Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
Nýtt orgel vígl í Gler-
árkirkju á sunnudag
GLERÁRKIRKJU hefur nú bæst nýtt hljóðfæri, fullkomið og fjöl-
hæft fafmagnsorgel. Orgelið verður vígt við guðsþjónustu á sunnu-
dagskvöld. Þá mun organistinn, Jóhann Baldvinsson, leika á hið
nýja hljóðfæri, en að messu lokinni verður það til sýnis og fjölskrúð-
ugir möguleikar þess kynntir.
Hið nýja orgel er keypt frá
Bandaríkjunum. Það er af tegund-
inni ALLEN og byggt á stafrænni
tölvutækni. Verksmiðjumar hafa
þróað og framleitt fullkomin raf-
magns- og rafeindaorgel fyrir
kirkjur og hljómsveitir á þriðja ára-
Harmoniku-
hljómsveit í
Lystigarðinum
FIMMTÍU og fimm manna hópur
harmonikuleikara frá Esbjerg í
Danmörku eru væntanlegir til
Akureyrar á laugardag. Hópur-
inn mun leika í Lystigarðinum á
Akureyri frá kl. 16.00 og eru
allir velkomnir þangað.
Esbjerg er vinabær Neskaup-
staðar og er þessi hópur hér á landi
í boði þeirra á Neskaupstað. Helg-
ina 23. og 24. júlí verða þeir hins-
vegar á ferðalagi hér um Norður-
land og hafa boðist til að spila hér
á Akureyri.
-Seglbrettamót
á Pollinum
NÖKKVI, Félag siglingamanna á
Akureyri, stendur fyrir segl-
brettamóti á Pollinum um helg-
ina. Mótið hefst í dag kl. 14.00
og verður keppt í meistaraflokki
og fyrsta flokki.
Styrktaraðili mótsins er veitinga-
staðurinn Fiðlarinn og gefur hann
jafnframt verðlaun í lokahófí á
sunnudag. Keppni hefst á laugar-
dag og sunnudag kl. 10.00. Von er
á um átján keppendum á mótið,
fímmtán að sunnan og þremur
Akureyringum, þeim Finni Birgis-
syni, Önnu Maríu Malmkvist og
Signe Viðarsdóttur. Þetta er þriðja
árið í röð sem Fiðlarinn stendur
fyrir seglbrettamóti.
Ferðamenn
Akureyringar
Við erummeð einu
matvöruverslunina sem
opinerumhelgar.
Opið
laugard.
10-17, lúgatil 23.30.
sunnud.
10-21, lúgatil 23.30.
Verið velkomin.
'"Matvöru m, Tjaldst..
^m^rkaöunnn,
- Akureyri, sími 21234.
tug og mikil reynsla er komin á
hljóðfæri af þessu tagi.
Jóhann Baldvinsson, organisti
og söngstjóri Glerárkirkju, sagði
áberandi hve mikla vantrú margir
hljóðfæraleikarar hefðu á rafeinda-
orgelum. Sjálfur sagðist hann hafa
verið í hópi andstæðinga þeirra þar
til hann hefði sjálfur prófað að leika
á orgel af þessu tagi, en þau væru
nokkur til hér á landi, meðal ann-
ars í Árbæjarkirkju og á Stærra
Árskógi. Andúðin hefði þá þegar
rokið á bak og burt, enda væri hér
hvort tveggja um að ræða mjög
gott og fullkomið hljóðfæri og á
viðráðanlegu kaupverði.
Nýja orgelið er með tveimur
hljómborðum auk fótstigs. I því eru
innbyggðar 32 raddir en ijolmargar
aukaraddir fylgja á tölvuspjöldum.
í orgelinu eru 56 minni sem hægt
er að forrita fyrirfram og undirbúa
þannig leik flóknustu tónverka.
Allar raddimar í orgelinu eru raun-
verulegar hljóðfæraraddir, staf-
rænar upptökur af valinkunnum
pípuorgelum, og gefa þess vegna
fullkomlega eðlilegan hljóm sem
gefur ekkert eftir stórum, gömlum
hljóðfærum.
Kaupverð orgelsins er nálægt
einni milljón króna, en pípuorgel
með viðlíka möguleikum og þetta
kostar trúlega á annan tug millj-
óna. Pálmi Matthíasson, sóknar-
prestur, sagði að hér hefði verið
um að ræða að kaupa þetta orgel
með öllum þeim möguleikum sem
það hefur, eða fá fyrir svipað verð
lítið pípuorgel, með einu hljómborði
og 4-5 röddum, en það lægi í aug-
um uppi að það hefði ekki verið
skynsamleg flárfesting. Hér væri
komið orgel sem nýttist fullkom-
lega í messum og á tónleikum
meðan núverandi salur væri notað-
ur til helgihalds auk þess sem það
myndi nýtast framan af eftir að
sjálf kirkjan verður tilbúin til notk-
unar.
Vígsluguðsþjónustan á sunnu-
dagskvöld hefst klukkan 21 og all-
ir eru velkomnir að koma og kynn-
ast nýja hljóðfærinu.
iaHMííí
HÓTEL 2BC KEA
o*
Höfðaberg
Hljómsveitin
Helena fagra
leikur fyrir dansi
laugardagskvöld.
Borðapantanir
í síma 22200.
