Morgunblaðið - 05.07.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
4*
Það þarf ekki að reyna að segja
nokkrurn hugsandi manni að íslensk
stjómvöld hafí ekki vitað um tilvist
þessara laga og sáttmála þessara
90 landa veraldar samtals, allra
utan Evrópuríkisins íslands. Þær
skýringar sjávarútvegsráðherrans
eru með ólíkindum. Enda tilgangur-
inn með öllu þessu streði augljós
allan tímann.
Við hvalavinir höfum ekki verið
mjög harðir í þessum smyglmálum
til þessa. Við höfum oft vitað um
fleiri farma hvalkjöts sem smyglað
er í gegnum hafnir erlendis á leið
til Japans og lítið hafst að.
Við hvalavinir erum íslendingar
líka og eigum okkar rétt á annarri
landkynningu en þessari. Við viljum
reyndar eins og flestir aðrir íslend-
ingar að ferðamannastraumurinn
til fslands aukist jafnt og þétt í
framtíðinni. A því munu framtíðar-
tekjur okkar og niðja okkar byggj-
ast að langmestu leyti.
Óumdeilt ytra að um smygl
væri að ræða
Það er einnig lítið kunnugt hér
heima að bæði í Vestur-Þýskalandi
í fyrra og nú í Finnlandi var óum-
deilt í hvalkjötsgámamálunum,
manna og ráðuneyta á meðal, að
um smyglvarning frá íslandi
væri að ræða. Eingöngu var deilt
um hvernig ætti að leysa málið til
að þurfa ekki að niðurlægja okkur
íslendinga of mikið.
Vestur-Þýska umhverfísmála-
ráðuneytið tók skýra afstöðu strax
t málinu í fyrra, — að fylgja hörðum
lagabókstafnum og gera smygl-
farminn umsvifalaust upptækan og
eyða afurðunum.
Utanríkisráðuneytið þýska var
hins vegar látið leysa málið með
því að senda kjötið til baka aftur-
dyramegin til íslands, þar sem hin-
ar hefðbundnu NATO-hótanir voru
famar að berast út fyrir landstein-
ana frá hinum eindæma íslenska
framsóknarráðherraflokki hér
heima.
Það sama var upp á téningnum
í Finnlandi nú fyrir skömmu. Ein-
göngu vegna norrænnar frændsemi
og nýlokinnar kurteisisheimsóknar
íslenska forsætisráðherrans til
Finnlands sáu finnsk stjórnvöld sig
tilneydd til að leysa málið á sem
diplómatískan hátt og leyfa heim-
sendingu kjötsins út um bakdymar
líkt og gerðist í Þýskalandi ári fyrr.
Óumdeilt var ytra að um hreint
smygl væri að ræða. Afurðir dýra
sem em í útrýmingarhættu. Svo er
a.m.k. skilgreining fæmstu vísinda-
manna þessara landa á ástandi
hvalastofna heimsins.
f
Búið að útrýma
3 hvalastofnum við
Island nú þegar
Og fyrir þá sem ekki vita er nú
þegar búið að útrýma þremur hvala-
stofnum við ísland; sandlægjunni,
Grænlandssléttbaknum og íslands-
sléttbaknum. Hvaða tegund ætlum
við að kjósa okkur næst? Langreyð-
ina eða sandreyðina? Eða kannski
hrefnuna? Það væri reynandi að
spyrja íslenska sjávarútvegsráð-
herrann að því. Ef hans hátign liti
nú niður úr fílabeinstumi sínum
stundarkorn niður til okkar smæl-
ingjanna. Okkar sem höfum lang-
tímaáætlanir um að búa ekki einir
allra dýra hér við Atlantshafið.
• Er ekki nóg komið af allri þess-
ari vitleysu? í dag er verðmæti
hvalaafurða komið niður fyrir
0,25% útflutningstekna íslands.
Eða er öllu fómandi fyrir þetta
prósentubrot? Virðingu okkar með-
al flestra siðaðra þjóða jarðar? Og
fískmörkuðunum, ferðamanna-
straumnum og mannorðinu líka?
Hvað á þessi vitleysa að þurfa að
kosta áður en menn slíðra skutlana
og neyðast til að hætta slátmn
hvaldýranna í kringum ísland? Ann-
ar endir er ekki fræðilegur í dæm-
inu hvernig sem menn líta annars
á þetta óhönduglega mál allt saman
af okkar hálfu.
Sviksemi íslands í
hvalfriðunarmálum
Fullyrða má eins og málin standa
nú í dag að íslendingar eru búnir
að niðurlægja hvalavini og náttúru-
unnendur um alla veröld svo mjög,
að fæst af þessu fólki mun unna
Ný hljómplata með
Omari Oskarssyni
NÝ hljómplata með Ómari
Óskarssyni gítarleikara og
söngvara er væntanleg á markað
nú um mánaðamótin. Platan ber
heitið „Rækjukokkteill“ og er
önnur sólóplata Ómars.
