Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
Tony Cottee
■ WEST Ham gaf enska lands-
liðsmanninum Tony Cottee leyfi í
gær, til að ræða við forráðamenn
Everton og Arsenal, sem hafa
áhuga á að fá
Cottee, sem er 23
ára, til sín.
Arsenal og Ever-
ton eru bæði tilbúin
að borga hærri upphæð fyrir
Cottee, heldur en metupphæðin
á knattspyrnumanni er. „Tony
mun ræða við bæði félögin,"
sagði John Lyall, framkvæmda-
stjóri West Ham. Tottenham var
fyrsta félagið í Englandi til að
borga tvær millj. sterlingspunda
fyrir leikmann, þegar félagið keypti
Paul Gascoihne frá Newcastle á
—dögunum.
M KEVIN Sheedy, landsliðs-
maður írlands, sem leikur með
Everton, óskaði eftir því að vera
settur á sölulista í gær, eftir ágrein-
ing við Colin Hervey, fram-
kvæmdastjóra félagsins. Sheedy
vildi leika inn á miðjunni, en Herv-
ey vill að hann leiki áfram á vinstri
vængnum. Benfica hefur áhuga á
að fá þennan sterka 28 ára leik-
mann til sín.
I ALAN Hansen, fyrirliði
Liverpool, þarf að gangast undir
uppskurð vegna meiðsla á hné.
■ NEWCASTLE seldi í gær
markvörð sinn Gary Kelly til
Swansea á 30 þús. pund. Kelly,
_ sem er 21 árs, varð að víkja fyrir
'Dave Beasant, sem var keyptur frá
Wimbledon.
■ WIMBLEDON seldi í gær
Brian Gayle til Manchester City
á 325 þús. pund.
■ TERRY Venables, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, ræddi
við írska landsliðsmanninn David
Kelly í gær. Miklar líkur eru á því
að Tottenham kaupi hann á 500
þús. pund. Bayern MUnchen,
Derby, West Ham og tvö frönsk
félög hafa haft áhuga á að fá Kelly
til sín.
■ BRADFORD seldi Ian Banks
í gær til Huddersfield á 180 þús.
pund.
~ÍBALAN Rough, fyrrum landsliðs-
markvörður Skotlands, sem hefur
leikið með Hibs, er á förum til
Celtic. Rough, sem er 38 ára, mun
taka stöðu írska landsliðsmannsins
Pat Bonner, sem verður skorinn
upp fyrir meiðslum á baki næstu
daga.
4. DEILD
Skallagrímur
vann Hvatbera
Skallagrímur og Hvatberar átt-
ust við í B-riðli 4. deildar í
fyrrakvöld. Leikurinn fór fram í
Borgamesi og lauk með sigri
Skallagríms, 2:1. Jón Þór Þórisson
skoraði tvívegis fyrir heimamenn,
en Hafþór Aðalsteinsson minnkaði
muninn fyrir Hvatbera. Staðan í
leikhléi var 1:0 fyrir Skallagrím.
FráBob
^Hennessy
i Englandi
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / BANDARÍKIN
Lewis tapaði
fyrirJoe
DeLoachí
200 m hlaupi
Harry Reynolds náði næstbezta tíma
heims frá upphafi í 400 m hlaupi
CARL Lewis beið sinn fyrsta
ósigur í 200 m hlaupi í rúm tvö
ár er hann varð að lúta í lægra
haldi fyrir Joe Deloach á úr-
tökumóti bandarískra frjálsí-
þróttamanna fyrir Ólympíuleik-
ana í Seoul. Lewis varð annar
í hlaupinu en þrír efstu kepp-
endur í hverri grein komast til
Seoul. Harry Reynolds sigraði
í 4Ó0 hlaupi karla og hljóp á
bezta tíma, sem náðst hefur í
20 ár og næstbezta tíma frá
upphafi.
