Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988 4 \ AF INNLENDUM VETTVANGI eftir HUGA ÓLAFSSON Hugmyndir SÍL um lausn á vanda refaræktar: Ný 120 milljón króna bú- háttabreyting frá ref í mink Tap refabænda um 120 milljónir á ári Útflutningsverðmæti refa- skinna á síðasta ári var um 110-115 milljónir króna, en tap refabænda á sama tima var 120 miiyónir króna. Um 40 af 160 refabændum eru í veðþroti og eiga þar af leiðandi erfitt með að fá skuldbreytingar frá Stofnl- ánadeild landbúnaðarins, sem . rikisstjórnin hefur samþykkt til hjálpar refabændum. Byggða- stofnun neitar að lána 80 milljón- ir króna til fóðurstöðva í loðdýra- rækt, nema ríkisstjórnin ábyrgist að það sé ékki glatað fé. Astandið í refaræktinni er ekki glæsilegt og framundan er ekkert nema áframhaldandi tap. Spyija má hvort nokkuð sé eftir nema að veita þessarri grein nábjargimar. Forsvarsmenn í loðdýrarækt telja ' þó að það yrði gífurlegt slys ef refa- rækt legðist fyrirvaralaust niður. Slíkt gæti kippt fótunum undan fóðurstöðvunum sem aftur myndi valda erfiðleikum í minkarækt, sem gangi nú ágætlega. Samband íslenskra loðdýraræktenda hefur lagt til að allt að 3A þeirra 16.000 refalæða sem nú eru í landinu verði skipt út fyrir minkalæður. Þetta telur sambandið munu tryggja það að 1,7 milljarða fjárfesting og mik- il þekking íslendinga í loðdýrarækt skili arði í framtíðinni. Spumingin er hvort stjómmálamenn og fjár- málastofnanir hafa næga þolin- mæði og vilja til að veita enn meira fé í loðdýraræktina með veð í óljósri framtíð. Vandinn - úr vaxtarbroddi í vonlaust tap Vandinn í refaræktinni nú kemur flatt upp á marga sem ekki hafa fylgst náið með þróuninni í grein- inni og muna eftir tali ráðamanna um ref og mink í búrum sem vaxtar- brodd í íslensku atvinnulífi og lausn á vanda sveitanna í búháttabreyt- ingum þessa áratugar. Vandinn orsakast fyrst og fremst af gífur- legu verðfalli á skinnamörkuðum erlendis, en fall dollarans, fastgeng- isskráning og innlendar kostnaðar- hækkanir hafa haft sitt að segja ( loðdýraræktinni eins og í öðrum útflutningsvegum. „Fýrir nokkram áram var refa- hvolpurinn virði tveggja dilka, en nú er dilkurinn tveggja hvolpa virði," sagði Sigfuijón Bláfeld, loð- dýraræktarráðunautur í samtali við Morgunblaðið. Nú fást um 1.600 krónur íslenskar fyrir refaskinnið, en kostnaður við hvert skinn er hins vegar reiknaður um 3.300 krónur og fóðurkostnaðurinn einn er eitthvað um 1.200-1.700 krónur, þannig að í sumum tilvikum hrekk- ur skinnaverð ekki einu sinni fyrir fóðurkostnaði. Siguijón Bláfeld telur hins vegar að markaðurinn fyrir refaskinn sé í algjörri lægð nú og muni rétta úr kútnum í framtíðinni, þar sem hann hafi fylgt reglubundnum 10 ára sveiflum frá 1930. Uppbygging- in í íslenskri refarækt hafí komið á þeim tíma sem skinnamarkaðurinn var hvað bestur fyrir seljendur og íslenskir refabændur þurfi nú að borga afskriftir og fjármagnskostn- að á tíma verðhrans á skinnamörk- uðum á meðan bændur f öðram löndum hafi