Morgunblaðið - 22.07.1988, Page 5

Morgunblaðið - 22.07.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 5 Ellilíf eyrisþegar: Greiðslur vegna tekjutrygg- ingar minnkuðu um 3,3% GREIÐSLUR vegna tekjutrygg- ingar ellilífeyrisþega drógust saman um 3,3% frá júní til júlí - úr 243,1 milljónum króna í 235 milljónir. Að sögn Hauks Har- aldssonar, deildarstjóra í greiðsludeild Tryggingastofnun- ar ríkisins, stafar þessi samdrátt- ur af endurmati á þessum greiðslum út frá nýjum upplýs- ingum frá ríkisskattstjóra um tekjur á árinu 1987. Haukur sagði að fólk sem hefði lægri tekjur á þessu ári en í fyrra gæti komið á Tryggingastofnun og skrifað undir yfirlýsingu um tekjur á þessu ári og fengið greiðslur til sín hækkaðar. Haukur sagði að alltaf yrðu ein- hvetjar sveiflur á greiðslum á milli ára og þetta gæti ekki talist óvenju- lega mikill samdráttur. Nú fengju 15.652 ellilífeyrisþegar greidda tekjutryggingu og hefði fækkað um 201 frá júnímánuði. Sveiflan myndi svo væntanlega jafnast eitthvað út, þar sem greiðslurnar yrðu endur- metnar hjá því fólki sem teldi sig hafa lækkað í tekjum á þessu ári. Samhliða þessu endurmati á greiðslum vegna tekjutryggingar var svokallað frítekjumark hækkað um 35% á milli ára og er nú 127.980 krónur á ári fyrir einstakling. Þetta þýðir að einhleypur bótaþegi með tekjur undir 127.980 krónum á ári, fær 17.107 krónur á mánuði í tekju- tryggingu. Þessi greiðsla minnkar ef tekjur fara upp yfir frítekjumark- ið og fellur alveg niður hjá bótaþeg- um með 584.167 krónur í árstekjur. Pétur H. Ólafsson hjá Félagi eldri borgara sagðist ekki vita til þess að óvenjumikið væri um kvartanir nú vegna lækkunar á greiðslum. Félagið hefði hins vegar lengi bent á að útreikningar á tekjutryggingu væru óréttlátir. Greiðslur úr lífeyr- issjóðum væru dregnar frá tekju- tryggingu, þannig að menn væru látnir gjalda þeirra, en ekki njóta. Þá ættu margir ellilífeyrisþegar erfítt um vik að fara niður á Trygg- ingastofnun til að skrifa undir yfir- lýsingu um tekjur á þessu ári. Stofnunin væri vel mönnuð og spyrja mætti hvort starfsfólk henn- ar gæti ekki sótt það fólk heim sem lækkaði í tekjutryggingu. Millilandaflug frá Alexandersfluervelli Sauðárkróki. J FLUGSKÓLI Helga Jónssonar, sem á undanförnum árum hefur annast reglubundnar ferðir til Grænlands, hóf millilandaflug frá Alexandersflugvelli við Sauðárkrók þriðjudaginn 19. júlí. Þann dag komu tvær flugvélar fyrirtækisins frá Meistaravík á Grænlandi og sóttu hluta búnaðar fyrir leiðangur breskra framhaldsskólanema, sem dveljast munu á Grænlandi um mánaðartíma. Að sögn Helga Jónssonar, hefur ur, sem nú er á ferðinni, einn hinn hann annast flutning á svipuðum leiðangurshópum til Grænlands nokkur undanfarin ár. Er þessi hóp- Lífeyrissjóðir: Greiðslujöfnun lána skiptir ekki sköpum MIKIÐ hefur dregið úr lánum lífeyrissjóða til sjóðsfélaga sinna á undanförnum árum og því mun greiðslujöfnun lána ekki skipta sköpum fyrir lántaka, að sögn Hrafns Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Sambands al- mennra lífeyrissjóða. Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra hefur lagt til að lög um greiðslujöfnun verðtryggra lána nái einnig til lífeyrissjóða, eins og opinberra byggingarsjóða. Hrafn sagði að greiðslujöfnunin gæti minnkað greiðslubyrði lántaka örlítið en það sem skipti meginmáli, væru vextimir á lánunum. „Þeir hafa haft það í för með sér að eftir- spum eftir lánum hefur minnkað stórlega. Lán til sjóðsfélaga em þverrandi þáttur í starfsseminni, á síðasta ári námu þau 11% af heildar- ráðstöfunarfé sjóðanna en 63% árið 1984.“ Hann sagðist ekki hafa trú að jöfnunin breytti miklu, lánsupphæð- irnar væru yfirleitt lágar og til langs tíma. „Fyrir nokkrum árum var boð- ið upp á greiðslujöfnun lifeyrissjóðs- lána en enginn áhugi var fyrir hendi, hvorki hjá lífeyrissjóðunum eða lán- takendum. Það er ekki hagur lífeyr- issjóðanna að halda uppi háu vaxta- stigi. Við erum þolendur á því sviði en ekki gerendur, það er annarra að móta vaxtastefnuna og að koma vöxtunum niður á skynsamlegt stig.