Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 60
upplýsingar
£ um vörur og
^ þjónustu.
ttrgmitttafetfe
ALLTAF
SOLARMEGIN
FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Nýtt tölvukerfi NATO:
Islensk fyrirtæki
sem undirverktakar
í næsta mánuði mun Atlantshafs-
bandalagið leggja fram útboðs-
gögn fyrir tölvukerfi sem það
byggir hér á landi og ber nafnið
LADS eða Icelandic Air Defence
System. Kerfi þessu er einkum
ætlað að taka við upplýsingum frá
ratsjárstöðvunum sem fyrir eru í
landinu og verið er að byggja og
kostnaður við það og búnaðinn í
kringum það er áætlaður um 13
milljarðar króna.
Islenskir aðilar munu verða undir-
verktakar við uppbyggingu og rekst-
ur þessa kerfís og hafa þtjú íslensk
hugbúnaðarfyrirtæki stofnað með
sér samsteypu sökum þessa, ber hún
heitið ISC eða Icelandic Software
Consortium. Fyrirtækin eru Tölvu-
myndir hf., VKS og Artek.
Það sem er athyglisvert við þetta
nýja kerfí er að hugbúnaðurinn verð-
ur skrifaður með ADA forritun og
notast á við tæki sem hægt er að fá
á almennum markaði.
Sjá Innlendan vettvang f miðopnu.
Eng’inn skortur á
fólki í matvælaiðnaði
ENGINN skortur er á vinnuafli í
matvæla-, gosdrykkja-, umbúða-
og plastiðnaði, samkvæmt könnun
sem gerð hefur verið i þessum
greinum. í úrtakinu voru samtals
25 fyrirtæki með um 1.600 starfs-
menn og hafa flest fyrirtækjanna
nægilegt vinnuafl nú yfir sumar-
mánuðina. Flest fyrirtækjanna
reikna einnig með að hafa nægt
vinnuafl í haust, þrátt fyrir að
sumarfólkið fari þá.
Áætlað er að í haust þurfí að
manna allt að 50 stöður sem er að-
eins um 3% af heildarmannafla þess-
ara fyrirtækja. Til samanburðar má
geta þess að í júlí á síðasta ári var
gerð könnun hjá fyrirtækjum með
samtals tæplega 1.800 starfsmenn.
Flest fyrirtækin áttu þá í erfíðleikum
og reiknuðu með að þurfa að manna
250 stöður það haust en það er um
14% af mannafla fyrirtækjanna. Al-
mennt gekk illa að manna þessar
stöður framan af vetri, en engin
vandkvæði hafa verið eftir síðustu
samninga.
Nokkur fyriræki nefndu það að
þau hefðu mætt vinnuaflsskorti á
síðasta vetri með endurskipulagn-
ingu innan fyrirtækjanna sem leiddi
af sér minni þörf á vinnuafli. Nú í
vor var jafnvel meira um framboð á
vinnuafli en þörf var fyrir og ástand-
ið betra en það hefur verið í langan
tíma. Einna helst eru það fyrirtæki
sem hafa vel yfír 100 starfsmenn sem
aðeins bjargast naumlega yfír sum-
artímann og reikna með vandræðum
í haust.
Vegagerð í Fljótsh verfi
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Varanlegur vegur lengist um landið og á leið sinni um Skaftafellssýslur nýlega óku Morgunblaðsmenn fram
á flokk vegagerðarmanna, sem unnu að því að leggja klæðningu á 10 km vegarkafla í Fljótshverfí austan
Kirkjubæjarklausturs.
Verður settur kvóti á ót-
flutnmg á ferska fískimuu?
Akvörðunar um stjómun ferskfiskútflutnings að vænta í dag
KVÓTI, eða skömmtun á útflutningi á ferskum fiski er nú talin sú
leið, sem farin verði til að stjórna þeim útflutningi og koma í veg
fyrir offramboð og verðfall. Sjávarútvegsráðuneytið vinnur að tillög-
um um tilhögun þessa fyrir viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
ásamt fulltrúum þeirra, sem beinna hagsmuna eiga að gæta. Tillögurn-
ar verða lagðar fram á fundi í dag. Sjávarútvegsráðherra, Halldór
Ásgrímsson, sagðist f samtali við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig um
einstakar leiðir til stjórnunar útflutnings á ferskum fiski.
fHorgíitnlíta&ií)
FRÁ OG með 1. júlí verður
verðlag Morgunblaðsins
sem hér segir:
Mánaðaráskrift kr. 800.
Grunnverð dálksentimetra
auglýsinga kr. 530 á virkum
dögum, en kr. 560 á sunnu-
dögum. í lausasölu kr. 70
eintakið.
Meðalverð á ferskum fiski í Bret-
landi, aðallega þorski, ýsu og kola,
og í Þýzkalandi, aðallega karfa og
ufsa, hefur farið lækkandi síðustu
mánuði. Árið 1983 var meðalverð á
ferskum físki héðan seldum í Bret-
landi 59 ensk pens. Það hefur síðan
hækkað árlega og varð á síðasta ári
94 pens. Eftir fyrstu þijá mánuði
þessa árs var meðalverðið 92 pens
og eftir fímm mánuði 90 pens. Árið
1983 var meðalverð í Þýzkalandi
1,94 mörk og hækkaði jafnt og þétt
upp í 2,49 árið 1986. A síðasta ári
var það 2,16, en 2,53 eftir fyrstu
þijá mánuði þessa árs og 2,35 eftir
fímm mánuðina. Þess ber að geta
að meðalverð er alla jafna hæst í
upphafi árs og fer síðan lækkandi
fram á haust. Meðalverð fyrstu þijá
mánuðina í Þýzkalandi var litlu
hærra en á sama tíma í fyrra, en
hefur síðan fallið og er lægra en á
sama tíma i fyrra í apríl, maí og
júní. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið að því unnið
síðustu daga að finna út hveijir
hafa flutt fískinn ferskan út á þess-
um tíma í fyrra og í hve miklum
mæli. Síðan verði svo tekið mið af
því við útreikning á mögulegum út-
flutningskvóta.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu hefur verð á nær öllum
fiskafurðum, sem fluttar eru utan,
fallið síðustu mánuðina. Verð á
ferskum þorski upp úr sjó hér á landi
til frystingar hefur hins vegar hækk-
að um 5% frá síðustu mánaðamótum.
