Morgunblaðið - 30.06.1988, Page 46

Morgunblaðið - 30.06.1988, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 Nýdönsk Ljósmynd/BS Uppvakningará Borginni Hljómsveitin Nýdönsk hólt vel sótta tónleika f Hótel Borg f byrj- un mánaöarins með Eftirlitið til upphitunar. Eftirlitið hóf leikinn og lék efni sem sveitin er að vinna að í hljóð- veri þessa dagana. Það hljómaði ekki illa, en þó er samt sem vanti herslumuninn á að hljómsveitin nái að skapa sér sérstakan stíl. Þeir eru með sitt af hvoru tagi á dag- skránni, en það var ekki nema f einu lagi sem eitthvað verulega áhugavert er að gerast, laginu En hvað um mig. Kannski átti saxó- fónninn mestan þátt í því, en lagið er langt í frá dæmigert fyrir sveit- ina. Elvisslagarinn Heartbreak Hotel vakti mikla lukku og lét sveit- in sig hafa það að leika hann f þrígang. Nýdönsk sigraði nokkuð örugg- lega í hljómsveitakeppni í Húsa- felli um síðustu verslunarmann- helgi, en ekki hefur sveitin verið mjög áberandi síðan. Hún átti þó lag á safnplötu Skífunnar fyrir nokkru og stefnir víst á plötu á árinu. Nýdönsk leggur mikið uppúr sviðsumbúnaði og hóf tónleikana á einskona leikþætti, sem endaöi á likfylgd sem bar kistu með aðal- söngvara sveitarinnar og var vak- inn upp með hljóöfæraslætti. Tón- listaflutningur allur var vel fágaður og söngvarinn er með góða rödd sem hann nýtir vel. Hljómsveitinni hefur verið líkt við Stuðmenn sál- ugu, og óneitanlega minnir rödd söngvarans á Egil, en það vantar Stuðmannahúmorinn og slagarana til að samlíkingin gangi upp. Sveit- armenn eru lúmskir látbragðsleik- arar, þó dregið hafi úr látbrags- leiknum sfðan í Bæjarbíói í október sl., og alltaf er nóg að horfa á en eitthvað vantar á að lögin séu eins grípandi og sviðsmyndin. Minna ber á bassaleika sveitarinnar nú en í Bæjarbíói og er það nokkuö á kostnað léttleika sveitarinnar. BS Ljósmynd/BS Ómar Óskarsson var áber- andi í íslenskum poppheimi í eina tíð, enda var hann með- limur í helstu poppsveit landsins uppúr 1970, Pelican, og gaf auk þess út plötu einn síns liðs sem þótti góð á þeim tíma. Pelican rann sitt skeið á enda og Ómar hvarf úr tón- listarheiminum í tólf ár. Nú er hann aftur kominn á stjá og í vændum er plata frá honum 1. júlí næstkomandi. Rokksíðan hafði tal af Ómari. Frá þér hefur ekkert heyrst í tólf ár, eða þar um bil. Hvað hafðirðu fyrir stafni? Þegar Pelican leystist upp um 1974 eða 1975 fór ég í fýlu og fór til Danmerkur með Júlla vini mínum. Þar tókum við upp þráðinn og gerðum tveggja plötu samning við Polydor. Næsta skrefið var að við feng- um okkur umboðsmann og lok- uðum okkur niður í gryfju til að æfa. Það endaði allt með skelf- ingu, enda var umboðsmaður- Morgunblaðið/KGA Ekkert kjaftæði og væl Ómar Óskarsson snýr aftur eftir tólf ára hlé inn hálf ruglaður. í millitíðinni, 1977, komum við til íslands og fórum í gersamlega misheppn- aða hringferð. Þá fór ég í enn meiri fýlu og ákvað að hætta að skipta mér af tónlist og fór að vinna við múrverk og ýmsa verkamannavinnu. Ég fluttist svo til íslands aftur og fór vest- ur á firði, vestur á Bíldudal, og fór þá fyrst að kynnast landinu. Áður var maður að fara hring- inn og kom þá kannski á það sem einn góður leikari kallaði „nápleis" og maður botnaði ekkert í því að nokkur hræða skyldi láta sig hafa það að búa á svona stað. Ég lét mig þó hafa það og hef unnið við ýmis störf þar, flakað, hausað þorsk, skroppið á sjóinn og unnið við hellulagnir eins og annað. Tón- listina lagði ég á hilluna nema þá að ég lét plata mig í það að syngja bassa með