Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
-f
Nýja brúin yfir Blautukvísl.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Brú yfir Blautukvísl
mánuði á undan áætlun
Vegurinn tilbúinn innan tíðar
Selfossi.
SMÍÐI brúar yfir Blautukvísl
er nýlokið, einum mánuði á
undan áætlun. Brúin er tvíbreið,
50 metra löng með stálbitum.
Nýja Blautukvíslarbrúin er 14
kílómetrum sunnar en gamla brúin
og tengist þar nýja veginum yfir
Mýrdalssand. Brúin var að hluta
til unnin innanhúss þar sem
steyptar voru einingar sem lagðar
voru ofan á brúarbitana. Yfirbrú-
arsmiður var Jón Valmundsson.
Unnið er að því að veita ánni
undir brúna og tengja veginn við
hana. Nýi vegurinn yfir Mýrdals-
sand verður akfær með bundnu
slitlagi innan tíðar.
Tilboð voru opnuð í klæðingar
nokkurra vegarkafla á Suðurlandi
13. júní, á Mýrdalssand 16 km,
Þjórsárdalsveg 4 km, Laugar-
vatnsveg 5,5 km og Skeiða- og
Hrunamannaveg við Flúðir 1 km.
Lægsta tilboð kom frá Klæðingu
hf. 15.164.000, sem er 86,9% af
kostnaðaráætlun. Hagvirki bauð
16.600.000 sem er 95,2%. Áætlun
Vegagerðarinnar hljóðaði upp á
17.445.875 krónur. Verkinu öllu á
að vera lokið 1. september.
- Sig. Jóns.
Jón Valmundsson yfirbrúarsmið-
ur, Baldur Þorvaldsson verk-
fræðingur brúardeildar og Guð-
mundur Arason yfirverkfræð-
ingur brúardeildar.
GÓÐIR
AÐGRÍPAÍ
Gríptu smurostana í nýju
20 gramma dósunum í hádeginu,
þeir eru handhægir fyrir
fólk á hlaupum.
Og þú klárar þá í einni lotu!