Morgunblaðið - 05.07.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
25
SIGURÐUR KRISTTNSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Oframkvæman-
legt að selja
hömlur á
útflutning
SIGURÐUR Kristinsson er fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda
Skipaafgreiðslu Vestmannaeyja,
sem sér um útskipun á ferskum
fiski sem fluttur er með skipum
Sambandsins, en Skipaafgreiðsl-
an er jafnframt með eigin útgerð
og útflutning á fiski. Hann sagð-
ist telja með öllu óframkvæman-
legt að setja hömlur á útflutning.
„í fyrsta lagi tel ég menn bara
ekki vera tilbúna til þess að láta
lækka hjá sér fiskverðið með
þessum hætti, og í öðru lagi er
alls ekki sá mannafli fyrir hendi
hér í Eyjum til að vinna úr þeim
fiski sem hér kæmi til viðbótar,“
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að stjórnun á út-
flutningi yrði að koma frá útgerðar-
mönnum og skipstjórum sjálfum,
þannig að menn væru ekki að flytja
út fisk í óvissu. Sagðist hann vera
þess fullviss að menn kynntu sér
málin nú miklu betur en áður var
gert.
„Þetta byijaði eftir hremming-
una sem varð í Bretalndi í páskavik-
unni, en þá fóru menn að athuga
sinn gang. Það er því synd að núna
Sigurður Kristinsson.
skuli verið að grípa inn í þetta með
lagaboðum, þegar menn eru famir
að kanna ástandið á mörkuðunum
áður en þeir senda fískinn út. Út-
flytjendur verða að geta treyst þeim
upplýsingum sem þeir fá erlendis
frá, varðandi hvar er óhætt að selja
hvetju sinni, og þar á að ríkja full-
ur trúnaður manna á milli. Síðan
eiga útgerðamenn og skipstjórar
að athuga vel hvar von er á besta
verði. Þetta er eina raunhæfa
stjómunin sem getur orðið á þess-
um málum."
Varðandi léleg verð sem fengist
hefðu fyrir ferskfísk á mörkuðum
erlendis sagði Sigurður, að þegar
búið væri að skoða ofan í kjölinn
um hvaða físktegundir væri að
ræða í þessum tilfellum, þá teldi
hann að um hagnað hafí þrátt fyrir
allt verið að ræða. „Mér fínnst það
aldrei' hafa komið nægilega skýrt
fram þegar verið er að tala um lé-
legt fiskverð í Bretlandi, að þá er
verið tala urh verð sem er í kringum
50 krónur fyrir kílóið, og það jafn-
vel á kola sem er verðlaus fiskur
héma heima. Þetta em í raun og
veru alls ekki slæmar sölur.“
„Við erum sjálfir búnir að senda
út þrjá gáma af físki úr okkar eig-
in bát núna í sumar, og lægsta
meðalverð sem við höfum fengið
var tæplega 81 króna. Ef það á
núna að fara að pína okkur til að
landa þessum físki fyrir 40 krónur,
þá fínnst mér að einhvers staðar
verði að koma eitthvað á móti til
að bæta það upp. Þetta stangast
líka á við það sem segir í lögum
um að landa beri þar sem mest
verðmæti fæst fyrir aflann hverju
sinni."
Aðspurður sagði Sigurður að
hann teldi algjörlega óframkvæm-
anlegt að láta menn sækja um út-
flutningsleyfí með löngum fyrir-
vara. „Það getur ekki gengið af
þeirri einföldu ástæðu að alls ekki
er hægt að vita það með neinum
fyrirvara hvert magnið kann að
verða á einhverjum ákveðnum tíma.
Þessi krafa er sett í algerri blindni
þeirra sem um þetta eru að fjalla,
og mér fínnst alveg hreint ævintýri
hjá þeim að láta sér detta þetta í
hug.“
FINNUR SIGURGEIRSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Vona að skerð-
ingin auki söluna
á mörkuðunum
hér beima
„Stó.ra spurniiiginn, sem við
stöndum frammi fyrir eftir þessa
ákvörðun, er hvort sjómenn
ákveða núna að láta þennan fisk,
sem ekki fæst að flytja út, koma
og seljast í gegnum markaðinn,
eða hvort hann verður seldur inn
á stöðvarnar samkvæmt hefð-
bundnum leiðum á ákveðnu
verði,“ sagði Finnur Sigurgeirs-
son, framkvæmdastjóri Fisk-
markaðar Vestmannaeyja, er
hann var inntur álits á takmörk-
unum á útflutningi ferskfisks.
Síðan Fiskmarkaður Vestmanna-
eyja tók til starfa í janúar síðastliðn-
um hafa verið seld þar um 3.700
tonn af físki. Finnur sagði að óeðli-
lega rólegt hefði verið undanfarinn
rúman mánuð, og það kæmi helst
til af því að kaupendumir væru of
fáir. Fiskmarkaðurinn hefur selt
nokkrum aðilum uppi á landi, og
taldi Finnur að hugsanlega gæti
orðið aukning þar á.
