Morgunblaðið - 22.07.1988, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
Laxarnir vænu eru svona um 5 pund hver. Ætla mætti að auk þeirra
séu þarna fjórir sjóbirtingar, hver um sig innan við pund. Þriðji
fiskurinn talið neðan frá reyndist þó vera lax, merkilegt nokk.
„Heyrðu,“ andaði maðurinn inn um
bílrúðuna við brúna á Laxá í Kjós á
miðvikudagsmorguninn, „ég er búinn
að fá sautján,“ bætti hann við og var
þó klukkan aðeins hálf ellefu. Þetta var
Þórarinn Sigþórsson tannlæknir, lands-
frægur fyrir aflasæld á bökkum lax-
veiðiáa. Þótt fáir standist honum snún-
ing þegar að veiðimennsku kemur og
hann mokveiði jafnvel þegar aðrir verða
ekki varir, þá var afli hans þennan svala
júlímorgun spegilmynd af því hvernig
veiðin hefur víða verið.
Magnús veiðivörður leitar að örmerki með segultækinu.
Eldislax í aflanum. Skúli Kristinsson sýnir
gögnin. Annar kviðugga máður burt, sporður
trosnaður og slitinn. Fallegur lax að öðru
leyti, en óvelkominn gestur engu að síður.
HEYRÐU
ÉG ER BÚINN
AÐ FÁ SAUTJÁN!
Morgunblaðið
í heimsókn
við Laxá í Kjós
og Elliðaárnar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Rennt á hveijum palli, Þórarinn Sigþórsson næstur.
Hann hafði fengið 18 laxa þegar hér var komið sögu
og þeir urðu 22 áður en klukkan sló og menn héldu
í mat.
Ein stöngin skilaði á land fimm löxum. Skúli veiðivörður skráir á
fullu. Hauslausi laxinn var með örmerki i hausnum.
Kálur veiðimaður með feng sinn á voginni og ungur aðdáandi kem-
ur tritlandi á vettvang.
Kópral sjampó gull-línan
á tilboðsverði í verslunum um landallt tiI27. júlí.
Kynning íKjötmiðstöðinni, Garðabæ, d morgun.