Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
33
Fjórðungsmót hesta-
manna á Kaldármelum
FJÓRÐUNGSMÓT Vesturlands hefst í dag á Kaldármelum í Kolbein-
staðahreppi og stendur það fram á sunnudag 3. júlí. Búist er við
miklu fjölmenni á mótið, „á milli 2-3 þúsund manns,“ að sögn Högna
Bæringssonar, gjaldkera mótsins. Þá eru væntanleg bestu hross af
Vestur- landi og Vestfjörðum. Má þar nefna íslandsmethafann í 250
m og 800 m stökki, Lótus frá Götu.
Á Kaldármelum hefur verið gerð-
ur nýr 300 metra hringvöllur og
auk þess hefur verið unnið að frá-
gangi annarra valla. Þá hafa verið
byggð tvö smáhýsi og er annað
dómpallur en hitt skrifstofa. Einnig
hefur verið komið upp salemisað-
stöðu fyrir tjaldbúa við flugvallar-
girðingu og smíðaður var danspall-
ur nálægt veitingaskála.
Sleitulaust hefur verið unnið að
uppbyggingu svæðisins á Kaldár-
melum og að sögn Högna Bærings-
sonar hafa hestamenn af Snæfells-
nesi staðið einhuga að baki þeim
framkvæmdum. Ber þar hæst að
nefna nýjan hringvöll ásamt nýjum
dómpalli og skrifstofu, sem bætir
alla aðstöðu starfsmanna mótsins.
Motið byijar klukkan 13 í dag
og hefst dagskráin á kjmbótadóm-
um. Einnig verða B flokks gæðing-
ar og yngri flokkur unglinga dæmd-
Verðkönnun
á öli og
gosdrykkjum
í fréttatilkynningu Verðlags-
stofnunar vegna verðkönnunar á
gosdrykkum og öli var getið um,
að lítil Coca-Cola-flaska hafi kostað
40 kr. í verslunum á Þórshöfn og
Bakkafirði. Matvöruverslun Kaup-
félags Langnesinga á Þórshöfn sel-
ur ekki gosdrykki í glerflöskum og
var verðið á þeim því skráð í sölu-
skála sem kaupfélagið rekur á Þórs-
höfn. Á Bakkafirði var verðið hins
vegar skráð í matvöruverslun, segir
í viðbót frá Verðlagsstofnun í gær.
ir. Um kvöldið verður svo tölt-
kepjtni.
Á morgun, föstudag, verður hald-
ið áfram með kynbótadóma og A
flokks gæðingar og eldri flokkur
unglinga verða dæmdir. Þá fara
einnig fram undanrásir kappreiða.
Um kvöldið verða úrslit í tölti. Þá
verður haldin kvöldvaka og dansað
verður á danspalli fram á nótt.
Hljómsveitin Sprakk leikur fyrir
dansi.
Laugardaginn 2. júlí verður byij-
að á kappreiðum og verða þá jafn-
framt úrslit í stökki. Um hádegi
verður mótið síðan formlega sett
og síðan hefst dagskrá á hring-
velli. Kvöldvaka verður um kvöldið
með fjölbreyttum skemmtiatriðum
og ætlar Ómar Ragnarsson. meðal
annars að taka hestamenn oghesta-
mennsku til umfjöllunar. Á eftir
verður dansað á danspalli.
Sunnudaginn 3. júlí hefst dag-
skráin klukkan 9.30 á seinni spretti
í 150 m og 250 m skeiði. Að því
loknu verður hópreið hestamanna
um mótsvæðið og helgistund. Þá
hefjast sýningar kynbótahrossa og
verðlaunaveitingar. Þá sýna rækt-
unarbú framleiðslu sína. Úrslita-
keppnir fara fram í A og B flokk
gæðinga og báðum unglingaflokk-
um. Áætlað er að dagskrá mótsins
verði lokið klukkan 19 á sunnudag.
Björgunarsveitir af Vesturlandi
sjá um gæslu á svæðinu ásamt lög-
reglunni. Aðgangseyrir á mótið
verður 2 þúsund krónur en lækkar
þegar á mótið líður. Framkvæmda-
stjóri mótsins er Ema Bjarnadóttir
frá Stakkhamri og formaður fram-
kvæmdanefndar Tryggvi Gunnars-
son frá Brimilsvöllum.
Skólastjóramál Ölduselsskóla:
Þátttaka í fundi þjón-
ar eng’um tilgangi
segir formaður Fræðsluráðs
Reykjavíkur í bréfi til foreldra
RAGNAR Júlíusson, formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur, óskaði
eftir þvi að Morgunblaðið birti
eftirfarandi bréf, sem hann sendi
stjórn Foreldrafélags Öldusels-
skóla í gær:.
