Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 59

Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 59
990 r tt/tp 0ft fFT^ííTTTF'TWT 4*4 a Y- t tHt4t '0/1')V MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 59 KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD Morgunblaðið/Rúnar Anthony Karl Qrogory sést hér fagna marki sínu gegn Skagamönnum. Þar með rak hann smiðshöggið á stórleik sinn. KNATTSPYRNA „Guðmundur er mjög góður leikmaður“ - segir Binder, fram- kvæmdastjóri Rapid Vín „GUÐMUNDUR Torfason er mjög góð- ur leikmaður og hann hefur staðið sig mjög vel með liðinu," sagði Binder, framkvæmdastjóri Rapid Vín í samtali við Morugnblaðið í gær. Guðmundur hefur æft með Rapid Vín síðustu daga og hefur gengið vel. Mér líst mjög vel á þetta lið, en það hefur ekki verið gengið frá neinum samningum,“ sagði Guðmundur Torfason. „Það er búið að ákveða að ég verði hér í eina viku til að kynnast liðinu og ég hef æft tvisvar á dag. Þetta er mjög gott félag og aðstaðan er fyrsta flokks. Völlurinn er stórkostlegur og tekur 35.000 manns í sæti. Þjálfarinn, Otto Beritz, er mjög góður, en hann var áður hjá Stuttgart." Þó að Rapid Vín vilji fá Guðmund á liðið enn eftir að semja um kaupverð við Winter- slag, lið Guðmundar í Belgíu. „Þeir hafa verið mjög jákvæðir hér, en það er aldrei að vita hvað Winterslag setur upp. Það er oft þannig að þegar stóru liðin sýna áhuga þá reyna litlu liðin að hækka verðið. Hinsvegar er of snemmt að spá um hvað úr þessu verður og ég neita því ekki að enn eru fleiri lið (myndinni," sagði Guðmundur. „Getum unnið hvaða lið sem er“ - sagði Anthony Karl Gregory, sem gulltryggði KA-sigur gegn Akranesi KA-MENN unnu verðskuldað- an sigurá Skagamönnum í gær, 3:2 og hefði sigur þeirra allt eins getað verið mun stærri, hefðu heilladísirnar ver- ið KA-mönnum örlítið hliðholl- ari. Þetta var fyrsta tap Skaga- manna í deildinni, en nú eru það aðeins Framarar sem eru taplausir í 1. deildinni. Leikurinn fór frekar rólega af stað og gekk boltinn mótheija á milli. Fyrstu mínútumar voru því lítt spennandi á að horfa. En eftir um stundarfyórð- ungs leik lifnaði yfír KA-mönnum. Val- geir Barðason komst einn í gegn, en Ólafur Gottskálksson bjargaði með úthlaupi. Á 26. mínútu lék Gauti Laxdal upp kantinn og gaf á Anthony Karl sem átti gott skot, en Ólafur varði vel. Tveimur mínútum síðar kom svo markið sem legið hafði í loftinu og það var Öm Viðar Amarson sem gerði það. Hann fékk boltann úr þvögu í vítateig Skagamanna og þmmaði honum í bláhomið. KA-menn héldu uppteknum hætti og fengu ágæt færi. KA-menn vom mun sterkari í fyrri hálfleik. Munurinn hefði því getað verið mun meiri i leikhléi Skaga- menn áttu hinsvegar ekkert opið færi í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var aðeins fjögurra m Jón Kristjánsson, Öm Viðar Amarson og Bjami Jónsson KA. Ólafur Gottskálksson ÍA. mínútna gamall þegar Skagamenn náðu að jafna metin. Heimir Guð- mundsson gaf fyrir markið og bolta- inn fór framhjá Hauki markverði og vöminni. Gunnar Jónsson var hinsvegar einn og óvaldaður og skoraði af öiyggi í opið markið. Eftir markið dofnaði heldur yfír leiknum og miðjuþóf tók við. Á 68. mínútu fengu Skagamenn gott marktækifæri, en skot Gunnars, af stuttu færi, fór framhjá. KA-menn náðu forystunni að nýju á 72. mínútu. Mark Duffíeld felldi þá Anthony innan vítateigs og Þor- varður Bjömsson dæmdi hiklaust vítaspymu. Úr henni skoraði Öm Viðar, annað mark sitt í lefl'" um. Eftir markið lifnaði að uy]u yfir KA-mönnum og þeir pressuðu stíft að marki ÍA og skomðu sitt þriðja mark fímm míhútum síðar. Anthony fékk sendingu frá Valgeiri og skor- aði með góðu skoti. Sjö mínútum fyrir leikslok fékk KA svo gullið tækifæri til að bæta fjórða markinu við, en Þorvaldur Orlygsson átti