Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 1

Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 1
80 SIÐUR B/C 165. tbl. 76. árg. FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Armenía: Sex menn teknir vegna mótmæla AÐ MINNSTA kosti sex menn hafa verið handteknir í Armeníu fyrir að skipuleggja mótmæli vegna framtíðar sjálfstjórnarhéraðsins Nag- orno-Karabak, að því er sovéskir fjölmiðlar greindu frá í gær. TASS, hin opinbera fréttastofa Sovétríkjanna, gerði einnig harða hríð að nefnd þeirri, sem skipulagt hefur mótmælin að undanförnu, en hinir kristnu íbúar Armeníu vilja að héraðið verði sameinað Armeníu á nýjan leik, enda séu íbúar þess flestir Armenar. Héraðið er undir stjórn nágrannasovétlýðveldisins Azerbajdzhans. Að sögn TASS voru tveir hinna handteknu gripnir af sérstökum lög- reglusveitum, sem sendar voru frá Moskvu, og gagnrýndi TASS arm- enska lögregluþjóna ákaft fyrir að vera ekki starfí sínu vaxnir. í gærkvöldi hafði breska útvarpið BBC það eftir TASS að lögreglan hefði einnig gert upptækar byssur og benzínsprengjur í Nagomo-Kara- bak og var það haft til marks um þá ólgu, sem þar ríkir. Þá mun alls- herjarverkfallið í Stephanakert enn vera virt. Fyrrnefndar handtökur sigldu í kjölfar þeirrar ákvörðunar Kreml- veija að vísa armenskum þjóðemis- sinna úr landi, sem sagður er hafa tekið ríkan þátt í skipulagningu mótmælanna. Fyrr í vikunni hafnaði Sovétstjóm- in ósk stjómvalda í Nagorno-Kara- bak um að sameinast Armeníu og sögðu Kremlarbændur að brot á al- mannareglu vegna þessa máls yrðu ekki lengur liðin. Mikil þjóðemisólga hefur verið við rætur Kákasus á þessu ári og deila Armenar og Azerbajdzhanar hart um landamæri Sovétlýðveldanna, sem verið hafa umdeild allt frá borgara- styijöldinni, sem sigldi í kjölfar vald- aráns bolsévikka árið 1917. Ólga þessi náði hámarki í febrúar þegar Armenar hvöttu stjómvöld í Moskvu til þess að sinna bænum sínum um endurheimt héraðsins og lögðu áherslu á kröfur sínar með gífurlegum mótmælagöngum í Jere- van, höfuðborg Armeníu, en flokks- broddar kommúnista í Armeníu tóku öllum að óvörum undir kröfurnar. Um svipað leyti vom Armenar í borg- inni Súmgajt í Azerbajdzhan ofsóttir og átti mikið blóðbað sér stað þá, Kambódía: Víetnamar heita brottfhitn- ingi herja sinna fyrir 1990 Bangkok og Havönu, Reuter. HANOI-stjórnin í Víetnam hefur tilkynnt að brottflutningi herja hennar í Kambódíu verði hraðað sem kostur er og á þeim brott- flutningi að verða lokið á næsta ári, eða í síðasta lagi í byijun 1990. Heng Samrin Kambódíufor- seti skýrði jafnframt frá þessu í gær og sagði herina fara á brott hvort sem pólitísk lausn fyndist á innanlandseijunum í Kambódíu eður ei. Þá hyggjast Víetnamar auka samvinnu við Bandaríkja- stjórn við að hafa upp á líkams- leifum bandarískra hermanna, sem taldir voru af í Víetnam- stríðinu á sínum tíma, en ógjörn- ingur hefur verið að staðfesta hvort þeir eru lífs eða liðnir. Að sögn vestrænna sljórnarerind- reka hefur Hanoi-stjórnin að und- anförnu hert mjög sókn sína á alþjóðavettvangi í von um að binda enda á níu ára langan hern- að hennar í Kambódíu og einangr- un hennar frá löndum utan kommúnistaheimsins. Að sögn víetnömsku fréttastof- unnar VNA skýrði Nguyen Van Linh, leiðtogi kommúnistaflokksins, Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga frá því á miðvikudag, að víetnamsk- ar hersveitir yrðu famar frá Kambódíu í lok næsta árs eða í síðasta lagi í bytjun 1990. Áður hafði Hanoi-stjómin sagt að her- sveitir þeirra, sem upphaflega fóru inn í landið til þess að steypa ógnar- stjórn