„Varðandi boð er_ mér barst í
gærkveldi um að sitja fund í Öldu-
selsskóla annað kvöld þykir mér rétt
að Játa eftirfarandi koma fram:
Ég tel ekki rétt að fræðsluráð eða
einstakir fulltrúar þess, taki þátt í
alemnnum umræðum sem stofnað
kann að verða til, um gerðir stjóm-
valda, í þessu tilfelli menntamálaráð-
herra, er hann veitti stöðu skóla-
stjóra við Ölduselsskóla að féngnum
umsögnum lögum samkvæmt.
Ástæða til upphlaups um málið
hefði þá fyrst gefist ef ekki hefði
verið viðhöfð lögleg aðferð við stöðu-
veitingu. Um réttindi umsækjenda
voru umsagnaraðilar sammála.
Því miður hefir mál þetta verið
notað af nokkrum hópi fólks til þess
að kynda undir óróa og áhyggjum
þeirra er mestra hagsmuna hafa að
gæta í máli þessu, þ.e. nemenda í
skólanum og foreldra þeirra.
Hvaða hvatir þar liggja að baki
skal ósagt látið en ekki er þetta
líklegt til þess að efla gott skólastarf
í Ölduselsskóla eða að skapa jákvætt
viðhorf nemenda til skólans og þeirra
er honum eiga að stjóma eins og ,
nýleg dæmi úr hverfínu sýna.
Ég vil að lokum ítreka þá skoðun
mína að æsifundi um veitingu stöðu
skólastjóra við Ölduselsskóla séu til
þess eins fallnir að skaða skólastarf
í hverfinu og hagsmuni nemenda.
Verð ég því að taka undir þá af-
stöðu menntmálaráðherra að þátt-
taka í fundi sem þeim er halda á
annað kvöld í Ölduselsskóla þjóni
ekki neinum tilgangi nú en fundurinn
gæti orðið sem olía á eld en þá væri
illa farið.
Afstaða þeirra er stóðu að umsögn
í fræðsluráði um umsækjendur um
skólastjórastöðuna til máls þessa nú
kom skýrt fram í bókun á fundi 20.
júní sl. en hún er svohljóðandi:
„Við undirrituð teljum frekara
málþóf um afgreitt mál, sem löglega
var að staðið af öllum aðilum, ekki
þjóna neinum tilgangi en geti haft í
för með sér hættu á að óvissuástand
skapist í skólahverfinu en slíkt getur
orðið nemendum skólans til tjóns.
Velferð þeirra hlýtur að vera aðalat-
riði í máli þessu og ættu allir aðilar
að sameinast um að hafa slíkt í huga
og skapa sem fyrst frið um starf í
Ölduselsskóla.““
Breiðholts- en
ekki Seljakirkja
í frétt um Mjóddina á blaðsíðu
21. í Morgunblaðinu í gær var
ranglega sagt að Seljakirkja
væri í Mjóddinni í Breiðholti. Þar
er að sjálfsögðu Breiðholtskirkja
og biðst Morgunblaðið velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Áhorfendur fylgjast með leik íslendinga og Dana á sýningartjaldinu
Norðurlandamótíð í brids:
Morgunblaðið/Einar Falur
Færeyingar hafa verið
Islendingum erfiðastir
__________Brids_______________
GuðmundurSv. Hermansson
Færeyingar hafa ekki verið
frændræknir þegar íslendingar
eiga í hlut á Norðurlandamótinu
í brids. Þeir tóku 4 stig af Islend-
ingum í fyrri lotunni, og í seinni
leik þjóðanna í 6. umferð í gær
tókst Islandi aðeins að vinna með
minnsta mun, 16-14. íslendingar
höfðu þó 13 stiga forystu á mót-
inu þvi Svíar unnu Dani 25-5 í
6. umferðinni og hefndu þar með
fynr 7-23 tapið í fyrri lotunni.
íslenska liðið vann Dani 22-8
í 5. umferð og skaust þar með
upp í efsta sætið. Karl, Sævar,
Sigurður og Þorlákur spiluðu fyrri
hálfleikinn á sýningartöflunni og
eftir þrjú spil höfðu Danir skorað
17 stig en Islendingar ekkert. En
þá fóru íslendingar af stað og
skoruðu látlaust meðan Danir
bættu aðeins einu stigi við og
staðan í hálfleik var 50-13.
Bæði íslensku pörin höfðu spil-
að vel en Hjalti Elíasson fyrirliði
ákvað að hvíla Karl og Sævar í
seinni hálfleiknum og Jón og Val-
ur komu í þeirra stað. Flest spil
hálfleiksins féllu, þar á meðal
slemma sem aðeins náðist á einu
öðru borði. Danimir kærðu raunar
spilið, þar sem Þorláki láðist að
gefa viðvörun á eina sögn Sigurð-
ar, en keppnisstjóramir létu úr-
slitin standa. Danimir áfrýjuðu til
sérstakrar dómnefndar sem stað-
festi_ úrskurð keppnisstjóma en
gaf íslendingum áminningu fyrir
að gleyma viðvömninni. Danir
gátu hins vegar ekkert gert við
öðm spili þegar Jón og Valur var
eina parið í salnum sem komst í
6 spaða sem unnust þegar ás lá
réttu megin. Seinni hálfleikurinn
endaði 23-10 fyrir íslendinga og
sigur þeirra í leiknum var sérlega
ömggur.
