Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
Greinarhöfundur með píanistanum Evu Bollen.
Sigurður Demetz með
söngkennslu í Amsterdam
Sigurður Demetz með tenórnum René Bouman frá Amsterdam.
rödd, en hún hefur tekið þátt í
mörgum óperuuppfærslum.
Hún á í erfiðleikum með háu
tónana. Demetz lætur hana gera
æfingar og getur með leiðbeining-
um um öndun og staðsetningu
raddarinnar rutt þessari hindrun
úr vegi. Margot er yfír sig ham-
ingjusöm og segir mér að sér fínn-
ist Demetz stórkostlegur leið-
beinandi. „Hann lætur hveija
manneskju njóta sín og halda eig-
in virðingu. Þessi maður andar frá
sér göfuglyndi."
Tenórinn René Bouman frá
Amsterdam hefur hlotið menntun
sína við Konservatoríið í Amster-
dam. Hann hefur nú þegar sungið
hlutverk Othellos við óperuna í
Antwerpen. René syngur aríu úr
Rigoletto eftir Verdi. Hæfíleikar
hans eru miklir en Demetz hnykl-
ar brýnnar og bendir honum var-
fæmislega á að hann syngi á
hálsinn og að með þessu áfram-
haldi muni hann eyðileggja í sér
röddina á nokkrum árum. Hann
lætur René gera æfíngar til að
ná röddinni framar í maskann.
Eftir 5 tíma þessa viku syngur
René aríu úr óperunni Valkyijum-
ar eftir Wagner og þá kemur í
ljós að hann er einn af fallegri
Wagner-tenórum sem ég hef
heyrt.
Fréttin um þennan afburða
kennara flýgur sem eldur í sinu
á milli söngvara í Hollandi og það
er meira að segja hringt frá
Þýskalandi til að fá upplýsingar.
Beiðnir um tíma hjá Demetz
streyma til mín þannig að við
þessa sex daga bætast tveir og
eru þá kennsludagamir orðnir
átta. Ein vinkona mín og starfs-
systir sem alltaf hefur átt í erfíð-
leikum með hæðina og kallar
sjálfa sig í gríni „sópran án háa
C“, fer einnig í tíma og syngur
undir leiðsögn Demetz háa C-ið í
fyrsta skipti í lífinu og veit varla
hvað er að gerast með sig.
Það er ekki undarlegt þótt ég
fái margar beiðnir um að fá Dem-
etz aftur til Hollands, einn þátt-
takandi hefur meira að segja í
huga að koma til íslands í áfram-
haldandi nám hjá Demetz.
Píanistinn Eva Bollen, en hún
er dóttir Thoms Bollens sem er
þekktur undirleikari í Hollandi,
sér um það erfíða hlutverk að
spila undir hjá söngvurunum og
leysir það mjög vel afhendi. Hún
segist gjaman verða með í næsta
skipti.
Sem sagt... Demetz! Þú varst
stórkostlegur. Komdu fyrir alla
muni aftur.
Sigurður leiðbeinir söngkonunni Marga de Boer.
eftir Viktoriu Spans
SIGURÐUR Demetz hélt söng-
námskeið í Amsterdam dagana
16.-21. maí. Söngkonan Viktor-
ia Spans, sem er af íslenskum
ættum og fædd á íslandi, var
svo hrifin af söngkennslu hans
að hún bauð honum að koma
til Hollands og halda námskeið
sem haldið var í „De Suite“, eða
Svítunni, við Willemsparkweg
í Amsterdam, en það er gamal-
gróinn og þekktur staður þar
sem frægt fólk hefur haldið sín
námskeið.
Að morgni 16. maí ríkir mikil
eftirvænting.
Fyrsti þátttakandi er Marga de
Boer söngkona, en hún hefur í
14 ár sungið aðalhlutverk við
Hoofdstadóperettuna, einu at-
vinnuóperettuna í Hollandi. óper-
ettan er með sýningar allt árið
og ferðast um allt Holland, hún
er einnig vinsæl í Þýskalandi.
Marga sjmgur aríu Mimi, „Si, mi
chiamano Mimi“, úr La Boheme
eftir Puccini.
Hin mikla þekking Demetz
kemur strax í ljós. Hann gefur
ábendingar um tæknileg atriði,
texta og túlkun. Einn þátttakandi
segir að þama sé auðsjáanlega
maður með mikla sviðsreynslu,
því hann kann ekki eingöngu hlut-
verk sinnar eigin raddar heldur
einnig hlutverk annarra í óper-
unni.