Rauðu khmeranna, yrðu á brott í lok 1990. „Míkhaíl Gorbatsjov fagnaði góð- um ásetningi Víetnams og lét í ljós von um að [brottför heijanna] yrði vel tekið af öllum þeim, sem sannar- lega vilja að átökunum linni," sagði meðal annars í fréttatilkynningu VNA. Heng Samrin, forseti Kambódíu, sem nú er á ferð á Kúbu, skýrði samtímis frá fyrirætlunum þessum í viðtali sem birt var þar í gær, og sagði hann að brottflutningnum myndi ljúka í síðasta lagi árið 1990 — enda þótt ekki hefði fundist pólitísk lausn á vanda landsins. Pólitískir sérfræðingar telja að Kremlveijar hafi beitt Víetnama nokkmm þrýstingi að fara frá Kambódíu, en þann brottflutning gera Kínveijar að einu þriggja skil- yrða fyrir bættum samskiptum sínum við Sovétríkin. Hin tvö voru brottflutningur Rauða hersins frá Afganistan og úrdráttur viðbúnaðar við landamæri ríkjanna. Persaflóastríðið: sem enn hefur ekki að fullu verið upplýst. Azerbajdzhanar fengu Nagorno- Karabak að launum eftir að þeir buðu her til aðstoðar Rauða hemum við innrás í Armeníu og Georgíu, sem lýst höfðu yfír sjálfstæði. Að baki deilum þessum liggur einnig aldagamall rígur milli Armena og Azerbajdzhana, en hinir fyrr- nefndu eru kristnir og hinir síðar- nefíidu múslimir. Reutcr Um 300 Armenar söfnuðust saman á Púshkín-togi í Moskvu á miðvikudagskvöld, lásu dagblöð og báru saman bækur sínar um þá ákvörðun Sovétstjórnarinnar að synja beiðni héraðsins Nagorno-Karabak um endursameiningu við Armeníu. Breyttir tímar Að undanförnu hafa menn séð þess merki I Alþýðulýð- veldinu Kína, að kapítalisminn sé að hefja þar innreið sína. A myndinni sést kínversk starfsstúlka greiðslukortafyrir- tækisins American Express í Peking halda korti frá fyr- irtækinu á lofti, en innan tiðar verður útgáfa þeirra leyfð í Kína. Að baki gnæfir mynd af Maó formanni fremur óræðum á svip. Reuter Iranskir herforingjar hvetja til vopnahlés Blóðbaðið heldur linnulaust áfram HELSTU herforingjar í íran hvöttu í gær þjóð sína til þess að fylkja sér að baki ákvörðuninni um að fallast á vopnahlé í Persaflóastríð- inu, en á sama tíma lýsti Saddam Hussein Iraksforseti því yfir að vopnahlé myndi ekki leysa ágreininginn, sem að baki stríðinu lægi. í fréttatilkynningu, sem Iraksher sendi frá sér síðla i gær, kom fram að harðir bardagar hafa geisað á norðurhluta víglínunnar undanfar- inn sólarhring og sagði að íraksher hefði „eftir hetjulegar orrustur" náð 35 fjöllum og fjallstindum á sitt vald. Ríkissjónvarpið í íran sagði á hinn bóginn að öllum árásum Iraka hefði verið hrundið. Utanríkísráðuneyti Íraks sagði í gær að ekki væri hægt að skilja synjun írana um beinar friðarvið- ræður öðru vísi en aó þeir höfnuðu í raun vopnahlénu. Persaflóastríðið hefur nú staðið í hartnær átta ár. í Vínarborg undirbýr formaður sendinefndar Sameinuðu þjóðanna nú för nefndarinnar til Teheran á laugardag, en nefndinni er ætlað að ganga frá lausum endum hugsanlegs vopnahléssamkomulags. íransstjórn tilkynnti á mánudag að hún myndi fara að hinni árs- gömlu samþykkt SÞ nr. 598, en í henni var krafist tafarlauss vopna- hlés í Persaflóastríðinu. „Eg fer full- ur vonar," sagði Martin Vadset, stór- fylkisforingi í norska hemum og fyrrverandi embættismaður SÞ. „Ég held að SÞ geti unnið þarft starf og ég vona að þeim verði leyft að gera það.“ Báðir stríðsaðilar hafa gefið til kynna að þrátt fyrir að af vopna- hlénu verði séu deilur ríkjanna síður en svo útkljáðar og hyggst hvorugur draga heri sína frá landamærunum. Sjá einnig grein á síðu 26: „1988: Árið sem ..."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.