Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 36

Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Brauðið dýra F erming'in aðalum- ræðuefni prestastefnu Mér finnst á þessum þjóð- hátíðardegi, að við eigum á hinn bóginn meira erindi við sjálfa okkur en minningu þeirra sem gengnir eru. Það erindi lýt- ur að varðveizlu sjálfstæðisins, ræktun íslenzkrar menningar og skipan þeirra mála sem varða þjóðarbúskapinn. Þessu hefur okkur verið trúað fyrir.“ Þannig komst Þorsteinn Páls- son forsætisráðherra að orði í þjóðhátíðarávarpi á Austurvelli 17. júní síðastliðinn, sem ástæða er til að vekja athygli á. Hann sagði orðrétt: „Skyldurnar rækjum við í daglegum störfum og ábyrgðin hvílir á herðum okkar allra. Þar verður enginn undan skilinn. í önn og amstri daganna erum við ekki einvörðungu að móta samt- íðina, heldur miklu fremur framtíð okkar sjálfra og barna okkar“. Forsætisráðherra lagði út af sögu Halldórs Laxness af brauð- inu dýra. Þar segir frá Guðrúnu Jónsdóttur sem falið var að flytja brauð milli bæja. Hún fór villt vega dögum saman án þess að það hvarflaði að henni að seðja hugur sitt á brauðinu sem henni var trúað fyrir. „Því sem manni er trúað fyrir, því er manni trúað fýrir,“ sagði konan. Þegar hún var spurð hvort húsbóndaholl- ustan gæti ekki orðið of mikil, spurði hún á móti: „Getur nokk- ur nokkumtíma verið nokkrum trúr nema sjálfum sér?“ íslendingum hefur gengið flest í vil næstliðin fjögur, fimm ár. Hagur þjóðarinnar hefur vænkast og framfarir orðið á öllum sviðum. Aðbúð þjóðarinn- ar, hvers konar, er með þvi bezta sem þekkist í veröldinni. Nú hefur hinsvegar slegið í baksegl- in. Verð sjávarvöru hefur fallið á erlendum mörkuðum á sama tíma og afli hefur dregizt sam- an. Þessar ytri aðstæður hafa lýrt þjóðartekjur, sem og mis- "yengi erlendra gjaldmiðla. Við löfum eina ferðina enn siglt inn efnahagslægð. „Þá bregður svo við að enginn hagsmunahópur finnur til þeirr- ir skyldu að varðveita „brauðið dýra“, sagði forsætisráðherra. „Sá sýnist mestur, sem stærsta sneið klípur af brauðinu áður en þokunni léttir. Mín tilfinning er Sú að vandi okkar sé hvað mest í því fólginn að við göngum sundruð að verki.“ Hér er komið að kjama máls- itis. Með forsjálni hefðum við verið enn betur búin en raun ber vitni, til að mæta sveiflum í sjáv- arafla og söluverði sjávarvöru, sem sjálfgefið var að reikna með. Við erum engu að síður betur í stakk búin nú en nokkru sinni fyrr til að takast á við þann vanda, sem yfir er skollinn, ef við göngum ekki sundruð móti erfiðleikunum, ef við stönd- um saman um varðveizlu „brauðsins dýra“, sameiginlega velferð, það sem okkur er trúað fýrir. Brauðið dýra, sem vernda verður, er ekki gert úr efnahags- legri velferð einni saman. Uppi- staða þess er mál okkar og menning, saga okkar og lýðræð- ishefðir, hin almenna þjóðernis- vitund. í varðveizlu þess dýra brauðs - og aðeins í varðveizlu þess - verður þjóðin trú sjálfri sér, samtíð sinni og framtíð. F æreying-ar Engin þjóð er jafnskyld ís- lendingum og Færeyingar. Uppruni beggja á einn veg, þjóð- tungur af sömu rót, menning náskyld, þjóðhættir svipaðir og atvinnuhættir líkir. Samskipti þjóðanna ná aftur til landnáms beggja landanna, Færeyja og íslands. Þau hafa þó verið mismikil í aldanna rás. Segja má að bræðraböndin hafi verið hert á nítjándu öldinni, með þjóðemisvakningu í báðum lönd- unum, og skútuöldinni á ísland- smiðum. Þá sóttu Færeyingar á íslandsmið og höfðu útræði héð- an. Sjómennska Færeyinga á íslenzkum bátum og togurum á tuttugustu öldinni er og vel kunn. Alla tíð hafa Færeyingar verið Islendingum góðir