Morgunblaðið - 05.07.1988, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
3
Hreiðrið með eggjunum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Amoksturstækið í gryfjunum. Hólfið þar sem hreiðrið er sést vel
undir stiganum upp í hreiðrið.
Gerði sér hreiður
í ámoksturstæki
Selfowi.
MARÍUERLA gerði sér hreiður Stöðugir vikurflutningar eru úr
í ámoksturstæki í vikurgryfjum gryfjunum og maríuerlan flýgur
við Búrfell. Hreiðurstæðið er af hreiðrinu á meðan mokað er á
óvenjulegt að þvi leyti að tækið hvem bíl og í það aftur þegar
er í notkun í gryfjunum. tækinu hefur verið lagt.
— Sig. Jóns.
Fasteignamat ríkisins:
Verðmæti íbúða á höfuðborg-
arsvæðinu er 121 milljarður
Norröna í Þórshöfn;
Landgang-
ur losnaði
og þrennt
fór í sjóinn
TVÆR færeyskar konur og
sænskur karlmaður féllu í höfn-
ina i Þórshöfn í Færeyjum við
komu Norröna þangað frá ís-
landi í gærmorgun. Karlmaður-
inn bjargaði sér i land af eigin
rammleik, en konurnar úrðu að
fá aðstoð og voru þær fluttar i
sjúkrahús. Að sögn lögreglunn-
ar i Þórshöfn mun þeim þó ekki
hafa orðið meint af volkinu.
Varðstjóri á lögreglustöðinni í
Þörshöfn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að óhappið hefði orðið
með þeim hætti að sterk vindhviða
hefði losað aftari landfestar skips-
ins með þeim afleiðingum að það
rak frá hafnarbakkanum. Við það
losnaði landgangurinn, en fimm
manns voru þá á leið niður hann
og tókst tveimur að stökkva niður
á bryggju.
Þrennt lenti í sjónum og tókst
Svíanum að synda að bryggjunni
eins og áður segir. Konurnar tvær,
sú eidri 74 ára en hin um fímm-
tugt, urðu hins vegar að fá aðstoð
við að komast í land. Þær munu
hafa sopið talsvert af sjó og eins
kvörtuðu þær um kulda þannig
að vissara þótti að flytja þær á
sjúkrahús á meðan þær voru að
jafna sig eftir volkið.
BIÐSTAÐA er nú í málum
skreiðarverkenda. Ákveðið er að
ekki verði farið að tillögum
nefndar, sem skipuð var tíl að
fara ofan í saumana á skreiðar-
viðskiptum okkar við Nígeríu og
Flugmenn og
Flugleiðir;
Breyting-
ar á vinnu-
tíma ræddar
ÓFORMLEGAR viðræður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og
Flugleiða eru nú að komast á
lokastig að sögn formanns FÍA
en næsti fundur verður á morg-
un, miðvikudag. Helst eru rædd
atriði tengd vinnutíma flug-
manna.
Gert var hlé á viðræðum að lokn-
um fundi síðastliðinn laugardag en
fulltrúar flugmanna hitta Flugleiða-
menn aftur á morgun. Að sögn
Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa
Flugleiða, var ákveðið á laugardag
að halda friðinn og skoða áfram
ákveðna þætti samnings milli aðila,
innan ramma bráðabirgðalaganna.
Vilhjálmur Þórðarson, formaður
FÍA, segir að flugmenn hafi hug á
að útfæra betur samningsákvæði
um vinnutíma, til dæmis varðandi
fíarvistir. Þær þurfí að samræma,
en hvorugur aðili sé ánægður með
núverandi fyrirkomulag sem veiti
lítinn sveigjanleika. Einnig sé
vaktafyrirkomulag í innanlands-
flugi í endurskoðun.
Einar Sigurðsson segir að á móti
hafí verið rætt um lengri útivist-
artíma flugmanna í leiguflugi.
FJÓRAR af hveijum tiu íbúðum
sem byijað var að byggja á árun-
um 1955, 1965 og 1967 voru á
höfuðborgarsvæðinu samkvæmt
nýrri skýrslu frá Þjóðhagsstofn-
un, þar sem fjallað er um hús-
leggja til leiðir til úrbóta. Þar
var lagt til að áætluðum hagnaði
af kaupum og sölu nígerískra
skuldabréfa skyldi varið til að
draga úr tapi framleiðenda.
Stjómendur Seðlabankans höfn-
uðu þessum tiliögum og samkvæmt
upplýsingum Olafs ísleifssonar,
efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinn-
ar, hefur hvorki verið ákveðið hvort
né hvenær_ eitthvað verði hugsan-
lega gert. Ógreiddar kröfur íslend-
inga í Nígeríu vegna þessara við-
skipta nema hundruðum milljóna
króna og er stór hluti þeirra talinn
glataður.
byggingar og mannvirkjagerð á
árunum 1945 til 1986. Þar kemur
einnig fram að fasteignamat
íbúðarhúsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu er tæplega 70% af mati
alls húsnæðis á landinu.
