Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 43

Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 43 Marteinn kvikmyndar á Skansinum. k-yni og þótti sú reið glæst. Þegar komið var á Skansen fór fram hátíðarmessa í Seglorkirkju. Þar rúmast þrjú til fjögur hundruð manns í sæti en það dugði ekki til. Var því brugðið á það ráð að slá upp hátölurum utan við kirkj- una og hlýddu hundruðir manna messu undir berum himni, bæði Svíar og íslendingar. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikaði en séra Helga Soffía Konráðsdóttir Svíþjóðarklerkur íslendinga þjón- aði fyrir altari. Orgelleikari var Ivar Rendahl. Að messu lokinni var hátíðin formlega sett á svokallaðri Sollid- ensenu. Því næst flutti fjallkonan ljóð Hannesar Péturssonar, Bláir eru dalir þínir. í hlutverki fjallkon- unnar var Unnur Guðjónsdóttir. Hún hefur búið í Svíþjóð árum saman en margir heima minnast hennar síðan hún stjómaði íslenska ballettflokknum. Þessu næst hélt sendiherra íslands í Stokkhólmi, Þórður Einarsson, stutta tölu. Þegar sendiherrann hafði lokið máli sínu söng Gunnar Guðbjöms- son, nýútskrifaður tenór frá Nýja tónlistarskólanum, við píanóundir- Gengið til kirkju. leik Guðbjargar Siguijónsdóttur. Söng Gunnar fyrst þjóðlög, bæði sænsk og íslensk, en brá sér svo yfir í óperettusöng. Vakti söngur hans mikinn fögnuð enda var hann klappaður upp hvað eftir annað. Þau Gunnar og Guðbjörg komu til Stokkhólms gagngert til að skemmta löndum sínum og gerðu Flugleiðir þá ferð mögulega með því að koma þeim endurgjaldslaust yfir hafið. Hátíðinni lauk svo með því að sýndur var gangur íslenskra hesta og böm fengu að bregða sér á bak. Veðurguðir þeir sem ríkja yfir veðmm og vindum í Stokk- hólmi vom í öllu betra skapi en félagar þeirra í Reykjavík. Vermdu þeir hvers manns vanga í glamp- andi sól og 24 stiga hita meðan þeir sem fögnuðu sautjándanum í Reykjavík máttu nær bjarga sér á sundi þótt svo ætti að heita að þeir hefðu fast land undir fótum. Þess skal að lokum getið, að þeir Bjöm Garðarsson og Marteinn Sigurgeirsson kvikmynduðu hátíðahöldin og er ætlunin að gera heimildamynd um þennan merkis- atburð. I Kodak Filma Ólympluleikanna 999 TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KDDAK... f=ma Kmntse DBiSIICECBGtlIIB SKIPHOLTI 31 Feröa- tryggingar aréttU ::ö|Ur ef ^ttuÞ^íta sinn* vanta Milljónirá hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111 SJÓVÁ Kjörbók Landsbankans Fyrirmynd annarra bóka. Landsbanki Islands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.