Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 -
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra:
Aukið frelsi í olíu-
verslun æskilegt
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra segir margt mæla með því,
að olúverslunin verði gefin frjáls að því leyti, sem hún er það ekki
nú þegar. Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra er á hinn bóg-
inn þeirrar skoðunar, að eins og sakir standa eigi ekki að breyta
núverandi fyrirkomulagi.
Verðlagsstofnun heimilaði olú-
verðshækkun í síðustu viku, en þó
ekki eins mikla og olíufélögin fóru
fram á. Kristján Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri LÍÚ mótmælti þeirri
hækkun. Ræddi hann í því sambandi
hugmyndir um að gefa olúverslun í
landinu fijálsa, með það fyrir augum
að lækka olíuverðið.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra,
að þessi hugmynd væri ekki ný, og
Kristján Ragnarsson hefði hreyft við
þessu áður. „Það er margt sem
mæiir með því að olíuverslunin verði
gefin fijáls, að því leyti sem hún er
það ekki nú,“ sagði Þorsteinn. „Ég
er opinn fyrir öllum góðum hug-
myndum, sem gætu orðið til þess
að lækka olíukostnaðinn og reiðubú-
inn að hlusta á allar röksemdir og
taka við gögnum hvað það varðar.
Þetta hefur hins vegar ekki verið
rætt í ríkisstjóminni og ég á ekkert
frekar von á því að það verði gert.“
Steingrímur Hermannsson ut-
anríkisráðherra telur aftur á móti
ekki ástæðu til að breyta fyrirkomu-
lagi olíuviðskiptanna eins og sakir
standa. „Við reyndum að auka fijáls-
ræði í þeim fyrir nokkrum árum og
það kostaði okkur hundruðir millj-
óna. Olíuviðskipti okkar við Sovét-
menn eru það mikilvæg, að við eig-
um ekki að leika okkur með þau.
Þau gætu að vísu breyst vegna
breytinga þar eystra, en á þessu
stigi eigum við ekki að standa fyrir
breytingum."
|
1'
Morgunblaðið/Bjami
Fornbílar á ferðalagi
FÉLAGAR í Fornbílaklúbbnum lögðu af stað á
um 30 fornbílum í gær, áleiðis til Akureyrar.
Ætlunin er að koma við á nokkrum stöðum á
leiðinni og halda sýningar á bílunum. Bílalestin
kemur til Akureyrar á laugardagskvöld og verð-
ur sýning á bílunum við Dynheima á sunnudag.
Elsti bílinn í lestinni er frá árinu 1929, en sá
yngsti frá 1972. Fólksbílar eru i miklum meiri-
hluta í bílalestinni, en þar má einnig sjá gamla
tankbíla og pallbíla.
VEÐUR
I/EÐURHORFUR í DAG, 22. JÚLÍ 1988
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km suövestur af Reykjanesi er nærri kyrr-
stæð 900 mb lægö og mun hún fara heldur minnkandi. Hiti breyt-
ist lítið.
SPÁ: Hæg austlæg átt og fremur hlýtt. Skýjað við suðurströndina
og á Austfjörðum og þokuloft við norður- og austurströndina.
Víðast léttskýjað á Norðausturlandi en skýjað með köflum á Vest-
fjörðum og Vesturlandi. Hiti 8—17 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- og norðaustanátt um allt land
og víðast skýjað. Rigning á Suöur- og Austurlandi en þokusúld
fyrir norðan. Sæmilega hlýtt í veðri.
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðaustan- og austanátt og sæmilega
hlýtt. t>urrt og víða léttskýjað á Suðvestur- og Vesturlandi en ann-
ars skýjað og dálítil rigning.
TÁKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, lieil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
f * / * Slydda
/ * /
# # #
# # # # Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 12 skýjað Reykjavík 10 súld
Bergen 13 skýjað
Helsinki 22 skýjað
Kaupmannah. 16 hálfskýjað
Narssarssuaq 7 rlgning
Nuuk 4 þoka
Ósló 15 skýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 11 rigning
Algarve 26 heiðskírt
Amsterdam 15 rigning
Barcelona 21 heiðskírt
Chlcago 21 Skýjað
Feneyjar 19 Þokumóða
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 16 þokumóða
Las Palmas vantar
London 15 skýjað
Los Angeles 20 alskýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Madríd 18 heiðskirt
Malaga 20 heiðskírt
Mallorca 22 léttskýjað
Montreai 19 skýjað
New York 24 þokumóða
París 18 skýjað
Róm 23 þokumóða
San Diego 21 heiðskirt
Winnipeg 17 léttskýjað
Nær 50% hækkun
á tj ónagreiðslum
ábyrgðatrygginga
Staf ar af auknum viðgerðakostnaði
Tjónagreiðslur ábyrgða-
tryKginga hjá fjórum stærstu
trygr87n&arí élögfunum námu 241
milljón króna fyrstu sex mánuði
ársins, en voru á sama tíma í
fyrra um 161 milljón króna.