Frá upphafi árs 1982 hefur verðið
rúmlega sexfaldazt og sömu sögu
er að segja um launakostnað við
frystinguna. Fiskverðið hefur því
fremur breytzt í samræmi við verð-
bólgu og laun innan lands en afurða-
verð erlendis.
Halldór Ásgrímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að lengi hefði
verið rætt um það að ná stjórnun á
útflutningi á ferskum fiski. Árangur
hefði ekki náðst í tíð síðustu ríkis-
stjómar, en síðan hefði málið verið
tekið upp að nýju við setningu gild-
andi laga um fiskveiðistjómun. Þá
hefði kvótaskerðing vegna útflutn-
ings verið aukin, en ekki nógu mik-
ið til að draga úr útflutningnum.
Síðan hefði utanríkisráðuneytið beð-
ið sjávarútvegsráðuneytið um tillög-
ur um stjómun á þessum útflutn-
ingi. Að þeim hefði verið unnið all-
lengi og tímabundnar stöðvanir gert
gagn, en því miður ekki komið í veg
fyrir þau „slys, sem orðið hefðu. Því
hefði enn á ný verið fundað með
hagsmunaaðilum og stefnt væri að
því að niðurstaða næðist í vikunni.
Það væri reyndar allt annað en auð-
velt. Við yrðum að halda áfram að
nýta ferskfiskmarkaðina og útlitið á
mörkuðunum fyrir frystan fisk væri
ekki sérlega bjart.
Það er fagnaðarefni að kæru-
hryðjunni skuli vera lokið
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„ÞAÐ ER tekið á hverri einustu
kæru og kæruatriði og í raun er
öllum þáttum vísað á bug bæði
af byggingarnefnd borgarinnar,
skipulagsstjórn rikisins og nú af
félagsmálaráðuneytinu,“ sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri en
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur úrskurðað
að útgefið byggingarleyfi fyrir
ráðhús Reykjavíkur skuli standa
óbreytt. í úrskurði ráðuneytisins
eru vinnubrögð borgaryfirvalda
átalin og þau talin einkennast af
fljótfærni og vanvirðingu fyrir
skipulags- og byggingarlögum.
„í samræmi við fyrri niðurstöðu
er úrskurður ráðuneytisins á þá leið
að byggingarleyfíð skuli standa,“
sagði Davíð. „Það er náttúrlega
mikið fagnaðarefni að þar með er
þessari kæmhryðju lokið, því það
er í raun búið að taka á öllum þeim
þáttum, sem hægt er að taka á
vegna byggingarinnar.
Varðandi þessar almennu að-
fínnslur, sem þessi úrskurður er
notaður til að setja fram, þá finnst
mér þær ekki passa á þessum stað
formsins vegna. Það á ekki við að
vera með þessar athugasemdir
þama. Burt séð frá því tel ég þær
alls ekki standast og reyndar ef
allir úrskurðir eru skoðaðir í sam-
hengi þá kemur á daginn, að í raun
er félagsmálaráðuneytið sjálft búið
að hafna öllum þeim ásökunum sem
þama eru tíndar saman. Þannig að
ég hef það á tilfínningunni að þetta
séu einhver orð, sem eru hugsuð
sem smyrsl á sár þessa fólks, sem
hefur verið að hamast í máli þessu
og sjálfsagt lítið látið ráðherrann í
friði.“
Davíð sagði það rétt hjá ráðu-
neytinu að tekið verði á tillögu að
fyrirhuguðum bifreiðastæðum fyrir
ráðhúsið eftir að skipulagsnefnd
borgarinnar, borgarráð og síðan
skipulagsstjóm ríkisins, sem aug-
lýsir tillöguna og kynnir, hafa fjall-
að um hana. „Þá er hægt að leggja
fram athugasemdir enda hefur þá
átt sér stað nágrannakynning og
önnur slík kynning þannig að
athugasemdir kærenda eins og
ráðuneytið bendir á, eru á þessu
stigi út í bláinn," sagði Davíð.
Sjá úrskurð félagsmálaráðu-
neytisins á bls. 25
Sumarslátrun
hafin á Höfn
SUMARSLÁTRUN hófst
síðastliðinn mánudag hjá
Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga á Höfn í Homafirði.
Þetta er mánuði fyrr en í
fyrra, að sögn Einars Karls-
sonar, sláturhússtjóra, en
hann kvaðst reikna með að
KASK yrði eina sláturhúsið
á landinu sem slátraði í sum-
ar.
Á mánudaginn var 45 lömb-
um slátrað og voru þau um
tveggja mánaða gömul og 9-14
kíló að þyngd. Það er Afurða-
sala Sambandsins, sem dreifir
kjötinu, sem verður 25% dýrara
en kjöt frá fyrra ári fyrstu þijár
vikumar, en lækkar síðan um
2,5% á viku fram á haustið.
Ætlunin er að slátra um 200
lömbum á hveijum mánudegi í
sláturhúsi KASK og dreifa kjöt-
inu í verslanir á Reykjavíkur-
svæðinu á fimmtudögum og
föstudögum.