Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 51

Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 51
r'A.CITTTRÍfö ffTOf AvffTWTOJJOM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 51 ÚTSALA Afsláttur af öllum karlmannafötum, jökkum, terylenebuxum og ýmsum öðrum vörum. * Karlmannaföt kr. 3.995 — 5.500 — 8.900 og 9.900. k Jakkar kr. 4.995. k Terylenebuxur kr. 1.095 — 1.595 og 1.795. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. Igf DAGVIST BARIVA Fóstrur — Þroskaþjálfar Hvalveiðamar og Bandaiikin Kæri Velvakandi Mér blöskraði þegar ég heyrði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins, þann 18. júlí, að kvöldið áður höfðu Bandaríkjamenn sýnt sjónvarpsþátt um hvalveiðar, þar sem íslendingar voru harðlega gagnrýndir vegna vísindarannsókna sinna. Ég hefði haldið að Bandaríkjamenn hefðu ekki efni á því að gagnrýna aðrar þjóðir þessa dagana vegna árásar þeirra á farþegaþotu með 290 manns innanborðs. Að Johnny Car- son, sem stjómaði þættinum, skuli láta hafa sig að fífli skil ég ekki og að ekki var minnst á hvaladráp Bandaríkjamanna sjálfra í Kyrra- hafinu. Hvenær ætla Bandaríkjamenn að skilja, að síðan 1915 hafa íslenzkir vísindamenn stundað vísindarannsóknir á lífríki hafsins, lengur en nokkur önnur þjóð. Það er einnig orðið anzi þreytandi að í hvert skipti, sem hreyfing kemst á hvalveiðimálin, þá verða íslenzk yfírvöld að ráðgast við þau banda- rísku áður en lengra er haldið. Það væri best fyrir Bandaríkin að athuga sín mál gaumgæfilega á næstunni vegna hugsaniegra breyt- inga á heimsmálum. Þar á ég við árið 1992, þegar Evrópubandalagið verður sem ein heild. Islenska þjóð- in mun væntanlega gera upp við sig hvort hún verður Ameríkumegin eða Evrópumegin. Sífelld íhlutun Bandaríkjamanna í innanríkismál Islendinga gleymist seint. Á hinn bóginn vitna ég í orð Helmut Kohl, kanzlara Vestur-þýskalands, þegar hann lofaði forseta íslands að taka til greina sérstöðu íslands í sam- skiptum við Vestur-evrópu. Það verður ekki erfítt fyrir íslenzku þjóðina að gera upp við sig hveijir eru vinir hennar. Virðingarfyllst, Vilhjálmur Alfreðsson Dagheimilið Ösp hefur starfsemi sína að nýju í haust. Starfrækt verður sérdeild fyrir fötluð börn og einnig almenn dagheimilisdeild. Markmið okkar er markviss þjálfun og blöndun barn- anna. Okkur vantar áhugasamt fólk til að vera með frá byrjun. Upplýsingar veita forstöðumenn í síma 73940fyrir hádegi og á kvöldin og einnig sálfrœði og sérkennsludeild dag- vistar bama í síma 27277. Búf erlaflutningar: Bílar ekki taldir til búslóðar Til Velvakanda Mig langar með þessu bréfkomi að vekja athygli á brotnum potti í reglugerð um aðflutning notaðra bifreiða. Ekki þó hvað varðar inn- flutning á bílum í viðskiptaskyni, heldur þegar í hlut eiga aðilar, sem flytja heim til íslands eftir að hafa haft búsetu erlendis. Það er víst staðreynd að hinn íslenski meðaljón getur varla bíllaus verið og víst er það freisting, þegar maður á bíl í útlöndum, að flytja hann með sér heim - menn búast sjaldnast við að ísienska ríkið geri sér að féþúfu bílgarm, sem maður hefur átt í fleiri ár erlendis. Og er þar komið að kjama málsins. Lög hér á landi gera ekki ráð fyrir að bifreið falli undir hugtakið búslóð, öfugt við það sem tíðkast t.d. í Noregi og Svíþjóð. Þar em bílar undanþegnir tollum og að- flutningsgjöldum, sem og önnur búslóð, hafí eigandinn átt viðkom- andi bfl í eitt ár. Skilyrði er þó að viðkomandi selji ekki umræddan bíl innan árs frá innflutningsdegi. En hér á landi er þessu öðm vísi farið. Á íslandi ber þeim, sem flytur heim með sér eigur sínar, að tollafgreiða bifreið eftir sömu reglum og væri um að ræða venjulegan