gestir. Bættar samgöngur hafa leitt til aukinna samskipta milli þess- ara grannþjóða, bæða á menn- ingar- og viðskiptasviðum. Ástæða er til að ætla að þessi samskipti eigi enn eftir að vaxa, báðum þjóðunum til góðs. Það var því ekki af ástæðu- lausu sem Islendingar fögnuðu Atla Dam, lögmanni og virðing- armesta fulltrúa Færeyinga, vel og hjartanlega, þegar hann kom hingað í vináttuheimsókn í boði Vigdísar Finnbogadóttur, for- seta íslands. Þar fór góður full- trúi grann-, frænd- og vinaþjóð- ar. Heimsókn Atla Dam til ís- lands er vottur þess að báðar þjóðimar vilja rækta frændsemi og vináttu sín í milli. Morgun- blaðið biður lögmann Færeyinga fyrir bróðurkveðjur íslendinga til færeysku þjóðarinnar. PRESTASTEFNAN 1988 verð- ur haldin í Langholtskirkju í Reykjavík og verður aðalefni hennar fermingin. Prestastefn- an hefst með guðsþjónustu í Langholtskirkju kl. 10.30 á morgun. Formaður finnska pre- stafélagsins, Juhanni Koppos- ela, predikar en altarisþjónustu annast sr. Sigurður Haukur Guðjónsson staðarprestur og starfsmaður Biskupsstofu, þeir Baldvin sagði að Særún ÁR hefði fengið ágætt verð er hún seldi afla sinn á þriðjudag og gott verð feng- ist líka fyrir gámafiskinn; Þórunn Sveinsdóttir VE hefði fengið 89,10 krónur fyrir kílóið af blönduðum afla, þar af 101 krónu fyrir kílóið af þorski. Fiskurinn væri frá sunn- anverðum Vestfjarðamiðum og væri mjög góður. Njarðvík: Byggðastofnun slegið frysti- hús R.A. Péturssonar á 13 milljónir Keflavík. ENGU var líkara en fólkið hefði skroppið í kaffi eða mat, svuntur héngu á snögum, nokkrum pör- um af hvítum stígvélum hafði verið raðað snyrtilega við einn vegginn og á miða sem hékk á áberandi stað stóð: „Vinna til kl. 19.00.“ Þessi sjón blasti við mönnum þegar þeir gengu inn í hraðfrystihús R.A. Péturssonar í Njarðvík á fimmtudag þegar frystihúsið var selt á nauðungar- uppboði. Athöfnin var stutt, að- eins tveir aðilar buðu og var eignin slegin Byggðastofnun á 13 milljónir. Engin starfsemi hefur verið í frystihúsinu að undanförnu. Brunabótamat eignarinnar er 25,7 milljónir og lét þekktur fisk- verkandi á Suðurnesjum þau orð falla að uppboði loknu, að þetta hefðu verið góð kaup. Á öðru og síðara uppboði sem fram fór 19. maí hafði einn kröfu- hafínn boðið 12 milljónir króna, en á uppboðinu í gær bauð fulltrúi Byggðastofnunar 12,5 milljónir, Sparisjóðurinn í Keflavík bauð 12,7 milljónir, en Byggðastofnun hækk- aði sitt boð í 13 milljónir sem reynd- ist hæsta boð. Erfíðleika hraðfrystihúss R.A. Péturssonar má rekja til fisksölu- svindls við hollenska fiskkaupmenn á síðasta ári, en þá sendi fyrirtæk- ið þessum aðilum 65 tonn af fersk- um fiski án þess að tilskildar greiðslur bærust. Fulltrúi Byggða- stofnunar sem átti 7 milljón króna kröfu í þrotabúið sagði að reynt yrði að selja frystihúsið aftur. - BB sr. Torfi Stefánsson Hjaltalín æskulýðsfulltrúi, sr. Magnús Guðjónsson biskupsritari og sr. Bernharður Guðmundsson fræðslustjóri. Félagar úr kór Langholtskirkju leiða messu- sönginn og organleikari er Ól- afur Finnsson. Klukkan 14 verður síðan presta- stefnan sett í Langholtskirkju með ávarpi biskups og yfirlitsræðu hans um starf kirkjunnar á síðasta Baldvin sagðist eiga von á mikl- um afla inn á Bretlandsmarkað í næstu viku, 100 gáma eða meira, sem væri yfír 1.400 tonn. Þá sagð- ist hann vita um þijú skip sem ætluðu að landa á Humber-svæð- inu. Baldvin sagðist reyna að halda aðeins aftur af mönnum til að fá ekki of mikið inn á markaðinn í einu, en hann hefði heyrt að þetta væri góður fiskur og hann væri alltaf í þokkalegu verði. Humber- svæðið væri geysilega