flestir komið undir sig fótunum. Siguijón nefnir sem dæmi að afskriftir af húsum séu um 70 krónur á refaskinn í Finnlandi, en allt að 700-1.000 krónur hérlendis. Offjárfesting? Siguijón Bláfeld segir að helsta orsök vandans í refaræktinni sé of hár fóðurkostnaður. Eðlilegt sé að fóðurkostnaður sé um 8-9 krónur á kílóið, sem þýðir rúmlega þúsund krónur á skinn, en fóðurkostnaður sé frá 8 krónum á Höfn í Homa- firði upp í ailt að 17 krónur á kíló- ið sumsstaðar. Því hefur verið hald- ið fram að offjárfesting sé í fóður- stöðvunum og að hún komi fram í óeðlilega háum fóðurkostnaði, þeg- ar þess er gætt að hráefniskostnað- ur er aðeins um 5-6 krónur á kfló- ið. Nú era 11 fóðurstöðvar starf- ræktar á landinu og heildarfjárfest- ing í þeim mun vera um 300 milljón- ir króna. í skýrslu Byggðastofnunar frá síðasta ári segir að engin at- vinnustarfsemi á Islandi hafi notið eins mikillar fyrirgreiðslu og fóður- stöðvamar. Fóðurstöð Melrakka hf. á Sauð- árkróki er oft nefnd sem dæmi um offjárfestingu, en hún kostaði um 100 milljónir króna. Einar Gfslason, formaður Sambands íslenskra loð- dýraræktenda, segir að það sé rétt að stöðin hafi hvergi nærri náð fullri afkastagetu, en stærð stöðv- arinnar hafí verið reiknuð út frá spám um aukningu í loðdýrarækt sem gerð var á uppgangstíma. Ein- ar segir að ekki þurfí að borga meira með fóðri frá Sauðárkróki en annars staðar og bendir á að þróunin erlendis hafí verið á þann veg að hafa færri stöðvar og stærri. Siguijón Bláfeld kallar byggingu fóðurstöðvar Melrakka hins vegar „algjört slys“ og bendir á að fóður- stöðin á Selfossi hafí aðeins kostað ‘A af stöðinni á Sauðárkrók, þó framleiðslan sé svipuð. 1,7 milljarðar í fasteignum fyrir loðdýrin Fjárfesting í refabúum er áætluð um 700 milljónir króna og annað eins mun liggja í minkabúum. Með fóðurstöðvunum má því segja að heildarfjárfestingin í loðdýrarækt- inni sé um 1,7 milljarðar króna, sem samsvarar um 6 nýjum skuttogur- um eða um 450 meðalíbúðum. Fjár- festing í refarækt er um 77% hærri á hveija læðu hér á landi en í Finn- landi og nær tvöfalt hærri í minka- rækt. Jón Ragnar Bjömsson, fram- kvæmdastjóri SÍL, segir að skýring- in á þessu sé að húsin hér séu vand- aðri en ytra, sem skili sér í Iengri nýtingartíma þeirra og betri skinn- um. Sú spuming vaknar hvort mikil opinber fyrirgreiðsla hafi orðið til þess að uppbygging refaræktarinn- ar hafi ekki farið fram á eins hag- kvæman hátt og framast er unnt. „Það hefur verið allt of auðvelt að fá fjármagn í refaræktina," segir Siguijón Bláfeld. Byggðastofnun sér ástæðu til að minnast á þetta í nýjustu ársskýrslu sinni: „Byggða- stofnun hefur varað við því að fórna arðsemissjónarmiðum fyrir þau áhrif sem loðdýraræktin getur haft til lausnar á vandamálum hefð- bundinna búgreina. Enda þótt vissulega væri gott ef hægt reynd- ist að styrkja búsetu á ákveðnum svæðum með því að stunda þar loð- dýrarækt fer því fjarri að skynsam- legt sé að kosta til þess hveiju sem er.