Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 56
Uppsagnir hjá Flugleiðum:
Flugfrexjur með til-
lögur sem afstýrt
gætu uppsögnum
Flugvélstjórar færast í störf á jörðu niðri
FLUGFREYJUR leggja fram til-
lögur á fundi með starfsmanna-
stjóra Flugleiða næstkomandi
mánudag um hvernig draga megi
úr fjölda uppsagna vegna sam-
dráttar í Norður-Atlantshafsflugi
félagsins. Tillögurnar byggjast
að sögn Sigurlínar Scheving,
formanns flugfreyjufélagsins, á
víðtækri könnun meðal flug-
freyja um hvort þær vildu
0^ minnka við sig vinnu á komandi
vetri. Segir Sigurlin niðurstöð-
umar, sem kynntar verða starfs-
mannastjóra Flugleiða í dag, vera
á þá lund að jafnvel mætti koma
alveg í veg fyrir uppsagnir. Flug-
menn búast ekki við uppsögnum
að sögn Baldurs Oddsonar, vara-
formanns FIA.
Endanlegur fjöldi uppsagna hjá
Flugleiðum lá ekki fyrir í gærdag
að sögn Más Gunnarssonar, starfs-
mannastjóra félagsins. í skýrslu
^ bandaríska ráðgjafarfyrirtækisins
„Boston Consulting Group" um
rekstur Flugleiða sem lögð var fram
í vor er talið að samdráttur í flugi
til Bandaríkjanna hafi í för með sér
þörf á uppsögnum sex áhafna sem
jafngildir 36 stöðugildum flugfreyja.
Hins vegar hefur í sumar þótt
ástæða til aukinnar bjartsýni, eins
og fram hefur komið i fréttum.
„Síðast þegar ég vissi var rætt um
uppsagnir 26 flugfreyja,“ segir Sig-
urlín Scheving. „Aftur á móti teljum
við að verði farið að tillögum okkar
þyrfti jafnvel ekki að koma til
neinna uppsagna flugfreyja."
„í ljós kom við könnunina að
mjög margar flugfreyjur eru tilbún-
ar að minnka við sig úr fullu starfi
-gp. niður í hálft eða 75% starf, auk
Bretland:
Metverð fyrir
þorskogýsu
þess sem einhveijar vilja taka launa-
laust leyfi um nokkurra mánaða
skeið. Viðbrögð stjómar flugfreyju-
félagsins beinast auðvitað að því að
halda sem flestum félagsmönnum í
vinnu, við viljum þreyja veturinn í
von um bjartara vor,“ segir Sigurlín.
Flugmenn búast ekki við upp-
sögnum að sögn Baldurs Oddsson-
ar, varaformanns Félags íslenskra
atvinnuflugmanna. „Annars vegar
koma til verkefni í leiguflugi," segir
Baldur, „og hins vegar nokkurra
mánaða þjálfun á nýjar Boeing 737
400 vélar Flugleiða sem koma til
landsins næsta vor og verða notaðar
í Evrópuflug. Gert er ráð fyrir að
íslenskur flugmaður, flugstjóri og
flugvélstjóri verði á tveimur vélum
í leiguflugi sænska félagsins Scana-
ir til sólarlanda og að átján til nítján
áhafnir flugmanna verði þjálfaðar á
nýju Boeing vélamar.
Sigurlín Scheving segir það hafa
sýnt sig að uppsagnir hjá Flugleið-
um komi verst niður á flugfreyjum.
Ahafnir flugstjómarklefa fari yfir-
leitt í leiguflugsverkefni eins og nú
standi til en flugfreyjur fái síður
slík verkefni. Hins vegar séu þær
tilbúnar í leiguflug og leggi áherslu
á forgangsrétt sem þær hafa til
þess samkvæmt samningum.
Fulltrúar Flugleiða og Flugvirkja-
félags íslands funduðu í gær að
sögn Odds Pálssonar, formanns FI.
Kveðst Oddur ekki gera ráð fyrir
uppsögnum flugvélstjóra eða flug-
virkja, en uppgangur ungra manna
innan stéttanna verði líklega ekki
mikill hjá Flugleiðum á næstunni.
Hins vegar hafi önnur félög, Arnar-
flug og Flugfélag Norðurlands, aug-
lýst eftir flugvirkjum að undanf-
ömu. Þá segir Oddur ljóst að eitt-
hvað verði um tilfærslur flugvél-
stjóra Flugleiða úr flugstjórnarklef-
um í störf á jörðu niðri, bæði í haust
vegna samdráttar í Ameríkuflugi
og í vor vegna nýrra flugvéla.
