Morgunblaðið - 05.07.1988, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
Hörpuskjól
- varanlegt skjól.
Skúlagötu 42, Pósthólf 5056
125 Reykjavfk, Síml (91)11547
HARPA
lífinu lit!
FJORÐUNGSMOT VESTURLANDS Á KALDÁRMELUM
Fimm þúsund
mótsgestir í
sól, roki og ryki
ÞAÐ voru utiteknir mótsgestir sem fóru að tygja sig til heimferðar
að loknu Fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum á sunnudagskvöld-
ið, enda búið að vera glampandi sólskin þá fjóra daga sem mótið stóð
yfir. Fjölmenni var á mótinu og á sunnudaginn voru um fimm þúsund
manns á svæðinu. Allt gekk þó stórslysalaust og virtist mannfólkið
njóta þess sem boðið var upp á.
Mótið byijaði samkvæmt auglýstri
dagskrá á slaginu eitt á fimmtudag-
inn. Er nokkuð óvenjulegt að svo vel
takist til á hestamótum. Urðu tafir
á dagskrá yfirleitt mjög litlar eða
alls engar og byijaði síðast liðurinn,
úrslit í A-flokki gæðinga, klukkan
18.00 á sunnudagskvöldið eins og
gerð hafði verið ráð fyrir.
Dagskráin var nokkuð ströng fyrir
þá sem höfðu áhuga á að fylgjast
með öllu. Gafst þeim varla tækifæri
til að fara í mat eða kaffi. Til bóta
hefði verið að hafa sölutjald við
áhorfendasvæðin.
Kaldármelar henta vel frá náttú-
runnar hendi sem svæði fyrir hesta-
mannamót. Svæðið er mjög fallegt
og þangað liggja skemmtilegar reið-
leiðir úr öllum áttum. Fjölmargir
komu ríðandi á mótið, frá Suðurlandi
og Vestfjörðum og hvaðanæva af
Vesturlandi.
Ahorfendabrekkan á Kaldármel-
um er mjög skemmtileg. Hún er fal-
leg og tijágróðurinn veitir skjól og
ekki veitti af því hvass vindur blés
alla mótsdagana.
Ifyrir mótið var reistur dómpallur
og skrifstofa og einnig var gerður
nýr sýningarvöllur.
Kvöldvökur og dansleikir voru
haldin á föstudags- og laugardags-
kvöld á útipalli sem byggður var
fyrir mótið. Er það góð hugmynd að
halda dansleiki á sjálfu mótssvæðinu.
Á meðan kvöldvakan fór fram sat
fólkið í brekkum sem mynduðu skeifu
á móti pallinum. Náðist góð stemning
þama í hvamminum, sérstaklega á
dansleikjunum og þegar Ómar Ragn-
arsson lét gamminn geysa um hesta-
menn, stjómmálamenn og fleiri á
laugardagskvöldið.
Mótssvæðið er ekki mjög stórt
þannig að auðvelt er að komast á
milli. Ágætur matur var seldur í veit-
ingasal og auk þess var hægt að fá
grillaðan mat í sölutjaldi. Þá var
sölutum opinn þar sem var ágætt
vöruúrval og á svæðinu var einnig
hestavömverslun.
En alitaf er eitthvað sem betur
má fara á svona móti. Hreinlætisað-
staða hefði mátt vera mun betri,
ekki síst þegar tillit er tekið til þess
að mikið rok var allan tímann og
mótsgestir rykugir. Lítið vatns-
rennsli var í krönunum og um tíma
fór vatn alveg af salemunum. Því
var síðan kippt í lag. Salerni voru
HNETU
NÚ FÆRÐU
105 g MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS'*
Sigurbjörn Bárðarson og Gunnar Jónasson eigandi Fengs sigurreifir
í mótslok.
allt of fá fyrir fímm þúsund manns,
en gera má ráð fyrir að stjórnendur
mótsins hafí ekki búist við svo mikl-
um ijölda.
Nauðsynlegt hefði verið að vökva
svæðið og hefta þannig ryk. Einnig
hefði þurft að vökva sjálfan hring-
völlinn fyrir úrslitakeppnina á sunnu-
daginn til að koma í veg fyrir að
gæðingamir hyrfu í rykmekki.
Þó nokkuð var af útlendingum á
mótinu. Langflestir þeirra skyldu
ekki orð af því sem fram fór og
gátu heldur ekki lesið sér til um það
því engin gögn voru til á erlendu
máli um það sem fram fór. Urðu
útlendingamir að treysta á velvild
þeirra sem næstir sátu hvað túlkun
varðaði. Þetta sýnir ef til vill best
hversu gífurlegan áhuga þetta fólk
hefur á íslenska hestinum.
En skipulag og framkvæmd móts-
ins gekk í flestum atriðum vel. Alltaf
má þó læra af reynslunni og ber að
hafa í huga að enn er verið að byggja
Kaldármela upp sem framtíðarsvæði
fyrir Ijórðungsmót á Vesturlandi.
Þegar búið verður að bæta aðstöðuna
á ýmsan hátt, salemisaðstöðu og
hátalarakerfi svo eitthvað sé nefnt,
ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu
að Kaldármelar verði fyrirtaks móts-
svæði.
ÁH
MCCNS
LAUGAVEGI 101
miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.