Norðmenn vom eina ferðina
enn yfír í hálfleik í 6. umferð, nú
gegn Svíum, 63-31. Nordby og
Wang, sem höfðu spilað fyrri hálf-
leikinn, héldu nú áfram og unnu
einnig seinni hálfleikinn 30-13.
Finnar unnu síðan Færeyinga ör-
ugglega, 25-í.
Kvennalandsliðið vann sinn
fyrsta sigur á mótinu, gegn Norð-
mönnum 18-12. Esther, Valgerð-
ur, Erla og Kristjana spiluðu allan
leikinn og vom 14 stigum yfir í
hálfleik og bættu 7 við í seinni
hálfleik. Danir og Svíar gerðu
jafntefli, 15-15.
í 7. umferð spiluðu íslendingar
við Færeyinga og völdu þann leik
til að gera mistökin sem þeir höfðu
að mestu verið lausir við fram að
því. Að auki spiluðu Færeyingarn-
ir vel, sérstaklega bræðumir Runi
og Jóannis Mouritsen. í fyrri hálf-
leik tókst Runi að halda Sævari
og Karli út úr geimi á hættunni
með því að opna á 14 á tvö hunda
og 5 punkta. Og skömmu síðar
læddi Jóannis heim 3 gröndum á
þessi spil:
Norður
♦ K107654 ¥6 ♦ A6
+ A762
Vestur Austur
♦ A98 ♦ D3
VA954 II ¥ DG83
♦ 1054 ♦ D983
♦ G84 Suður ♦ G2 ¥ K1072 ♦. KG72 ♦ K103 ♦ D95
Jóannis spilaði 3 grönd í suður
eftir sagnimar 1 spaði — 2 tíglar;
2 spaðar — 3 grönd. Sævar í vest-
ur spilaði út hjarta og Jóannis
drap gosa Karls með kóng. Spilið
virðist vonlaust því vömin er búin
að bijóta 3 hjartaslagi og virðist
fá tvo slagi í viðbót á spaða ef
sagnhafí reynir að sækja slagi
þar.
Jóannis fann þó ráð við því.
Án sýnilegrar umhugsunar spilaði
hann tígli á ás í borðinu og bað
síðan um lítinn spaða. Karl lét
þristinn í sakleysi sínu þótt honum
hefði sjálfsagt þótt þessi spila-
mennska grunsamleg ef sagnhafi
hefði verið Zia Mahmood eða ein-
hver álíka. Jóannis lét gosann
heima og þegar hann kostaði ás
stakk Jóannis næst upp spaða-
kóng og felldi drottninguna. Slétt
unnið.
ísland græddi raunar á spilinu
því við hitt borðið spilaði Þorlákur
4 spaða í norður. Austur spilaði
út hjartadrottningu sem hann
fékk að eiga, og síðan litlu hjarta
á tíuna og ásinn og Þorlákur
trompaði. Hann spilaði litlum
spaða á gosann en austur stakk
upp drottningu og spilaði spaða á
ás vesturs. Vestur spilaði síðan
hjarta sem Þorlákur hleypti á
kónginn í borði 'og henti laufí
heim.
Nú tók Þorlákur trompið af
vestri, tók tígulás og kóng og
trompaði tígul og spilaði síðan
trompunum í botn. I lokin voru
AV fastir í tvöfaldri kastþröng:
austur varð að halda í tíguldrottn-
inguna og vestur í hjartaníuna og
hvomgur gat valdað laufið. Þor-
lákur fékk því þijá slagi á lauf
og ísland græddi 1 impa.
Færeyingamir vom 2 stigum
yfir í hálfleik og í seinni hálfleik
fór um áhorfendur því Mouritsen-
bræðumir höfðu betur í opna saln-
um á móti Sigurði og Þorláki.
Þeir tóku m.a. tvö þunn geim á
hættunni og virtust ekki gefa
neitt út. Jón og Valur komu þó
með betra blað úr lokaða salnum
og ísland vann hálfleikinn með
12 stiga mun og leikinn 16-14.
Danir vom heillum horfnir
gegn Svíum og máttu þakka fyrir
að sleppa með 5 stig; hafa sjálf-
sagt ekki verið búnir að ná sér
eftir tapið gegn íslandi kvöldið
áður. Finnar unnu síðan Norð-
menn 21-9.
í kvennaflokki tapaði ísland
fyrir Svíum 8-22 og Norðmenn
unnu Dani 17-13. Þar er baráttan
um efsta sætið hörð því Danir
höfðu eins stigs forystu á Svía,
102 gegn 101. Norðmenn vom
með 91 stig og íslendingar með
63.
Staðan í karlaflokki eftir 6
umferðir var sú að ísland var með
113 stig, Svíar 100, Danir 99,
Norðmenn 86, Finnar 82 og Fær-
eyingar 48.
Frá leik íslendinga og Dana