Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
PATRICK
PATRICK GRASSKÓR
PATRICK MALARSKÓR
• Heitur matur í hádeginu.
Lambaframhryggur 495 00 pr-kg-
Grillkótilettur 475 00 pr-kg-
SANITAS
KYNNING:
Pepsi • Appelsín • 7up
2 lítrar
á AÐEINS
Fjölskyldupakkning
Kjúklingar í grillpakka
tilbúnir á grillið!
GriIIaðir kjúklingar
alla eftirmiðdaga!
GRILLKOL
3kg-i29°°
PATRICK MALARSKÓR
PATRICK GOLFSKÓR
HEILDVERSLUN
SUÐURLANDSBRAUT 22
SÍMI 68 89 88
H€LLÍS
Ekki bara venjuleg, heldur DINÓ hjól.
Falleg, örugg og á góðu verði.
Dinó — það sem foreldrar velja fyrir börnin sín.
<
í,
f
Helga S. Jónsdóttír
Fædd 1G. október 1895
Dáin ll.júní 1988
Löng leið var að baki og þreytu-
merkin augljós. Miklu dagsverki var
skilað og kraftamir þrotnir. Við þess-
ar aðstæður var hvíldarinnar beðið.
Hún fékkst 11. júní sl. Þann dag
lést á Hrafnistu í Reykjavík amma
mín, Helga Sigurlína Jónsdóttir.
Helga fæddist á Akureyri 16. okt-
óber 1895. Foreldrar hennar voru
hjónin Jón Jónsson, verslunarmaður,
og Jóhanna Gísladóttir, bæði skagfir-
skrar ættar.
Systkini Helgu voru Gunnlaugur
Tryggvi, sem um skeið var ritstjóri
íslendings, Ingibjörg, húsmóðir á
Siglufírði, sem gift var Andrési Haf-
liðasyni og Alfreð, verslunarmaður á
Akureyri, sem kvæntur var Báru
Siguijónsdóttur. Þá átti hún eina
hálfsystur, samfeðra, Guðrúnu, sem
bjó á Stórahamri í Öngulsstaða-
hreppi í Eyjafjarðarsýslu. Helga lifði
systkini sín öll.
Helga fluttist til Siglufjarðar
skömmu eftir 1920 og bjó þar í rúma
hálfa öld. Þar kynntist hún Skafta
Stefánssyni, sem jafnan var kenndur
við Nöf. Þau giftust árið 1924.
Helga og Skafti eignuðust fimm
böm. Það elsta, Dýrleif, lést skömmu
eftir fæðingu, en hin bömin em:
Jon, yfirborgarfógeti í Reykjavík.
Kona hans er Hólmfríður Gestsdótt-
ir. Þau eiga fjögur böm. Stefán, yfir-
læknir á Borgarspítalanum. Kona
hans er Maj Skaftason. Þau eiga tvö
böm, an auk þeirra á Stefán dóttur
frá fýrra hjónabandi. Gunnlaugur
Tryggvi, skrifstofumaður. Kona hans
er Vigdís Jónsdóttir. Jóhanna Dýr-
leif, bókasafnsfræðingur. Hennar
maður er Bjöm Gunnarsson. Þau
eiga tvö böm.
A Siglufirði bjuggu Helga og
Skafti flest sín hjúskaparár. Þar reis
heimili þeirra, Nöfin, í flæðarmáliu
nokkuð sunnan við Eyrina. Út frá
húsinu gengu bryggjumar fram í sjó
og þar iðaði allt af lífí á síldarárunum
þegar Skafti var einn umsvifamesti
síldarsaltandinn á Siglufirði.
Sjálfsagt hafa árin á Nöfínni ekki
alltaf verið Helgu auðveld. Starf
bóndans tengdist sjósókn og síldar-
verkun. í tæpa tvo áratugi sá Skafti
um póst— og mjólkurflutninga sjó-
leiðis milli Siglufjarðar og Skaga-
fjarðarbyggða. Þessu fylgdu miklar
fjarvistir frá heimilinu og óvissa fyr-
ir þá sem heima sátu þegar veður
urðu válynd á þessari hættulegu sigl-
ingaleið. Varð fjölskyldan t.d. einu
sinni fyrir því að bátur Skafta var
talinn hafa farist og áhöfnin með.
Sem betur fór reyndist þetta ekki
rétt, báturin hafði orðið vélarvana
og fannst á þriðja degi.
Ævistarf Skafta og Helgu var
mikið tengt síldinni. A Nöfinni var
rekin ein stærsta síldarsöltunarstöðin
á Siglufírði, allt til þess tíma er síldin
hvarf fyrir Norðurlandi í byijun sjö-
unda áratugarins. Var þá oft gest-
kvæmt og mannmargt á Nöfínni og
mikið sem á Helgu mæddi. Meðal
annars fékk hún á vorin sendan strák
að sunnan, sem hún hafði til sum-
ardvalar ellefu ár í röð, fyrsta suma-
rið bara fjögurra ára gamlan. Strák-
urinn var sá sem þessar línur skrifar.
Þessi ellefu sumur kynntist ég
hjartastórri konu, sem með umburð-
arlyndi og þolinmæði reyndi að gera
mann úr þessum dreng. Hún gaf sér
alltaf nægan tíma til þess að hlusta
á spumingar mínar og gefa sín svör.
Hún var mjög trúrækin og innrætti
mér sterka bamatrú. Er ég oft
minntur á það af móður minni, að
fyrsta haustið sem ég kom suður frá
Siglufírði, þá fjögurra ára gamall,
spurði hún mig hvort ég ætlaði aftur
til Siglufjarðar næsta vor. Svarið
var: „Já, ef Guð lofar mér að lifa.“
Þennan fyrirvara höfðu Skafti og
Helga á öllum sínum fyrirætlunum.
