Morgunblaðið - 22.07.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
37
þessum kerjum eru myndarlegar sandhverfur og lúður, sem notaðar eru til undaneldis.
Per Gunnar Kvenseth framkvæmdastjóri LMC í Öygarden.
stofnunarinnar. Þarf ekki að hafa
mörg orð um að dekrað hefur ver-
ið við þessa tvo fiska og þeirra
gætt eins og gimsteina. Árið 1986
töldust lúðuseiðin um 200 í Auste-
voll og tvö í stöð á Sunndalseyri.
í fyrra tókst mönnum að koma
upp 14 seiðum í skoskri stöð, 100
í Austevoll og um 200 í annarri
norskri stöð, Agua. Hvergi hefur
verið um það að ræða að fiskurinn
hafi hrygnt eins og í náttúrunni,
alls staðar hefur kreistingu þurft
til.
Per Gunnar Kvenseth segist
reikna með að árið 1995 verði á
boðstólum á almennum markaði
lúða úr fiskeldisstöðvum og segist
þá reikna með, að það taki lúðuna
5-6 ár að komast í matarstærð.
Hann hefur þó enga vissu fyrir
því frekar en aðrir, einfaldlega
vegna þess að reynslan er ekki
fyrir hendi.
Eldi sandhverfuseiða hefur
gengið vel hjá LMC í Oygarden,
en þar er ekki um brautryðjenda-
starf að ræða eins og til dæmis
varðandi lúðuna. I um 20 ár hefur
eldi sandhverfu verið reynt í
Frakklandi, Bretlandi og víðar.
Munurinn er aðeins sá að Norð-
mennirnir leggja alla áherslu á
seiðaeldi og að það sé eins og í
náttúrunni að eins miklu leyti og
það er hægt. Hjá LMC voru sand-
hverfuseiðin í fyrra alin í stórum
pokum í lóni stöðvarinnar og plönt-
um og gróðri dælt inn í vatnið í
pokunum. í beztu pokunum lifðu
50% seiðanna. Ýmsum hefur geng-
ið illa að fá eðlilegan lit og lögun,
en það hefur gengið vel hjá LMC.
I fyrra framleiddi stöðin 70
þúsund seiði, sem var um 25% af
heimsframleiðslunni, og stöðin þá
sú þriðja stærsta í heimi í fram-
leiðslu á seiðum sandhverfunnar.
í ár er ætlunin að ala 300-500
þúsund seiði í stöðinni, en heims-
framleiðslan í fyrra var um 300
þúsund seiði.
Framleiðsla síðasta árs var öll
seld til Spánar, um 70 þúsund
seiði. Seiðin voru flutt með tank-
bílum til Spánar. Ferðalagið tók
þrjá sólarhringa og á leiðinni var
tvívegis skipt um vatn í bílunum.
Ekki þarf að hafa mörg orð um,
að mönnum í stöðinni í Noregi
létti stórum þegar hringing kom
frá Spáni og tilkynnt var, að seiða-
bílamir hefðu komist heilu og
höldnu á áfangastað og að ekke-
ert amaði að seiðunum. Á Spáni
er hitastig hærra en í Noregi og
vaxtarhraði sandhverfunnar því
meiri en í Noregi.
Hjá LMC hafa verið gerðar til-
raunir með steinbítseldi. Þær til-
raunir eru skemmra á veg komnar
heldur en með lúðuna og ákváðu
ráðamenn LMC að hætta með
steinbítinn, í bili að minnsta kosti,
og einbeita sér að þorski, lúðu og
sandhverfu. Varðandi steinbítinn
hefur reynst erfiðast að fá hann
til að hrygna. Fleiri tegundir sjáv-
arfíska koma til greina í eldis-
stöðvunum. Lýsingur er t.d. ofar-
lega á því blaði og er hægt að fá
gott verð fyrir hann á Spáni.
Rannsóknir hafa verið gerðar á
eldi síldar og loðnu og gengu þær
mjög vel, en enginn íjárhagslegur
grundvöllur var talinn fyrir eldi
þeirra tegunda.
aU
Sjá einnig umfjöllun um fiskeldi á
bls. 38
Þorskur úr eldisstöðvum er þegar kominn á borð norskra veitinga-
húsa þó í litlum mæli sé.
Sandhverfurnar bera nafn með rentu þar sem þær synda hring eft-
ir hring við sandbotninn í kerinu.
Mikil vinna við að
finna rétta fóðrið
ÞAU fyrirtæki sem sérhæfa sig í fóðri fyrir eldisfiska hafa
eðlilega gefið sjávarfiskum aukinn gaum hin síðari ár. Mikil
vinna hefur verið lögð í að finna hvaða fóður hentar þorski,
sandhverfu, lúðu og öðrum fisktegundum sem vænlegar þykja
til eldis. Ýmsa erfiðleika þarf að yfirstíga í þessu sambandi
og er lúðan erfiðust, sérstaklega fóðrið fyrstu daga æviskeiðs-
ins.
Jan Thorsen er matfískráðu-
nautur hjá norska fyrirtækinu
Skretting. Hann segir að vel
hafi miðað síðustu ár við að finna
réttar fæðutegundir fyrir sjávar-
fiska og segist ekki í minnsta
vafa um að sérfræðingum í fisk-
eldi muni takast að kljúfa þá
hjalla sem nú eru hvað erfiðast-
ir, eins og t.d. varðandi start-
fóður og klak lúðunnar. „Eftir
svo sem fimm ár verður nóg af
eldisþorski á markaðnum og lúð-
an kemur ekki langt á eftir,“
segir Thorsen.
Hann segir þorskinn þægileg-
an í eldi, rólegan og nægju-
saman. Nóg er að gefa honum
einu sinni á dag, jafnvel þrisvar
í viku. Kjöt af eldisþorski bragð-
ast mjög vel og er þétt í sér, svo
fremi fóður hafi ekki verið of
feitt í uppvextinum. Náttúruleg
efni eins og rauðáta og rækju-
mjöl hafa mikið verið notuð í
fóður sjávarfískanna.
CÓÐ GREIÐSLUKJÖR
mutur
Umboösmenn
Akureyri, Véladeild KEA—Reyðarfiröi, Lyki
j»ir
með 2,8 Itr. V6 vél,
sjálfskiptingu, sportinnréttingu og
vandaðasta búnaði sem fáanlegur er,
auk fullkominna hljómflutningstækja.
Traustur jeppi fyrir kr.1.775.000.
BiLVANGUR st=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Njarðvíkum, Bílabragginn —Borgarnesi, Bílasala Vésturlands
Vestmannaeyjum, Garðar Arason