Morgunblaðið - 21.06.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
33
Óeining innan breska
Yerkamannaflokksins
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
STEFNUBREYTING sú í varn-
armálum, sem Neil Kinnock lýsti
í sjónvarpsþætti fyrir hálfum
mánuði, hefur valdið meiri óöld
innan Verkamannaflokksins en
nokkurn óraði fyrir. I ræðu
siðastliðinn föstudag lagði hann
áherslu á, að flokkurinn yrði að
taka tillit til breytinga í þjóð-
félaginu. Stuðningsmenn hans
Bandaríkin:
Komið aft-
an að aug--
lýsendum
New York, Reuter.
ÞAÐ Htur svo sannarlega ekki
vel út fyrir hluta þeirra amerísku
auglýsingastofa sem sjá um að
markaðssetja þarlent kjöt ef
marka má frétt sem birtist í tíma-
ritinu Newsweek á sunnudag því
þar segir að mynd sem auglýs-
endurnir hafa hingað til notað
til að auglýsa kjöt .likist áber-
andi mikið tákni Hitlersæskunn-
ar svokölluðu.
Að sögn tímaritsins þá var það
upphaflega ungur framhaldskóla-
nemi sem kom auga á hvernig aug-
lýsingamynd kjötframleiðendanna,
sem er af hávöxnum ljóshærðum
kúreka sem veifar bandaríska þjóð-
fánanum.líktist myndskreytingu í
sögubók sem hann hafði undir
höndum.
Dreifmgaraðilar veggspjaldanna
segja að ekki hafi vísvitandi verið
reynt að líka eftir merki Hitlersæsk-
unnar og að sögn þeirra sem gerðu
veggspjaldið þá var stuðst við Ijós-
mynd af lifandi fyrirmynd við hönn-
un þess.
Engu að síður íhuga forsvars-
menn auglýsendanna að leggja nið-
ur ljóshærða kúrekann og taka upp
annað merki.
hafa ráðist harkalega að vinstri-
arminum og forystu Sambands
flutningaverkamanna.
Stefnan miðist við
tíunda áratuginn
Harkan í innanflokksdeilum
Verkamannaflokksins jókst enn
um síðastliðna helgi, er Roy Hatt-
ersley, varaleiðtogi flokksins, réðst
harkalega að Tony Benn, leiðtoga
vinstriarmsins, fyrir að segja, að
flokkurinn gæti ekki unnið í næstu
kosningum. Hann sagði, að engin
svik við flokkinn væru meiri en
þau að grafa undan honum og
halda því um leið fram, að verið
væri að verja hann.
Hattersley sagðist kunna á
þessu skýringu. „Það er vegna ótta
við nýjar hugmyndir. En Verka-
mannaflokkurinn verður að vera
flokkur nýrra hugmynda." Hann
bætti við, að stefna flokksins yrði
að miðast við tíunda áratuginn og
það vildu framsæknir flokksmenn.
Þetta er í fyrsta sinn, sem flokks-
forystan nafngreinir Benn.
Treysti sér ekki
til að verja stefn-
una í varnarmálum
Kinnock hélt ræðu í Fabian-
félaginu (málfundafélagi vinstri-
manna) í London á föstudag og
sagði, að flokknum væri nauðsyn-
legt að endurskoða stefnu sína.
Það merkti hins vegar ekki, að
menn köstuðu hugsjónum sínum
fyrir róða. Markmið alls flokks-
starfsins nú væri að vinna sigur á
Margaret Thatcher og stefnu
hennar á næsta áratug.
Denzel Davis svaraði í fyrsta
sinn spurningum um ástæður af-
sagnar sinnar í sjónvarpsþætti hjá
BBC á föstudag. Hann sagði, að
stefna flokksins í varnarmálum
hefði lengi verið viðkvæm. Hann
hefði hins vegar ekki treyst sér
lengur til að veija hana, því að hún
væri svo óljós og ruglingsleg eftir
sífelldar yfirlýsingar Kinnocks og
óundirbúnar breytingar án sam-
ráðs við sig.
Hitnar í kol-
unum í sumar
John Cunningham, einn af
stuðningsmönnum Kinnocks á
þingi, réðst harkalega á Ron Todd,
leiðtoga Sambands flutninga-
verkamanna, fyrir að reyna að
segja flokknum fyrir verkum. Todd
sagði í síðustu viku, að ekki væri
hægt að líða það, að einn einstakl-
ingur ákvæði stefnu flokksins í
mikilvægum málum. Það væri
flokksþingsins að gera það, og það
skipti engu máli, hver einstakling-
urinn væri.
Stuðningsmenn einhliða afvopn-
unar erú þegar farnir að undirbúa
ályktun, sem þeir hyggjast leggja
fyrir flokksþing Verkamanna-
flokksins í haust. Þar er ítrekaður
stuðningur flokksins við fyrri
stefnu. Allar líkur eru á, að slík
ályktun fengi mikinn meirihluta
atkvæða. Það yrði áhrifavaldi
Kinnocks verulegur hnekkur, en
það hefur verið óskorað fram til
þessa.
Búast má við, að hitni verulega
í kolunum í þessum átökum, þegar
líður á sumarið.