Eftir að síldin hvarf varð rólegt
yfir Siglufirði og tómlegt um að lit-
ast á Nöfínni. Ég og konan mín fund-
um þó að gestrisnin var óbreytt á
Nöfinni sumarið 1970, þegar við
komum þangað síðast, þótt flest ann-
að hafí verið breytt. Vonbrigðin á
Siglufírði hljóta að hafa verið mikil
og vart hefur það verið sársauka-
laust fyrir fullorðin hjón að horfa á
eignir sínar grotna niður og verða
verðlausar og geta ekkert við því
gert. Að því kom að húsráðendur á
Nöfínni fluttu. Árið 1973 fengu þau
litla íbúð í raðhúsi hjá Dvalarheimili
aldraðra sjómanna í Reykjavík. Þar
áttu þau saman nokkur friðsæl ár í
nálægð við sína afkomendur, sem
allir hafa sest að á Reykjavíkursvæð-
inu. Skafti lést árið 1979 og flutti
Helga þá í herbergi á Hrafnistu, þar
sem hún bjó til hins síðasta. Á þeim
stað kynntust börnin mín langömmu
sinni og fundu sömu hjartahlýjuna
og ég naut á Siglufírði forðum.
Fyrir hana þökkum við nú öll.
Gestur Jónsson
Kveðja
Þann 11. júní sl. lést á Hrafnistu
í Reykjavík ömmusystir mín, Helga
Jónsdóttir, eftir langa og erfiða sjúk-
dómslegu.
Helga var fædd og uppalin í Gilinu
á Akureyri. Foreldrar hennar voru
Jón Jónsson, utanbúðarmaður hjá
Höpfner-versluninni og kona lians,
Jóhanna Gísladóttir. Helga kom fyrst
til Sigluíjarðar sem ung stúlka en
þar átti hún eftir að eyða mestum
hluta farsællar ævi í faðmi hárra
fjalla.
6. mars 1924 giftist Helga Skafta
Stefánssyni frá Nöf við Hofsós en
hann lést í júlí 1979. Skafti var út-
gerðarmaður og síldarsaltandi á Si-
glufírði og kannast flestir Siglfirð-
ingar við þau hjón sem Helgu og
Skafta á Nöf.
Þó að lífið væri oft erfítt og efna-
hagsleg afkoma háð veðri, sjósókn
og aflabrögðum var ömmusystir mín
gæfumaður. Hún átti góðan lífsföru-
naut og miklu bamaláni að fagna.
Börn þeirra er upp komust eru Jón
yfirborgardómari, kvæntur Hólmfríði
Gestsdóttur, Stefán yfírlæknir,
kvæntur Maj Skaftason, Gunnlaugur
Tryggvi skrifstofumaður, kvæntur
Vigdísi Jónsdóttur og Jóhanna bóka-
safnsfræðingur, gift Birni Gunnars-
syni. Barnabömin em níu og bama-
bamabömin tíu.
Helga var gáfuð kona, bókhneigð
og mjög víðlesin. Hún var ljóðelsk
og kunni urmul ljóða. Saknaði hún
þess nú síðari ár að geta ekki stytt
sér stundimar með lestri. Þau hjón
sóttu kirkju sína vel enda bæði trú-
uð. Heyra mátti á tali þeirra að þau
þekktu æðri mátt og trúðu að annað
líf tæki við af þessu. Skafti var einn-
ig fróður maður og hafði góða frá-
sagnargáfu. Man ég að við systkinin
sátum stundum og hlustuðum á sög-
ur hans, með ró sinni og sefandi
röddu náði hann athygli okkar fjör-
kálfanna vel. Sérstaklega er okkur
það minnisstætt hvemig hann lygndi
aftur augunum þegar hann talaði
þannig að okkur þótti sem hann
svæfi þó að vel vakandi væri.
Ég minnist þess að gott þótti okk-
ur að koma á Nöfina til Helgu ömmu-
systur. Hún átti jafnan einhver sæt-
indi í skápnum sem hún gaukaði að
okkur og til að renna góðgætinu nið-
ur fengum við vallas eða appelsín.
Gestrisni var henni í blóð borin og
hélt hún henni alla tíð og tók ætíð
á móti okkur með sínu fallega brosi.
Þó að Helga gæti stundum verið
snögg í tilsvörum var hún hjartahlý.
Það fundum við krakkamir og það
laðaði að. Hún mátti helst ekkert
aumt sjá og vildi gera öllum vel.
Helga notaði íslenska upphlutinn
mikið við hátíðleg tækifæri og fannst
mér hún alveg afskaplega fín í hon-
um enda bar hún hann vel. Þau settu
svip á bæinn Helga og Skafti á Nöf.
Ingibjörg systir Helgu var amma
mín. Hún dó árið áður en ég fædd-
ist, kynntist ég henni þvi ekki. Sem
barn heyrði ég talað um ömmu mína
og að þær systur hefðu verið sam-
rýndar. Reyndi ég oft að ímyndað
mér hvernig amma hefði verið út frá
kynnum mínum af Helgu og stundum
ímyndaði ég mér að Helga væri
amma mín, þar sem ég átti enga
ömmu.
Síðustu árin sem Helga og Skafti
bjuggu á Siglufirði voru þau stundum
hjá okkur á jólunum. Það þótti okkur
ákaflega gaman því þau voru eins
konar afi og amma. Fannst mér ég