Morgunblaðið - 21.06.1988, Síða 56

Morgunblaðið - 21.06.1988, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 PATRICK PATRICK GRASSKÓR PATRICK MALARSKÓR • Heitur matur í hádeginu. Lambaframhryggur 495 00 pr-kg- Grillkótilettur 475 00 pr-kg- SANITAS KYNNING: Pepsi • Appelsín • 7up 2 lítrar á AÐEINS Fjölskyldupakkning Kjúklingar í grillpakka tilbúnir á grillið! GriIIaðir kjúklingar alla eftirmiðdaga! GRILLKOL 3kg-i29°° PATRICK MALARSKÓR PATRICK GOLFSKÓR HEILDVERSLUN SUÐURLANDSBRAUT 22 SÍMI 68 89 88 H€LLÍS Ekki bara venjuleg, heldur DINÓ hjól. Falleg, örugg og á góðu verði. Dinó — það sem foreldrar velja fyrir börnin sín. < í, f Helga S. Jónsdóttír Fædd 1G. október 1895 Dáin ll.júní 1988 Löng leið var að baki og þreytu- merkin augljós. Miklu dagsverki var skilað og kraftamir þrotnir. Við þess- ar aðstæður var hvíldarinnar beðið. Hún fékkst 11. júní sl. Þann dag lést á Hrafnistu í Reykjavík amma mín, Helga Sigurlína Jónsdóttir. Helga fæddist á Akureyri 16. okt- óber 1895. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Jónsson, verslunarmaður, og Jóhanna Gísladóttir, bæði skagfir- skrar ættar. Systkini Helgu voru Gunnlaugur Tryggvi, sem um skeið var ritstjóri íslendings, Ingibjörg, húsmóðir á Siglufírði, sem gift var Andrési Haf- liðasyni og Alfreð, verslunarmaður á Akureyri, sem kvæntur var Báru Siguijónsdóttur. Þá átti hún eina hálfsystur, samfeðra, Guðrúnu, sem bjó á Stórahamri í Öngulsstaða- hreppi í Eyjafjarðarsýslu. Helga lifði systkini sín öll. Helga fluttist til Siglufjarðar skömmu eftir 1920 og bjó þar í rúma hálfa öld. Þar kynntist hún Skafta Stefánssyni, sem jafnan var kenndur við Nöf. Þau giftust árið 1924. Helga og Skafti eignuðust fimm böm. Það elsta, Dýrleif, lést skömmu eftir fæðingu, en hin bömin em: Jon, yfirborgarfógeti í Reykjavík. Kona hans er Hólmfríður Gestsdótt- ir. Þau eiga fjögur böm. Stefán, yfir- læknir á Borgarspítalanum. Kona hans er Maj Skaftason. Þau eiga tvö böm, an auk þeirra á Stefán dóttur frá fýrra hjónabandi. Gunnlaugur Tryggvi, skrifstofumaður. Kona hans er Vigdís Jónsdóttir. Jóhanna Dýr- leif, bókasafnsfræðingur. Hennar maður er Bjöm Gunnarsson. Þau eiga tvö böm. A Siglufirði bjuggu Helga og Skafti flest sín hjúskaparár. Þar reis heimili þeirra, Nöfin, í flæðarmáliu nokkuð sunnan við Eyrina. Út frá húsinu gengu bryggjumar fram í sjó og þar iðaði allt af lífí á síldarárunum þegar Skafti var einn umsvifamesti síldarsaltandinn á Siglufirði. Sjálfsagt hafa árin á Nöfínni ekki alltaf verið Helgu auðveld. Starf bóndans tengdist sjósókn og síldar- verkun. í tæpa tvo áratugi sá Skafti um póst— og mjólkurflutninga sjó- leiðis milli Siglufjarðar og Skaga- fjarðarbyggða. Þessu fylgdu miklar fjarvistir frá heimilinu og óvissa fyr- ir þá sem heima sátu þegar veður urðu válynd á þessari hættulegu sigl- ingaleið. Varð fjölskyldan t.d. einu sinni fyrir því að bátur Skafta var talinn hafa farist og áhöfnin með. Sem betur fór reyndist þetta ekki rétt, báturin hafði orðið vélarvana og fannst á þriðja degi. Ævistarf Skafta og Helgu var mikið tengt síldinni. A Nöfinni var rekin ein stærsta síldarsöltunarstöðin á Siglufírði, allt til þess tíma er síldin hvarf fyrir Norðurlandi í byijun sjö- unda áratugarins. Var þá oft gest- kvæmt og mannmargt á Nöfínni og mikið sem á Helgu mæddi. Meðal annars fékk hún á vorin sendan strák að sunnan, sem hún hafði til sum- ardvalar ellefu ár í röð, fyrsta suma- rið bara fjögurra ára gamlan. Strák- urinn var sá sem þessar línur skrifar. Þessi ellefu sumur kynntist ég hjartastórri konu, sem með umburð- arlyndi og þolinmæði reyndi að gera mann úr þessum dreng. Hún gaf sér alltaf nægan tíma til þess að hlusta á spumingar mínar og gefa sín svör. Hún var mjög trúrækin og innrætti mér sterka bamatrú. Er ég oft minntur á það af móður minni, að fyrsta haustið sem ég kom suður frá Siglufírði, þá fjögurra ára gamall, spurði hún mig hvort ég ætlaði aftur til Siglufjarðar næsta vor. Svarið var: „Já, ef Guð lofar mér að lifa.