Reuter
Naut í postulínsverslun
Verlunareigendur grípa til ýmissra aðgerða til að vekja athygli
á söluvörunni. Kaupmaðurinn á myndinni verslar með borð-
búnað í Wellington á Nýja Sjálandi, hann hefur lengi velt því
fyrir sér hvemig myndi ganga að hafa naut í versluninni. í
síðustu viku lét hann verða af því að láta á það reyna og „bauð“
holdanauti af Hereford-kyni að dvelja í versluninni í þrjár
klukkustundir. Bolinn virtist ekki kippa sér upp við þessa uppá-
komu og ekkert brotnaði þrátt fyrir stórgripaheimsóknina.
Eftirspum eftir áli mun
enn aukast í V-Evrópu
1987 metár í álviðskiptum
Briissel, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
milljónir tonna af áli hafi verið
álfunni á síðasta ári
EFTIRSPURN eftir áli í Vestur-
Evrópu var meiri en nokkru sinni
árið 1987 og mun væntanlega
aukast enn á þessu ári samkvæmt
upplýsingum Samtaka evrópskra
álfyrirtækja (European Alumi-
nium Association, EAA). For-
maður samtakanna, Dr. Theodor
M. Tschopp, sem er fram-
kvæmdastjóri álsviðs hjá Alu-
suisse, sagði á blaðamannafundi
samtakanna fyrir helgina að 4,1
Reuter
Helgispjöll hindruð
Verkamaður bætir gaddavírsstreng í girðingu utan um Stonehenge-fornleifarnar frægu á Salis-
bury-sléttunni í Englandi. Fjöldi hippa sló nýlega upp tjöldum i grennd við Stonehenge til að fagna
sumarsólstöðum og óttast lögregla árekstur við þá. Vísindamönnum hefur ekki enn tekist að leysa
gátuna um markmiðið með steindrangaþyrpingunni, sem er mörg þúsund ára gömul, þótt margir
telji að trúarbrögð hafi komið þar við sögu.
notaðar i
en heildarframleiðsla þar var 3,5
milljónir tonna. 430.000 tonn
voru flutt inn til að mæta eftir-
spurn og gengið var á birgðir.
650.000 tonn verða væntanlega
flutt inn á þessu ári.
Álbirgðir í Vestur-Evrópu eru nú
mjög litlar og sagði Tschopp að
ekki væri hægt að ganga frekar á
þær. Löndin í Vestur-Evrópu nota
um þriðjung alls áls á Vesturlönd-
um. Þau framleiða um 27% hrááls
og 31% úrvinnsluáls. Yfir 100.000
manns starfa við áliðnaðinn í Vest-
ur-Evrópu en afkoma yfir 300.000
manns er undir honum komin.
Tschopp sagði að nú væri erfitt
að flnna hagkvæma staði fyrir ný
álver í Vestur-Evrópu nema á ís-
landi og í Noregi. Hann sagði að
hráálframleiðslan væri óðum að
færast frá úrvinnslustöðum til
svæða með ódýra orku eins og Suð-
ur-Ameríku, Ástralíu og Kanada.
Hann sagði að þessi þróun hefði
haft áhrif á auknar sveiflur í ál-
verði. Þær koma álneytendum, eins
og bílaiðnaðinum, illa og Tschopp
sagði að það þyrfti að finna leið til
að draga úr miklum verðsveiflum í
framtíðinni.
Jochen Schirner, varaformaður
EAA og forstjóri Vereinigte Alumi-
nium Werke (VAW) í Vestur-
Þýskalandi, sagðist ekki eiga von á
að hráálframleiðsla á meginlandi
Evrópu myndi dragast saman á
næstu árum. Hann kvað orkuverð
hafa mikil áhrif á framtíðarþróun
en benti á að innri Evrópumarkaður
árið 1992 myndi auðvelda viðskipti
með orku. Þá gætu orkusnauðar
þjóðir til dæmis keypt kjarnorku frá
þjóðum sem hafa nóg af henni.
ÚTFLUTNINGSI^áÐ ISIANDS
EXFORÍ COUNCILOF ICHIAND
LÁGMÚLI5 128REYKJAVÍK S-688777
Námsstefna um vöruþróun matvæla
verður haldin á Hótel Sögu, hliðarsal, kl. 14.00 þriðjudaginn
21. júní nk.
Dagskrá:
Kl. 14.00 Námsstefnan sett af Ingjaldi Hannibalssyni, fram-
kvæmdastjóra Útflutningsráðs íslands.
Kl. 14.10 Möguleikar íslenskra matvæla í Bandaríkjunum:
Sylvia Schur, Creative Food Service.
Kl. 14.55 Kaffi.
Kl. 15.15 Útflutningur tilbúinna rétta frá íslandi: Örn Daníel
Jónsson, Iðntæknistofnun íslands.
Kl. 15.35 Kynning á vöruþróunarverkefni fyrir Bandaríkjamark-
að á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna:
Dr. Hannes Hafsteinsson, SH.
Kl. 15.55 Fyrirspurnir og almennar umræður.
Kl. 16.15 Námsstefnu slitið.
Þátttökugjald kr. 900,-.
Fjölmennið og nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri.