Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 "
35
Skæruliðar í Afganistan:
Bráðabirgðastjóm útnefnd
Sósíaldemókratar
kynna kosningá-
loforð sín
Stokkhólmi, frá Claes von Hofstein,
fréttaritara Morgunblaðsins.
INGVAR Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar og formaður
sósíaidemókrata, kynnti í
síðustu viku þau mál sem flokk-
urinn hyggst beita sér fyrir
sigri hann í kosningunum i
haust. Standi sósíaldemókratar
við kosningaloforðin munu for-
eldrar lítilla barna í Svíþjóð sjá
fram á rólega tíma, þar sem
mikil áhersla er lögð á aukna
aðstoð við barnafjölskyldur.
Það kosningaloforð sem myndi
kosta sænska ríkið mest er loforð
um lengingu barnsburðarleyfís.
Sósíaldemókratar segjast vera
reiðubúnir að veija 6 milljörðum
sænskra króna (svarar til um 44
milljarða ísl. kr.) til þess að lengja
fæðingarorlof foreldra, sem nú er
9 mánuðir, í 18 mánuði. Orlofinu
má skipta að vild en það verður
að taka áður en barnið nær fjög-
urraára aldri.
Að auki ætlar flokkurinn að
beita sér fyrir byggingu barna-
heimila í miklu mæli samkvæmt
kosningaloforðunum sem Ingvar
Carlsson kynnti á fimmtudaginn i
síðustu viku. Stefnir flokkurinn
að því að árið 1991 geti öll böm
sem náð hafa 18 mánaða aldri
fengið bamaheimilispláss. Ekki er
gert ráð fyrir að sérstök lög verði
sett til að tryggja að þetta mark-
mið náist heldur ætlar flokkurinn
að tryggja fjárveitingar til fram-
kvæmdanna þannig að staðið verði
við tímasetninguna.
Sósíaldemókratar lofa á hinn
bóginn að tryggja með lagasetn-
ingu sex vikna sumarleyfi á ári
fyrir alla þegna sína. Þessi ráðstöf-
un kemur til með að kosta einka-
fyrirtæki mikið. Ríkisstarfsmenn
njóta margir hveijir þessara rétt-
inda nú þegar. Kjell-Olof Feldt,
fjármálaráðherra, segir að einka-
fyrirtæki hafi ráð á að veita starfs-
fólki sínu þessi fríðindi.
Jafnframt þessu lofa sósíal-
demókratar skattalækkun á bilinu
3 til 4 prósent, sem ríkið mun fjár-
magna með óbeinum sköttum og
hækkun á stóreignaskatti. Grípa
á til sérstakra ráðstafana til að
bæta aðbúnað á vinnustöðum.
Áhersla á samskipti við önnur
Norðurlönd verður aukin jafn-
framt því sem samstarf við aðrar
Evrópuþjóðir verður aukið.
Peshawar, Islamabad. Reuter.
HELSTU samtök afganskra
skæruliða útnefndu á sunnudag
„bráðabirgðastjórn", sem ætlað
er að taka við stjórnartaumunum
í Afganistan þegar ríkisstjórn
Najibullah forseta hefur verið
hrakin frá. Er hún aðeins skipuð
skæruliðaleiðtogum, sem aðsetur
hafa í Pakistan, en vestrænir
stjórnarerindrekar segja ólík-
legt, að skæruliðaforingjar, sem
þegar ráða stórum svæðum í
Afganistan, muni sætta sig við
þessa skipan mála.
Ahmad Shah, sem skæruliðar
hafa áður útnefnt sem forseta,
skýrði frá skipan stjómarinnar, sem
14 menn eiga sæti í, en leiðtogi
skæruliðasamtakanna, Syed Ah-
mad Gailani, sagði, að skæmliðar
og flóttamenn myndu eftir þijá eða
§óra mánuði ganga til kosninga um
fulltrúaþing.
Gailani lagði áherslu á, að skæm-
liðar héldu að sér höndum meðan
sovéska herliðið væri að koma sér
burt frá Afganistan og var um það
á öndverðum meiði við fyrirrennara
sinn, Gulbuddin Hekmatyar, sem
hvatt hefur til árása á sovésku her-
mennina, jafnvel þótt þeir séu á
fömm.
Vestrænir fréttaskýrendur og
stjómarerindrekar segja það heldur
ólíklegt, að skæmliðaforingjar í
Afganistan, sem ekki eiga aðild að
bráðabirgðastjóminni, muni fallast
á að afsala sér þeim völdum, sem
þeir þegar hafa.
Reuter
Franski siglingamaðurinn Philippe Poupon veifar tiláhorfenda
við komuna til Newport á miðvikudag.
Siglingar:
Met í kappsiglingu
yfir Atlantshafið
Newport í Bandaríkjunum. Reuter.
FRANSKI siglingamaðurinn
Pilippe Poupon bætti í síðustu
viku eigið met i eins-manns-
siglingu yfir Atlantshaf, frá
austri til vesturs. Er sjóleiðin
alls 4.800 km og var hann nú
sex dögum skemur að leggja
þá að baki en siðast þegar hann
tók þátt í keppni á þessari sigl-
ingaleið árið 1984.
Poupon kom í mark í Newport
í Rhode Island-ríki {Bandaríkjun-
um að kvöldi miðvikudags í
síðustu viku. Vom þá liðnir tíu
dagar, níu tímar, fímmtán mínút-
ur og níu sekúndur frá því hann
lagði úr höfn í Plymouth í Eng-
landi.
Þótt Poupon yrði fyrstur í mark
í keppninni árið 1984 hreppti hann
ekki sigurlaunin því að dómnefnd-
in gaf landa hans, Yvon Fauconni-
er, viðbótarstig fyrir að aðstoða
einn siglingamannanna og nægði
það honum til sigurs.
„Þetta var ótrúleg keppni og
veðrið var yndislegt," sagði Poup-
on þegar hann fagnaði sætum
sigri. „Eg hafði ekki byrinn með
mér allan tímann en aðstæðumar
vom góðar og siglingaleiðin vel
valin.“
Níutíu og fímm vom skráðir til
keppninnar að þessu sinni en
þrettán luku henni ekki. Poupon
er fímmti Frakkinn sem sigrar í
siglingakeppninni yfír Atlantshaf
síðan hún var fyrst haldin árið
1960.
Svíþjóð:
Lengri fæðingaror-
lof og sumarleyfi og
fleiri barnaheimili
ODÝRARI
en þú færó hvergi
meira fyrir peningana
Fyrirferðarlítil og falleg Ijósritunarvél með
öllum búnaði til fullkominnar Ijósritunar.
£
. VM,c#é>
1. hlaðin að framan 4. 12 kopíur á mínútu
2. tekur B4 pappír 5. fastur vals
3. vegur aðeins 27 kg. 6. tekur venjulegan pappír
7. og margt margt fleira.
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, simi: 62-37-37