Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
HATIÐARHOLDIN A ÞJOÐHATIÐARDAGINN
Siglufjörður:
Hátíðarhöld í blíðviðri
Skagaströnd:
Hátíðahöld vegna kirkjuafmælis
Húsavík:
Úthlutað úr Friðrikssjóði 17. júní
Siglufirði
SIGLFIRÐINGAR héldu 17.
júní hátíðlegan í blíðviðri, þótt
sólar nyti ekki. Safnast var
saman á íþróttavellinum, þar
sem hátíðarhöldin fóru fram.
Dagskráin hófst að morgni með
víðavangshlaupi krakka. Síðdegis
fór skrúðganga frá Ráðhústorgi
að spítalanum og þaðan að
íþróttavellinum. Þar flutti Fjall-
konan ávarp. Að þessu sinni var
Hólmfríður Pálsdóttir Fjallkonan.
Sólarlaust var á Þjóðhátíðardag-
inn, en gott veður. Eftir helgina
fór að rigna og kunna Siglfirðing-
ar vel að meta regnið eftir lang-
varandi þurrk.
Matthías
Siglfirðingar gengu skrúðgöngu um bæinn. Farið var frá Ráð-
hústorgi og endað á íþróttavellinum, þar sem hátíðarhöld dagsins
fóru fram.
Skag’aströnd.
FJÖLMENNI var við hátíðar-
messu í Hólaneskirkju 17. júní
síðastliðinn, þar sem minnst var
60 ára vígsluafmælis kirkjunn-
ar.
I messunni þjónaði sóknar-
presturinn séra Ægir F. Sigur-
geirsson fyrir altari en séra Pétur
Þ. Ingjaldsson, sem var sóknar-
prestur hér um áratuga skeið, las
guðspjall dagsins. Þá spiluðu þau
saman í messunni Jane Sillar org-
anisti Hólaneskirkju á orgel og
Friðberg Stefánsson á túbu.
Viðstödd messuna voru fjögur
fermingarsystkini sem fermdust
þegar kirkjan var vígð fyrir 60
árum. Þá voru fermd sjö börn og
mættu fjögur þeirra til messunnar
en tvö sáu sér ekki fært að koma
og eitt er látið.
Að lokinni messunni var kaffi-
samsæti í félagsheimilinu. Þar
sungu þeir Sigmar Jóhannesson
og Kristján Hjartarson nokkur lög
við undirleik Jane Sillar. Einnig
söng kirkjukórinn, en þeir Sigmar
og Kristján eru félagar í honum,
var söngnum vel fagnað af við-
stöddum.
Húsavík.
Þjóðhátíðarhöldin á Húsavík
fóru fram í hlýju og góðu veðri,
þó ekki hafi mikið sést til sólar.
Hátíðin hófst með messu í
Húsavíkurkirkju og messaði séra
Sighvatur Karlsson og kirkjukór-
inn söng undir stjórn Helga Pét-
urssonar. í messunni var tilkynnt
úthlutun úr Friðrikssjóði, sem er
minningarsjóður um séra Friðrik
A. Friðriksson, prófast, sem fædd-
ur var 17. júní 1896. Styrki hlutu
3 tónlistamemendur til fram-
haldsnáms.
Að lokinni skrúðgöngu um
bæinn hófust hátíðarhöldin kl. 14
á íþróttavellinum með ávarpi Sig-
urgeirs Aðalgeirssonar, formanns
Völsungs, sem sá um hátíðar-
höldin að þessu sinni. Hátíðarræð-
una flutti Böðvar Jónsson bóndi,
Gautlöndum, en ávarp Fjallkon-
unnar flutti Kristín Halldórsdóttir
frá Arnstapa. Lúðrasveit tónlist-
arskólans lék og unglingar sýndu
leikfimi.
Sú nýjung var upp tekin að
börnum var leyft að fara á hest-
Morgunblaðið/Silli
Fjallkonan Kristín Halldórsdóttir með hirðmeyjar sínar.
bak og á íþróttavellinum var kom-
ið fýrir margháttuðum leiktækj-,
um og þrautum, sem börnin
þreyttu og fengu sælgæti í verð-
laun ef vei gekk. Ungir knatt-
spymumenn háðu vítaspymu-
keppni, en markverðir Völsunga
stóðu í markinu.
í sundlauginni fór fram 17.
júní-sundmótið,- bæði alvöm
keppni og skemmtiatriði, þar sem
kepptu þjálfarar, foreldrar og
ungmennin, sem sund æfa. Hátí-
ðinni lauk svo með dansleik í Fé-
lagsheimilinu.
- Fréttaritari
Morgunblaöið/Ólafur Bemódusson
Fermingarbörn fyrir 60 árum í Hólaneskirkju. Frá vinstri: Guð-
mann Magnússon, Henryetta Berndsen, Sigríður Ásgeirsdóttir
og Guðmunda Pétursdóttir. Fyrir aftan standa frá vinstri séra
Pétur Þ. Ingjaldsson og séra Ægir F. Sigurgeirsson.