Greiðslur á ábyrgðatryggingum
hafa því hækkað um 49,5% á
milli ára, en samsvarandi tölur
um greiðslur á kaskótrygging-
um eru 69 milljónir fyrstu sex
mánuði ársins 1987 en 123 millj-
ónir á þessu ári, eða um 78%
hækkun á milli ára hjá þessum
fjórum tryggingafélögum. Lítil
breyting hefur hins vegar orðið
á tjónatíðni á milli ára og stafar
þessi hækkun einkum af aukn-
um kostnaði vegna viðgerða og
varahluta, sem samkvæmt út-
reikningum samstarfsnefndar
íslensku bifreiðatryggingarfé-
laganna hafa hækkað að meðal-
tali um 50% frá því í fyrra.
Að sögn Benedikts Jóhannes-
sonar, stærðfræðings hjá Talna-
könnun, sem annast tölfræðilega
útreikninga fyrir samstarfsnefnd-
ina, eru ofangreindar greiðslur nær
eingöngu vegna svonefndra muna-
tjóna, þar sem slysatjón greiðast
að öllu jöfnu seinna og á mörgum
árum. Benedikt sagði hins vegar
að slysatjón hefðu farið síhækk-
andi á undanförnum árum og væri
nú áætlað að þau næmu um 40
til 45% af heildartjónum.
Siguijón Pétursson formaður
samstarfsnefndar bifreiðatrygg-
ingarfélaganna og Hreinn Berg-
sveinsson, sem einnig á sæti í
nefndinni, sögðu í samtali við
Morgunblaðið að hver árekstur
kostaði nú um 70 þúsund krónur
að meðaltali á hvern bíl, það er
um 140 þúsund krónur ef um
tveggja bíla árekstur væri að ræða
og væri þá eingöngu miðað við
munatjón. Ef slys yrði á fólki væri
lágmarkskostnaður um 500 þús-
und krónur á hvern einstakling og
því hærri sem slysin væru alvar-
legri. Þeir sögðu að þrátt fyrir 60%
hækkun á iðgjöldum ábyrgða-
trygginga s.l. vor væri ljóst, að ef
svo héldi fram sem horfði yrði
óhjákvæmilegt að hækka enn ið-
gjöldin. Eina leiðin til að komast
hjá því væri að ökumenn sjálfir
leggðu sig fram um að sýna aukna
varúð þannig að takast mætti að
fækka árekstrum og óhöppum í
umferðinni.
Stjórn Goðgár hf.:
Oskar eftir opinberri
rannsókn á bókhaldi
STJORN Goðgár hf., útgáfufé-
lags Helgarpóstsins, ákvað á
fundi sínum í gær að óska eftir
opinberri rannsókn á bókhaldi
fyrirtækisins síðustu ár. „Helsta
ástæðan er sú að við milliupp-
gjör löggilts endurskoðanda
fyrir árið í ár kom á daginn að
tap síðasta árs, sem við héldum
að væri 7-8 milljónir, er í raun
á 12. milljón, einnig að skuldir
umfram eignir eru um 15 millj-
ónir,“ sagði Birgir Hermanns-
son varaformaður stjórnar
Goðgár.
Nú er um það bil mánuður liðinn
af tveggja mánaða greiðslustöðvun
Goðgár hf og sagði Birgir að reynt
hefði verið að finna aðila til að
leggja fram nýtt íjármagn í rekst-
urinn. „Það hefur enginn fundist
ennþá en það hefur heldur varla
verið raunhæfur grundvöllur fyrir
því fyrr en nú að þetta uppgjör
liggur fyrir. Núna fýrst má segja
að hægt sé að sýna einhver gögn
til að byggja á,“ sagði hann. Birg-
ir sagði ótímabært að spá um hvort
takist að koma rekstrinum í gang
að nýju eða hvort óskað yrði eftir
gjaldþrotasiptum að greiðslustöðv-
un lokinni.