Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
5T
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMOTIÐ 1. DEILD
MorgunblaSið/Július
Ormarr Oriygsson, Fram á hér í baráttu við Leiftursmanninn Friðgeir Sigurðsson og hefur betur. Pétur Ormslev
fylgist með, en hann skoraði seinna mark Framara.
Sjö gul spjöld á lofti
LEIFTUR sótti ekki gull í greip-
ar Framara á Laugardalsvelli í
gœrkveldi, tveggja marka ósig-
ur gegn toppliði deildarinnar
var staðreynd þegar yfir lauk.
Hins vegar má segja að nokkr-
ir leikmenn beggja liða hafi
sótt „gult“ í greipar dómarans,
Magnúsar Jónatanssonar, en
frammistaða hans í leiknum
var hreint afleit, svo ekki sé
meira sagt. Sjö leikmenn fengu
gula spjaldið og það án þess
að alltaf vœri hœgt að finna
raunhæfa ástæðu fyrir því.
Eflaust má deila um hversu
mörg spjöld leikmenn verð-
skulduðu, en burtséð frá því,
virtist sem dómarinn hefði
enga tilfinningu fyrir því sem
gerðist á vellinum; áminnti
hann menn fyrir „venjuleg"
brot, en lét önnur grófari óátal-
in.
Framarar voru betri aðilinn í
leiknum. Þeir heldu knettinum
Viðar Þorkelsson, Pétur Am-
þórsson og Ormarr Örlygsson,
Fram.
nánast allan fyrri hálfleikinn, spil-
uðu honum oft skemmtilega á milli
■■■■■I sín og sköpuðu sér
KristinnJens mýmörg tækifæri,
Sigurþórsson sem of langt mál
skrifar yrði að telja upp.
Samt leit út fyrir að
hálfleikurinn endaði án þess að
mark yrði skorað. Framliðinu tókst
þó að komast í skotskóna áður en
honum lauk og skora sitt fyrra
mark. Kom það eftir ágætan undir-
búning Guðmundar Steinssonar,
sem lék laglega inn í teiginn, og
skaut að markinu. Markvörðurinn
varði og boltinn hrökk til Péturs
Amþórssonar, sem skoraði ömgg-
lega.
Leiftursmenn komu mun hressari
til leiks í seinni hálfleik. Þeir héldu
boltanum betur og sóknir þeirra
urðu mun hvassari. Vöm Fram
tókst þó alltaf að bægja hættunni
frá og bmna í sókn, og er óhætt
að segja að vöm Framara virkar
mjög sterk með þá Jón Sveinsson
og Ormarr Örlygsson innanborðs.
Þá hafa þeir Viðar Þorkelsson fyrrir
framan sig, en hann vinnur nánast
öll skallaeinvígi; er sem klettur í
vöminni og mjög liðtækur í sóknar-
aðgerðum liðsins.
Sóknaraðgerðir Fram liðsins í seinni
hálfleik vom hins vegar ekki eins
sannfærandi og í þeim fyrri, þrátt
fyrir að þeim tækist oft að komast
upp að endamörkum og senda
knöttinn fyrir markið.
Framarar innsigluðu svo slgur sinn
á 83. mín eftir homspyrnu, og var
það Pétur Ormslev sem heiðurinn
átti af því að koma knettinum í
netið.
Fram - Lerftur
2 : 0
Laugardalsvöllur. íslandsmótið í knatt-
spymu 1. deild. Miðvikudagur 28. júní
1988.
Mörk Fram: Pétur Amþórsson (42.
mín.) og Pétur Ormslev (83. mín.).
Dómari: Magnús Jónatanson 4.
Gul spjöld: Viðar Þorkelsson, Pétur
Amþórsson, Guðmundur Steinsson og
Ormarr Örlygsson, Fram. Ámi Stef-
ánsson, Hörður Benónýsson og Steinar
Ingimundarson, Leiftri.