• Demetz breytir sér í sópran,
leikur og syngur hlutverk Mimi,
um leið og hann gefur Mörgu
ábendingar. Og undrin gerast,
rödd hennar verður fallegri með
hverri mínútu og Mimi verður til
á sviðinu.
Næsti þátttakandi er Margot
Stroink, falleg mezzó-sópran-
Hafís norður af Vestfjörðum;
Þörf á að vara ferðafólk við
HAFÍS er nú norðurvestur af
strönd landsins nálægt siglinga-
Ieiðum skemmtiferðaskipa.
Ferðamenn á Hornströndum
eru varaðir við ísnum þar sem
hættan á að hvítabirnir gangi á
land er fyrir hendi.
Flugdeild Landhelgisgæslunnar
kannaði ísinn úti fyrir Vestfjörðum
og Norðvesturlandi á þriðjudag,
en ísinn var þá í þriggja til tíu
sjómílna fjarlægð frá ströndinni.
Hann er nokkuð gisinn og sundur-
laus og bráðnandi jakar á víð og
dreif. Að sögn Þórs Jakobssonar,
deildarstjóra hafísrannsóknar-
deildar, er ísinn óeðlilega nálægt
landi miðað við árstíma. Orsökina
er að finna í kyrrstæðri hæð yfír
Norður-Atlandshafí og vestlægri
átt sem staðið hefur í langan tíma
og rekur ísinn austur.
Þar sem ísinn er nálægt landi
og á siglingaleiðum skemmtiferða-
skipa vildi Þór vekja athygli á
honum. Einnig taldi hann vert að
vara ferðamenn og fararstjóra á
Homströndum við, þar sem ná-
lægð íssins skapar hættu af hvíta-
bjömum sem kynnu að ganga á
land.
Hagstæð austlæg átt norður
af Isiandi heldur ísnum frá sigl-
ingaleiðum þar til hann bráðnar
eða hverfur inn í Austur-Græn-
landsstrauminn, en hann kemur
þaðan. Það er óeðlilegt að hafís
sé svo nálægt landinu á þessum
árstíma, en hefur þó gerst áður
við svipuð veðurskilyrði sumurin
1984 og 1986.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
atvinnuhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði - Ódýrt
Við erum að leita að 500-600 fm ódýru iðnað-
arhúsnæði til leigu fyrir matvælaframleiðslu.
Má vera hvar sem er á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Erum traustir og áreiðanlegir og erum til-
búnir að gera 10-15 ára leigusamning.
Vinsamlega sendið tilboð til auglýsingadeiJd-
ar Mbl. sem fyrst með upplýsingum um fer-
metrastærð, verð pr. fermeter og heimilis-
fang merkt: „Traustur leigjandi - 4891“.
Farið vefður vel í gegnum öll tilboðin og því
hagstæðasta tekið að sjálfsögðu.
Skrifstofuhæð til leigu
á Rauðarárstíg 27 í húsi Pósts og síma. Um
er að ræða 3. hæð ca 300 fm, sem skipta má
í smærri einingar. Lyfta er í húsinu.
Uppl. í símum 985-21010 og 75141.
Til leigu
er húsnæði á besta stað i Skeifunni (ekki
stórhýsi). Jarðhæð 468 fm iðnaðar- og/eða
lagerhúsnæði, 2. hæð 468 fm og 3. hæð 343
fm fyrir þjónustustarfsemi t.d. söluskrjfstof-
ur, læknastofur, snyrtistofur, heilsurækt,
teiknistofur o.fl.
Bílastæðin eru á eigin lóð (malbikuð með
snjóbræðslu).
Nánari upplýsingar í síma 672121 á skrif-
stofutíma.
þjönusta
Lagerþjónustan auglýsir
Tökum að okkur að halda og afgreiða af lag-
er fyrir stór og smá fyrirtæki. Erum einnig
með gott kæli- og frystirými.
Áhugasamir leggi nöfn og símanúmer inn á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Lager - 80“
fyrir 6. júlí.
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur viðhald húsa og lóða, girð-
ingasmíði, hellulagnir, drenlagnir, þökulagn
ir, kanthleðslur, sprunguviðgerðir, málninga-
vinnu o.m.fl. Vanir menn.
Upplýsingar í símum 680314 og 611125.