Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5; JÚLÍ 1988
57
Gaelurefurinn Kalli var ein helsta stjarnan á sýningunni Bú ’87. Kalli étur fyrir um 1500 krónur á ári,
og eigandi hans borgar um 3300 krónur alls undir hann. Þetta elskulega dýr er ekki metið til fjár, en
ef hann væri lagður undir sömu mælistiku og frændur hans og frænkur er hann um 1600 króna virði.
Það er svipað og einn búrminkur, en sá er meira en helmingi léttari á fóðrum en Kalli.
landinu og áætlað útflutningsverð-
mæti minkaskinna á þessu ári er
um 300 miiljónir króna. Minkarækt
hófst að nýju hér á landi árið 1970,
10 árum á undan refaræktinni og
hefur staðist sveiflur á markaðin-
um, sem eru ekki nærri eins stórar
og í refaskinnunum. Verðið á
minkaskinni er orðið svipað og á
refaskinnum, en mun minni kostn-
aður er við minkinn og munar þar
mest um fóðrið.
Af þessum sökum hefur SÍL nú
lagt fram tillögur um að skipta út
stærstum hluta refa í loðdýrabúum
landsins og samþykkt hefur verið
að Framleiðnisjóður aðstoði við
slíkar búháttabreytingar. Ekki hef-
ur þó verið gengið frá neinum ná-
kvæmum tillögum um slíkar breyt-
ingar, enda á eftir að sjá hvort refa-
bændur samþykki þær.
Að sögn Jóns Ragnars Bjöms-
sonar, framkvæmdastjóra SÍL, vilja
samtökin fá afkomutiyggingu fyrir
fefabændur í 3 ár á meðan siript
verður um allt að SA ailra refalæða
á landinu og tvær minkalæður sett-
ar á í stað hverrar einnar refalæðu.
Ekki þarf að breyta húsum til þessa,
en búrum veður að breyta og reikn-
ar Jón Ragnar með því að kostnað-
ur við breytingamar verði um
10.000 krónur fyrir hveijar tvær
minkalæður. Ef skipt yrði út 12.000
refalæðum yrði kostnaðurinn við
það um 120 milljón krónur, eða
svipað og heildartap refabænda á
íslandi síðastliðið ár.
Uppskrift að
fyrirmyndarloðdýrabúi
Þessar hugmyndir um að hvert
loðdýrabú byggi einkum á minka-
rækt, en hafí refarækt sem
„aukabúgrein" eru ekki nýjar af
nálinni. Að sögn Sigurjóns Bláfelds
ráðlögðu Danir okkur slíkt fyrir-
komulag í byijun þessa áratugar,
þar sem minkaskinnin væru miklu
stöðugri í verði og verðsveiflur í
þessum tveimur tegundum jöfnuð-
ust yfírleitt út. Þá væri hægt að
fjölga refunum og græða vel þegar
markaðurinn væri í uppsveiflu, en
láta minkinn bæta tapið á meðan
refastofninum væri viðhaldið yfir
öldudal í skinnaverði.
Það er auðvelt að vera vitur eft-
irá, en nú ríður á að taka skynsam-
legar ákvarðanir fyrir framtíðina.
Það blasir ekkert annað við en
áframhaldandi botnlaust tap hjá
íslenskum refabændum, þar sem
skinnabirgðir í heiminum hafa aldr-
ei verið meiri, um 1 ‘A milljón, og
engar horfur á að verðið hækki
nokkuð að ráði í bráð. Það er því
deginum ljósara að það verður mik-
ill samdráttur í refarækt, en spum-
ing um hvemig að málum verður
staðið.
Að hrökkva eða stökkva
Stjómvöld taka áhættu með að
samþykkja lausnir á borð við þær
sem SÍL hefur lagt til, því skinna-
tískan og markaðurinn em fallvölt
og enginn kominn til með að segja
að ekki verði tap á minkaskinna-
framleiðslu eftir nokkur ár. Ef refa-
rækt, eða jafnvel loðdýrarækt í
heild, verður hins vegar lögð niður
hér á landi fara gífurlegar íjárfest-
ingar í súginn og sú þekking sem
hér hefur byggst upp glatast. ís-
lenskir búrrefír áttu eitt sinn heims-
met í fijósemi og skinnastærð og
gæðin á skinnunum hafa sífellt far-
ið vaxandi. Ef verðið á refaskinnum
nær fyrri hæðum ættu íslendingar
að geta staðið vel að vígi með ódýrt
hráefni í fóður og hágæðaskinn.
„Það er ekki spuming um að loð-
dýrarækt á framtíð fyrir sér hér á
landi," segir Jón Ragnar Björnsson.
Spumingin er hvort menn em til-
búnir að hætta miklu fé til að íjár-
festa í þeirri framtíð.
Arrow^
STUTTERMA
S K Y R T U R
verð kr. 1.495
ORION
MYIMDBANDSTÆKI
nesco
LRUGRI/GGUR HF
Laugavegi 10, simi 277 88
Morgunblaðið/PPJ
Áhöfnin við komuna til Reykjavíkur. F. v. Jóhann Þórisson flugmað-
ur, Þorsteinn Jónsson flugstjóri og Markús Magnússon flugvirki.
Ný leiguflugvél
til Arnarflugs
TWIN Otter 300 leiguflugvél Arn-
arflugs Innanlands hf. kom til
Reykjavíkur aðfaranótt fimmtu-
dags frá ZUrich í Sviss með við-
komu í Prestvík i Skotlandi. Flug-
vél þessi tekur 19 farþega eins
og Twin Otter-vélin sem fyrir er
f flugflota félagsins, en er búin
aflmeiri hreyflum.
Farflugshraði vélarinnar er um 20
sjómflum meiri á klukkustund og
getur hún borið tæplega 4300 kg
þyngri arðfarm en eldri Twin Otter-
flugvél Amarflugs. Leiguvélin fer
strax í notkun á leiðum Arnarflugs
enda ekki vanþörf á þar sem flutn-
ingar hafa aukist til muna nú að
undanfömu.
Þess má geta að eigandi flugvélar-
innar er Svissneska flugfélagið
Zimex Aviation en hjá því félagi em
nú starfandi fímm íslenskir flugmenn
við hjálparflug á vegum Alþjóða
Rauða krossins. Fjórir þeirra em við
störf í Angóla og einn f Kenya.
- PPJ
HÁRLOS
Splunkuný hárígræðslumeðferð, sem ábyrgist heilbrigt og náttúrulegt hár sem vex
áfram það sem þú átt eftir ólifað (skrifleg ábyrgð fylgir). ígræðslan er bæði snögg og
sársaukalaus og er aðeins framkvæmd af mjög hæfum læknum á okkar vegum. Með-
ferðin hefur verið reynd og rannsökuð í yfir 30 ár og þær sem hafa verið gerðar hafa
tekist frábærlega vel og er það ástæðan fyrir því að við lofum endurgreiðslu ef hún
tekst ekki fullkomlega.
í dag ættirðu því að hafa samband við okkur, án allra skuldbininga, og fá allar nánari
upplýsingar um þessa spennandi meðferð.
Sími: 9044/1-41296 eða skrífið til: REGROW HAIR CLINIC,
NEÐSTUTRÖÐ 8, 200 KÓPAVOGI.