Morgunblaðið - 30.06.1988, Page 4

Morgunblaðið - 30.06.1988, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 Try ggingaf élögin: Tap á ökutækj atrygging- um 300 milljónir í fyrra HEILDARTAP af ökutækja- tryggingum á síðasta ári varð 300 milljónir króna eða sem svarar til um þriðjungs af sam- anlögðu eigin fé tryggingafé- laganna. Þetta stafaði af því að tjón jukust meira en svaraði til hækkunar iðgjalda. Á þessu ári er búist við mun minni halla á rekstri ökutækjatrygginga þrátt fyrir að umtalsverð aukn- ing í tjónum hafi átt sér stað enda urðu miklar hækkanir á iðgjöldum þann 1. mars sl. Þetta kom fram á fundi Talna- könnunar um afkomu íslenskra tryggingafélaga á árinu 1987 þar sem fyrirtækið kynnti niðurstöður varðandi heildarafkomu og stöðu tryggingafélaganna svo og skipt- ingu markaðarins eftir greinum og afkomu í einstökum tiygginga- flokkum. Dr. Benedikt Jóhannesson, töl- fræðingur, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri í þriðja sinn sem fyrirtækið gerði úttekt á íslenska tryggingamark- aðnum. Kvaðst hann telja að viss samkeppni ríkti milli tryggingafé- laganna gegnum tilboð og enn- fremur kæmi samkeppnin fram í þeim bónus sem félögin veittu bif- reiðaeigendum. Hins vegar mætti hagræða í greininni og fækka fé- lögunum. Það sem skipti þó sköp- um fyrir félögin væri að auka ávöxtun á heildarsjóðum og draga úr kostnaði. Afkoma tryggingafélaganna á síðasta ári varð sem hér segir: Almennar tiyggingar töpuðu 15,5 milljónum, Ábyrgð 19 milljónum, Brunabótafélag Islands 26,9 millj- ónum, Hagtrygging 500 þús. og ennfremur varð 39,2 milljón króna tap af rekstri Húsatrygginga Reykjavíkur. Hagnaður Islenskrar endurtryggingar varð 21,8 millj- ónir, Reykvískrarendurtryggingar 3,6 milljónir, Samábyrgðar físki- skipa 9 milljónir, Samvinnutrygg- inga 200 þúsund, Sjóvá 23,2 millj- ónir, Tryggingar 6,9 milljónir og Tryggingamiðstöðvarinnar 28,9 milljónir. Samanlagt varð tap af rekstri þessara félaga 7,4 milljónir en almennu félögin voru með sam- tals 900 þúsund krónur í hagnað. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 30. JÚNÍ 1988 YFIRLIT í GÆR: Um 500 km sunnan af Hornafirði er 1003 mb lægð sem þokast norður. Hiti breytist lítið. SPÁ: Á morgun lítur út fyrir norðaustan átt á landinu víðast golu eða kalda. Rigning verður á Suð-Austurlandi og Austurlandi. Þoku- lægð við norðurströndina en þurrt á suðvestur og Vesturlandi. Hiti 9—13 stig suðvestan til en 6—9 stig t öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norð og norðaustan átt, víða súld við norð og austur ströndina, en léttskýjað um suð- vestan og vestanvert landið. Hiti 10—15 stig sunnan til á landinu en 6—10 fyrir norðan. xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hftl veöur Akureyri 9 skýjað Reykjavík 9 alskýjað Bergen 19 hálfskýjað Helsinki 27 skruggur Jan Mayan 0 alskýjað Kaupmannah. 23 léttskýjað Narssarssuaq 9 léttskýjað Nuuk 7 þoka Osló 25 hálfskýjað Stokkhólmur 26 skýjað Þórshöfn 10 súld Algarve 20 skýjað Amsterdam 16 alskýjað Aþena vantar Barcelona 24 léttskýjað Chlcago 17 skúr Feneyjar 26 þokumóða Frankfurt 24 skýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 22 mistur Las Palmas 25 skýjað London 20 mistur Los Angeles 17 þokumóða Lúxemborg 19 þrumuveður Madríd 22 skýjað Malaga 22 hálfskýjað Mallorca 24 skýjað Montreal 10 skýjað New York 19 skýjað París 22 skýjað Róm 24 léttskýjað San Diego 17 heiðsktrt Winnipeg 13 skýjað Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson Áhorfendur umhverfis trollið og starfsmaður Landhelgisgæslunnar. Dufl í trollið hjá Hrísey SF Höfn, Horaafirði. HRÍSEY SF-41 fékk tundurdufl í trollið, þar sem hún var að humarveiðum í Meðallandsbugt aðfaranótt þriðjudagsins. Duflið, sem er frá 1942, var