Morgunblaðið - 05.07.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
29
unar hefur vaxið minna en ráð var
fyrir gert, hefur rekstur verksmiðj-
unnar verið mjög tryggur undanfar-
in ár.“
Framleiðsla verksmiðjunnar á
síðasta ári var um 60 þúsund tonn,
og var afkoman þá mun betri en
hún hafði verið árið áður. Tap á
rekstrinum var þó um 115 milljónir
króna, en það var innan við helm-
ingur þess taps sem varð á rekstrin-
um árið 1986 í raunverðmæti talið.
A síðasta ári voru greidd niður lán
með eigin aflafé verksmiðjunnar
upp á 60-70 milljónir króna, en á
þessu ári verða allar afborganir
ásamt vöxtum greiddar að fullu,
og jafnframt er greiðsluafgangur
fyrirsjáanlegur. Nú er verulega far-
ið að ganga á langtímaskuldir verk-
smiðjunnar, og á næstu árum verð-
ur meginhluti þeirra greiddur upp.
Alls munu um 260 milljónir af
langtímaskuldunum verða greiddar
niður á þessu ári. Heildarvelta fyrir-
tækisins er áætluð nokkuð á þriðja
milljarð á árinu, og lætur nærri að
það verði um 3,5 prósent af heildar-
útflutningnum hér á landi.
„Stefna okkar er sú að það verði
ekki tap á rekstri verksmiðjunnar
þó verðið á kísiljárni sveiflist aftur
niður í framtíðinni," sagði Jón Sig-
urðsson framkvæmdastjóri íslenska
jámblendifélagsins að lokum.
Texti: Hallur Þorsteinsson
Myndir: Árni Sæberg
Hér er verið að loka úrtaksgati
á öðrum bræðsluofninum.
kostnaðar verksmiðjunnar. Reykur
sem myndast við kísiljámfram-
leiðsluna er leiddur í gegnum þenn-
an hreinsibúnað, og í honum eru
föst efni skilin úr reyknum, en
gastegundunum er hleypt í gegn.
Magn kísilryksins sem myndast við
framleiðsluna er ákveðinn mæli-
kvarði á það hve vel reksturinn
gengur, en því minna ryk sem
myndast, þeim mun betri er rekst-
ur rafbræðsluofnanna.
Kísilrykið sem skilið er úr reykn-
um hefur verið notað í Sements-
verksmiðjunni á Akranesi, en þar
er því blandað saman við sement.
Með því fæst sement sem eyðir
alkalívirkni. Áður en farið var að
nota kísilrykið í Sementsverksmiðj-
unni var því hent, en nú er verið
að afla markaða fyrir það erlendis,
og á síðasta ári var hafin sala á
því til Japans og Bretlands, en
þangað voru seld rúmlega 2.000
tonn.
í samvinnu við_ Sementsverk-
smiðjuna hefur Islenska járn-
blendifélagið rekið fyrirtækið Sér-
steypuna sf. á Akranesi, en þar
hefur verið unnið að þróun vöru
með meira kísilrykinnihaldi en er
í venjulegu sementi.
Kaupmannahöfn:
Hlífar Mar í Jónshúsi
HÉR í félagsheimilinu er nú sýn-
ing á ljósmyndum, sem ungur
áhugaljósmyndari, Hlífar Már
Snæbjörnsson frá Þiljuvöllum í
Berufirði, hefur tekið. Nefnir
hann sýninguna Náttúru íslands
og eru flestar litmyndirnar tekn-
ar af fögru landslagi Austur-
lands, en svart-hvítar myndir af
höfuðborgarsvæðinu.
Hlífar Már, sem er fæddur 1955,
hefur stundað nám við myndlistar-
deild Myndlistar- og handíðaskóla
íslands og vinnur nú við smíðar og
listmálun í Reykjavík. Þetta er
fyrsta sýningin, sem hann heldur,
og eru allar myndirnar til sölu.
Myndir Hlífars eru listrænar og
mjög eigulegar í einfaldleik sínum.
— G.L.Ásg.
Ein af ljósmyndum Hlífars Más
á sýningunni í Jónshúsi.
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
SYKURLAUÍ