Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 ► Stæröir: 13" - 14" - 15" Litir: Hvítir / siifur Seldir í settum eða stakir HEILDSALA SMÁSALA ! FaI =1 =47 SKEIFUNNISA SIMI 91 8 47 88 HJÓLKOPPAR SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 SIEMENS sjónvarpstæki - aldrei ódýrari! Stefanía Vilhjálms- dóttir - Minning FS928 25“ flatskjár, stereo, 31 stöðva minni, HiFi-magn- ari, sjálfvirkurstöðvaleit- ari, tengi fyrir heyrnartól, þráðiaus fjarstýring. Verð: 76.700.- FS 937 28“ flatskjár, stereo, 31 stöðva minni, HiFi-magn- ari, sjálfvirkur stöðvaleit- ari, tengi fyrir heyrnartól, þráðlaus fjarstýring. Verð: 80.740.- í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLi OGÁRÁÐHÚSTORGI gleði og uppörfunar. Við erum öll, sem með Stefaníu unnum í gegnum árin, þakklát henni fyrir tryggð hennar og ein- læga vináttu og á þessari kveðju- stund sendum við ættingjum hennar og ástvinum öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Minning hennar mun lengi lifa meðal vina hennar og samstarfsfólki hjá Olíufélaginu hf. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Á.K.Þ. Það var mikið reiðarslag þegar það fréttist að Stebba frænka hefði veikst og dáið nokkrum klukkutím- um síðar á sjúkrahúsi í Sviss. Hún hafði farið í ferðalag 5. júní og ætlað að ferðast um Sviss og Frakk- land. Á miðvikudegi 8. júní veiktist hún og var daín áður en dagurinn var liðinn. Stebba var föðursystir mín, og svo langt sem ég man fylgdist hún með okkur systkinunum í blíðu og stríðu. Hún var til heimilis hjá for- eldrum mínum í mörg ár, en árið 1971 keypti hún sér íbúð í Kópa- vogi, og svo nokkrum árum seinna skipti hún um íbúð og átti heima í Skaptahlíð 10 til dauðadags. Heimilið hennar var mjög fallegt enda var hún afar listræn. Hann- yrðir hennar voru frábærlega fal- lega unnar. Vandvirkni og snyrti- mennska voru hennar einkennis- merki alla tíð. Hún var yngst af sjö systkinum, fædd 1.1. 1912 á Hánefsstöðum í Seyðisfirði. Foreldrar hennar voru Björg Sigurðardóttir og Vilhjálmur Ámason. Hún ólst þar upp á mjög stóru og mannmörgu hemili. Stebba fór í Húsmæðraskóla. Fyrri veturinn í Mjóanesi hjá Sigrúnu Pálsdóttur og Benedikt Blöndal en seinni veturinn á Hallormstað, þar sem skólinn var þá í fyrsta sinn. Hún starfaði alla tíð við bók- halds- og skrifstofustörf, bæði heima og erlendis, síðast hjá Olíufé- laginu hf., þar til hún hætti vegna aldurs. Stebba vann mikið fyrir Styrkt- arfélag vangefinna og var ein af stofnendum þess, og lét sér velferð þess miklu varða. Margir munu sakna Stebbu og við sem þekktum hana mest og best, finnst tómið mikið, ekki síst foreldrum mínum sem höfðu dag- legu samskipti við hana. Við biðjum góðan Guð að gefa henni góða heimkomu í fyrirheitna landið og þökkum henni alla tryggð- ina í gegnum öll árin. Björg Hjálmarsdóttir og fjölskylda. Stebba er dáin. Hún dó í fjarlægu landi, svo óvænt að það virðist óskiljanlegt. Hún kvaddi ánægð og með tilhlökkun í huga því hún vænti góðra daga framundan í ferð um Evrópu. Hún stefndi til Suður- Frakklands, en þar hafði hún ekki ferðast áður. Stebba hafði mikla ánægju af ferðalögum. Á hverju vori fór hún að hugsa sér til hreyf- ings, hugleiða hvert halda skyldi í sumarfrí. Hún hafði ferðast um þvera og endilanga Evrópu, séð fjöl- margt áhugavert og skoðað flesta þá staði sem hún hafði löntun til að kynna sér. Um Island ferðaðist hún einnig mikið og fáir voru þeir merkisstaðir þar sem hún hafði ekki komið. í Ameríku dvaldi hún um tíma og fór þar víða, sér til ánægju og fróðleiks.s Þessi orð eiga ekki að vera ævi- ágrip, heldur aðeins kveðjuorð um vinkonu mína og frænku. Við hitt- umst oft og á milli okkar var ætíð gott samband og náin tengsl, enda vildi Stebba fylgjast með vinum sínum og vandamönnum. Við áttum margar stundir saman þar sem við spjölluðum um allt milli himins og FC910 21 “ flatskjár, 40 stöðva minni, 99 rásir, tengi fyrir heyrnartól, þráðlaus fjar- stýring. Verð: 55.770.