Morgunblaðið - 30.06.1988, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 30.06.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAMÐ, FIMMTUDAGUR’ 80.RHM Í9g8 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS DAGVI8T BARNA. Þessir hringdu . . „Sælan við sjóinn“ Guðlaug Nikódemusdóttir, Langholtsvegi 27, hringdi og sagði að höfundur vísnanna er birtust í Velvakanda þann 28. júní væri Kristján Linnet, fyrrum sýslumaður á Sauðárkróki. Taldi hún að hann hefði samið þær á árunum 1920-1922. Guðný Richter hringdi og sagði fýrstu fjórar vísumar vera eftir mann sinn, Reinhold Richter en hún vissi ekki um höf- und seinni hluta kvæðisins. Ijörnin engin prýði Einar Jónsson hringdi: „Mér þykir dálítið einkennilegt þegar menn fara hástemmdum orðum um Tjömina okkar hér í Reykjavík. Þetta em menn sem augsýnilega þekkja hana mjög lítið, því ef við lítum raunsæjum augum á hana er í raun ekki hægt að lýsa henni nema sem hálfgerðum fúlapytt, sem lyktar illa og lítur vesældarlega út við fjöru. Tjömin er nefnilega ekki sú borgarprýði sem hún eitt sinn var. Mér þætti vel við hæfi, að fólk kæmi með hugmyndir um að hreinsa Tjörnina og gera hana að fallegri tjörn í stað þess að vera þykjast bera hag þessa pytts fyrir bijósti með því að mótmæla bygg- ingu ráðhúss við hana. Ómerktir póstkassar Kona hringdi: „Dóttir mín ber út blöð hér í Árbæjarhverfi. Hún lendir sífellt í vandræðum vegna þess hve margir póstkassar í fjölbýlishús- um em ómerktir. Þetta er mjög bagalegt og vildi ég beina þeim tilmælum til íbúa fjölbýlishúsa að merkja póstkassa sína, því án- þess er ómögulegt fyrir blað- og póstburðarfólk að sjá hvar hver og einn býr.“ Helgi góður Magnea hringdi: „Mig langar til að þakka hljóm- sveitunum „Síðan skein sól“ og „The Christians" fyrir frábæra tónleika fimmtudaginn 16. júní. Sérstaklega vil ég þakka söngvur- um hljómsveitanna fyrir skemmti- lega sviðsframkomu og hvað þeir lögðu sig fram við að nálgast áhorfendur. Tónleikar Blow Mon- keys 17. júní vom ekki eins góð- ir, minna fjör var á þeim tónleik- um en meiri ölvun, auk þess sem sú hljómsveit var ekki eins góð og tvær þær fyrmefndu.“ „Þótt leið liggi um borgir...“ Guðni Magnússon hringdi: „í Velvakanda á þriðjudaginn var spurt eftir texta við lagið „Home sweet home“. Textinn er í íslensku söngvasafni (svokölluð- um fjárlögum), 2. bindi eftir Sigf- ús Einarsson og Halldór Jónasson og byrjar svo: „Þótt leið liggi um borgir..." Tvö reiðhjól Kolbrún hringdi og sagði frá því að í þrjár vikur hefðu verið tvö reiðhjól sem hún kannast ekki við í innkeyrslu að heimili hennar í Birkihlíð 38. Annað hjólið er grátt drengjahjól að Juniorgerð, hitt er bleikt stúlknareiðhjól að Kynast- gerð. Eigendur hjólanna geta haft samband við Kolbrúnu í síma 37955. Stórt handklæði Stórt, milliblátt handklæði tap- aðist í karlaklefum Sundlaugar- innar í Laugardal fyrir mánuði. Handklæðið er með upphafsstöf- unum I.H. og getur finnandi skil- að því til sundlaugarvarðar Laug- ardalslaugarinnar. INAFNISANNLEIKANS Til Velvakanda Deilur þær sem hafa staðið um sr. Gunnar Bjömsson, prest Fríkirkjunnar em árárásarmönn- um hans til mikillar vansæmdar, vægt til orða tekið. Þær vekja reyndar upp þær hugsanir hvort hér sé um kristið fólk að ræða. Samkvæmt mínum skilningi er svo ekki. Ég var svo lánsöm að eiga mjög trúaða móður sem lifði vammlausu lífi, bæði til orðs og æðis og hef ég því gott fordæmi þegar kemur að samanburði á hegðun haturs- manna sr. Gunnars og móður minnar. Sr. Gunnar er vinur og sálusorg- ari fjölskyldu minnar og hefur reynst afburða vel í báðum hlut- verkum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vegið er ómaklega að sr. Gunnari og hann auðmýktur frammi fyrir alþjóð. Það er einnig merkilegt að fjandmennimir eru ávallt þeir sömu. Því hlýtur að vakna upp sú spuming: Hvað býr að baki? Þrenningunni öfund, reiði og hatri er oft skotið á bak við blæju sakleysis og reynt að telja fólki trú um að velferð safnaðarins sé í húfi og því skuli árásarmenn þessir stjóma ferðinni og leiða söfnuðinn á réttar brautir, í þessu tilfelli af villigötum sr. Gunnars! Það vill bara svo til að fólk kann sjálft fótum sínum forráð og þarf ekki þessa vondu þrenningu til að leiða sig eitt eða neitt. Sr. Gunnar hefur hins vegar laðað fólk að kirkjunni í nafni trúarinnar. Hann er snjall málflutningsmaður Drott- ins og hvers frekar getur kristið fólk krafist af presti sínum og sálusorgara? Mál er að þessum ofsóknum linni. Mig langar að lokum að vitna í grein sem sr. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir ritaði í Morgunblaðið 10. apríl. Greinina ritaði sr. Auður í tilefni af heimsókn í bamamessu í Fríkirkjunni. „Því segi ég ykkur kæm lesend- ur frá gleði minni yfir þessum góðu móttökum, að mér finnst það ævinlega gildur þáttur guðsþjón- ustunnar að finna að við erum velkomin. Við emm komin í kirkju með fólki sem er fegið því að við komum og við finnum sjálf til sam- hugar með þessu fólki." Hér mælir mæt og sannkristin kona og tek ég af alhug undir orð hennar. Fjóla Karlsdóttir Skrif ið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. HEILRÆÐI Ökumenn: Áfengi er slæmur förunautur. Ölvaður maður við stýri er stórhættulegur og getur valdið sjálfum sér og öðrum ólýsanlegu tjóni. ___ VESTURBÆR Hagaborg — Fornhaga 8 Vantar deildarfóstrur til starfa 1. ágúst eða eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur forstöðumadur í síma 10268. PEUGEOT 505 STATION ’87 7 manna bíll. Sjálfskiptur með aflstýri og hemlum, blár og ekinn 22 þ. km. Verð kr. 950 þús. Góð kjör. ^t&a*aioH Miklatorgi, símar 15014-17171. Listi yfir launatekjur NBA-leikmanna birtur i fyrsta skipti: Pétur Guðmundsson með 7/4 milljónir á ári ÆTE Veiði, bílar, hreysti og þáttur um hesta. Auglýsingar í íþróttablaðið þurfa að hafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16.00. á föstudögum. JWDTi0®Wllhlíl(íit^ - blað allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.