Morgunblaðið/Ámi Saebcrg
Jökullón á Breiðamerkursandi
Erlendii1 aðilar sýiia áhuga
á byggingu þriðjaálversins
Fulltrúi Norsk Hydro hefur rætt við íslenska ráðamenn
METVERÐ hefur fengist
fyrir þorsk og ýsu úr skipum
og gámum í Bretlandi í þess-
ari viku, að sögn Sveins H.
Hjartarsonar fulltrúa hjá
Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna.
I Grimsby voni seld 14 tonn
af þorski í gær úr Guðfinnu
Steinsdóttur ÁR iyrir 119,18
króna meðalverð og 31 tonn
af ýsu fyrir 104,68 króna með-
alverð, svo og 18 tonn af þorski
úr Unu í Garði GK fyrir 107,45
króna meðalverð og 20 tonn
af ýsu fyrir 100,60 króna með-
alverð. Seld vom 104 tonn af
þorski úr Berki NK í Grimsby
sl. þriðjudag og miðvikudag
fyrir 102,17 króna meðalverð,
20 tonn af ýsu fyrir 106,72
króna meðalverð og 22 tonn
af kola fyrir 77,94 króna með-
alverð.
Seld vom 50 tonn af þorski
úr gámum í Bretlandi sl. mið-
vikudag fyrir 107,14 króna
meðalverð, 51 tonn af ýsu fyrir
94,96 króna meðalverð og 18
tonn af kola fyrir 75,28 króna
meðalverð.
SVO VIRÐIST sem talsverður
áhugi sé á byggingu annars ál-
vers hérlendis en þess sem
áformað er við Straumsvík. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins var sérstakur fulltrúi frá
norska fyrirtækinu Hydro AI-
uminium, sem er hluti af Norsk
Hydro-samsteypunni, staddur
hérlendis fyrir nokkru og átti
þá viðræður við ráðamenn um
hugsanlega þátttöku fyrirtækis-
ins í byggingu álvers hér á landi.
Sem kunnugt er af fréttum
Morgunblaðsins um fyrirhugaða
byggingu nýja álversins í
Straumsvík var haft samband við
mun fleiri aðila á þessu sviði en þá
Ijóra sem nú vinna að hagkvæmnís-
könnun fyrir álverið. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins sýndu
flögur önnur fyrirtæki því áhuga
að vera með í viðræðunum um ál-
verið í Straumsvík. Þessi fyrirtæki
eru, auk Hydro Aluminium, Alumax
í Bandaríkjunum, Aluminia spa. á
Ítalíu og Essenbau-Essen í Þýska-
landi. Hið síðastnefnda mun vera
hluti af MAN-samsteypunni.
Fyrirtækjunum fjórum sem nú
vinna að hagkvæmniskönnuninni
var hinsvegar veittur forgangur að
verkefninu í Straumsvík auk þess
sem þau voru innbyrðis sátt við
samstarfsaðilana. Morgunblaðið
hefur fyrir því heimildir að líklegt
sé talið að úr hópi álfyrirtækjanna
sem vinna að könnuninni og þeirra
sem ekki komust að geti risið sam-
starfshópur um uppbyggingu nýs
álvers annarsstaðar á landinu. Hef-
ur þátttaka í síðara verkefni um
uppbyggingu álvers á Norður- eða
Austurlandi þegar verið orðuð við
fulltrúa Hydro Aluminium. For-
senda þess að af slíkum samstarfs-
Rafmagnslaust varð í Hval-
firði um tveggja stunda skeið
siðdegis í gær. Háspennulína
slitnaði er vörubílspallur rakst í
hana þegar verið var að sturta
ofaníburði af palli bilsins á veg-
arkafla milli Olíustöðvarinnar og
Bjarteyjarsands. Hvorki varð
hópi geti orðið er að vel takist til
um fyrirhugað álver í Straumsvík.
Það sem liggur til grundvallar
þessu er m.a. að þau fyrirtæki sem
vinna að framangreindri könnun
eru öll í þeirri aðstöðu að þurfa
allmiklu meira ál til úrvinnslu en
þau fengju frá Straumsvík.
tjón á mönnum né munum.
Rafmagn fór af svæðinu frá
Hvalfjarðarbotni og allt inn að
Akranesi, að sögn Jakobs Skúlason-
ar rafveitustjóra Rarik í Borgarnesi
og stöðvaðist vinna í Hvalstöðinni
uns viðgerð hafði farið fram.
Hvalfjörður:
Vörubíll sleit raflínu