Morgunblaðið - 05.07.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
Jóhann Hjartarson
lækkar um 10-15 stig
LAKUR árangur Jóhanns Hjart-
arsonar á Heimsbikarmótinu i í
Belfort í Frakklandi gerir það
að verkum að Jóhann lækkar um
10-15 alþjóðleg skákstig. Hann
varð í 14.-16. sæti á mótinu ásamt
Timman og Júsúpov. Jóhann
gerði jafntefli i siðustu skák sinni
á mótinu við Bretann Jonathan
Speelman sem er fimmti stiga-
hæsti skákmaður heims, með
2645 stig. Jóhann hafði 2620 stig
fyrir þetta mót en lækkar að 811-
um líkindum i 2605 stig.
„Þetta var löng teoría og var
snemma skipt upp á mönnum og
varð á endanum jafntefli í 35 leik-
um,“ sagði Jóhann í samtali við
Morgunblaðið um síðustu skákina
á móti Speelman. „Þetta var geysi-
lega erfítt mót og allan tímann á
brattann að sækja. Enda er hvergi
snöggan blett á andstæðingunum
að fínna."
Aðspurður um árangur sinn á
mótinu sagðist Jóhann ekki vera
sáttur við hann. „En þetta er skilj-
anlegt því mótið var geygisterkt.
VEÐUR
Ég var hins vegar ekki nægilega
vel undirbúinn enda hef ég lítið
mátt vera að því. Ég hef teflt um
60 skákir á fýrra hluta þessa árs
en sá fjöldi er talinn hæfilegur árs-
skammtur skákmanna."
Jóhann kvaðst ætla að leggjast
undir feld þegar heim kæmi og bjóst
hann ekki við að tefla fyrr en á
heimsbikarmóti Stöðvar 2 í október.
Bíll valt á
Reylganesbraut
ÖKUMAÐUR Bronco jeppa var
fluttur á slysadeild eftir að jeppi
hans valt á Reykjanesbrautinni i
gærmorgun. Slysið átti sér stað
rétt hjá Blesugróf. Jeppinn var
á leið norður brautina og er talið
að ekið hafi verið í veg fyrir
han'n með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Ökumaður jeppans var einn í honum
er slysið varð. Meiðsli hans eru
ekki talin alvarleg.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Sex prestar voru vígðir í Dómkirkjunni á laugardag. Fremri röð f.v.: Sr. Sigurður Jonsson, sr. Halldóra
J. Þorvarðardóttir, sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir, sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup, sr. Ólöf
Ólafsdóttir, sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sigurður Pálsson. í aftari röð eru vígsluvottamir, f.v.: sr.
Hulda Hrönn M. Helgadóttir, sr. Ragnar Fjalar Lárusson, sr. Sigmar I. Torfason, sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson og sr. Lárus Halldórsson, Dómkirkjuprestur.
Prestvígsla í Dómkirkjunni:
• P
Þrjar konur vígðar
SÉRA Sigurður Guðmundsson,
vigslubiskup, vígði á sunnudag,
VEÐURHORFUR I DAG, 5. JUU 1988
YFIRLIT í QÆR:
Á Grænlandshafi er hæðarhryggur sem þokast austur, en hægfara
990 mb lægð yfir Englandi. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Vestangola eða hæg breytileg átt á landinu. Sums staðar
skýjað með köflum við vesturströndina. annars léttskýjað. Hiti
15—20 stig inn til landsins en svalara við sjóinn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg breytileg átt.
Létt skýjað og hlýtt í veðri inn til landsins en sums staðar skýjað
og svalara við sjóinn. Þykknar í lofti vestanlands er líður á fimmtu-
dag.
TÁKN:
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* #• * 4' Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
'Jk VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 16 helðskirt Réykjavik 16 lóttskýjað
Bergen 14 rigning
Helsinki 23 rigning
Jan Mayen 4 léttskýjað
Kaupmannah. 20 lóttskýjað
Narssarssuaq 15 alskýjað
Nuuk 8 rigning
Osló 21 úrkoma
Stokkhólmur 19 rigning
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 20 súld
Amsterdam 20 skúr
Aþena vantar
Barcelona 26 hálfskýjað
Chicago 19 ióttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 23 skýjað
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 22 skruggur
Las Palmas vantar
London 16 skúr
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 18 skúr
Madrld 27 hálfskýjað
Malaga 27 hálfskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal vantar
New York 22 reykur
París 18 skýjað
Róm vantar
San Diego 17 alskýjað
Winnipeg vantar
3. júlí, sex guðfræðinga til prest-
þjónustu. Þar af voru þijár kon-
ur og eru þá fjórtán konur í
prestsembætti hér á landi.
Þeir sem tóku vígslu voru: Sr.
Gunnar Sigurjónsson, kallaður til
Skeggjastaðaprestakalls, sr. Hall-
dóra J. Þorvarðardóttirj kjörin í
Fellsmúlaprestakalli, sr.Olöf Ólafs-
dóttir, prestur við Umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Skjól í Reykjavík,
sr. Ragnheiður Erla Bjamadóttir,
kjörin prestur á Raufarhöfn, sr.