kirkjukór á staðnum, mér til mikillar ánægju, og svo að ég samdi söngleiki með vini mínum Haf- liða Magnússyni, sem er geysi- lega góður textahöfundur. Þeir söngleikir hafa verið færðir upp fyrir vestan og gert þar mikla lukku. Ég kom suður aftur í haust og í vetur fannst mér allt í einu að ég þyrfti að koma frá mér plötu eftir þetta tólf ára hlé. Þá óð ég bara inn í hljóð- ver, þó blankur væri, fékk mér hljóðfæraleikara og tók upp plötu. Nú sit ég bara og bíð eftir því sem verða vill. Hvað með lögin sem eru á plötunni, eru þau gömul eða ný? Þetta eru gömul lög og ný í bland. Ég átti lög á kistubotnin- um sem mér fannst tími til kom- inn að viðra og svo eru ný lög í bland. Suma textana sem ég sjálfur, en Hafliði á samt megn- ið. Textarnir eru beinskeyttir og fjalla um raunveruleikann eins og hann blasir við mér. Textarnir eru allir á íslensku og mig langar að skjóta því inní að þegar við í Pelican vorum að syngja á ensku hér í eina tfð þá litum við á ísland sem stökk- pall fyrir Bretland, Bandaríkin og Japan. Þá komu Bee Gees og Michael Jackson og eyði- lögðu allt. Það má segja að þú hafir fengist við flest annað en rokk undanfarin ár. Verður rokk á plötunni? Já, það má segja að þetta verði frekar hörð plata. Eg er þó mjög rómantískur maður, en ég geymdi rómantíkina og rólegu lögin sem ég á. Hún bíður betri tíma. Hverjir spila með þér? Það eru gamlir félagar, Jón Ólafsson leikur á bassa og stjórnar upptökum, Ásgeir Óskarsson leikur á trommur, Birgir Birgisson leikur á hljóm- borð og ég sé um gítarleikinn og sönginn. Það er ekkert skreytt með jöfrum. [ gamla daga var ég alltaf feiminn við að syngja lögin sjálfur en ég ákvað að láta slag standa að þessu sinni og það kemur vel út. Hvað með tónlistina, ertu enn að leika rokk? Já, það má segja það, en þó er það hrárra en áður. Annars finnst mér erfitt að dæma um það sjálfur, þetta er allt of ná- lægt mér. Því get ég þó lofað að það er ekkert kjaffæði og væl á plötunni, þetta er ekkert sykurhúðað. Ég er náttúrulega að gera þetta fyrir sjálfan mig og geri mér ekkert veður út af því þó það nái ekki núllinu, þó það væri gaman. Ég er kominn yfir það að slá í gegn og að vera staðarhetja í meiriháttar sveit, enda er ég kominn af gelgju- skeiðinu. Eg var með lög sem ég þurfti að losa mig við og ég er búinn að því. Ef einhver hef- ur gaman af tónlistinni eða textunum þá er það vel. Mér hefur líka alltaf fundist það betra að slappa vel af í stað þess að hanga í tónlistinni bara til að vera í tónlist. Mér finnst enginn minni maður af því að vinna eitthvað með höndunum og ég hugsa að ég hafi gert mín bestu lög þegar ég var að vinna hvað einhæf- ustu vinnuna s.s. að hausa þorsk fyrir salt. Ef platan selst illa, ferð þú þá í tólf ára fýlu á ný? Já, ætli það ekki. Ef fólk vill tryggja aö ekki komi frá mér önnur plata þá er um að gera að kaupa ekki þessa. Langi Seli íCasa Rokksveitin góðkunna, Langi Seii og Skuggarnir, heldur tón- leika í Casablanca í kvöld til að kynna væntanlega hljómplötu. Á þeirri plötu veröa tvö lög, en öruggar heimildir eru fyrir því að önnur slík plata sé væntanleg síðar á árinu og að öllum líkindum stór plata stuttu fyrir jól. Langi Seli og Skuggarnir komu síðast fram á stórtónieikum með Böstunum 4. apríl síðastliðinn á Borginni og vöktu þá mikla at- hygli, auk þess sem þeir hafa ver- ið iðnir við að stela senunni hvar og hvenær sem tækifæri hefur gefist til. Davfð veltir fyrir sér óræðri framtíð. Kolbelnn í baksýn. Ljósmynd/BS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.