Morgunblaðið - 22.07.1988, Síða 39

Morgunblaðið - 22.07.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 39 Steve Marriott í Hollywood Breski rokkarinn Steve Marriott er kominn til landsins til tónleikahalds og kemur fram með sveit sinni The D.T.’s í kvöld og annað kvöld í Holly- wood. Steve Mariott kannst líklega flestir rokkáhugamenn við, þó nokkuð sé um liðið síðan hans frægðarsól reis hæst. Marriott gerði garðinn frægan með tveim- ur sveitum, sem á sínum tíma þóttu með merkari rokksveitum. mátti glöggt heyra að Marriott og Frampton höfðu úr nógum hugmyndum að moða. Marriott hafði enn mikinn áhuga á rokki af hrárra taginu en Frampton var gefnari fyrir melódsikari og mild- ari tónlist og úr varð hin dægileg- asta blanda. Platan er ein af merkari rokkskífum þessara ára, en ekki seldist hún eins vel og vonir stóðu til og útgáfufyrirtæki piltanna fór á hausinn stuttu síðar. Við tóku mögur ár með Best að hafa þetta stutt og skemmtilegt Small Faces Small Faces, sem Marriott, Ronnie Lane, Jimmy Winston og Kenney Jones stofnsettu fyrir tuttu og þremur árum, var ein merkast „mod“-sveit síns tíma og nafnið á sveitinni vísaði í hæð hljómsveitarmeðlima og í lag Who, l'm the Face, sem fjallaði um það að vera „mod". Ekki verður það rakið frekar hér hvað það var að vera „mod", en sveit- in náði töluverðum vinsældum fyrir það hve vel drengirnir voru til fara ekki síöur en fyrir hráa rytmablúsblenda tónlistina undir leiðsögn Marriotts. The Small Faces átti nokkur lög sem kom- ust efst á vinsældalista, þeirra frægast hér á landi eflaust Lazy Sunday, en einnig má nefna lög eins og Sha La La La Lee, All or IMothing, Tin Soldier og The Universal. Eftir því sem sveitin festi sig í sessi jókst spenna inn- an hennar vegna forystuhlut- verks Marriotts og 1969 sagði hann skilið við sveitina til að stofna Humble Pie með Peter Frampton. Eftir það breyttistThe Small Faces í einfaldlega The Faces við inngöngu Rod Stewart og Ronnie Wood, en hvað þessa samantekt varðar er sveitin þar með úr sögunni. Humble Pie Humble Pie, sem hafði innan- borðs þá Greg Ridley og Jerry Shirley auk þeirra Marriots og Framptons, sendi frá sér sín fyrstu plötu 1969, As Safe as Yestarday is, og á þeirri plötu mörgum tónleikaferðum þar til fimmta plata hljómsveitarinnar kom út 1971, platan Perfprman- ce: Rockin’ the Filmore. Á þeirri plötu, sem var tónleikaplata, var tónlistin vel rokkuö með rytmabl- úsívafi og rám rödd Marriotts og melódískur gítarleikur Frampt- ons nutu stn til fulls. Platan seld- ist og í gífurlegu upplagi, en Frampton var búinn að fá nóg af rokkinu og hætti eftir að platan kom út. Hann sló eftirminnilega í gegn með tónleikaplötu 1975, en það var hans tónlistarlegi hápunktur og eins og er hvílir hann á öskuhaug rokksögunnar. Humble Pie hélt uppteknum hætti við að leika þunga rokktón- list með rytmablúsívafi, nema hvað að Marriott þyngdi tónlist- ina eftir að Frampton hvarf á braut. Uppúr 1973 fór að halla undan fæti hjá sveitinni og 1975 gaf hún upp öndina södd lífdaga eftir að hafa sent frá sér nokkrar slakar plötur. Marriott gerði þó tilraun til að endurvekja hana um 1980, eftir að hafa reynt að end- urvekja Small Faces árið áður, en varð að hætta í miðju kafi af heilufarsástæðum. Hann hætti þó ekki í tónlistinni og hingað er hann kominn með hljómsveit sinni The D.T.’s. Vísast er uppi- staðan af tónleikadagskrá sveita- innar lög sem Small Faces og Humble Pie gerðu vinsæl á sínum tima, en eins og heyra má af plötunni Rockin’ the Fill- more, þá er enginn svikinn af því efni ef hann nær upp sömu keyrslu með nýju sveitinni. í vetrarlok hóf hljómsveit sem kallaði sig Sálin hans Jóns mfns að leika í Bíókjallaranum, sem er undir Læjartungli og brátt fóru spurnir af þvf að það færi ein alfjörugasta hljómsveit landsins. Eins og fóist í nafninu lék Sálin mikið af klassískum bandarfskum soul-lögum þó að sveitarmenn hafi einnig átt til frumsamin lög. Eftir helgi sendir Sálin frá sér sína fyrstu hljómplötu, Syngjandi sveittir, hjá Steinari, sem á eru átta lög með og þar á meðal eru fjögur gamalkunn soul-lög banda- rískrar ættar, sem tekin eru upp í Bíókjallaranum og á Hótel Akra- nesi fyrir framan áheyrendur og sem ekkert héfur verið átt við fram að því að þau eru sett á plast. Á