Sigurður Jonsson, kjörinn í Patreks-
fjarðarprestakalli og sr. Sigurður
Pálsson, settur prestur í Hallgríms-
prestakalli. Vígsluvottar voru sr.
Hulda Hrönn M. Helgadóttir, prest-
ur í Hrísey, sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son í Hallgrímskirkju, sr. Sigurður
Helgi Guðmundsson í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði, og sr. Sigmar
I. Torfason, prófastur á Skeggja-
stöðum í Bakkafirði, sem lýsti
vígslunni.
Að sögn Bernharðs Guðmunds-
sonar, fréttafulltrúa biskupsem-
bættisins, var mikill fjöldi fólks í
kirkjunni og óvenju margir sem
tóku þátt í altarisgöngu.
Pólýfónkórinn
verður með tón-
leika í haust
TÓNLEIKAR Pólýfónkórsins,
og Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, sem frestað var sl. vor
vegna veikinda stjórnandans
Ingólfs Guðbrandssonar, verða
væntanlega haldnir 10. nóvemb-
er nk. Óvíst er hvort framhald
verður á starfsemi kórsins að
þeim tónleikum loknum.
Miklum undirbúningi var lokið
fyrir sönglistarhátíð Pólýfónkórs-
ins í tilefni af 30 ára afmæli kórs-
ins 9. apríl sl., en aflýsa varð tón-
leikunum á síðustu stundu vegna
skyndilegra veikinda stjórnand-
ans, Ingólfs Guðbrandssonar. Al-
gjör óvissa hefur ríkt um fram-
haldið og hvort söngur Pólýfón-
kórsins eigi eftir að heyrast oftar.
Þegar leitað var hófanna um
samstarf eða fyrirgreiðslu Sin-
fóníuhljómsveitar íslands til að
taka fyrirhugaða tónleika upp
síðar reyndist dagskrá hljómsveit-
arinnar þegar ásetin og ekkert
rúm fyrir tónleika Pólífonkórsins.
En nýlega barst stjórn kórsins
orðsending frá stjóm Sinfóníu-
hljómsveitarinnar þess efnis að
Póýfónkórinn gæti fengið liðsinni
hennar til tónleikahalds hinn 10.
nóvember nk.
Að sögn Ingólfs Guðbrandsson-
ar, stjórnanda Póýfónkórsins,
fagnar stjórn kórsins þessum
tíðindum og vonar að takist að
hóa kómum saman til æfinga um
miðjan september. Ingólfur kvaðst
vona að efnisskráin yrði að mestu
leyti sú sama og ákveðin hafði
verið fyrir sönglistarhátíðina í vor,
en það byggðist þó á því að unnt
yrði að ná saman þeim kór sem
hafði undirbúið tónleikana í vor
og sömu einsöngvurum, því efnis-
skráin hefði einnig verið valin með
tilliti til þeirra.
„Efnisskráin er sambland af
mörgu því fallegasta og skemmti-
legasta, sem samið hefur verið
fyrir kór pg hljómsveit, bæði
kirkjuleg og veraldleg verk, kór-
söngvar, aríur og kvartettar eftir
Monteverdi, J.S. Bach, Wagner,
Verdi, Bizet og Rossini og henni
lýkur á atriðum úr Carmina bur-
ala eftir Carl Orff“ sagði Ingólfur.
„Þetta verða glanstónleikar, ef
hægt verður að ná liðinu saman
og æfa“.
-Verður þá engum bætt í kór-
inn í haust?
„Ef fólk er vel úndirbúið radd-
lega og músíkalskt verður það
athugað. Við tökum alltaf á móti
góðum kröftum í kórinn“.
-Hvað tekur við hjá Pólýfón-
kórnum eftir þessa tónleika?
„Framtíð Pólýfónkórsins er
óráðin að loknum þessum tónleik-
um. Ég fagna því að fá tækifæri
til að halda uppá 30 ára starf
kórsins með þessu móti, en um líf
hans að því loknu verður engu
spáð að sinni og engar líkur á því
að starfíð haldi áfram nema til
komi opinber fjárstuðningur eða
trygging fyrir fjárstuðningi frá
öðrum aðilum en mér“.
-Frestun tónleikanna í vor var
mikið fjárhagslegt áfall fyrir kór-
inn, hvernig hefur gengið að ráða
fram úr því?
„Við höfum fengið nokkra fyrir-
greiðslu frá Menntamálaráðuneyt-
inu og borgarstjórn Reykjavíkur,
sem hefur • grynnt á skuldum.
Margt er þó óuppgert og höfum
við fengið gjaldfrest til haustsins
í von um að tónleikarnir þá gefi
eitthvað í aðra hönd,“ sagði Ingólf-
ur Guðbrandsson að lokum.