Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
7
Tveir Sómabátar
seldir til Grænlands
Verða á sjávarútvegssýningu í Nuuk
TVEIR Sómabátar frá Báta-
smiðju Guðmundar í Hafnarfirði
lögðu í gær upp frá Reykjavíkur-
höfn í siglingu til Grænlands. Þar
verða þeir afhentir grænlensk-
um kaupendum á sjávarútvegs-
sýningunni í Nuuk, sem hefst 28.
júlí.
Leiðin til Grænlands er um 1500
sjómílur, en hámarkshraði bátanna
er 30 sjómílur á klukkustund.
Sómabátarnir munu fyrst koma að
landi í Kulusuk á vesturströnd
Grænlands og sigla svo fyrir suður-
odda Grænlands sem leið liggur til
Nuuk. Þar verða bátamir til sýnis
á sjávarútvegssýningunni, sem fyrr
segir, en munu svo afhentir kaup-
endum á Grænlandi.
Bátasmiðja Hafnarfjarðar mynd-
ar ásamt fleiri fyrirtækjum sér-
stakan útflutningshóp. Sá hópur er
einn af þremur sem nú starfa á
vegum Útflutningsráðs íslands, en
verkefni útflutningshópanna er að
vinna sameignlega að markaðssetn-
ingu á ákveðnum svæðum erlendis.
Önnur fyrirtæki í þessum hópi eru
Sjóvélar, DNG, Normex og Vél-
smiðjan Klettur. Nú þegar hafa
verið seldir um 200 Sómabátar hér
á landi.
Morgunblaðið/Þorkell
Áhafnir Sómabátanna, talið frá vinstri: Ólafur Árnason, Óskar Guð-
mundsson, skipstjóri, Ólafur JÓnsson, Trausti Gestsson, skipstjóri,
Ásdís Ólafsdóttir og Gunnar Gunnarsson.
Siglufjörður:
Hætt að taka
á móti ufsa
Siglufirði.
Fiskvinnsluhúsin hér eru hætt
að taka á móti ufsa af færabátun-
um því það svarar ekki lengur
kostnaði að salta hann.
Færabátarnir hafa fengið mikinn
ufsa 6 til 8 mílur út af Siglufirði
og getað selt flskvinnsluhúsunum
40 til 50 kg af ufsa eftir hvern
róður.
Matthías.
0PNUM ÍKVÖLD
SKEMMTISTAÐINN, SEM ROKKUNNENDUR
HAFA BEÐIÐ EFTIR!
Bifreiðaumboðin:
Mikilsala
á bíla-
útsölum
TÖLUVERT hefur borið á aug-
lýsingum frá bifreiðaumboðun-
um síðustu daga þar sem auglýst-
ar eru útsölur á 1988-árgerðum
af bílum, eins og greint hefur
verið frá í Morgunblaðinu. Svo
virðist sem bilasala hafi glæðst
verulega í kjölfar þessa.
Að sögn Lárusar Halldórssonar,
sölumanns hjá Sveini Egilssyni,
hefur salan á 1988-árgerðunum
gengið vel síðan um mánaðamótin,
en þá auglýsti fyrirtækið bifreiðar
af þessari árgerð á hagstæðari
greiðslukjörum. Kvað Lárus fyrir-
tækið hafa búist við samdrætti í
bílasölu í sumar og pantað í sam-
ræmi við það. Samt sem áður sitji
það nú uppi með töluverðan fjölda
bifreiða sem ekki sé hægt að selja
án sérstakra kjara.
Jöfur hf. hefur auglýst tíu til
flmmtán prósent afslátt af 1988-
árgerðum af Peugaot-, Chrysler-
og Skoda-bifreiðum, alls um 250
bíla. Kaupendur þrífa þess í stað
bílana sjálfir og sjá um að skrá-
setja þá. Að sögn Eyjólfs Brynj-
ólfssonar, framkvæmdastjóra, hef-
ur mikil sala verið síðan útsalan var
auglýst um helgina og seldust
fimmtíu bílar fyrstu tvo dagana.
Honda-umboðið auglýsti útsölu á
bifreiðum í síðustu viku og hefur
salan gengið vel að sögn Gylfa
Gunnarssonar, sölustjóra. Fyrir-
tækið hafi ekki átt marga bíla til
þess að bjóða á útsölu, en það hafl
verið nauðbeygt, vegna útsala ann-
arra umboða, að veita afslátt á
þeim bifreiðum sem til voru.
Það virðist vera samdóma álit
hjá þeim bifreiðaumboðum sem
Morgunblaðið ræddi við, að útlit sé
fyrir samdrátt í bílasölu seinni hluta
þessa árs og að sala á næsta ári
verði mun minni en árin á undan.
Hjá flestum umboðunum var von á
bifreiðum af 1989-árgerðum í sept-
ember og október.
SJÖVÁ
Nýtt númer
692500
Zeppelin — rokk klúbburinn er skemmti-
staður, sem aetlað er að skapa nýja vídd
í íslenskt skemmtanalrf. Staðurinn mun
reyna að höfða fyrst og fremst til fólks
á aldrinum 25 til 40 ára. Þeir, sem telja
sig ekki finna skemmtistað við sitt haefi
og sitja því heima, geta nú farið að hugsa
sértil hreyfings.
Ýmsar nýjungar verða íZeppelin, bæði
í veitingum og í skemmtun. Tónlistin
verður eingöngu byggð upp á „gaeða—
rokki", jafnt gömlu sem nýju. Gestir Zepp>-
elins geta átt von á að heyra í Bill Haley
eða Elvis Presley jafnt sem Inxs, Led
Zeppelin, Bruce Springsteen eða Rolling
Stones.
ZEPPEUN - STAÐUR ROKKUNNENDA!
SHPIIilUS^
Borgartúni 32