geisladisk sem út kemur um leið er að finna þrjú lög aukreitis sem tekin eru upp á svipuðum slóðum og þar á meðal er Sókrates (Þú og þeir) í sáluðum búningi. Rokksíðan tók hús á Rafni Jóns- syni trommuleikara sveitarinnar til að afla frekari frétta af sveitinni og lagavali hennar. Hvernig og hversvegna varð Sálin tll? Þetta byrjaði allt þegar við ákváðum að setja upp sýningu með tónlistinni úr Jesus Christ Superstar í vetur og það má segja að þetta sé sama hljómsveit og •kom saman þá. Við ákváðum að prófa að leika soul-tónlist og tók- um okkur þrjá mánuði í að æfa upp soul-dagskrá. Nafnið er síðan komið út frá tónlistinni. í fyrstu vorum við að velta fyrir okkur að nota bara nafniö Sálin, en það var víst notað á hljómsveit sem lék svipaða tónlist í eina tíð. Þá varð til nafnið Sálin hans Jóns míns, en það er alveg óskylt Jóni Ólafssyni. Á plötunni eru soul-lög eftir hina og þessa, en einnig er á henni lög sem þiö semjið sjálfir og það eru ekki soul-lög. Nei, við vorum ekkert að reyna að semja soul-lög, þó það sé ein- hver soul-blær á þeim í söngnum og blæstrinum. Er Sálin orðin til í kjölfar vax- andi áhuga á soul-tónlist vtða í Vestur-Evrópu? Ég hef nú eiginlega ekkert fylgst með því sem er að gerast í þessum efnum úti. Þessi hugmynd okkar kviknaði kannski að einhverju að áhrifum að utan, en það var þá ómeðvitað. Kannski má líka rekja upphafið til þess að þeir Jón og Guðmundur gítarleikari voru í hljómsveit í vetur sem lék tónlist úr kvikmyndinni The Blues Brot- hers. Hvenig hefur gengið að leika þessa tónlist á sveitaböllum? Neyðist þið ekki til að leika vin- sældalistapopp með? Nei, við leikum með klassísk keyrslurokklög til að keyra upp stemmninguna og ná meiri vídd í dagskrána, enda er ekkert vit í því að vera að eltast við vinsældalist- ana. Við leggjum upp með ákveðna dagskrá og annað hvort gengur það upp eða ekki og það hefur allt gengið upp hingað til. Fólk virð- ist kunna að meta þessa tónlist eftir allt dub-dótið og mixlögin. Þessi tónlist sem við erum að leika er náttúrulega ekki ný og þessi lög sem við erum með hafa verið tekin upp hundrað sinnum og það þekkja þau allir. Hvernig hefur ykkur gengið að komast í soul-andann? Það hefur gengið vel, en það hefur alltaf verið draumurinn að vera með blásarasveit með okkur til að fullkomna þetta allt. Það er bara svo dýrt að það ræður enginn við það. Finnst þér nást tónleika- stemmning á piötunni? Við fórum út í það að ná eins- konar klúbbstemmningu, eins og er á bestu soui-tónleikaplötum sem maður heyrir. Þá eru kannski um hundrað manns á staönum og af lófataki má ráða að það eru þrjátíu eða þar um bii aö hlusta. Mér finnst persónulega vera betsa stemmningin á þannig tónleikum. Við byrjuðum í kjallaranum á sínum tíma, lékum þar í mánuð og enduö- um á þvi að taka upp stafrænt á tvær rásir þessi soul-lög sem eru á plötunni. Hljómurinn er mjög góður og mérfinnst rétta stemmn- ingin nást. Hvernig urðu frumsömdu lögin til? Menn komu bara með lög og texta og hljómsveitin æfði þau saman. Ykkur hefur ekki dottið í hug að vera með heila plötu af frum- sömdu efni? Nei, það kom aldrei upp. Við ætluðum okkur alltaf að hafa þetta eins og það er. Hvað er framundan hjá Sál- inni? Ég reikna með að við hvílum okkur á þessu í haust, það er best að hafa þetta stutt og skemmti- legt. Gler- hjartað Fram hefur komið hér á síðunni að fyrsta plata hljómsveitarinnar Daisy Hill Puppy Farm hefur selst í Bretlandi í yfir 1.000 eintökum, sem þykir merk- ur áfangi hjá hljómsveit sem aldrei hefur haldið tónleika þar i landi, né gefið út piötu þar áður. Nýjustu fregnir herma að forráðamaður útgáfumerkis plötunnar þar í landi, Lake- land Records, sem einnig gaf út Goð S.h. draums, vilji ólmur gefa út stóra plötu með sveitinni til að fylgja eftir litlu skífunni. Á skífunni, sem er fjögurra laga sjötomma og heitir Rocket Boy, er að finna Blondie-lagið gamalkunna um glerhjartað í útsetningu sveitarinnar. Á það ekki minnstan þátt í velgengn- inni að hinn kunni útvarps- maður John Peel hefurtekið miklu ástfóstri við lagið og leikur það gjarnan í útvaprs- þætti sínum að því er heim- ildir að utan herma. Ekki hafa hljómsveitarmenn enn gert upp við sig hvað skal til bragðs taka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.