gott skot í þverslá. Á síðustu mínútu leiksins náðu Skagamenn að minnka muninn. Haraldur Ingólfsson skoraði með góðu skoti frá vítapunkti eftir send- ingu frá Sigursteini Gíslasyni. Sanngjam sigur Eins og áður sagði var sigur KA sanngjam og þeir geta öðm fremur þakkað það góðum leik Anthony Karls Gergory. Hann skoraði eitt mark sjálfur og fískaði vfti, auk þess að gera mikinn usla í vöm Skagamanna. Lið KA lék vel, en átti þó slæma kafla. Leikur Skagamanna var hinsvegar lítt sannfærandi og Ólafur Gott- skálksson bjargaði liðinu frá stærra tapi. „Þetta er besti 1. deildarleikur sem ég hef spilað og nú er ég loks far- inn að skora, en það hefur vantað undanfarin ár,“ sagði Anthony Karl Gregoiy. „Við höfum ekki sýnt sannfærandi leiki undanfarið, en voram ákveðnir í að sýna hvað í liðinu býr í þessum leik. Ef við höldum áfram á sömu braut þá er ég viss um að við komum til með að blanda okkur í toppbaráttuna." KA-ÍA 3 : 2 Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt- spyrnu, 1. deild, miðvikudaginn 29. júní 1988. Mörk KA: Öm Viðar Amarson (28. og 72. vsp.), Anthony Kari Gregory (77.). Mörk ÍA: Gunnar Jónsson (49.), Har- aldur Ingólfsson (91.). Gul spjöld: Gauti Laxdal, KA (67.). Dómari: Þorvarður Bjömsson 7. Línuverðin Þóroddur Hjaltalín og Ari Torfason. Áhorfendur: 680. Lið KA: Haukur Bragason, Eriingur Kristjánsson, Jón Kristjánsson, Þor- valdur Öriygsson, Gauti Laxdal, Hall- dór Halldórsson, Friðfínnur Hermanns- son (Amar Bjamason 68.), öm Viðar Amarson, Valgeir Barðason (Ámi Her- mannsson 85.), Bjami Jónsson, Ant- hony Karl Gregory. Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir Guðmundsson, Sigurður Lárusson (Haraldur Ingólfsson 61.), Sigurður B. Jónsson, Mark Duffíeld, ólafur Þórðarson (Sigursteinn Gislason 81.), Guðbjöm Tryggvason, Karl Þórðarson, Hafliði Guðjónsson, Gunnar Jónsson, Aðalsteinn Víglundsson. Reynir Eiríksson skrífar KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA Ingibjörg með þrennu Valsstúlkan Ingibjörg Jóns- dóttir skoraði þrennu í gær- kvöldi þegar topplið 1. deildar, Valur og KR, áttust við. Leikn- um lauk með stórum sigri Vals, 5:1. Þá léku ÍA og ÍBK og sigr- aði ÍA 2:0. Valsstúlkur byijuðu leikinn af miklum krafti. KR-liðið-var að sama skapi slakt, og eftir ramlega korter var staðan orðin 4:0 fyrir Val! Pyrsta mark Vals skoraði Bryndís Valsdóttir á 10. mínútu. Markmað- ur KR átti lélega sendingu sem Bryndís komst inn í og eftirleikur- inn var auðveldur fyrir hana, 1:0. Annað markið kom tveimur mínút- um seinna. Magnea Magnúsdóttir átti góða fyrirgjöf utan af kanti sem Ingibjörg Jónsdóttir framlengdi laglega í markið, 2:0. Bryndís skor- aði þriðja markið nokkram mínút- um seinna, vippaði örugglega yfír Sigríði í marki KR sem hafði hætt sér nokkuð framarlega. Á 23. mínútu kom fjórða mark Vals. Ingi- björg átti skot langt utan af velli, sem sigldi yfir Sigríði og hafnaði í netinu. Staðan í leikhléi var 4:0 fyrir Val. Síðari hálfleikur var varla byijaður þegar Valsstúlkur höfðu bætt við sínu fímmta marki. Ingibjörg átti skot af stuttu færi, en Karólína Jónsdóttir sem komin var í mark KR kom engum vömum við. Eftir markið drógu Valsstúlkur sig aðeins til baka og KR-liðið komst betur inn í leikinn. Helena Ólafs- dóttir, KR skaut framhjá í dauða- færi, en bætti fyrir það nokkra síðar þegar hún vippaði skemmtilega jrfír Sigrúnu NorðQörð Valsmarkvörð, 5:1. Þetta urðu lokatölur leiksins, því hvoragu liðinu tókst að skora það sem eftir lifði leiksins. ÍA-ÍBK 2:0 Skagastúlkur unnu öraggan sigur á IBK. Leikurinn endaði 2:0 og mörk IA settu þær Ásta Benedikts- dóttir og Margrét Ákadóttir. Morgunblaðið/Einar Felur Bryndís Valsdóttir skorar hér þriðja mark Vals í stórsigri liðsins á KR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.