Morgunblaðið - 22.07.1988, Síða 33
i r r'ii • - HiNir if C!.4 JtTl-'ií «-'M
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 33
Leiðbeiningar fyrir ferðalanga
FERÐALÖG um sveitir landsins hafa mikið færst í vöxt og
þeim fylgir aukin umferðarþungi og slysahætta. Aldrei virðist
nógsamlega brýnt fyrir fólki að gæta fyllstu varúðar úti á
vegum landsins, það segja okkur tölur um umferðaslys. Senn
fer í hönd mesta umferðarhelgi ársins þegar þúsundir manna
aka um þjóðvegi landsins og gista í sumarhúsum eða tjöldum,
stunda veiði og útiveru. Sumarsælan getur þó snúist upp i
andhverfu sína í einu vetfangi sé ekki fyllstu varúðar gætt í
hvívetna. Hér verður stiklað á ýmsu því sem fólk ætti að hafa
hugfast þegar það leggur af stað í ferðalög.
Akstur og farartæki
Áður en lagt er af stað er sjálf-
sagt að huga samviskusamlega
að bílnum og hafa nauðsynle-
gustu varahluti meðferðis því
það er óskemmtilegt að vera
strandaglópur i upphafi ferðar á
biluðum bíl. Akið með bílljósin
á, því á óslitbundnum vegum er
rykmökkur oft svo mikill jafnast
á við svartaþoku. Þeir sem aka
um öræfí landsins þurfa að
kynna sér leiðina vel. Aflið sem
nákvæmastra upplýsinga um
þær ár sem þið þurfíð að aka
yfír. Leggið aldrei út í ár á litlum
aflvana bílum með illa varða vél
og rafkerfí. Kannið vöðin af fyr-
irhyggju og treystið aldrei að
óreyndu að hjólför sem liggja út
í ár séu sönnun þess að þar sé
greiðfært. Farið ekki einbíla um
fáfamar öræfaslóðir.
Bátsferðir án áfengis
Enginn ætti að fara út á bát
á ár eða vötn án þess að hafa
björgunarvesti. Öll björgunar-
vesti eiga að vera með endursk-
insborðum, fiautu og ljósi. Hafið
aldrei áfengi um hönd í báts-
ferðum. Munið að áfengi hefur
sljóvgandi áhrif á dómgreind
manna og því fylgir ærslagangur
og vanhugsaðar athafnir sem oft
hafa valdið alvarlegum slysum.
Enginn ætti að leggja upp í sigl-
ingu á sjó eða vötnum ef óvissa
er um veður og veðurspá. Teflið
ekki í tvísýnu undir neinum
kringumstæðum. Munið að mis-
vindasamt getur verið á íslensk-
um vötnum og í vogum og víkum.
Fjallaferðir og ferðaá-
ætlun
Farið ekki til fjalla án þess
að láta einhveija i byggð vita
um ferðaáætlun ykkar. Greinið
frá væntanlegum áfangastöðum
og hvenær þið áætlið að koma
heim aftur. Haldið sem best
ferðaáætlun og reynið að koma
boðum til byggða ef hún breyt-
ist. Þeir sem leggja upp í ferð
til fjalla verða að gæta þess að
vera vel klæddir. Klæðist hlýjum
fötum og hafið meðferðis léttan
hlífðarfatnað í áberandi lit, sem
líklegt er að sjáist langt að.
Vandið fótabúnaðinn því óhent-
ugir skór geta gert ykkur erfitt
fyrir og beinlínis skapað hættu.
Öryggiö í fyrirrúmi
Flest slys og óhöpp eru af
völdum fyrirhyggjuleysis og van-
mats á aðstæðum. Sjálfsagt er
að gefa sér góðan tíma til undir-
búnings ferðar, tryggja að ör-
yggið sitji í fyrirrúmi og vera
þannig viðbúinn að mæta hinu
ó^ænta. Þá reynir á hversu menn
eru vel búnir að heiman.
Eldhætta í sumarbú-
stöðum
í sumarbústöðum er sjaldnast
rafmagn. Þess vegna eru þar
oftast gastæki eða olíuofnar til
upphitunar og matseldar. Því
fýlgir aukin eldhætta. Munið að
nauðsynlegt er að hafa reyk-
skynjara og slökkvitæki þar sem
svo háttar til. Það getur sannar-
lega borgað sig.
í slíkum tilfellum er Lífhamarinn hið mesta þarfaþing.
Lífhamar í bílinn
LÍFHAMARINN er áhald sem
ætti að vera í öllum bifreiðum,
segir í frétt frá Slysavamarfé-
lagi íslands
Þar segir ennfremur:
Þótt öryggisbelti hafi bjargað
mörgum mannslífum getur lás
þeirra bilað í alvarlegum umferð-
arslysum og orðið óvirkur. í
lífhamrinum er hnífur til að skera
á öryggisbeltin við slíkar aðstæð-
ur. Þá er hamarinn hugsaður til
að btjóta rúður sér til undankomu
þegar þær sitja fastar eftir um-
ferðarslys. Lífhamrinum fylgir
einnig pijónn til að losa um stíflur
sem sem oft vilja setjast í rúðuúð-
arana. Lífhamarinn fæst hjá
Slysavamafélagi íslands og kost-
ar 700 krónur.
Lífsvon
mótmælir
nyju lyfi
SAMTÖKIN Lífsvon hafa sent
franska lyfjafyrirtækinu Rouss-
el-Uclaf bréf þar sem mótmælt
er fyrirhugaðri markaðssetn-
ingu á fóstureyðingalyfinu RU
486. Franskir lífsverndarsinnar
mótmæltu markaðssetningunni
fyrir framan höfuðstöðvar
lyfjafyrirtækisins 23. júní
síðastliðinn.
Þýska lyfjafyrirtækið Hoechsfeó
meginhluta fyrirtækisins en
franska stjórnin á um 40 af hundr-
aði hlutafjár. Samtökin Lífsvon
sendu afrit af mótmælabréfinu til
franska og þýska sendiráðsins á
íslandi.
I frétt frá stjórn samtakanna
segir að innihald bréfsins sé í
stuttu máli: Verksvið lyíjafyrir-
tækis er að mati samtakanna að
fínna lyf til lækninga en lyfinu
RU 486 er ekki ætlað slíkt hlut-
verk heldur að eyða fóstri í móð-
urlífí. Samtökin mótmæla tilraun-
um með lyfið á konum í Kína,
Chile, Porto Rico og öðrum þriðja
heims löndum.
(Úr fréttatilkynningn)
Graeðum
Graeoum
ÁTAK í LANDGRÆÐSLlT í
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVÍK
SfMI: (91) 29711
Hlaupareikningur 251200
BúnaAarbankinn Hellu
Colloni!
vernd fyrir skóna,*
leöriö, fæturna.
Hjé fagmanninum
Lendir þú í
„kampavíns
boogie“ innan
4 árs?
Vv'V •wd