Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 Washington-f erð f orsætisráðherra: Þorsteinn skoðar flotastöðina í Norfolk ÞORSTEINN Pálsson, forsætis- ráðherra, leggxir af stað í opin- bera heimsókn til Washington 7. ágúst næstkomandi, en heim- sóknin hefst formlega tveimur dögum síðar. Dagskrá forsætisráðherra í ferðinni er ekki fullmótuð en þó er ljóst að hann mun eiga fund með Frank Carlucci, vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna, og Ron- ald Reagan, Bandaríkjaforseta. Þá hefur verið ákveðið að Þor- steinn Pálsson skoði flotastöð Atl- antshafsbandalagsins í Norfolk meðan á heimsókninni stendur. Þorsteinn Pálsson flýgur ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Rafn- ar, til New York 7. ágúst og til Washington tveimur dögum síðar. Heimsókninni lýkur 12. ágúst. Gert er ráð fýrir að í fylgd með forsætisráðherra verði aðstoðar- maður hans, Jónína Michaelsdótt- ir, Geir Haarde, alþingismaður, Guðmundur Benediktsson, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Helgi Agústsson, skrifstofustjóri og yfirmaður alþjóðadeildar ut- anríkisráðuneytisins, og Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri vamar- málaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins. Allir kom- ast í fram- haldsskóla VEGNA fréttar Morgunblaðsins í gær um að nemendum hefði verið vísað frá framhaldsskól- um vildi menntamálaráðuneytið taka skýrt fram, til að forðast misskilning, að allir framhalds- skólanemar hefðu fengið inni. Sólrún Jensdóttir, skrifstofu- stjóri skólamálaskrifstofu mennta- málaráðuneytisins, sagði að það væri rétt að ekki hefðu allir fram- haldsskólanemar fengið inni í þem skólum sem þeir hefðu óskað eftir að komast í, en þeim hefði þá verið tryggð skólavist annars stað- ar. „Það er nokkuð algengt að nemar vilji t.d. komast í Mepnta- skólann í Hamrahlíð, en vegna plássleysis verði þeir að láta sér lynda að fara í aðra skóla, því þeir ganga fyrir sem búa í hverf- inu hjá skólanum," sagði Sólrún. „Til að forðast allan misskilning vil ég taka fram að það hefur engum verið neitað um skólavist í framhaldsskólum. “ Á kortinu má sjá Borgarholtshverfi en þar verður um 10.500 til 12.500 manna byggð. Gert er ráð fyrir að fyrstu lóðimar komi til úthlut- unar næsta vor og verða þær á svæði 1. Samtimis fer fram úthlutun á athafnasvæði vestar sem merkt er 5. Síðar verður lóðum á svæði 2 úthlutað og loks á svæði 3. Eins og sjá má er fyrirhugað að lengja veginn um Gulhnbrú yfir i Geldinganes, sem merkt er 4, en ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um fyrirhugað skipulag þar. Neðst til hægri á kortinu má sjá Vesturlandsveginn. Reykjavík: Undirbúmngur hafinn að skipu- lagningu þriggja íbúðahverfa REYKJAVÍKURBORG mun á næsta vori úthluta byggngalóð- um i Borgarholti ofan við byggð- ina í Grafarvogi og er skipulags- vinna þegar hafin. Nýja hverfið íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík: Háskasigling niður Hvítá FÉLAGAR úr íþróttafélagi fatl- aðra i Reykjavík siglaá morgun, mánudag, með félögum úr Nýja ferðaklúbbnum niður Hvítá í Amessýslu. Farið verður á tveimur bátum og verða um 10 fatlaðir einstaklingar með í för, flestir í hjólastólum. Tilgangur siglingarinnar er að safna áheit- um til byggingar íþróttahúss fatlaðra við Hátún 12 í Reykjavík. Félagar í ÍFR hafa frá því á fimmtudag ferðast með Fombíla- klúbbi íslands frá Reykjavík til Akureyrar og safnað áheitum. Það fé sem safnast mun notað til að gera iþróttahús fatlaðra við Hátún fokhelt. Nú þegar hefur verið lokið við grunn hússins, en betur má ef duga skal. Húsnæðisleysi hefur háð starfsemi ÍFR um árabil. Um þess- ar mundir er æft á sex til sjö stöð- um í borginni en þátttaka í íþróttum fatlaðra er mjög góð. Útvarpsstöðin Stjaman mun fylgjast með siglingunni og verður áheitum safnað í síma 21076 á milli klukkan 13.00 og 17.00 og í síma 25097 frá klukkan 9.00 til 13.00 og 17.00 til 22.Q0. er 232 hektarar að stærð og mun stærra en núverandi Grafarvogs- hverfi. Nær það frá Foldahverfi að Leiruvogi og með ströndinni í landi Korpúlfsstaða að Mosfells- bæ. Þvi er skipt í þijá hluta og fer úthlutun fram í áföngum á næstu árum. Gert er ráð fyrir tveimur athafnasvæðum innan hverfisins. Þegar hefur verið ákveðið að halda samkeppni um skipulag í Geldinganesi og er reiknað með, að niðurstöður liggi fyrir að ári. Að sögn Þorvaldar S. Þorvalds- sonar forstöðumanns borgar- skipulagsins, er fyrirhugað byggingarland í Geldinganesi, jafn stórt og gamli miðbærinn innan Hringbrautar að Snorra- braut. Hjörleifur Kvaran framkvæmda- stjóri lögfræði- og stjómsýsludeild- ar, sagði að nfier allar lóðir, sem komu til úthlutunar í Grafarvogin- um í vor, væm gengnar út, en ár- lega er úthlutað milli 500 til 600 lóðum undir íbúðarhús í borginni. „Við verðum að hafa eitthvað land byggingarhæft á næsta ári og er gert ráð fyrir að fyrsti áfangi í hverfi I verði tilbúinn til úthlutunar næsta vor en síðan taki hver áfang- inn við af öðrum,“ sagði Hjörleifur. Arkitektamir Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson eru skipuleggj- endur að hverfi I og III. Hverfi I er samtals 77 hektarar að stærð og er gert ráð fyrir að það rúmi um 1.100 til 1.200 íbúðir í bland- aðri byggð fjölbýlis- og einbýlishúsa og að íbúar verði um 3.500 til 4.000. Hluti svæðisins er t eigu Pósts og síma, þar sem Gufunes- stöðin er og standa yfir samninga- viðræður við borgaryfirvöld um framtíð stöðvarinnar að sögn Hjör- leifs. Það land mun því koma til úthlutunar síðar. Samhliða fyrsta áfanga í hverfi I, kemur athafnahverfið vestar til úthlutunnar og er Einar V. Tryggvason arkitekt, skipulags- höfundar að því. Hann skipuleggur einnig athafnahverfið austar í Borgarholtinu, sem kemur til útr hlutunar um leið og hverfi III. Skipulagshöfundar að hverfi II eru arkitektamir Egill Guðmunds- son og Þórarinn Þórarinsson en það hverfi er um 90 hektarar að stærð. Þar er gert ráð fyrir um 1.300 til 1.400 íbúðum í blandaðri byggð fyölbýlis og einbýlishúsa með um 4.000 til 5.000 íbúum. Hverfið ligg- ur að sjó en samkvæmt skipulagi verður ekki byggt alveg við strönd- ina. Hverfi III kemur síðast til úthlut- unar en það er 65 hektarar að stærð og er þar gert ráð fyrir um 1.000 til 1.050 íbúðum með um 3.000 til 3.500 íbúum. Landið liggur með ströndinni að Mosfellsbæ og Korp- úlfsstöðum. e> INNLENT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.