Hótel KEA
Morgunblaðið/KGA
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit ásamt þeim Róbert Agnarssyni,
forstjóra Kísiliðjunnar, Leifi Hallgrímssyni, flugmanni, og Jóni Pétri Líndal, sveitarstjóra.
Höfum alla möguleika til að
leysa vanda sjávarútvegsins
— segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
í lok heimsóknar sinnar um Norðurland
„Heimsóknin norður hefur fyrir mér varpað skýraha ljósi á þann
vanda, sem við er að etja. Um leið hef ég orðið vitni að margskon-
ar ánægjulegu framtaki og sterkum stofnum í atvinnulífinu. Full-
Ijóst er að tími er kominn til að snúa við almennum rekstrarvanda
í sjávarútvegi. Við eigum að hafa alla möguleika til þess að snúa
þessari þróun við enda virðist undirstaðan hér úti á landi traust,“
sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið
i gærkvöld, en þá lauk þriggja daga heimsókn hans um Eyjafjarð-
ar- og Þingeyjarsýslur, þar sem hann ræddi meðal annars við forr-
áðamenn atvinnulífs, bæja- og sveitarstjórnamenn og heimsótti fyrir-
tæki.
Brýnustu verkefni ríkisstjómar-
innar er efling sjávarútvegsins, að
sögn Þorsteins, og sagði hann að
aðgerðir yrðu mótaðar á næstunni.
„Við munum kappkosta að ná sem
víðtækastri, pólitískri samstöðu um
það sem gera skal. Ég leyfí mér
að vona að það takist. Auðvitað
geta menn haft skiptar skoðanir
um hvað gera skal, en okkar ábyrgð
er fyrst og fremst sú að fínna sam-
eiginlegan flöt á málinu.“ Þorsteinn
sagði ýmsar skoðanir hafa komið
fram á þeim fundum, sem haldnir
hafa verið í norðlenskum bæjum
og sveitum, en hann vildi ekki tjá
sig um hvað hann eða aðrir sjálf-
stæðismenn yfírleitt vildu gera sjáv-
arútveginum til hjálpar.
„Grundvallarvandinn er auðvitað
ljós. Hann er sá að eyðsla þjóðarinn-
ar er meiri en verðmætasköpunin
og allt tal manna berst að þeirri
staðreynd. Síðan hef ég átt fundi
með okkar flokksforystu í byggðun-
um. Menn vilja að við höldum áfram
að reyna að ná pólitískri samstöðu
um það sem gera þarf í þjóðfélag-
inu og skapa skilyrði til þess. Menn
gera þær kröfur að stjómarsam-
starfíð skili árangri og samstöðu,"
sagði Þorsteinn. Aðspurður um
hvort landsbyggðarmenn vildu sjá
sömu stjóm áfram við völd, sagði
Þorsteinn að menn sæju ekki í hendi
sér aðra kosti. „Auðvitað heyrast
ýmsar raddir á eftir því sem á und-
an er gengið, en hitt er þó almenn-
ara sjónarmið manna að við freist-
um þess að ná þessari pólitísku
samstöðu sem lögð er á okkur.
Engum kemur til hugar að sitja í
ríkisstjóm sem viðvarandi er í bull-
andi ágreiningi, en við höfum trú á
því að hægt sé að ná sjónarmiðum
okkar saman,“ sagði forsætisráð-
herra.
Þorsteinn vildi ekki tímasetja
hvenær búast mætti við árangri.
Unnið væri að allskonar áætlana-
gerð þessa dagana svo sem fjár-
lagagerð, þjóðhagsáætlun og láns-
fjárlögum, sem allt síðan tengdist
ráðstöfunum til að styrkja stöðu
atvinnuveganna.
Uppákomur
í miöbænum
MIKIÐ verður um að vera í mið-
bæ Akureyrar í dag og ætlar
útvarpsstöðin Hljóðbylgjan að
taka virkan þátt- í því sem þar
fer fram.
Mótshaldarar á Melgerðismelum
um verslunarmannahelgina ætla
að gefa Akureyringum forsmekk-
inn að því sem koma skal í Eyjafírð-
inum um verslunarmannahelgina
og ætla þijár hljómsveitir að leika
fyrir gesti og gangandi í mið-
bænum í dag. Það eru hljómsveit-
imar Skriðjöklar, Sálin hans Jóns
míns og Stuðkompaníið. Byrjað
verður á Ráðhústorginu um kl.
13.30.
Þá heldur Sjallinn upp á 25 ára
afmæli sitt um þessar mundir og
verður leyniuppákoma í miðbænum
um kl. 15.00 afmælishaldinu
viðvíkjandi. Auk þessa hefst afl-
raunamót í bænum á sama tíma
þar sem sjö keppendur „bítast" um
titilinn „Sterkasti maður lands-
byggðarinnar". Keppninni lýkur
hinsvegar ekki fyrr en á morgun.
Keppt verður í þremur greinum í
dag í miðbænum og í fimm greinum
á morgun á Akuréyrarvelli.
Rlaðburöarfólk
óskast í eftirtalin hverfi:
Skarðshlíð 1-21, Lyngholt og Stórholt,
Dalsgerði.
fRttgmiMfiMfe
Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905.
im
I
IE
UflMKK
ALLTAF A UPPLEIÐ
Landsins bestu „ . _9P_r2L,D?,Lrí,T,Í
PIZZUR
opið um helgar fró kl 11.30 - 03.00
Virka daga frá kl, 11.30-01.00