„Á þessari stundu get ég ekki
gert mér fulla grein fyrir því hver
þróun þessara mála verður, en ég
vona að þessi skerðing á útflutningi
verði til þess að það magn komi í
gegnum markaðina hérna heima,
því það vantar meira magn í gegn-
um þá alla. Þetta hefur ekki verið
nógu mikið og stöðugt hingað til,
en það er mín skoðun að fiskmark-
aðimir hér séu eina réttláta verð-
lagningin á físki. Þar er þó við einn
draug að glíma, því hver hækkun
frá Verðlagsráði gerir fiskmörkuð-
unum erfíðara fyrir. Ef gert er ráð
fyrir því að það sé hæsta verð sem
fískvinnslustöð getur borgað, þá er
óeðlilegt að búast við því að stöðin
fari að kaupa fyrir hærra verð en
það inni á markaði. Eins og málin
standa núna þá sé ég ekki annað
en tíminn verði að leiða í ljós hvem-
Finnur Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Vestmannaeyja.
ig þessi mál þróast gagnvart fisk-
markaðinum hér,“ sagði Finnur að
lokum.
MAGNÚS KRISTINSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
„Osljórnlegur
útf lutningur
gengur ekki“
„ÉG get alveg fallist á að það
þurfi að setja einhveijar hömlur
á útflutning á ferskum fiski, því
svona óstjórnlegur útflutningur
eins og verið hefur getur ekki
gengið lengur," sagði Magnús
Kristinsson framkvæmdastjóri
hjá Bergur-Huginn hf.
„Það er samt algjörlega óraun-
hæft að ætla að setja hömlur á
útflutning á ýsu, þar sem hún er á
svo takmörkuðum markaði hér
heima. Það verður annað hvort að
frysta hana eða bjóða fisksölum,
sem geta ekki endalaust tekið við
henni. Ef við þurfum að fara að
senda umframmagn af ýsu á mark-
að í Reykjavík, þá er fyrirsjáanlegt
að það sprengir markaðinn þar.
Þorskinn er þó alltaf hægt að salta,"
sagði Magnús.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn
gerir út fimm fiskiskip, og það
umframmagn sem ekki hefur farið
Magnús Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri.
í frystingu hefur verið flutt út á
skipum félagsins. Magnús taldi að
það yrði erfíðleikum háð að vinna
þann viðbótarafla sem kæmi til
vinnslu í Vestmannaeyjum við
skerðingu á útflutningi, en það
færiþó eftir komandi aflabrögðum.
„Eg verð að kyngja því að allar
hömlur sem settar eru á útflutning
á ferskum físki koma við kauninn
á mér eins og öllum öðrum, þvi'
þetta hefur náttúrulega í för með
sér minnkandi tekjur bæði hjá sjó-
mönnum og útgerðarmönnum,“
sagði Magnús.
Aðspurður sagðist hann ekki sjá
neitt athugavert við það að þurfa
að sækja um leyfi til útflutnings
með einhverjum fyrirvara, en
kvaðst eiga erfitt með að gera sér
grein fyrir hvemig standa ætti að
úthlutun útflutningsleyfa. Hann
sagðist einnig telja það mjög að-
finnsluvert hvernig að þessum mál-
um hefur verið staðið að hálfu
stjórrivalda, því svona aðgerðir yrðu
að eiga sér einhvem aðdraganda.
„Svona nokkuð á ekki að gerast á
einni nóttu. Þetta kemur illa við
menn sem eru eitthvað að reyna
að hugsa fram í tímann, og því
verður að vera þokkalegur fyrirvari
á svona aðgerðum. En ég vil taka
það skýrt fram vegna ummæla sem
birst hafa um að reglur sem settar
væru í sjávarútvegi væru bomar
undir útflutningsráð stórkaup-
manna, að það_ finnst mér vera al-
veg út í hött. Ég mótmæli því ein-
dregið að stórkaupmenn skipti sér
af því hvemig sjávarútvegi á ís-
landi er stjórnað, því þeim kemur
það bara alls ekkert við.“
FLUGLEIÐIR
tilkynna
brottför
til
aðeins kr.
7.000
Nú er kjörið tækifæri fyrir
einstaklinga og starfsmanna-
hópa að heimsækja
Grænlendinga.
Um er að ræða brottför frá Keflavík
á mánudögum og föstudögum
kl. 17.00 og komið til baka
kl. 00.50 e.m.
Innifalin er skoðunarferð um
Narssarssuak, en þar er dvalið í um það
bil 3 tíma.
Allar nánari upplýsingar gefur söluskrifstof-
ur Flugleiða og ferðaskrifstofur.
* Sérstakar bókunarreglur gilda um flug fram og til baka sama dag.
FLUGLEIÐIR