stór markað- ur, sem þyldi mikið, og menn þar væru jafnvel farnir að hafa áhyggj- ur af því að ekki bærist nóg af físki inn á næstunni. Þannig sagðist Baldvin hafa fengið fyrirspurn um hvort hann gæti tryggt sölu á gámafíski á föstu verði í kringum verslunarmannahelgina. starfsári. Þeir Gísli Magnússon píanóleikari og Gunnar Kvaran knéfiðluleikari munu flytja tónlist og ávarp verður flutt frá kirkju- málaráðuneytinu. Setningarat- höfnin verður útvarpað. Að þessu sinni verður fermingin í kastljósi á Prestastefnu og verð- ur lögð til grundvallar ítarleg könnun sem dr. Pétur Pétursson hefur unnið fyrir hönd fermingar- starfanefndar og fjallar um við- horf og vinnubrögð fermingar- fræðara og presta um land allt. Framsögu um aðalefni presta- stefnunnar annast þeir sr. Guð- mundur Óli Ólafsson í Skálholti, sr. Guðmundur Óskar Ólafsson Reykjavík og sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, Útskálum. Einnig flytur sr. Heimir Steinsson á Þing- völlum ávarp frá kirkjufræðslu- nefnd. Á fimmtudag verða starfshópar að verki allan daginn. Fjalla þeir m.a. um námsskrá kirkjunnar vegna fermingarinnar þar sem verður rætt sérstaklega um krist- nidómsþekkingu og tileinkun trú- arlegra gilda. Einnig verður rætt um samvinnu heimilis, kirkju og skóla við fermingarstörfin og um markmið og vinnuaðferðir ferm- ingarstarfa í dreifbýli sem þétt- býli. Prestastefnu verður svo slitið á föstudagskvöld þegar hóparnir hafa greint frá niðurstöðum sínum og umræður hafa farið fram. Prestastefnu Islands lýkur með samveru í Biskupsgarði. Að vanda verða tvö erindi flutt í ríkisútvarpinu á rás 1 á vegum Prestastefnunnar, miðvikudags- kvöldið 22. júní kl. 21.00 flytur sr. Torfi Stefánsson Hjaltalín, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, erindi um ferminguna, sögu henn- ar, guðfræði og stöðu hennar nú, en 27. júnl á sama tíma verður dagskrá í umsjá sr. Pálma Matt- híassonar á Akureyri um Prestafé- lag íslands sem nú heldur upp á 70 ára afmæli sitt. (Fréttatilkynning) Á myndinni eru sitjandi frá vinstri, Þórður Þ. Þorbjarnarson slj inu, Þorvaldur S. Þorvaldsson formaður þess, Jón Helgason landl son lögfræðingur í ráðuneytinu, Vilhjálmur Sigtryggsson framkv Sigurðsson meðstjórnandi. SkógTæktarfélag1 Reykjavíkur: Tvær jarðir í M; leigðar til skógi FELAGSMENN Skógræktarfé- lags Reykjavikur munu brátt eiga þess kost að fá svæði til tijáræktar í Mýrdal. Landbúnað- arráðherra hefur beitt sér fyrir því að leigja félaginu jarðirnar Fell og Álftagróf í þessu skyni. I fréttatilkynningu frá Skóg- ræktarfélaginu segir, að jarðimar verði skipulagðar sem skógræktar- og útivistarsvæði, þar sem félags- mönnum verði gefínn kostur í landspildu til ttjáræktar og að reisE lítinn skála. Aðalfundur félagsins var haldinr fyrir skömmu. Þar kom fram, ac á síðastliðnu ári sá félagið um gróð- ursetningu á um 400 þúsund tijá- plöntum og f sumar starfa um 360 manns á vegum þess. Alls eru fé- Ferskfisksölur í Bretlandi: Eftirspumin glæð- ist í góða veðrinu „EFTIRSPURNIN eftir fiski hefur verið treg síðustu 2-3 vikur en er farin að glæðast aftur. Verðið hækkaði hér á þriðjudaginn og er mjög þokkalegt nú og ég á von á að það haldist einhvern tíma,“ sagði Baldvin Gíslason, forstjóri fisksölufyrirtækisins Gislason and Marr í Hull, þegar Morgunblaðið innti hann eftir ástandi og horfum á ferskfiskmarkaðinum í Bretlandi. Hann sagði að gott veður í Bret- landi hjálpaði til, því ef kalt væri í veðri væri fólk latt að fara út og fá sér „fish and chips“, og reyndar líka ef veðrið væri of heitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.