virkt og komu sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni til Hafnar til að gera það óvirkt. Að sögn þeirra fara þeir með duflið í a.m.k. 20 km Reykjavík; frá byggð og sprengja það. Sams- konar dufl mun nýverið hafa valdið skipsskaða í Norðursjó og þremur sköðum á síðasta ári þar. Skipsstjóri á Hrísey er Bjöm Júlíusson, en hann og áhöfn hans urðu þeirri stundu fegnir er þeir höfðu landað þessum „afla“. - JGG Aukafj árveiting vegna rottugangs BORGARRÁÐ hefur samþykkt aukafjárveitingu til meindýra- eyðis borgarinnar að upphæð 500.000 krónur. Að sögn Ás- mundar Reykdal yfirmeindýra- eyðis verður fénu varið til þess að ráða tvo sumarstarfsmenn til viðbótar til þess að eitra í hol- Neskaupsstaður; Ráðning sparisjóðs- sljóra kærð Neskaupstaður KLARA ívarsdóttir, settur spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Norðfjarð- ar, hefur kært til Jafnréttisráðs ráðningu Sveins Árnasonar f emb- ætti sparisjóðsstjóra. Klara hefur starfað við sparisjóð Norðfjarðar síðan 1973 og verið stað- gengill sparissjóðsstjóra frá 1980, nú síðast samfellt frá því í febrúar á þessu ári._ Sveinn Amason er fyrrverandi fjármálastjóri bæjarsjóðs Neskaups- staðar. Á fundi sparisjóðsstjómar hlaut Sveinn þijú atkvæði en Klara tvö. Jafnréttisnefnd Neskaupsstaðar hefur fjallað um málið, að beiðni Klöru og telur nefndin ráðninguna skýlaust brot á jafnréttislögum. Seg- ir í fréttatilkynningu frá Jafnréttis- nefnd Neskaupsstaðar að nefndin harmi þessa stöðuveitingu og hafi vísað máiinu til Jafnréttisráðs til frekari umfjöllunar. Orðrétt segir í fréttatilkynningu nefndarinnar: „Lýðræðislegt þjóðfélag er reist á jafnrétti og frelsi til að velja sér lífsstarf. Og mat á hæfíleikum verð- ur að byggjast á rökum en ekki for- dómum eða tilfinningum". . ræsi. Rottugangur í eldri hverf- um borgarinnar er meiri en hann hefur verið mörg undanfarin ár. Ein skýringanna kann að vera sú að rottur séu að verða ónæm- ar fyrir því eitri sem beitt hefur verið gegn þeim hingað til. Hjá meindýraeyði starfa fjóri.r fastráðnir starfsmenn sem sinna kvörtunum og fjórir sumarmenn á tveimur bflum sem fara um og eitra í holræsi. Að sögn Ásmundar fór hann fram á að geta bætt þriðja vinnuflokki sumarmanna við til þess að geta eflt eitranir. Kom borgarráð til móts við þá bón. Ásmundur sagði að helsta skýr- ingin á auknum rottugangi væri að borgin stækkaði óðfluga og mikið væri um rask á holræsakerfinu. Þá hefðu komið upp óvenju miklar bil- anir í skólplögnum húsa. Víða væri frágangi þakrenna og niðurfalla ábótavant. Allt stuðlar þetta að því að rottur eiga hægara með að afla sér fæðu og komast inn í hús. Meindýraeyðar hafa velt því fyrir sér hvort ný kynslóð rotta sé ónæm fyrir því eitri sem nú er beitt. Þetta mál þarfnast athugunar að mati Ásmundar Reykdal. Kasparov er öruggur um sigur Frá Margeiri Péturssyni, fréttaritara Morgunblaösins í Belfort. EFTIR að Kasparov lagði Ehlvest að velli í dag er hann kominn með eins og hálfs vinnings forskot fram yfír Anatoly Karpov sem er í öðru sæti. Jóhann Hjartarson gerði jafn- tefli við ungverska stórmeistarann Zoltan Ribli í 56 leikjum, eftir æsi- spennandi viðureign. Karl Þorsteins í 2.-4. sæti KARL Þorsteins vann danska alþjóðlega meistarann Lars Bo Hansen í tíundu og síðustu um- ferð Opna Kaupmannahafnar- mótsins í skák í gær og endaði í 2.-4. sæti á mótinu með 7 vinn- inga ásamt Grospeter og sovéska stórmeistaranum Kupreitchik. Sovéski stórmeistarinn Vaganjan varð einn efstur á mótinu með 8 vinninga. Hann vann skák sína í gær við sænska alþjóðlega meistar- ann Emst á ævintýralegan hátt, en Emst féll á tíma í 40. leik með tveimur mönnum yfir og átti bara eftir einn leik í tímamörkin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.