Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
13
Það hefur verið firnag-
ott veiðisumar víðast
hvar, sums staðar
stefnir í metveiði, og
óvíða hefur veiðin verið jafn
lífleg og í Laxá í Kjós og Elliða-
ánum, þar sem Morgunblaðið
leit við umræddan morgun.
Tóti áði ekki þótt hann fengi
heimsókn, hljóp við fót upp með
á, renndi fyrir einn sem hann sá
í dauðafæri og var búinn að landa
honum áður en ljósmyndarinn gat
fínstillt fókusinn og var sá síðar-
nefndi þó afar handfljótur. Síðan
hægðist um hjá tannlækninum og
litið var eftir veiðimönnum víðar,
laxinn stökk um allt, og víða voru
menn að veiðum og veiðin góð
þótt enginn væri hálfdrættingur
á við Þórarin sem hefur spáð því
að veiði í Laxá í Kjós fari í 2.000
laxa um mánaðamótin. Það getur
svo sem vel verið og þá er metið
í hættu, en það hljóðar upp á 2.350
laxa. Þegar Morgunblaðið var á
ferðinni við Laxá voru komnir um
það bil 1.700 laxar á land og þótt
allra mesti krafturinn sé úr
göngunum, er enn hreinlega mor-
andi af laxi í ánni og margt af
honum nýrunninn.
„Eiginlega ekki
nógu margir ...“
- „Hvað komu eiginlega margir
á land í morgun," spurði einhver
Magnús Sigurðsson veiðivörð við
Elliðaárnar um klukkan eitt á
þessum sama miðvikudags-
morgni. „Ja, eiginlega ekki nógu
margir, það vantar enn tíu stykki
úpp á að ná þúsund löxum, en
það hefst í seinni hálfleik," svar-
aði veiðivörðurinn um hæl. Milli
20 og 30 laxar voru færðir til
bókar og voru einstakar stangir
með allt frá 2 löxum og upp í
kvótann, 8 laxa. í afla morgunsins
gat að líta hina fjölbreytilegustu
hluti. Þarna var til dæmis 4 punda
eldislax sem tók maðk í Fossinum.
Leyndi sér ekki uppruni fisksins
sem á vantaði annan kviðuggann,
auk þess sem eyruggar og sporður
voru trosnaðir. Þarna var líka lax
sem var vel innan við eitt pund!
Sá þriðji var veiðiuggaklipptur og
með örmerki í hausnum. Það var
nóg að gera hjá þeim Magnúsi
og Skúla Kristinssyni veiðivörð-
um, að skrá og taka sýni. Sögðu
Iþeir það tafsamt fyrir veiðimenn,
en flestir sýndu þeim skilning.
Já, það var mikið um að vera
við Elliðaárnar, enda veiðin þar
sú besta í manna minnum. Það
er varla að elstu menn muni hve-
nær þúsund laxa múrinn var
!síðast rofínn svo snemma á veið-
itíma.
- gg
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Samband sunnlenskra kvenna:
Skrúðgarðar í
þéttbýli Arnes-
sýslu verðlaunaðir
Selfossl.
SAMBAND sunnlenskra kvenna
veitti á mánudag árlegar viður-
kenningar fyrir skrúðgarða-
rækt i þéttbýli Arnessýslu.
Þetta er í 6. sinn sem SSK veit-
ir viðurkenningar fyrir ræktun
á sambandssvæðinu, sem eru
Arnes- og Rangárvallasýslur.
Viðurkenningarnar eru veittar
eftir ákveðnum reglum sem tengd-
ar eru minningarsjóði sambands-
ins um Rögnu Sigurðardóttur frá
Kjarri. Sjóðurinn kostar viður-
kenningamar. Samkvæmt reglun-
um skal úthluta viðurkenningum
í 10 ár. Fyrsta árið var matjurta-
ræktun í Rangárvallasýslu verð-
launuð og næsta ár sams konar
ræktun í Ámessýslu. Þr.ðja og
fjórða árið var skrúðgarðaræktun
í sveitum sýslnanna verðlaunuð
og í fyrra skrúðgarðar í þéttbýli
Rangárvallasýslu. Næsta ár og
INNLENT
L. * Á
þarnæsta verða garðyrkjustöðvar
í sýslunum verðlaunaðar og
síðustu tvö árin beinist athyglin
að umgengni við opinberar bygg-
ingar í sýslunum.
Við afhendinguna var Rögnu
Sigurðardóttur minnst og getið um
eldlegan áhuga hennar fyrir rækt-
un og því að garðyrkjuráðunautur
fengist til starfa. Konumar í garð-
yrkjunefnd sambandsins sýndu
hug sinn til ráðunautarins með því
að afhenda Kjartani Ólafssyni
garðyrkjuráðunaut Búnaðarsam-
bands Suðurlands blómvönd fyrir
að vera ávallt til taks.
Hjópin Unnur Auðunsdóttir og
Haraldur Diðriksson í Smáratúni
17 á Selfossi hlutu fyrstu verðlaun
fyrir garð sinn sem er í einu af
eldri hverfum bæjarins.
Aðrir sem hlutu viðurkenningar
vom Margrét Jónsdóttir og Jón
Ágúst Jónsson, Lágengi 9, Þor-
móður Torfason og Sigríður Sand-
holt, Þelamörk 7, Hveragerði, Álf-
hildur Steinbjörnsdóttir og Sverrir
Sigurjónsson, Reykjabraut 19,
Þorlákshöfn, og Guðlaug Guðna-
dóttir og Pétur Friðriksson,
Hraunbergi 2, Þorlákshöfn.
Garðamir sem hlutu viðurkenn-
ingu verða allir til sýnis um helg-
ina, á laugardag og sunnudag,
klukkan 13.00-17.00.
- Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Verðlaunahafar með viðurkenningar sínar. Haraldur Diðriksson og
Unnur Auðunsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Esther Ýr Jónsdóttir og
Jón Ágúst Jónsson, Þormóður Torfason, Álfhildur Steinbjörnsdóttir
og Sverrir Sigurjónsson og Guðlaug Guðnadóttir og Pétur Friðriks-
son.
Magnea Sigurbergsdóttir afhendir Kjartani Ólafssyni þakklætisvott
fyrir veitta aðstoð.
Mátt þú sjá af
369 krónum
á dag?*
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega létt og lipurí um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr.
Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn.___________ _______(Gengisskr. 23.6.88)
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLU!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5