Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 41
oor>r tVi>T ic rimumuu WWmMTOW
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIFTI AIVINNULÍF
'IIUIMMUIf fittif ’*lvtj’\00Nl
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
41
Erlent
Evrópski stjómandinn,
einráður ogfégráðugur
Strassborg, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
SAMKVÆMT skoðanakönnun sem framkvæmd var nýlega á meðal
1500 fulltrúa og annarra yfirmanna í fyrirtækjum næst forstjórum,
um hugmyndir þeirra um hinn fullkomna stjórnanda kom fram m.a.
að stjórnendur fyrirtækja eru langt frá því að samsvara ímynd hins
ákjósanlega í þeim efnum. Könnunin leiddi í ljós að þeir sem veita
fyrirtækjum forstöðu í Evrópu láta umfram annað stjórnast af fég:
ræðgi og valdafíkn a.m.k. að mati nánustu samstarfsmanna þeirra. í
vali á þátttakendum var miðað við að 50% væru yfir fjörutíu ára aldri.
Könnunin byggðist á því að þátt-
takendum var sendur listi yfir hugs-
anlegá kosti og galla leiðtoga innan
fyrirtækja. Farið var fram á að þeir
mætu þessi atriði annars vegar í ljósi
hins ákjósanlega og hins vegar í ljósi
reynslu sinnar. Samkvæmt mati
þátttakenda eru fihim eiginleikar
mikilvægari en aðrir í fari góðs
stjómanda.
1. Hann verður að geta byggt upp
starfhæfan hóp.
2. Hann þarf að kunna að hlusta.
3. Hann verður að geta i tekið
sjálfstæðar ákvarðanir. 1
4. Hann þarf að geta haldið góðu
fólki.
5. Hann þarf að geta laðað að
sérhæft fólk.
Þegar þátttakendur voru hihs
vegar beðnir að lýsa stjórnanda
sínum var allt annað upp á teningn-
um. Samkvæmt mati þeirra voru
fimm helstu þættimir í fari stjórnan-
dans þessir:
1. Hann getur tekið sjálfstæðar
ákvarðanir.
2. Hann er viljasterkur.
3. Hann er metnaðargjam.
4. Hann er duglegur.
5. Hann er valdagráðugur.
Einungis einn hinna ákjósanlegu
þátta prýða nútímastjórnendur að
mati þeirra sem tóku þátt í könnun-
inni.
Þrír §órðu hlutar þátttakenda
töldu gott siðgæði skipta miklu máli
en rúmlega helmingur var á þeirri
skoðun af stjórnendur hefðu þennan
eiginleika. Ef til till eru stjómendur
fyrirtækja nær þeirri ímynd sem
sköpuð er í Dallas og hvíthærði,jóla-
sveinninn" úr Hollívúddmyndunum
kannski dauður. Á meðan 17% að-
spurðra töldu að ágóðavon væri
æskilegur eiginleiki voru rúmlega
40% þeirrar skoðunar að það væri
afgerandi þáttur í fari stjómenda
þeirra. Innan við 10% töldu að stjóm-
andinn ætti að vera samviskulaus
og „töff“ en tæplega þriðjungur
sagði þetta vera áberandi þátt í
skapgerð forstjórans síns. „Lítill,
sköllóttur og óvinsæll" virðist dóm-
urinn yfir forstjómnum vera, a.m.k.
samkvæmt viðhorfum þeirra sem
fjærst em toppnum,
Niðurstöðurnar vom annars þess-
ar:
Niðurstöður könnunarinnar hafa
vakið menn til umhugsunar um það
hveijir lesi öll þau fræði sem á þrykk
hafa útgengið um stjórnun og skyld-
ur stjórnenda. Mönnum var það að
sjálfsögðu ánægjuefni að niðurstöð-
ur könnunarinnar hvað snertir ákjós-
anlega eiginleika stjórnenda em í
góðu samræmi við þær skoðanir sem
settar hafa verið fram. Ef til vill em
þar fundnir þeir sem lesa stjórnunar-
fræðin og sækja öll námskeiðin.
í könnuninni var einnig spurt um
á hvaða stjórnanda þátttakendur
hefðu mest dálæti. í efsta sæti varð
Margaret Thatcer, forsætisráðherra
Bretlands, með tvöfalt fleiri atkvæði
en sá sem næstur kom, Míkhaíl
Gorbatsjov. Að líkum vom margir
tilnefndir en þessi tvö bám af. Sömu-
leiðis töldu aðspurðir að best væri
stjórnun í Japan (24%) og Banda-
ríkjunum (34%). Þegar búið var að
reikna frá þjóðrembuatkvæði var
V-Þýskaland eina Evrópulandið sem
komst á blað (5%).
FORSVARSMENN —
I skoðanakönnun kom í ljós
að þeir sem veita fyrirtækj-
um forstöðu eru langt frá
því að vera ímynd hins
áskjósanlegasta yfirmanns,
því að þeir láta stjórnast af
fégræðgi og valdafíkn,
a.m.k. að mati nánustu
samstarfsmanna.