- Fædd 1. janúar 1912 Dáin 8. júní 1988 Fregnin um andlát Stefaníu kom okkur samstarfsfólki hennar hjá olíufélaginu hf. mjög á óvart, en hún lést á sjúkrahúsi í Sviss 8. þ.m. Að heiman fór hún í ferðalag á vegum Ferðaskrifstofunnar Sögu, hress og frísk, og var ætlunin að ferðast um Sviss og Frakkland en í Interlaken í Sviss ætlunin að ferð- ast um Sviss og Frakkland en í Interlagen í Sviss kenndi hún sér lasleika er hún taldi aðeins vera verk í baki, en að kvöldi þess sama dags, er hún hafði samband við lækni sjúkrahússins þar, andaðist hún. Enn á ný sannaðist að enginn má sköpum renna. Stefanía var fædd að Hánefs- stöðum á nýársdag 1912. Hún var af hinni þekktu Hánefsstaðaætt, en foreldrar hennar voru sæmdarhjón- in Vilhjálmur Árnason og Björg Sigurðardóttir. Hún stundaði nám í tvo vetur við Húsmæðraskólann á Hallormsstað, en það voru einmitt fyrstu starfsár skólans. Starfsferill hennar var orðinn langur, því ung að árum vann hún aihliða störf hjá bæjarskrifstofu Seyðisfjarðar en Hjálmar bróðir hennar var bæjar- fógeti og sýslumaður á Seyðisfirði á þeim árum. Hún starfaði eitt ár hjá sænska samvinnusambandinu í Stokkhólmi, þar sem hún aflaði sér mikils fróðleiks í þeirri starfsgrein, er hún helgaði krafta sína, nefni- lega við bókhald- og alhliða skrif- stofustörf. í Bandaríkjunum var hún um rúmlega eins árs skeið, til þess að auka við þekkingu sína og til að víkka sjóndeildarhringinn. Áður en hún hóf störf hjá olíufé- laginu hf. 1. júní 1962 hafði hún unnið við skrifstofustörf m.a. hjá Elíasi Þorsteinssyni í Keflavík, hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga. Hjá Olíufélaginu Hf. vann hún óslitið til 31. ágúst 1982 og hafði hún þá náð hámarks aldri starfsmanna og gat nú sest í h’elgan stein. Við hjá Olíufélaginu hf. nutum því samvista hennar í full 20 ár og var hún dáð og virt af samstarfs- fólkinu og yfirmönnum félagsins, er mátu mikils samviskusemi henn- ar í öllum störfum. { þau sex ár, sem liðin eru, síðan hún lét af störfum hjá félaginu, hefur hún alla tíð haldið tryggð við okkur og félagið og heimsótti okkur á skrifstofuna okkur til ánægju, jarðar. Stebba var fróð kona og gott við hana að ræða. Ég þakka henni fyrir þær ánægjustundir. Nú hefur hún kvatt og er farin í sína síðustu ferð. Ég óska henni góðrar heimkomu til fyrirheitna landsins og þakka henni alla þá elsku sem hún ætíð sýndi mér og mínum. Elísabet G. Hermannsdóttir Þó að brotni þorn í sylgju, þó að hrökkvi fiðlustrengur eg hef sæmt hann einni fylgju: óskum mínum hvar hann gengur. (H.L) Hún Stebba frænka er dáin. Þannig var mér sagt frá láti frænku minnar Stefaníu Vilhjálmsdóttur. Hún var á ferðalagi í Sviss þegar kallið kom. Stefanía var fædd á Hánefsstöðum við Seyðisfjörð 1. janúar 1912 og var yngst sjö þrótt- mikilla systkina. Hún ólst upp á heimili þar sem heiðarleiki og fag- urt mannlíf var í hávegum haft. Foreldrar hennar voru hjónin Björg Sigurðardóttir og Vilhjálmur Árna- son. Systkinin voru þessi í aldurs- röð: Sigurður, Árni, Hermann, Þór- hallur, Hjálmar, Sigríður og Stef- anía. Hjálmar er nú einn á lífi þeirra systkina. Heimilið var umfangsmik- ið og fy'öldi fólks var þar árið um kring. Það var oft glatt á hjalla á Hánefsstöðum og margar sögur hefur maður heyrt af glaðværð þeirra systkina. Stefanía giftist aldrei en bjó lengst af hjá Hjálmari bróður sínum og hans elskulegu konu, Sigrúnu Helgadóttur. Það var einkar kært með þeim öllum og ekki leið sá dagur, eftir að Stefanía eignaðist sitt eigið heimili, að þau þrjú hefðu ekki samband hvert við annað. Það var fallegt samband. Stefaníu voru öll systkinabörnin afar kær og fylgdist með sorgum þeirra og gleði. Á engan er hallað þótt ég geti þess hér að Elísabet, dóttir Hermanns, var okkar duglegust að heimsækja frænku okkar. í mágkonum sínum eignaðist Stefanía einnig trausta og góða vini. Listunnandi var Stefanía í betra lagi og liggja eftir hana margir og fallegir munir, en hún var rm_ð fá- dæmum vandvirk. Hún vann tölu- vert fyrir Styrktarfélag vangefínna og vildi hlut þess sem mestan. Hún ferðaðist mikið um ævina, bæði inn- anlands og utan og dvaldi um tíma í Bandaríkjunum og Svíþjóð og vann þar við skrifstofustörf, en það voru þau störf sem hún stundaði um ævina. Nú þegar við kveðjum Stebbu frænku minnumst við góðrar konu og erum öll nokkru fátækari. Guðbjörg Þórhallsdóttir í dag er til moldar borin afasyst- ir mín, Stefanía Vilhjálmsdóttir. Stefanía var fædd 1. janúar 1912 á Hánefsstöðum við Seyðisfyörð, yngst í hópi 7 systkina, sem voru börn Bjargar Sigurðardóttur og Vilhjálms Ámasonar. Hún ólst þar upp á myndarheimili og stundaði öll almenn innanhúss- og sveita- störf. Ung stúlka fór hún í hús- mæðraskóla í tvö ár, það fyrra í Mjóanesi á Völlum, en seinna árið flutti skólinn að Hallormsstað. Hún vann sína starfsævi við skrifstofu- störf, fyrst hjá bæjarstjóraembætt- inu á Seyðisfirði og hjá Elíasi Þor- steinssyni í Keflavík, en lengst af — eða frá árinu 1947 — hjá Sam- bandi ísl. samvinnufélaga og síðar Olíufélaginu hf. Árið 1946—47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.