innflutning í hagnaðarskyni. Og ekki eru allir svo heppnir að hafa með sér bíl úr landi þar sem þeir em ódýrir. Fýrir utan þá staðreynd að gildandi tolla- reglur virðast hafa það að mark- miði, að innflutningur notaðra bif- reiða eigi ekki að borga sig. Víst er það eitt að flytja búferlum dýr aðgerð þó ekki bætist við þau útgjöld að borga aðflutningsgjöld af þarfasta þjóninum líka. Öllu held- ur skyldi maður ætla að íslenska ríkið, sem að sjálfsögðu er hrifið af að fá þegnana heim og þar með fleiri skattgreiðendur, mundi greiða götu þeirra svo sem best yrði á kosið og stuðla þannig að heim- flutningi fólks, en ekki leggja steina í götu þess. Vafalaust em til margar hliðar á jafn einfoldu máli og þessu. Menn geta ömgglega fundið einhver rök fyrir því að ríkið eigi skilið einhvem bitling, hvort sem hann kallast toll- ur eða vömgjald. En þó þykir mér keyra úr hófí fram þegar reikningur tollstjóra hljóðar upp á 27,5% í sölu- skatt, sem er vægast sagt afbökun á mínum skilningi á orðinu sölu- skattur. Það er illsjáanlegt að nokk- ur „sala“ eigi sér stað þegar maður er eigandi bifreiðarinnar jafnt fyrir sem eftir innflutning. Kannski er sá skilningur minn jafn fjarri raun- vemleikanum og skilningur hér- lendra tollyfírvalda á hugtakinu „búslóð". Gott væri ef hæstvirtur fjármála- ráðherra sæi sér fært að færa þetta til betri vegar, en að öðmm kosti stinga niður pennáog útskýra hvers vegna við íslendingar þurfum að vera svona „öðmvísi" en þær þjóð- ir, sem standa okkur næstar, þegar einfalt mál eins og þetta er annars vegar. Virðingarfyllst, Jón A. Steinsson. Hugleiðingar um lífið Kæri Velvakandi. Ég sit hér við eldhúsborð í gömlu húsi í Reykjavík og horfi út í rign- inguna á meðan lagið Sólarsamba hljómar á Bylgjunni. Rigningin streymir niður um ónýta niðurfalls- rennuna hér fyrir utan gluggann ofan af gömlu ryðföllnu bámjáms- þakinu meðan ég sit inni í hlýj- unni, og nú er hinn frábæri skemmtikraftur, hann Laddi, að syngja um einhvern járnkarl. Tíminn líður, rigningin bunar, Bylgjan heldur áfram með óskalög- in og ég horfi fjarlægum augum út í rigninguna og hugsa, um lífíð. Eg hefí séð mörg andlit í dag, ung og lífsglöð böm, ósköp „venju- legt“ fólk og aðra reiða eða bitra út í hlutskipti sitt hér í heimi. Víst hafa margir glaðst í dag, og er það vel, en aðrir hafa verið með gróf og siðlaus skrílslæti og mann- vonsku. Þess vegna kom mér í hug eftirfarandi ritningarstaður úr heil- agri Biblíu kristinna manna: „Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafí eilíft líf.“ Mér varð hugsað hversu Guð hlýtur að vera stórkostlega umburðarlyndur og miskunnsamur við mennina og Bibl- ían vitnar um, eftir að hafa séð ýmislegt af þeim myrkraverkum og miskunnarleysi, sem mennimir fremja. Hvemig getur Guð verið svona miskunnsamur við menn, sem sjálf- ir sýna enga miskunn. Guð sendi son sinn Jesú til jarðar vegna þess að hann vill að allir menn komist til þekkingar á sannleikanum og gangi þrönga veginn til Íífsins. Ég lýk bréfi þessu með því að benda mönnum á hinn kristna söfn- uð Votta Jehóva, þar sem þeir geta komist til trúar á sannleikann um ríki Krists, hvers faðir er Guð Je- hóva á himnum, og öðlast hið eilífa líf. Með þökk fyrir birtinguna, Einar Ingvi Magnússon. SERBLAÐ á funmtudögum v< „ félags Dýrnri fastrignasalar — " en betri? ____2Hor0unblaí>ib vmsnpnfflnNNUiíF Gífurleg lóða- eftirspum i erfíðleikum Ihpí ►OlimauillHmTLMIDI — Reglur um gengisskráningu irsrr írEEH ItlfliS? ayr'sa. Auglýsingar í viðskiptablaðið þurfa að hafa borist auglýsinga- deild fyrir kl. 12.00. á mánudögum. 'q , jnjn V -bl^ð fl!íiri0mnl»lab iíþ allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.