Getur myndað sterkan hóp Ákjósanlegt 96% Raunverulegt 50%
Kann að hlusta 93% 44%
Tekur sjálfur ákvarðanir 87% 66%
Kann að halda góðu fólki 86% 39%
Safnar að sér góðu fólki 85% 50%
Duglegur 85% 62%
Hugmyndaríkur 83% 47%
Hugsjónamaður 79% 45%
Gerir miklar siðgæðiskröfur 76% 53%
Sterkur persónuleiki 74% 51%
Viljasterkur 70% 65%
Þroskaður 67% 57%
Kann að stjórna nefndum 65% 45%
Hefur alþjóðlegt yfirbragð 64% 59%
Hefur skilning á tækninýjungum 64% ’ 47%
Hefur skýra framsetningu 62% 47%
Metnaðargjarn 62% ' 65%
Líkamlega hraustur 60% 51%
Hefur persónutöfra 54% 34%
Lýðræðislegur í vinnubrögðum 40% 31%
Vel lesinn 38% 41%
Valdagráðugur 35% 59%
Hefur leiðtogaútlit 30% 44%
Áhugasamur, tillitssamur 30% 24%
Dáður af öllum 20% 29%
Fégráðugur 17% 40%
Ósvífinn, samviskulaus 10% 28%
Talar niður til fólks 6% 28%
*
Ibúar
V-Þýska-
lands verða
sífelltríkarí
ÞRÁTT fyrir mikið verðhrun á
hlutabréfum í Vestur-Þýska-
landi á seinasta ári, óx fjár-
magnseign hins almenna borg-
ara í landinu um 4%. Samtals
taldist fjármagnseign almenn-
ings í árslok vera 2,420 bilijónir
þýskra marka sem gerir töl-
fræðilega séð um 40.000 mörk á
hvern íbúa landsins. Fjármagns-
eign í Þýskalandi en til hennar
telst lausafé, óbundnar og
bundnar bankainnistæður, verð-
bréf á föstum vöxtum, hluta-
bréf, fjárfestingar í byggingar-
sjóðum og í tryggingarsjóðum
hefur þar með þijátíufaldast á
seinustu 30 árum og gerir Þjóð-
veija að einum af ríkustu borg-
urum heims.
Stærsta hluta ijármagnseignar
sinnar heldur hinn almenni þjóð-
verji á bankabókum eða samtals
694 milljarða (29%). Hlutur fjár-
magns bundið í hlutabréfum lækk-
aði töluvert á seinasta ári eða úr
6,7% í 4,9%. Skýringin á þessu er
annars vegar sú að vegna verðfalls
minnkaði verðmæti hlutabréfa og
þar með einnig hlutfall gagnvart
öðrum fjármagnseignum og hins
vegar að töluverður flótti var með-
al almennings frá þessu formi fjár-
magnsbindingar. Á sama tíma óx
hlutur verðbréfa á föstum vöxtum
um 20 upp í 355 milljarða eða
14,6% af heildarfjármagni,
Á seinustu vikum hefur þróunin
frá hlutabréfum yfír í verðbréf með
föstum vöxtum eitthvað verið að
snúast við. Skýringin á þessu er
annars vegar sú að gengi hluta-
bréfa á verðbréfamörkuðum hér-
lendis hefur eitthvað reist sig aftur
eftir margra mánaða lægð og hins
vegar vegna þess að ekki er útséð
með það hvemig raunvextir af
verðbréfum með föstum vöxtum
komi til með að þróast á næstunni.
JÚNÍTILBOÐ NESCO
Allt að 40% afsláttur af lægsta verði í bænum
Nesco Laugavegi er þekkt fyrir sitt lága verö.
Og nú þegar sólin er sem hæst á lofti lækkar
veröiö í Nesco Laugavegi enn meira á öllum
vörum.
Það sem eftir er afjúnímánuði býðst þér 10 til
40% afsláttur á vídeótökuvélum, myndbands-
tækjum, sjónvarpstækjum, hljómtækjum,
geislaspilurum og fleiru, og fleiru.
N Ý R V A R N I N G U R
Júnítilboð NESCO Verð áður Tilboðsverð
ORION VH2004 hi-fi-stereo myndbandstæki með fjarstýringu kr. 65.900 kr. 39.540
Vandaður japanskur XENON geislaspilari með fjarstýringu kr. 14.900 kr. 11.175
AKAI 220 w hljóm- tækjasamstæða, árg. '88 kr. 45.900 kr. 34.425
GRUNDIG 22" sjónvarp með flötum og hornréttum skjá kr. 55.900 kr. 47.515
Næg bílastæði
við Klapparstíg
Öll verð miða við staðgreiðslu.
Ci
Vídeótökuvélar • Myndbandstæki • Hljómtækjasamstæður • Sjónvarpstæki • Geisla-
spilarar • Skáktölvur • Ferðaútvörp í miklu úrvali • Ferða útvarps- og kassettutæki • Útvarps
vekjaraklukkur • Bíltæki • Hljómtækjaskápar • Hjólaborð undir sjónvörp • og fleira, og fleira.
Athugaðu, að þetta einstaka tilboð
stendur aðeins til mánaðamóta.
LRUGRI/EGUR HF
Komdu og prúttaðu við okkur í prútthorninu. Laugavegi 10, sími 27788
I07T FÓLK / SlA