Áhorfendur: 997.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Kristján
Jónsson, Jón Sveinsson, Pétur Ormslev,
Viðar Þorkelson, Kristinn R. Jónsson,
Pétur Amþórsson, Guðmundur Steins-
son, Steinn Guðjónsson, Ómar Torfa-
son, Ormarr Örlygsson.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Guð-
mundur Garðarsson, Ámi Stefánsson,
Sigurbjöm Jakobsson, Gústaf omars-
son, Hafsteinn Jakobsson, Halldór
Guðmundsson, Friðgeir Sigurðsson
(Friðrik Einarsson 75. mín.), Óskar
Ingimundarson (Helgi Jóhannsson 80
mín.), Steinar Ingimundarson, Hörður
Benónýsson.
Guðmundur
hetja Víkings
á Húsavík
GUÐMUNDUR Hreiðarsson var
hetja Víkinga á Húsavík. Hann
sýndi oft mjög góða
markvörslu og bjargaði Víking-
um frá tapi í viðureign þeirra
við Völsunga, sem láku undir
stjórn nýja þjálfarans Arnar
Guðlaugssonar.
Leikurinn var lengi þófkenndur,
en síðan fóru leikmenn Völs-
ungs, sem léku undan strekkings
vindi, á ferðina. Þeir sóttu grimmt
^■1 og áttu varnarleik-
Magnús menn Víkings undir
Márskrifar högg að sækja. Svo
fráHúsavik mikið að þeir urðu
eigi sjaldnar en
fimm sinnum að treysta á Guðmund
Hreiðarsson í fyrri hálfleiknum.
mm
Guðmundur Hreiðarsson,
Víkingi
m
Bjöm Olgeirsson, Kristján
Olgeirsson og Guðmundur Þ.
Guðmundsson, Völsungi.
Með örlítilli heppni, eða með smá
lægni, hefðu leikmenn Völsungs
hæglega geta sett eitt til tvö mörk.
Víkingar bytjuðu seinni hálfleikinn
með látum, en síðan fjaraði leikur
þeirra út eftir rúmar tíu mín. Eftir
það var leikurinn Völsunga, sem
máttu sætta sig við jafntefli, en
verðskulduðu sigur.
Völsungur-
Víkingur
0 : 0
Húsavíkurvöllur. íslandsmótið í knatt-
spyrnu 1. deild, miðvikudagur 29. júní.
Dómarí: Ólafur Lárusson 6.
Línuverðir: Gísli Guðmundsson og
Geir Þorsteionsson.
Gul spjöld: Trausti Ómarsson og Atli
Einarsson, Víkingi
Áhorfendur: 650
Lið Völsungs: Þorfinnur Hjaltason,
Bjöm Olgeirsson, Helgi Helgason, The-
ódór Jóhannsson, Eiríkur Björgvinsson,
Kristján Olgeirsson, Jónas Hallgríms-
son, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, Sveinn
Freysson, Grétar Jónason (Snœvar
Hreinsson 68. mín.)..
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Unnsteinn Kárason, Sigurður Guðna-
son, Hallsteinn Amarson, Gunnar öm
Gunnarsson, Atli Helgason, Andri Mar-
teinsson, Atli Einarsson, Trausti Óm-
arsson, Hlynur Stefánsson, Bjöm
Bjartmanz.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Tvö skallamörk
færðu Blikum sigur
BREIÐABLIK lyfti sér af botni
2. deildar með sanngjörnum
sigri á (BV á Kópavogsvelli í
gærkvöldi, 2:1.
Blikar voru mun sterkari í fyrri
hálfleik. Þá gerðu þeir út um
leikinn með tveimur skallamörkum.
Hið fyrra skoraði Grétar Steindórs-
■■■■■■ son eftir sendingu
Guðmundur fyrir markið en hið
Jóhannsson síðara Magnús
skrifar Magnússon með
skalla aftur fyrir sig
í stöngina og inn eftir langt innkast.