“ fjölmennasti hingað til. Flogið er frá Alexandersflugvelli til Meist- aravíkur og tekur hver ferð um það bil fjóra tíma. AUur búnaður og fæði leiðangursmanna var fluttur til Grænlands fyrst en 23. júlí verða bresku framhaldsskólanemamir, sem þátt taka í ferðinni, fluttir til Meistaravíkur. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkir fólks- og vömflutningar landa á milli fara um Sauðárkrók en áður hafa millilent hér vélar og tekið farþega á leið til útlanda. Einnig hefur það að minnsta kosti einu sinni gerst, að flugvél hefur komið með vömfarm beint til Sauðár- króks, frá útlöndum. Vonandi er þetta vísir að öðm meiru. Það er vel við hæfí að milli- landaflug frá Sauðárkróki he§ist að nýloknum hátíðarhöldum á flug- vellinum til heiðurs aldarminningu dr. Alexanders Jóhannessonar. Helgi Jonsson sagði flutningana hafa gengið ágætlega þessa daga °g mjög gott að fljúga frá Alexand- ersflugvelli og stefnir hann að því að feija leiðangursmenn til baka sömu leið seinnipart ágústmánaðar. - BB Féll á prófi í lagadeild: Lagadeild hafnaði beiðni um aðgreiningu einkunna FLUGLEIDIR tilkynna morgunbrottför frá Kaupmannahöfn kl. 09.00, lending í Keflavík kl. 10.15 þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga. Auk þess vekjum við at- hygli á flugi frá Keflavík til Kaupmannahafnar þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 16.30. Þaöan er hægt að ná tengiflugi til allra Norður- landanna samdægurs. ÖNNUR stúlknanna tveggja sem féllu í annað sinn á fjórðaársprófun- um í lagadeild í vor, lagði fyrir deildarfund lagadeildar á þriðjudag beiðni, þar sem hún fór fram á upplýsingar um innbyrðis hlutfall á einkunnum kennara og prófdómara á prófum sínum. Jafnframt ósk- aði hún þess að fá Ijósrit af prófúrlausniinum. Þessari beiðni var hafnað á deildarfundinum. Eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu óskaði önnur stúlkn- anna eftir því að fá að þreyta fjórða- árspróf í þriðja sinn. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem beiðni hennar var hafnað. Samkvæmt upplýsingum frá Rétt- indaskrifstofu stúdenta fór hin stúlk- an ekki fram á að taka próf sín aft- ur. Á deildarfundinum var hins veg- ar tekið fyrir bréf þar sem lögfræð- ingur fer fram á, fyrir hönd stúlk- unnar, að fá upplýsingar um inn- byrðis hlutfall einkunnar kennara og prófdómara í prófunum. Hins vegar fer hún fram á að fá ljósrit af prófúrlausnunum. Fyrri beiðninni var hafnað en hins vegar samþykkt að kanna hvort heimilt sé samkvæmt reglugerðum að gefa leyíi fyrir ljósritun prófúr- lausna. Þessi niðurstaða var sam- þykkt með atkvæðum kennara, en fulltrúar stúdenta sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna. Jónatan Þórmundsson, deildarfor- seti lagadeildar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri unnt að verða við þeirri beiðni að aðgreina einkunnir kennara og prófdómara, vegna þess að gefin væri ein sameig- inleg einkunn. Það væri öryggisat- riði fvrir stúdenta að kennari og prófdómari bæru sig saman og tryggðu að engin mistök yrðu við yfirferð úrlausnanna. Sá háttur að gefa sameiginlega einkunn væri í fullu samræmi við reglugerðir. Að sögn Jónatans barst bréfið eftir að deildarfundurinn hófst og hefði því ekki unnist tími til þess að kanna hvort heimilt væri að fá ljósrit af prófúrlausnum. Það væri hins vegar regla að nemendur mættu skoða prófúrlausnir sínar hjá kenn- ara, en það hefði hvorug stúlknanna notfært sér. Franz Jezorski formaður Orat- ors.félags laganema, var einn full- trúa stúdenta á deildarfundinum á þriðjudag. Hann kvað ástæðu þess að þeir sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una vera þá, að bréfið barst svo seint til fundarins að ekki reyndist unnt að undirbúa málið og kanna heimildir í reglugerðum. Hins vegar taldi Franz, eftir að hafa kannað málið eftir á, að sam- kvæmt reglugerðum ætti kennari og prófdómari að gefa aðskildar eink- unnir. Jafnframt kvað hann ve'ra fordæmi fyrir því að nemendur fengju að ljósrita prófúrlausnir hjá kennurum ef þeir vildu. Umrædd stúlka vildi ekkert um málið segja að svo stöddu, þegar Morgunblaðið leitaði eftir áliti henn- ar. Að sjálfsögðu eru hin hefðbundnu morgunflug enn á sínum stað - alla daga! Allar nánari upplýsingar á söluskrif- stofum Flugleiða og ferðaskrifstofum. FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.