í gær kom viðskiptaráðherra
Nígeríu, Alhaji Samaila Mamman,
hingað til lands til viðræðna við
ráðamenn um mögulega lausn þess-
ara mála; Hann ræðir m.a. við
Halldór Asgrímsson, sem gegnir
störfum utanríkisráðherra í íjar-
veru Steingríms Hermannssonar,
sem er í ferð með forseta íslands
í V-Þýzkalandi. Hann mun jafn-
framt eiga fund með íslenzkum
skreiðarútflytjendum _ og banka-
stjórum Seðlabanka íslands. Frek-
ari frétta af skreiðarmálum er því
hugsanlega að vænta næstu daga.
í skýrslunni kemur fram að tals-
verðar sveiflur eru í fjölda þeirra
íbúða, sem byijað er á hveiju sinni
og að á þremur síðustu áratugum
hafi að jafnaði verið byijað á 1.750
íbúðum, en á árunum 1955, 1965
og 1967 var byijað á rúmlega 2.000
íbúðum. Aukningin var mest á höf-
uðborgarsvæðinu, en á árunum
1975 til 1981 jók landsbyggðin
verulega sinn hlut í fjölda nýrra
íbúða.
í skýrslunni er reynt að skipta
fasteignamati og rúmmáli eigna í
árslok 1986 niður á atvinnugreinar
og rekstrarform fyrirtækja sam-
kvæmt gögnum Fasteignamats
ríkisins. Samkvæmt því er fast-
eignamat íbúðarhúsnæðis á höfuð-
borgarsvæðinu 121 milljarður
króna eða tæplega 70% af heildar-
fasteignarmati alls íbúðarhúsnæðis.
Rúmmál íbúða á höfuðborgarsvæð-
inu er um 56% af rúmmáli íbúða á
öllu landinu og er þriðjungur hús-
næðisins frá árunum fyrir 1960.
Þá er í skýrslunni meðal annars
lýsing á byggingarstigi húsnæðis í
árslok 1985 og 1986 og sundurliðun
á atvinnuhúsnæði, sem byijað var
á og fullgert á sama tíma. Einnig
er birt vísitala byggingarkostnaðar,
fjármunamyndun og þjóðarauður
ásamt tölum um mannafla við störf
tengd byggingarframkvæmdum.
Morgunblaðið/Sverrir
Vasaútvarp fyrir dósaflipana
AIIs lögðu um sex til sjö hundruð manns leið sína í Bylgjupor-
tið við Snorrabraut í góða veðrinu í gær. Þá var byijað að taka
við flipum og töppum af einnota umbúðum í átaki Bylgjunnar,
Stöðvar 2 og^ Vífilfells i þágu bættrar umgengni og skógræktar
hér á landi. í lok átaksins munu fyrirtækin þijú afhenda Skóg-
rækt rikisins 1.750 þúsund krónur til gróðursetningar tijáa á
20 hektara svæði við Geysi í Haukadal.
Bandaríkjamenn
kanna fornleif-
ar í Þistilf irði
BANDARÍSKIR fornleifafræðingar vinna nú a'ð uppgreftri í
bæjarhól á Svalbarði i Þistilfirði og er gröfturinn liður i rann-
sóknum á búskaparháttum fyrri alda á Norður-Atlantshafssvæð-
inu. Þjóðminjasafn íslands er aðili að uppgreftrinum auk þess
sem rannsókn á atvinnusögu hreppsins og breytingum á landnýt-
ingu á vegum mannfræðiskorar félagsvísindadeildar Háskóla
íslands tengist honum.
Jón Haukur Ingimundarson,
mannfræðingur, sagði í stuttu
spjalli við blaðið, að uppgröfturinn
og aðrar rannsóknir væru rétt að
heQast og myndu standa til loka
ágústmánaðar. Bæjarhóllinn á
Svalbarði væri gamall öskuhaug-
ur, þar sem matarleifum hefði
verið hent öldum saman og væri
hóllinn tveggja metra hár. Vonir
stæðu til að hægt væri að komast
niður á öskulög frá miðöldum og
jafnvel eldri. Sitt verkefni væri
að kortleggja hreppinn og ræða
við fróða bændur um breytingar
á landnýtingu og þróun atvinnu-
sögu í hreppnum.
Thomas McGovem, stjómandi
uppgraftarins, sagði þetta verk-
efni unnið í samvinnu við Þjóð-
minjasafn íslands og fengi safnið
afrit af öllum gögnum um rann-
sóknina. Hann hefði unnið að
rannsóknum í fomum íslendinga-
byggðum á Grænlandi og á Hjalt-
landseyjum auk þess sem hann
hefði rannsakað dýrabein úr upp-
greftrinum á Stóm-Borg og graf-
ið hefði verið lítillega á Svalbarði
sl. sumar. Það væri athyglisvert
að þau bein sem fundist hefðu á.
Svalbarði fram að þessu líktust
meira beinum frá Grænlandi en
Stóra-Borg. Mikið væri af sela-
og hvalbeinum og eftir því sem
kæmi neðar í hauginn vonuðust
þeir til að sjá vísbendingar um
það hvemig bændur hefðu bragð-
ist við breytingum á loftslagi í
gegnum aldirnar. Rannsóknar-
hópurinn ætti nú gott safn beina
frá mismunandi stöðum á Norð-
ur-Atlantshafssvæðinu og væri
ætlunin að nota þau til saman-
burðarrannsókna.
Biðstaða í skreiðarmálum
Viðskiptaráðherra Nígeríu ræðir við íslenzka ráðmenn