“ Þennan fyrirvara höfðu Skafti og Helga á öllum sínum fyrirætlunum. Eftir að síldin hvarf varð rólegt yfir Siglufirði og tómlegt um að lit- ast á Nöfínni. Ég og konan mín fund- um þó að gestrisnin var óbreytt á Nöfinni sumarið 1970, þegar við komum þangað síðast, þótt flest ann- að hafí verið breytt. Vonbrigðin á Siglufírði hljóta að hafa verið mikil og vart hefur það verið sársauka- laust fyrir fullorðin hjón að horfa á eignir sínar grotna niður og verða verðlausar og geta ekkert við því gert. Að því kom að húsráðendur á Nöfínni fluttu. Árið 1973 fengu þau litla íbúð í raðhúsi hjá Dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík. Þar áttu þau saman nokkur friðsæl ár í nálægð við sína afkomendur, sem allir hafa sest að á Reykjavíkursvæð- inu. Skafti lést árið 1979 og flutti Helga þá í herbergi á Hrafnistu, þar sem hún bjó til hins síðasta. Á þeim stað kynntust börnin mín langömmu sinni og fundu sömu hjartahlýjuna og ég naut á Siglufírði forðum. Fyrir hana þökkum við nú öll. Gestur Jónsson Kveðja Þann 11. júní sl. lést á Hrafnistu í Reykjavík ömmusystir mín, Helga Jónsdóttir, eftir langa og erfiða sjúk- dómslegu. Helga var fædd og uppalin í Gilinu á Akureyri. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, utanbúðarmaður hjá Höpfner-versluninni og kona lians, Jóhanna Gísladóttir. Helga kom fyrst til Sigluíjarðar sem ung stúlka en þar átti hún eftir að eyða mestum hluta farsællar ævi í faðmi hárra fjalla. 6. mars 1924 giftist Helga Skafta Stefánssyni frá Nöf við Hofsós en hann lést í júlí 1979. Skafti var út- gerðarmaður og síldarsaltandi á Si- glufírði og kannast flestir Siglfirð- ingar við þau hjón sem Helgu og Skafta á Nöf. Þó að lífið væri oft erfítt og efna- hagsleg afkoma háð veðri, sjósókn og aflabrögðum var ömmusystir mín gæfumaður. Hún átti góðan lífsföru- naut og miklu bamaláni að fagna. Börn þeirra er upp komust eru Jón yfirborgardómari, kvæntur Hólmfríði Gestsdóttur, Stefán yfírlæknir, kvæntur Maj Skaftason, Gunnlaugur Tryggvi skrifstofumaður, kvæntur Vigdísi Jónsdóttur og Jóhanna bóka- safnsfræðingur, gift Birni Gunnars- syni. Barnabömin em níu og bama- bamabömin tíu. Helga var gáfuð kona, bókhneigð og mjög víðlesin. Hún var ljóðelsk og kunni urmul ljóða. Saknaði hún þess nú síðari ár að geta ekki stytt sér stundimar með lestri. Þau hjón sóttu kirkju sína vel enda bæði trú- uð. Heyra mátti á tali þeirra að þau þekktu æðri mátt og trúðu að annað líf tæki við af þessu. Skafti var einn- ig fróður maður og hafði góða frá- sagnargáfu. Man ég að við systkinin sátum stundum og hlustuðum á sög- ur hans, með ró sinni og sefandi röddu náði hann athygli okkar fjör- kálfanna vel. Sérstaklega er okkur það minnisstætt hvemig hann lygndi aftur augunum þegar hann talaði þannig að okkur þótti sem hann svæfi þó að vel vakandi væri. Ég minnist þess að gott þótti okk- ur að koma á Nöfina til Helgu ömmu- systur. Hún átti jafnan einhver sæt- indi í skápnum sem hún gaukaði að okkur og til að renna góðgætinu nið- ur fengum við vallas eða appelsín. Gestrisni var henni í blóð borin og hélt hún henni alla tíð og tók ætíð á móti okkur með sínu fallega brosi. Þó að Helga gæti stundum verið snögg í tilsvörum var hún hjartahlý. Það fundum við krakkamir og það laðaði að. Hún mátti helst ekkert aumt sjá og vildi gera öllum vel. Helga notaði íslenska upphlutinn mikið við hátíðleg tækifæri og fannst mér hún alveg afskaplega fín í hon- um enda bar hún hann vel. Þau settu svip á bæinn Helga og Skafti á Nöf. Ingibjörg systir Helgu var amma mín. Hún dó árið áður en ég fædd- ist, kynntist ég henni þvi ekki. Sem barn heyrði ég talað um ömmu mína og að þær systur hefðu verið sam- rýndar. Reyndi ég oft að ímyndað mér hvernig amma hefði verið út frá kynnum mínum af Helgu og stundum ímyndaði ég mér að Helga væri amma mín, þar sem ég átti enga ömmu. Síðustu árin sem Helga og Skafti bjuggu á Siglufirði voru þau stundum hjá okkur á jólunum. Það þótti okkur ákaflega gaman því þau voru eins konar afi og amma. Fannst mér ég

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.