Á þeim 60 ámm sem liðin em
frá vígslu kirkjunnar hafa þjónað
þar 8 prestar. Lengst þjónaði séra
Pétur Þ. Ingjaldsson eða í 40 ár.
Nú standa yfir framkvæmdir
við nýja kirkju og er stefnt að því
að hún verði fokheld nú í haust.
- Ó.B.
Morgunblaðið/Sverrir
Samgönguráðherra býst til að ræsa ölduvélarnar sem líkja eftir
mestu ölduhæð sem mælst hefur í Grímsey í 20 ár. Frá vinstri:
Matthías Bjarnason, fyrrverandi samgönguráðherra, Matthías Á.
Mathiesen, samgönguráðherra og Hermann Guðjónsson, hafnamála-
stjóri.
Vita- og hafnamálastofnun:
Þj ónustumiðstöð
tekin í notkun
VITASTOFNUN ÍSLANDS OG
Hafnamálastofnun ríkisins hafa
tekið í notkun nýja þjónustumið-
stöð í Kópavogi þar sem aðstaða
verður fyrir ýmiskonar verkefni
á vegum þessara stofnana. Þarna
verður m.a. sérhæft verkstæði
fyrir vitareksturinn og tilrauna-
salur þar sem unnt er að gera
tilraunir með líkön af höfnum
og hafnarmannvirkjum.
Fyrsta verkefnið sem tekið verð-
ur fyrir í nýju þjónustumiðstöðinni
er líkan af Grímseyjarhöfn. Meðal
annarra verkefna sem bíða úrlausn-
ar má nefna Ólafsfjarðarhöfn sem
væntanlega verður tekin fyrir á
þessu ári og síðan hafnimar á Sauð-
árkróki og Borgarfírði eystri á
næsta ári.
Undirbúningur að byggingu
hússins hófst í ársbyrjun 1987 eftir
að þrem miljónum kr. var veitt til
verksins á fjárlögum. Mptthías
Bjarnason, þáverandi samgöngu-
ráðherra, tók fyrstu skóflustunguna
að byggingunni þann 15. júní sama
ár. Stefnt var að því að hefja starf-
semi í tilraunasalnum ári síðar og
er því marki nú náð.
Áform em uppi um að öll starf-
semi Vita— og hafnamálastofnunar
flytjist á svæðið sem þessi bygging
stendur á, við Kársnesbraut í Kópa-
vogi. Það eina sem vantar þar á
er að flytja skrifstofurnar en búið
er að teikna 870 fermetra hús fyrir
þær og hefur verið sótt um leyfi
til að selja núverandi skrifstofuhús-
næði að Seljavegi 32 í Reykjavík.
Matthías Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra lýsti þjónustumið-
stöðina formlega tekna til starfa
og setti í gang ölduvélar sem líkja
nákvæmlega eftir raunverulegum
aðstæðum við höfnina í Grímsey.
Líkanið af Grímseyjarhöfn, í stærð-
arhlutföllunum 1:60, erhárnákvæm
eftirlíking af hafnarmannvirkjum í
Grímsey. Dýpt hafnarinnar, öldu-
hæð og annað sem máli skiptir var
mælt út og síðan búið til líkan þar
sem hægt er að endurskapa allar
aðstæður og fínna út með tilraunum
hvernig bæta megi hafnarskilyrði á
staðnum.
Þjónustumiðstöðvarhúsið er alls
845 fermetrar að flatarmáli en til-
raunasalurinn, sem er sérstaklega
hannaður með líkantilraunir í huga,
er 20 m breiður og 40 m langur.
Áætlað ef að kostnaður við hvem
fermetra í húsinu fúllbúnu verði
rétt innan við 25.000 kr.
Þeir þrír aðilar sem umsjón hafa
með líkantilraununum eru Guðjón
Scheving Tryggvason rafeindaverk-
fræðingur, Sigurður Sigurðarson
deildarverkfræðingur og Gísli
Viggósson forstöðumaður Rann-
sóknardeildar Hafnamálastofnun-
ar. Gísli sagði að verkefnin væru
þó unnin í náinni samvinn.. við
heimamenn á hverjum stað og
tækju Grímseyingar virkan þátt í
tilraunum með höfnina þar.
INNLEN-T
Mývatnssveit:
Fjölmenn hátíðarhöld
Björk, Mývatnssveit.
ÞJÓÐHATÍÐ var í Mývatnssveit
17.júní. Var hún með hefðbundn-
um hætti og haldin í Höfða, sem
verið hefur allmörg undanfarin
ár.
Safnast var saman við hliðið
kl.14 og gengið inn á hátíðarsvæð-
ið. Þar setti sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps, Jon Pétur Líndal, sam-
komuna. Þá var helgistund sem sr.
Öm Friðriksson, prófastur á Skútu-
stöðum, annaðist. Hátíðarræðu
flutti Hinrik Árni Bóasson, oddviti.
Gyða Halldórsdóttir las ávarp fjall-
konunnar. Síðast var farið í leiki
fyrir unga og aldna.
Sunnan gola var, úrkomulaust
og hiti 12—15 stig. Höfðinn skart-
aði sínu fegursta. Fjölmenni var.
Kristján