Morgunblaðið - 05.07.1988, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
FLUGUHJÓL
GRILL I URVALI
FERÐAGRILL FRÁ KR. 1078,
Egilsstödum.
VEÐURGUÐIRNIR sýndu Aust-
firðingum sínar bestu hliðar um
síðustu helgi og nutu gestir á
tveimur útihátíðum á Fljótsdals-
héraði þess óspart að veðrið hér
jafnast oft við Miðjarðarhafsloft-
slag. í Atlavík dvöldu 800—1000
manns á Jónsmessuhátíð Ung-
Fóst í nœstu sportvöruverslun.
NÆL0NTJ0LD
FJÖGURRAMANNA
SEXMANNA
KR.4495,
KR. 5495,
VEIÐISTANGIR FRÁKR. 895,-
VEIÐIKASSAR FRÁKR.1195,-
VEIÐIHJÓL FRÁKR. 495,-
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Fjaran í Atlavík minnti á suðræna sólarströnd og gott var að kæla
tæmar í Lagarfljótinu
menna- og íþróttasmbands Aust-
urlands um helgina. Niðri í
vikinni nálgaðist hitinn 30 stigin
og fólk gekk um léttklætt og
börnin busluðu í Lagarfljótinu
til að kæla sig líkt og þau væm
á erlendri sólarströnd. Fjölmenni
var einnig á hestadögum hesta-
mannafélagsins Freyfaxa sem
haldnir vom að Iðavöllum um
helgina.
Jónsmessuhátíð UIA var einkum
ætluð fjölskyldufólki og var áfeng-
isbann á svæðinu. Var það svo vel
virt að ekki sá vín á nokkrum manni
og lögregla og gæslufólk átti náð-
uga helgi í Hallormsstaðaskógi.
Umgengni fólks um skóginn og í
Atlavík var einnig til fyrirmyndar.
Jónsmessuhátíð er nýjung í starf-
semi UIA en þessi tilraun þótti
gefast svo vel nú að vænta má
endurtekningar að ári.
Dagskráin hófst með sameigin-
legri grillveislu á laugardagskvöld.
Síðan var dansleikur sem yngsta
kynslóðin byrjaði með miklum til-
þrifum. Upp úr miðnætti var svo
kveiktur varðeldur og sunginn
fjöldasöngur við undirleik Magúsar
Einarssonar bankastjóra og Bjarna
Björgvinssonar skattstjóra. Á
sunnudagsmorgun var svo farið í
ratleik um skóginn og upp úr há-
degi hófst samfelld skemmtidag-
skrá þar sem böm frá Seyðisfirði
sungu lög úr Stóra Blóranum en
það er barnaleikrit sem Leikfélag
Seyðisfjarðar sýndi sl. vetur. Einnig
var þama boðið upp á djass, „free-
style" og júdó. Eftirhermur komu
fram og unglingahljómsveitir léku
af hjartans list. Vegna veðurs var
ekki hægt að velta sér nakinn upp
úr dögginni í morgunsárið því sök-
um hlýinda var ekkert áfall á Jóns-
messunótt. En það mun ákaflega
hollt fyrir alla kirtlastarfsemi að
velta sér nakinn upp úr dögginni
þessa nótt. Austfirðingar urðu því
að láta sér nægja að sólbaka sig
yfir daginn og safna þannig
vítamínum í kroppinn.
Fjölmenni var einnig að Iðavöll-
um þar sem hestamannafélagið
Freyfaxi gekkst fyrir hestadögum.
Þangað komu m.a. hestamenn
ríðandi frá nærliggjandi fjörðum og
var farin hópreið í Sandfellsskóg í
Skriðdal og slegið upp grillveislu.
Kappreiðar voru og farið í hesta-
leiki. Bömum gafst kostur á að
fara á hestbak og var það óspart
notað og olli mikilli hrifningu enda
í fyrsta skipti sem sumir vom að
koma á hestbak.
Félagar í Freyfaxa búa sig nú
undir að halda fjórðungsmót að ári
og eru þeir sífellt að bæta aðstöðu
sína við Iðavelli þar sem mótið verð-
ur haldið.
- Björn
Við útigrillið í Atlavík. Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Farið var í ýmsa leiki á Jónsmessuhátíð UIA og tóku ungir sem
aldnir þátt í þeim.
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
Veðurblíðan á Austfjörðum:
Hátt í þúsund manns á
Jónsmessuhátíð í Atlavík