Fyrri sólóplata Ómars hét
„Middle Class Man“ og kom út á
þeim tíma sem hljómsveitin Pelican
starfaði, en í þeirri sveit lék Ómar
og samdi flest lögin á hljómplötum
þeirra félaga, þar á meðal „Jenny
Darling", „My glasses" og fleiri sem
náðu miklum vinsældum um miðjan
síðasta áratug, en um tólf ár eru
nú liðin síðan Ómar sendi frá sér
lög á plötu.
Rækjukokteill inniheldur 11 lög
eftir Ómar með textum eftir hann,
Hafliða Magnússon og Þómýju
Óskarsdóttur. Upptökustjóri á plöt-
unni er gamall félagi Ómars úr
Pelican, bassaleikarinn Jon Ólafs-
son og annast hann jafnframt
bassaleik á plötunni. Sjálfur annast
Ómar gítarleik og söng en aðrir
hljóðfæraleikarar eru Birgir J. Birg-
isson á hljómborð og Ásgeir Óskars-
son á trommur. Platan var tekin
upp í hljóðverinu Stöðinni og upp-
tökumaður var Axel Einarsson.
(Fréttatilkynning.)
sér nokkurrar hvíldar gegn okkur
fyrr en loforðin sem marggefln voru
af okkur um að hætta hvalveiðunum
verða haldin.
Fyrir flest raunsætt fólk ætti því
spuming dagsins í dag í rauninni
að vera eingöngu sú hvað við ætlum
okkur að leyfa okkur að greiða
þessa sviksemi okkar dýru verði
þegar allt verður tekið saman og
reiknað með að lokum? Því þetta
stríð við hin fimmhundruð mis-
munandi náttúruverndarsamtök
út um allan heim er gjörsamleg
vonlaust. Sem betur fer gista svo
margir hvalavinir og einarðir nátt-
úmverndarmenn þennan heim hér
í dag þrátt fyrir allt, að þetta er
fullkomlega töpuð barátta af hálfu
okkar Islendinga á meðan við hög-
um okkur svona, eins og óskynsamt
skyndigróðafólk gerir. Og það þó
við bítum í skjaldarrendumar í
sífelldu með miklum mannalátum.
Hve lengi enn höfum
við efni á að hafa
Halldór sem ráðherra?
Hvað ætli Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra, verði búinn
að kosta íslenska þjóðfélagið og
íslensku fískmarkaðina erlendis og
ferðamannaiðnaðinn hér heima
mikið að leikslokum? Það stefnir í
að verða há upphæð ef ekki verður
snúið við á þessari óheillabraut
fljótlega.
Og hve lengi höfum við eiginlega
efni á því dýra sporti að hafa svona
sjávarútvegsráðherra? Því er ekki
auðvelt að svara í fljótu bragði.
Það er verðugt verkefni Þjóð-
hagsstofnunar að reikna með hve
mikið það kostar aðeins í töpuðum
fiskmörkuðum, í reiðufé á árs-
gmndvelli, þessi stríðsrekstur ráð-
herrans svo umræðan um þetta
■ vandræðamál komist á eitthvað vit-
rænna plan. Heimildir hefi ég fyrir
því ytra að það hlaupi nú þegar á
hundmðum milljóna króna á ári,
þótt lítið sé talað um upphátt um
það hér heima. Og á það fyrirsjáan-
lega eftir að margfaldast á næst-
unni.
Ömggt má þó telja að við höfum
ekki efni á Halldóri ráðherra í
margar hvalvertíðir í viðbót ofan á
alla aðra óáran í íslensku efna-
hagslífi í dag, hvað sem öðm líður.
Svo mikið er víst nú þegar.
Höfundur ermeðlimur íHvala-
vinafélagi íslands.
'ERBLOÐ
Á FÖSTUDÖGUM
*rs
Auglýsingar í Daglegt líf þurfa að hafa
borist fyrir kl. 12.00. áföstudögum og
í blaðið Á dagskrá fyrir kl. 12.00
á miðvikudögum.
- bl^6 allra landsmanna
" guskór
Gönguskórnir frá Scarpa eru
bæöi traustir og þægilegir.
Fyrir stuttar sem langar göngu-
ferðir, á jafnsléttu sem um fjöll
og firnindi. Hjá Skátabúðinni
færðu aðstoð við val á þeim
skóm er henta þínum þörfum.
Ráðleggingar okkar eru byggð-
ar á reynslu.
Skátabúðin — skarar framúr.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045