vélsmiður nokkur, vinur hans,
gerðu sér glaðan dag til að fagna
því, að hinum fyrrnefnda höfðu
áskotnast ný húsgögn. Urðu þeir
sér úti um heimabrugg, sem reynd-
ist vera iðnaðarspíri, en daginn eft-
ir lést vélsmiðurinn og skólastjórinn
veiktist. Þagði hann þó um ástæð-
una og eftir nokkurra daga legu
lést hann og var grafinn án krufn-
ingar.
Fj'öldi manna kom saman til að
Tveir IRA-menn dæmdir
Lundúnum, Reuter
TVEIR liðsmenn írska lýðveldis-
hersins, IRA, voru dæmdir í 17
og 20 ára fangelsi í gær, fyrir
að hafa ráðgert mörg sprengjut-
ilræði í Bretlandi.
Mennimir tveir, Patrick
McLaughlin og Liam McCotter voru
handteknir á síðasta ári. Þeir vísuðu
lögreglunni á sprengiefni, sprengju-
hluta og vopn sem voru falin í rusla-
tunnum í skógi nálægt borginni
Manchester. Að sögn saksóknara
var þetta nægilegt efni í 25 sprengj-
ur eða heila sprengjuherferð. Þessa
þungu fangelsisdóma, 17 og 20 ár,
rökstuddi dómarinn með því að
mennimir hefðu fyrirhugað mjög
víðtækar aðgerðir og að nauðsyn-
legft væri að fæla aðra frá svipuð-
um fyrirætlunum.
vaka yfir líki skólastjórans og sett-
ust syrgjendurnir brátt að drykkju
til að stytta sér stundimar. Var þá
meðal annars gripið til iðnaðarspír-
ans, sem skólastjórinn lét eftir sig.
Afleiðingarnar urðu þær, að fyrst
snerist líkvakan upp í drykkjulæti
en lauk síðan með því, að átta lágu
í valnum og 80 voru fluttir alvar-
lega veikir á sjúkrahús.
Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sov-
étríkjanna, hóf fyrir þremur árum
mikinn áróður gegn ofneyslu áfeng-
is en í Tass-fréttinni sagði, að enn
væri „bindindissemina aðeins að
finna á bókurn”.