Frábær árangur náðist á mótinu
á miðvikudaginn, þrátt fyrir
bleytu. Keppt var til úrslita í þrem-
ur greinum, 200 m hlaupi karla,
400 m hlaupi karla og 400 m
grindahlaupi kvenna.
I 200 m hlaupinu hljóp Joe DeLo-
ach á 19,96 sekúndum, Carl Lewis
á 20,01 sek en þriðji maðurinn til
að vinna sér sæti á Olympíuleikun-
um var Roy Martin, sem hljóp á
20,05. Albert Robinson fékk sama
tíma en Martin var dæmdur sjónar-
mun á undan. Calvin Smith, sem
tvisvar hefur orðið heimsmeistari,
varð að láta sér lynda 5. sætið á
20,27 og mun því ekki keppa á leik-
unum í 200 m hlaupi. DeLoach
varð frá sér numinn af fögnuði er
sigurinn var í höfn enda ekki á
hverjum degi að menn sigra Lewis.
Reynolds nálægt heimsmeti
400 m hlaup karla var stórkostlegt
einvígi milli Harry Reynolds og
Danny Everett. Ef hlaupabrautin
hefði ekki verið eins blaut og hún
var, má búast við að heimsmetið í
greininni hefði fallið. Það setti landi
þeirra, Lee Evans, á Ólympíuleikun-
um í Mexíkó 1968, 43,86 sekúndur.
Reynolds tókst að sigra með frá-
bærum endaspretti og náði næst-
bezta tíma sem nokkru sinni hefur
verið náð í 400 . m hlaupi, 43,93
sek, aðeins 0,07 sek frá heimsmet-
inu. Everett varð rétt á eftir Reyn-
Úrslit
Úrslit urðu þessi á bandaríska úrtöku- mótinu í fijálsum íþróttum á miðviku- daginn. Þrír efstu keppendumir fryírgðu sér farseðilinn á ÓL í Seoul: 400 m grindahlaup kvenna:
.. 55.29
3. Latanya Sheffied 400 m hlaup karla: .. 55.70 .. 43.93
2. Danny Everett ..43.98
..44.37
..44.61
..44.79
..44.91
..45.37
.. 45.85
200 m hlaup karla: .. 19.96
..20.01
.. 20.05
.. 20.05
.. 20.27
.. 20.42
..20.49
8. Floyd Heard .. 20.64
olds á tímanum 43,98 sek. Það er
§órði bezti tími sem náðst hefur í
greininni frá upphafi. Steve Lewis,
hlauparinn ungi sem náði beztum
tíma í milliriðlunum, tryggði sér
þriðja sætið og farseðilinn til Seoul
með því að hlaupa á 44,37 sek.
Harry Reynolds vann bronsverðlaun
á beimsmeistaramótinu í Róm í
fyrra en er nú í mikilli framför.
Hann var fullur bjartsýni eftir
hlaupið og lýsti því yfir í gaman-
sömum tón, að nú væru 42 sekúnd-
umar innan seilingar.
Methafinn féli út
Schowonda Williams sigraði í 400
m grindahlaupi kvenna á tímanum
54,93 sek. Næstar komu Leslie
Maxie á 55,29 og Latanya Sheffied
á 55,70. Þessar þrjár tryggðu sér
því sæti á Ólympíuleikunum en Judi
Brown King, sem er bandarískur
methafi í greininni, sat eftir með
sárt ennið. Hún náði aðeins fimmta
sæti og var langt frá sínu bezta.
KNATTSPYRNA / BRASILÍA
Brasilíumenn taka
til sinna ráða
Brasilíska knattspymusam-
bandið hefur sett erlendum
félagsliðum stóiinn fyrir dyrnar í
sambandi við kaup á leikmönnum.
Sambandið krefst þess að brasilí-
skir leikmenn sem leika með er-
lendum liðum verði undantekn-
ingalaust frjálsir til þess að mæta
í landsleiki fyrír hönd Brasilíu og
taka þátt í undirbúningi fyrir stór-
mót.