“ Einn viðmælandi Morgunblaðs- ins tók í sama streng og sagði að stór hluti vandans væri sá að refa- ræktin hefði verið rekin í anda byggðastefnu undir forsjá „land- búnaðarapparatsins", en ekki eins og hver annar „bissniss“. Reynt að bjarga refabændum í veðþroti En hveijum sem kann að vera um að kenna, er ljóst að ríkisvaldið og fjármálastofnanir geta ekki hlaupist frá fjárfestingum og fyrri ákvörðunum sínum nú þegar harðn- ar á dalnum. í ársbyijun ’87 áætl- aði Byggðastofnun að Stofnlána- deild, Byggðasjóður og Byggða- stofnun hefðu veitt um hálfum millj- arði í fyrirgreiðslu til loðdýrarækt- ar. Stofnlánadeild landbúnaðarins vinnur nú að því að skuldbreyta lánum refabænda í samræmi við samþykkt ríkisstjómarinnar og er áætlað að greiða um 10.000 krónur á hveija refalæðu, en enginn refa- bóndi fái þó yfir tvær milljónir króna. Að sögn Leifs Jóhannesson- ar hjá Stofnlánadeild er talið að um 40 refabændur séu komnir í veð- þrot og uppfylli því ekki skilyrði fyrir skuldbreytingum, en nú er hópur á vegum Stofnlándeildar, Iandbúnaðarráðuneytisins og Byggðasjóðs að leita leiða til að aðstoða þá sem era í veðþroti, til dæmis með því að breyta viðmiðun í veðmati. Framleiðnisjóður borgar nú 400 krónur í rekstararstuðning með hveijum refahvolp, eða um 30 milljónir á ári, en SÍL vill fá 300 krónum meira á hvolp. Lausnin - fækka refum og „minka“ búin? Vandinn í loðdýraræktinni er nær eingöngu í refaræktinni, en mun betur gengur í minkaræktinni. Nú era um 50-60.000 minkalæður á Sólsnyrtivörurnar frá Boots lyfjafyrirtækinu 1. ULTRA DEFENCE SUN BLOCK. Sólvörn fyrir mjög brunagjarna húð (sólvörn). 2. ULTRA DEFENCE LIP PROTECTOR. Vörn fyrir varir og húð þar í kring (hrukkur). 3. HIGH DEFENCE FACIAL SUN CREAM SPF 8. Næring með mikilli vörn. 4. PROTECTIVE FACIAL SUN CREAM SPF 4. Næring fyrir húð, sem þolir sól 5. AFTER SUN. Næring fyrir húðvefi, kælir og róar. Varnar þurrkun (flögnun) VIÐHELDUR BRÚNA HÚÐLITNUM. Berið daglega eftir hreinsun húðar. Notið í minnst 2 VIKUR EFTIR SÓLBÖÐUN til við halds brúna húðlitnum. 6. KAUPIÐ GÓÐAR SÓLVÖRUR FYRIR SÓLBÖÐUN::::: loksins komnar eftir margra ára rannsóknir. 100% ilmefnalausar (v/ofnæmisprófun). Sólin brennir þig ekki ef þú notar: Enskt hafrannsókna- skip í Reylgavíkurhöfn ENSKA hafrannsóknaskipið Cir- olana kom við í Reykjavíkurhöfn dagana 27. og 28. júní. Skipið er á leið á Grænlandsmið, þar sem kannaðir verða djúpsjávar- straumar. Cirolana kemur frá Lowestoft, en er skráð í Grimsby. Skipstjóri er M.J. Willcock. í samtali við Morg- unblaðið sagði hann, að tilgangur fararinnar á Grænlandsmið væri að kanna djúpsjávarstrauma. Skipveijar hyggjast nú vitja mæla, sem komið var fyrir undan ströndum Grænlands á síðasta ári. Upplýsingamar frá mælunum verða svo notaðar til að meta hættuna á útbreiðslu geislavirks úrgangs í Atlantshafi, en til þess þarf ná- kvæmar rannsóknir á hafstraum- um. Willcock skipstjóri og í baksýn skip hans Cirolana. Morgunbiaðið/Svemr “f
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.