I seinni hálfleik hresstust Eyjamenn
Ikvöld
Tveir leikir verða leiknir í 1. deildar-
keppninni í knattspymu í kvöld og
hefjast þeir báðir kl. 20.
KR-vöUur: KR - Valur
Keflavíkurvöllur: Keflavík - Þór
og varð þá leikurinn tiltölulega jafn.
Bæði lið áttu færi en eina mark
hálfleiksins skoraði Hlynur Jó- -w.
hannsson fyrir ÍBV úr vafasamri
vítaspyrnu.
UBK lék mun betur í þessum leik
en undanfömum leilcjum en Eyja-
menn náðu sér ekki á strik. Baráttu-
hesturinn Gunnar Gylfason átti
góðan leik í liði UBK. Hann hefur
mikla yfirferð og var nánast alltaf
í boltanum í leiknum.
UBK-ÍBV
2 : 1 (2 : 0)
Mörk UBK: Grétar Steindórsson
(24. mín.), Magnús Magnússon (31.
mín.).
Mark iBV: Hlynur Jóhannsson (70. __
mín., vfti).
Maður leiksins: Gunnar Gylfason,
UBK.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI
Reynir áfram í bikarnum
Reynir sló Þrótt Reykjavík út í
Mjólkurbikarkeppninni með
sigri eftir vítaspymukeppni, 5:4.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var
1:1. Mark Þróttar skoraði Sigurður
Hallvarðsson og ívar Guðmundsson
jafnaði fyrir Reyni. í framlengingu
skoraði Hermann Arason fyrir
Þrótt, en Reynismenn jöfnuðu rétt
fyrir leikslok. Þar var að verki Sig-
utjón Sveinsson. í vitaspymukeppn-
inni skoruðu þeir Siguijón Sveins-
son, Sigurþór Þórarinsson og Grét-
ar Sigurbjömsson fyrir Reyni, en
Peter Frain og Sigurður Hallvarðs-
son fyrir Þrótt.
Selfoss- Árvakur.................6:1
Ingólfur Jónsson 2, Jón Kristjánsson,
Sveinn Jónsson, Heimir Bergsson og Guð-
mundur Magnússon — Bjöm Pétursson.
Tindastóll -Magni................2:1
Eyjólfur Sverrisson 2 — Sverrir Heimisson.
Þróttur N.-Einheiji..............2:5
Guðbjartur Magnason og Kristinn Guð-
mundsson — Vignir Þormóðsson 3, Gísli
Davíðsson og Viðar Siguijónsson.
KORFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD
Ivar Webster með KR
„ÉG hef ákveðið eð fara í KR
og leika með þeim þar til ég
legg skóna á hilluna," sagði
ívar Webster, sem nú hefur
ákveðið að leika með KR. ívar
var íslandsmeistari með
Haukum í vor og skilur eftir
sig stórt skarð í vörn Hauka.
ÆT
Eg bytjaði með KR og finnst
við hæfi að enda ferilinn þar,“
sagði ívar.
ívar Webster er einn reyndasti
leikmaður Hauka, hefur leikið 108
leiki með liðinu og 38 landsleiki.
Hann hefur verið Haukum mikil-
vægur í vítateignum, enda 2,10
metrar á hæð, stærsti leikmaður
úrvalsdeildarinnar.
„Auðvitað er svolítið sárt að yfir-
gefa Hauka. Það er gott félag
með mjög gott lið og ég hef kunn-
að vel við mig þar. Þeir verða
alveg-jafn sterkir næsta vetur þó
að „sá stóri í miðjunni" sé farinn.
Einar Bollason er góður þjálfari
og þeir verða án efa erfíðir í vetur.
Mig langaði hinsvegar til að
breyta til og KR-ingar eru spenn-
andi lið. Þar er góður þjálfari og
liðið á framtíðina fyrir sér.“