„Héðan í frá munum við ekki
heimila leikmanni að leika erlend-
is, nema að í skriflegum samningi
hans sé ákvæði þessa efnis," sagði
formaður brasilíska sambandsins,
Nabi Abi Chedid á blaðamanna-
fundi nýlega. Hann sagði enn-
fremur að sambandið hefði gripið
til þessa ráðs, þar sem þetta væri
eina leiðin til þess að vernda hags-
muni brasilískrar knattspyrnu.
„Við urðurn að grípa til róttækra
aðgerða. Án þeirra sáum við fram
á erfiðleika með allan undirbúning
landsliðsins fyrir undankeppni
næstu heimsmeistarakeppni,"
sagði Chedid.
Brasilíska landsliðið heldur til
Evrópu á laugardag. Liðið leikur
þijá vináttulandsleiki í ferðinni.
Fyrsti leikurinn er við Noreg 27.
júIL Þaðan fer liðið til Svíðþjóðar
og leikur við heimamenn 31. júlí
og endar á landsleik við Aust-
urríkismenn í V(n 3. ágúst.
Reuter
Joe DeLoach féll á kné frá sér numinn eftir að hafa borið sigurorð af Carl
Lewis í 200 m hlaupi.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Farrell farinn
frá Keflavík
ENSKI leikmaðurirtn Peter
Farrell, sem hefur leikið með
Keflavíkurliðinu tvö sl. keppn-
istímabil, tók poka sinn og
hélt til Englands í gærmorg-
un.
arrell, sem var búinn að missa
sæti sitt í Keflavíkurliðinu,
óskaði eftir því að fá að fara.
„Þegar Farrell sagði okkur að
hann hafi fengið tilboð frá félagi
á Kýpur, sögðum við að hann
mætti fara,“ sagði Kristján Ingi
Helgason, formaður knattspyrn-
uráðs ÍBK, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Farrel hefur lítið sem ekkert
sýnt með okkur í sumar. Hann
kom betur út keppnistímabilið
1987,“ sagði Kristján Ingi.
KNATTSPYRNA / ITALIA
Ósætli hjá Napolí
DIEGO Maradona, fyrirliði arg-
entísku heimsmeistaranna í
knattspyrnu, sem leikur með
ítalska stórliðinu Napoli, er
ekki ánægður með forráða-
menn liðsins þessa dagana.
Maradona kom á fimmtudag
til Ítalíu eftir að hafa eytt
sumarleyfi sínu í Polynesíu. Hann
ræddi við blaðamenn á flugvellinum
í Milan og tók skýrt fram að honum
mislíkaði mjög framkoma stjórnar-
mann Napolí.
Það sem Maradona er helst ósáttur
við er að varnarmaðurinn Salvatore
Bagni, sem hefur verið einn burðar-
ása Napolí síðustu fjögur ár, er
kominn á sölulista. Bagni var í hópi
sextán leikmanna Napolí sem sekt-
aðir voru af aganefnd ítalska knatt-
spyrnusambandsins fyrr í þessum
mánuði. Leikmennirnir réðust að
þjálfara sínum, Ottavio Bianchi,
undir lok síðasta keppnistímabils.
Þeir voru' óánægðir með frammi-
stöðu hans og töldu hann hafa
klúðrað meistaratitlinum. Mara-
dona stóð hins vegar fyrir utan
þessar deilur eins og sönnum fyrir-
liða sæmir.
„Stjórnarmenn Napolí hafa ekki
staðið við orð s!n,“ sagði reiður
Dlego Maradona.
Maradona við blaðamenn. Fyrirlið-
inn var ekki heldur ánægður með
kaup Napolí á brasilíska leikmann-
inum Alemao. „Sem Argentínumað-
ur hefði ég heldur kosið Sergio
Baptista. En Bianchi og Corrado
Ferlaino forseti Napolí, eru þeir sem
völdin hafa. Minn vilji skiptir greini-
lega engu,“sagði Maradona að lok-
um og var greinilega mjög óhress
með gang mála.